Morgunblaðið - 27.07.2002, Side 29

Morgunblaðið - 27.07.2002, Side 29
HEILSA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 29 Halló. Mig langaði að vita hvað hefur verið sagt um rítalín-lyfjameðferð á börnum sem greind hafa verið með ofvirkni. Ég hef einhvers staðar heyrt einhverja gagnrýni á notkun lyfsins. Er rétt að nota þetta lyf? SVAR Það getur verið erfitt að svaraþessari spurningu . Mismunandi svör eru eftir því hvernig við skoðum málið og mismunandi svör eru eftir því hver svarar. Það er hinsvegar ljóst að við þurfum alltaf að vera gagnrýnin þegar ákveðið er að gefa börnum og unglingum lyf og þar af leiðandi er sérstaklega mikilvægt að skoða hvort um sé að ræða fleiri meðferðarmöguleika. Rítalín og önnur amfeta- mínskyld lyf hafa hingað til verið algengasti valkosturinn til meðhöndlunar á börnum sem hafa greinst með ofvirkni og athyglisbrest. Ár- angurinn hefur líka virst vera nokkuð góður af þesskonar lyfjameðferð. Það er hinsvegar hægt að skoða þann árangur nánar. Þó að við sjáum árangur af þessari meðferð er alltaf um það bil 30% barna og unglinga sem lyfin virka ekki á og ber því að finna aðrar meðferð- arleiðir. Önnur gagnrýni tekur á þeirri stað- reynd að þrátt fyrir að lyfin bæti einbeitingu og geri þar af leiðandi skólum og foreldrum auðveldara að eiga í samskiptum við börnin, hefur ekki tekist að sjá betri árangur í formi námsárangurs þegar til lengri tíma er litið. Það er óhjákvæmilegt að skoða gagnrýni á lyfjameðferðina án þess að velta fyrir sér sjálfri greiningunni. Það má segja um ofvirkni og athyglisbrest, eins og margar aðrar grein- ingar, að þær verða „vinsælar“ og tölur um al- gengi hækka . Í Bandaríkjunum hefur komið í ljós að mikill mismunur er milli mismunandi borga og skóla um hversu hátt hlutfall barna hefur fengið þessa greiningu og þiggur því rít- alín-meðferð. Það er, í sumum borgum og skól- um í Bandaríkjunum greinast allt að 20% barna með ofvirkni og athyglisbrest en annars staðar fer hlutfall barna sem fá þessa sömu greiningu niður í 2%. Við Íslendingar höfum kannski ekki farið eins langt í þessum efnum eins og Bandaríkja- menn en við erum, að mínu mati, allt of fljót að greina ærslafull börn eða börn sem eiga erfitt með nám ofvirk og/eða með athyglisbrest. Að hluta til vegna þess að krafan um árangur er orðin meiri í menntakerfinu og námsskrá skóla byggist oft mikið á þörfum heildarinnar frekar en þörfum einstaklingsins innan heildarinnar. Það er einn þáttur sem mikilvægt er að skoða þegar huga á að rítalín-lyfjagjöf, sér- staklega í ljósi þess að við erum ekki aðeins að meðhöndla börn með rítalíni heldur einnig unglinga og fullorðna, og það er misnotkun á lyfjunum. Það er alltaf ákveðinn hópur fólks, með ofvirkni og athyglisbrest, sem þróar með sér vímuefnavanda á unglingsárum. Þó svo að það séu dæmi þess að einstaklingur, sem á sögu um að misnota vímuefni (t.d. amfetamín), misnoti ekki rítalínið sitt, er mun algengara að einstaklingurinn muni misnota lyfjagjöfina sína. Þessvegna eru aðrar meðferðir eins og sálfræðileg meðferð alltaf betri kostur hjá ein- staklingum sem eiga við eða hafa átt við vímu- efnavandamál að stríða. Innan skóla og á heimilum er mikilvægt að nýta aðrar meðferðarleiðir við athyglisbrest og ofvirkni, hvort sem það er samhliða rítalín- lyfjagjöf eða ekki. Þetta eru meðferðarform eins og atferlismótun og foreldraþjálfun. Í for- eldraþjálfun eru foreldrar þjálfaðir upp í að styrkja ákveðna æskilega hegðun og draga úr óæskilegri hegðun. Þessar leiðir hafa gefið góða raun og sýna meðal annars árangur í að auka félagsfærni, auka jákvæð samskipti, og auka trú barnanna á sjálf sig. Ég tel að við þurfum ávallt að vera gagn- rýnin og á varðbergi gagnvart lyfjameðferð við heðgunarvanda og sálrænum vanda barna og unglinga og leggja áherslu á að skoða aðra val- kosti. Einnig tel ég að mikilvægt sé að leggja ekki ofuráherslu á að börn, jafnt sem aðrir, fái endilega greiningu heldur að leggja áhersluna á að skoða vandann vel og reyna í sameiningu að finna bestu lausnina fyrir barnið eða ein- staklinginn sjálfan. Gangi þér vel. Ofvirkni og lyf eftir Björn Harðarson Ég tel að við þurfum ávallt að vera gagnrýnin og á varðbergi gagnvart lyfjameðferð við hegðunarvanda og sálrænum vanda barna og unglinga og leggja áherslu á að skoða aðra valkosti ... og reyna í samein- ingu að finna bestu lausnina fyrir barnið eða einstaklinginn. ........................................................... persona@persona.is Höfundur er sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Lesendur Morg- unblaðsins geta komið spurn- ingum varðandi sálfræði-, fé- lagsleg og vinnu- tengd málefni til sérfræðinga á vegum persona.is. Senda skal tölvupóst á persona@per- sona.is og verður svarið jafn- framt birt á persona.is. OF LANGAN tíma tekur fyrir fólk með fyrstu einkenni Alzheim- er að fá sjúkdómsgreiningu og meðferð, stundum allt að tvö ár, en karlmenn eru greindir mun fyrr með sjúkdóminn en konur. Skýringin á því er sú að konur taka mun fyrr eftir fyrstu ein- kennum og hvetja karla sína til þess að leita sér lækninga. Þetta kom fram á Newsday sl. miðviku- dag en á alþjóðlegri ráðstefnu um Alzheimersjúkdóminn í Stokk- hólmi í liðinni viku, vakti banda- rískur yfirlæknir athygli á á þessu og vitnaði í rannsókn Long Island Alzheimer-stofnunarinnar þar sem 100 pör tóku þátt. Leita á hjálpar fyrr en seinna, ef eitt til tvö ár líða án þess að nokkur meðferð hefjist, er mun erfiðara að halda sjúkdómnum niðri, að sögn yfirlæknisins. Ef rétt lyf eru tekin nógu snemma getur það haft í för með sér betra minni, og meiri möguleika á að sinna daglegum verkum, segir hann ennfremur. Hollustufæði minnkar líkurnar Alzheimersjúkdómurinn er al- gengur en er ekki nauðsynlegur fylgifiskur ellinnar. Hætta á sjúk- dómnum er um 1% við 65 ára ald- ur en tvöfaldast eftir það á fimm ára fresti. Við 85 ára aldur er talið að helmingur fólks beri merki um andlega hrörnun eða vitglöp, segir jafnframt í Newsday. Á ráðstefnunni kom einnig fram að minni hætta er á að þeir sem borða fitusnauða fæðu og borða mikið af ávöxtum, grænmeti, fiski og heilkorni veikist af þessum sjúkdómi. Alzheimersjúk- dómurinn ekki greindur nógu snemma Karlar eru fyrr sjúkdómsgreindir með Alzheimer en konur. KONUR sem hafa börn sín á brjósti eru í minni hættu á að fá brjósta- krabbamein en þær sem gefa ekki brjóst. Greint er frá þessu í nýjasta hefti læknatímaritsins Lancet. Þar er sagt frá niðurstöðum stórrar rannsóknar sem byggð er á gögnum 47 rannsókna sem gerðar voru á um 150.000 konum, í 30 löndum þar á meðal Íslandi en hér var rannókn unnin á vegum Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands. Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknarinnar sem kölluð er ofur- greining er best að hafa börnin lengi á brjósti en því lengur sem mæður gefa brjóst því minni hætta er á brjóstakrabbameini. Hlutfallsleg áhætta á brjóstakrabbameini minnk- ar þannig um 4,3% fyrir hverja tólf mánuði sem gefið er brjóst. Þá kemur einnig fram að brjósta- krabbamein er fremur fátítt í þróun- arlöndunum og að það tengist mjög barneigna- og brjóstagjafamynstri. Meðaltímalengd brjóstagjafar á hvert barn þar er 2 ár, skv. upplýs- ingum í Lancet. Einnig kemur fram að hjá hvítum konum Bandaríkjunum er nýgengi brjóstakrabbameins hæst í heimin- um. 160 konur greindar hér árlega Nýgengi er hátt hér á landi en ár- lega greinast um 160 konur með brjóstakrabbamein á Íslandi. Það er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og hefur nýgengið tvöfaldast á tæpum fimmtíu árum, að sögn Laufeyjar Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Krabbameins- skrár Krabbameinsfélags Íslands, en hún var í forsvari fyrir íslensku rannsókninni. „Ástæður fyrir þessari aukningu eru ekki ljósar. Líklegt er þó talið þær tengist aukinni velmegun. End- urspeglast hún meðal annars í lækk- andi meðalaldri við upphaf tíðablæð- inga hjá íslenskum konum á síðustu öld. Vitað er að lækkunin hefur áhrif til aukningar brjóstakrabbameins og annar áhrifavaldur er að nú fæðast færri börn á hverja konu en áður.“ Ef niðurstöður ofurgreiningarinn- ar væru lauslega yfirfærðar á Ísland segir Laufey að vænta mætti 5% fækkunar á árlega greindum brjóstakrabbameinstilfellum sé mið- að við lengingu brjóstagjafartíma- bils um 6 mánuði á hverja konu. Mið- að við 12 mánaða lengingu brjóstagjafar mætti hins vegar vænta 11% fækkunar. Mikilvægt er að mati Laufeyjar að nú hafi verið staðfest að brjóstagjöf dragi úr hættu á brjóstakrabba- meini. „Brjóstagjöf er einn af fáum þekktum áhrifaþáttum þessa al- genga sjúkdóms sem nota mætti til forvarna. Hér hefur því bæst við enn ein ástæða til að hvetja konur til brjóstagjafar, sem er eins og kunn- ugt er góð og mikilvæg bæði fyrir barn og móður.“ Verndandi áhrif sterkari gagnvart ungum konum Niðurstöður rannsóknar vísinda- manna hjá Krabbameinsfélagi Ís- lands birtust í vísindaritinu Americ- an Journal of Epidemiology árið 2001 og vöktu athygli þar sem um er að ræða stóra faraldsfræðilega fer- ilrannsókn sem er ein sú fyrsta slíkr- ar gerðar til að sýna fram á vernd- andi áhrif brjóstagjafar, að sögn Laufeyjar. Hún byggðist á upplýs- ingum kvenna sem tekið hafa þátt í leitarstarfi Krabbameinsfélagsins. Í ljós kom að verndandi áhrif brjósta- gjafar reyndust sterkari gagnvart brjóstakrabbameini í ungum konum en eldri konum. Einnig kom fram að meðaltímalengd brjóstagjafar á barn styttist jafnt og þétt á fyrri hluta síðustu aldar. Hún var fjórir mánuðir hjá konum sem fæddust á árunum 1903 til 1919, 3,3 mánuðir hjá konum sem fæddust á árunum 1920 til 1929 og og 2,7 mánuðir hjá konum sem fæddust á árunum 1930– 49. Vart varð við aukningu aftur hjá konum sem fæddust 1950–67 þar var meðaltímalengdin 4,4 mánuðir. Börn lengi á brjósti í þróunarlöndum Hver kona í löndum Afríku og As- íu eignast að meðaltali um 6–7 börn og tímalengd brjóstagjafar á hvert barn er um tvö ár hjá konum sem búa til sveita. Heildarlengd brjósta- gjafar er því að meðaltali 13 ár, hjá hverri konu, að því er kemur fram í Lancet. Til samanburðar eru ís- lenskar konur samkvæmt rannsókn- inni með börn sín samanlagt á brjósti í 11,3 mánuði sem er ívið hærra en meðaltal kvenna almennt í iðnríkj- um, sem er 8,7 mánuðir. Hér á landi er einnig afar sjaldgæft að konur hafi börn sín ekkert á brjósti en í Bandaríkjunum er það um helming- ur kvenna, að sögn Laufeyjar. Á hin- um Norðurlöndunum og í Japan eru það um 10% kvenna. Talið er ólíklegt að konur annars staðar í heiminum myndu feta í fót- spor kynsystra sinna í þróunar- löndum, en hugsanlegt er að finna lyf sem geta líkt eftir áhrifum brjósta- gjafar. Einnig er í greininni bent á að það að lengja heildartímann þó ekki væri nema um 6 eða 12 mánuði sam- anlagt hafi umtalsverð verndandi áhrif. Morgunblaðið/Jim Smart Hlutfallsleg hætta á brjóstakrabbameini lækkar um 4,3% fyrir hverja þrjá mánuði sem gefið er brjóst. Brjóstagjöf dregur úr hættu á brjóstakrabbameini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.