Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 38
UMRÆÐAN
38 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LÝSINGARORÐIÐ ein-breiður fer í taugarnar áumsjónarmanni. Hannætlar sér því að leyfa sér
að nöldra svolítið yfir því, þrátt fyr-
ir að það sé gott og gilt orð í íslensk-
unni og dæmi séu um það í ritmáls-
skrá Orðabókar Háskólans. Hins
vegar fundust engin dæmi um það á
heimasíðu Íslenskrar málstöðvar. Í
stað þess að segja einbreiður vill
umsjónarmaður segja mjór eða
þröngur. Til dæmis mjór eða
þröngur vegur, eftir því hvernig
hann liggur. Orðnotkunin einbreið
brú pirrar umsjónarmann verulega
og vill hann heldur segja þröng brú
eða hættuleg brú. Ef talað er um
einbreiða brú, yrði tveggja akreina
brú þá ekki að vera tvíbreið? Um-
sjónarmaður er viss um það að
Vegagerðin sé honum sammála
þegar hann segist vilja útrýma ein-
breiðum brúm.
Dæmin í ritmálsskrá Orðabókar
Háskólans eru frá 19. og 20. öld og
er orðið þá notað um vefnað og vað-
mál. Elstu dæmin eru frá miðri 19.
öldinni úr Bunadar-Riti Sudur-
Amtsins Húss- og Bú-stjórnar Fé-
lags I–II, sem gefið var út í Viðey
árin 1839–1846. Þar kemur fyrir
tvívegis: einbreidt frekjuvadmál,
illa tætt. Undir aldamótin 1900 eru
tvö dæmi úr Fjallkonunni um Karl-
manns fatatau tvíbreitt á 1,25–1,90
alinina, einbreitt, 65 au.
Úr Ísafold eru dæmin einnig tvö.
Tvisttau, einbreitt og tvíbreitt.
Loks er að nefna bók Halldóru
Bjarnadóttur um vefnað á íslensk-
um heimilum, en hún kom út árið
1966. Þar er sagt frá vefstólum,
sem voru ýmist einbreiðir eða tví-
breiðir: Hér voru víða tvíbreiðir
vefstólar, en margir létu breyta
þeim í einbreiða og flestir voru vef-
stólar þessir einbreiðir, nema þar
sem ofin voru brekán og áklæði.
Í Húnavöku frá árinu 1961 segir:
Vefstóll var keyptur 1933 […]
Hann var einbreiður og gamall en
gegndi vel sínu hlutverki.
Alls eru dæmin í ritmálssafninu
11 og er ekkert yngra en frá sjö-
unda áratug síðustu aldar. Það er
reyndar merkilegt, því örugglega
hafa dagblöðin greint frá árekstr-
um á einbreiðum brúm árum sam-
an.
– – –
Á öðru orði hefur umsjón-
armaður dálæti. Það er hundaklyf-
beri. Þetta er
sérstakt orð og í
fyrstu illskilj-
anlegt, því aldr-
ei hafa Íslend-
ingar notað
klyfbera á
hunda. Þegar
leitað var í rit-
málsskrá Orðabókar Háskólans
komu upp tvö dæmi um þetta
merkilega orð. Bæði komin frá
Halldóri Laxness. Annað dæmið er
í þýðingu hans á Fjallkirkju Gunn-
ars Gunnarssonar og hitt úr Heims-
ljósi Halldórs. Orðið er að finna í
Orðabók Menningarsjóðs en ekki
hjá Sigfúsi Blöndal. Í Orðabók
Menningarsjóðs er orðið sagt notað
í niðrandi merkingu og í dæmum
ritmálssafns Orðabókar Háskólans
má glöggt sjá að sú er merking
orðsins. Í Fjallkirkjunni segir: Hæ,
hæ – hundaklyfberi, lúðulaki, lufsa.
Og í Heimsljósi lýsti stassjónistinn
yfir því að hann þyldi ekki þennan
hundaklyfbera nálægt sér.
En hvaðan er þetta skrítna orð
komið? Umsjónarmaður minnist
þess að hafa heyrt um að minnsta
kosti eina skýringu á því og ætterni
þess. Líklega má rekja söguna að
einhverju leyti til aldamótanna
1900. Þá bárust þau tíðindi til Ís-
lands að í Danmörku væru til menn
sem hefðu af því atvinnu að klippa
hunda og væri starfsheiti þeirra á
dönsku því hundeklipper. Þetta
þótti Íslendingum með endemum
auvirðilegur starfi, enda hundar
ekki klipptir á Fróni. Það hlytu að
vera algjörir lúðulakar, sem stund-
uðu slíka vinnu. Orðið hundeklipper
lagaði sig svo að íslenskunni og
varð að hundaklyfbera og merking
þess var landeyða, aumingi eða
ræfill. Því miður virðist þetta sér-
kennilega orð vera að hverfa úr
málinu.
– – –
Þór Jónsson, fréttamaður á Stöð
tvö, fær hrós fyrir málnotkun, þeg-
ar hann fyrir nokkru skreytti texta
sinn með verkfærisþágufalli eða
ablativus instrumentalis eins og
það heitir á latínu. Þór sagði þá frá
konu sem var ákærð fyrir að stinga
mann hnífi.
Í auglýsingum að undanförnu
hefur borið á einkennilegri mál-
notkun. Símafyrirtæki auglýsti að
mínútugjald væri 0 krónur og í
auglýsingu frá bílaumboði er talað
um 0% vexti. Líklega halda þeir,
sem auglýsingarnar gera, að núllið
gangi betur í fólk heldur en að
segja að vextir séu engir, lánið
vaxtalaust og ekkert mínútugjald
sé tekið eða að símtalið sé ókeypis.
Í dagblaði var fyrir nokkru sagt
að skólinn samanstæði af miklum
byggingum. Þar var hægt að gera
miklum mun betur. Húsakostur
skólans er einfaldlega annaðhvort
mikill eða góður. Að nota orðið
samanstendur þarna er óttalega
klúðurslegt.
lýsti stassjón-
istinn yfir því
að hann þyldi
ekki þennan
hundaklyfbera
nálægt sér
hjgi@mbl.is
ÍSLENSKT MÁL
Eftir Hjört Gíslason
ÞAÐ hefur vafa-
laust ekki farið
framhjá neinu foreldri
að klámvæðing hefur
á undanförnum árum
verið í algleymingi
hérlendis. Endalaus
skilaboð um hvað
kynlíf er berast í
gegnum sjónvarps-
stöðvar víða að úr
heiminum, frá Inter-
netinu, í kvikmynda-
húsum, á myndbönd-
um, í tímaritum,
tónlist, á nektardans-
stöðum og svona
mætti lengi telja.
Þessar upplýsingar
eru því miður oftast bæði villandi
og fordæmandi, sérstaklega í garð
kvenna. Lögð er ofuráhersla á
tæknileg atriði í kynlífi á kostnað
tilfinninga, virðingar og tillitssemi.
Unglingar eiga oftast mjög auð-
veldan aðgang að þessari afskræm-
ingu veruleikans. Hún yfirgnæfir
upplýsingar um eðlilegt og heilbrigt
kynlíf og gefur því unglingum
brenglaða mynd af því hvað raun-
verulegt kynlíf ætti að vera.
Hvað með kynheilbrigði
unglinga?
Er það e.t.v. í góðu lagi þrátt fyr-
ir allt? Samanburður á tölulegum
upplýsingum frá Íslandi annars
vegar og Norðurlöndunum hins
vegar veldur miklum áhyggjum.
Fjöldi fæðinga meðal 15–19 ára
stúlkna er tvisvar til þrisvar sinnum
meiri hér á landi en á hinum Norð-
urlöndunum. Samt fer helmingur
þeirra sem verða ófrískar í fóstur-
eyðingu. Hér á landi er hæsta tíðni
fóstureyðinga hjá ungum konum á
aldrinum 15–19 ára á Norðurlönd-
unum. Á meðan fóstureyðingum
hefur farið fjölgandi á Íslandi 1976–
1998 hefur tíðni fóstureyðinga á
Norðurlöndunum og í hinum vest-
ræna heimi farið lækkandi. Klam-
ydíusýking er einnig mest hér og
hefur aukist frá árinu 1995. Árið
2001 greindust 2.146 með klamydíu
og var hún langalgengust í yngsta
aldurshópnum. Þetta eru bara tölu-
legar upplýsingar en við erum í
raun að tala um líf og velferð
barnanna okkar. Afleiðingar þessa
raunveruleika geta haft varanleg
áhrif á heilsufar og félagslega stöðu
þeirra sem fyrir þeim verða.
Hvað getum við
foreldrar gert?
Við getum verið öflugt mótvægi
við þær villandi upplýsingar og
þann mikla kynlífsþrýsting sem á
sér stað í þjóðfélaginu í dag og leið-
beint börnunum okkar á þessu
sviði. Við höfum sem oftast sjálf
mikla reynslu í þessum málum og af
miklu að miðla. Ef ekki er alltaf
hægt að afla sér upplýsinga um
þessi mál. Þegar við tölum við börn-
in okkar getum við haft eftirfarandi
í huga: Verum til taks til þess að
ræða við þau þegar þau leita til
okkar með spurningar um kynlíf
eða sem tengjast kynlífi. Verum
einlæg og reynum að svara þeim út
frá þeirra þroska og skilningi. Töl-
um við þau, ekki til þeirra. Dæmum
þau ekki, því þá getum við misst
traust þeirra. Hver og einn ungling-
ur á að finna sjálfur hvenær hann
er tilbúinn til að hefja kynlíf og
hann þarf að vita að hann tapar
ekkert á því að bíða. Kynlíf á aldrei
að geta átt sér stað vegna þrýstings
frá öðrum eða til að þóknast öðrum.
Það er því mikilvægt að geta verið
tillitssamur, en geta líka sagt nei.
Könnun hér á Íslandi árið 1992
sýndi að rúm 50% höfðu haft sín
fyrstu kynmök 15 ára gömul. Lík-
amlegur þroski einn og sér er ekki
nægjanlegur mælikvarði til þess að
hefja kynlíf. Það þarf líka að hafa
tilskilinn tilfinningalegan og fé-
lagslegan þroska til þess að geta
hlúð að því á réttan hátt. Í kynlífi er
mikilvægt að vera ábyrgur bæði
gagnvart sjálfum sér og hinum að-
ilanum. Til þess að vera það verða
báðir aðilar að vera færir um að
ræða saman þau skref sem þeir
vilja stíga og hvernig þeir vilja
tryggja öryggi sitt. Á þann hátt
geta þeir m.a. komið í veg fyrir
kynsjúkdóma og ótímabærar þung-
anir. Jafnrétti í kynlífi er líka mik-
ilvægt og eiga báðir aðilar alltaf að
eiga kost á því að geta notið þess til
jafns við hinn aðilann.
Foreldrar þurfa ekki að óttast að
umræður við börn og unglinga
hvetji þau til þess að hefja kynlíf
fyrr en ella, því rannsóknir hafa
einmitt sýnt hið gagnstæða. Um-
ræður um kynlíf verða til þess að
unglingar byrja seinna að stunda
kynlíf og nota frekar getnaðarvarn-
ir þegar þeir byrja. Með auknum
aldri öðlast þeir aukinn þroska til
þess að sinna kynlífi á ábyrgari og
ánægjulegri hátt. Best er að koma
réttum viðhorfum um kynlíf til
barna áður en þau verða unglingar.
Foreldrar eru mikilvægir!
Best væri að margir gætu snúið
bökum saman til þess að leggja
þessu málefni lið. Það er t.d. hægt
að gera með því að bæta kyn-
fræðslu í skólum, hafa aðgengilega
þjónustu um getnaðarvarnir og
leggja áherslu á markvisst og
margþætt forvarnarstarf og
fræðslu um kynlífs- og frjósemis-
heilbrigði. En það þarf líka vitund-
arvakningu í þjóðfélaginu öllu, að
opna og efla umræðuna um þessi
mál. Við höfum trú á því að hér get-
um við sem erum foreldrar eða for-
ráðamenn barna okkar komið að
góðu gagni. Við getum breytt skað-
legri þögn í upplýsingar og umræðu
og þannig lagt okkar af mörkum til
þess að bæta kynheilbrigði og vel-
líðan barna okkar hér á landi. Við
þurfum bara að hafa trú á því að við
getum þetta og vilja til þess að
framkvæma. Óskist nánari umræða
eða fræðsla um þetta efni á for-
eldrakvöldum í skólum eða annars
staðar hikið þá ekki við að hafa
samband við undirritaðar.
Foreldrar
skipta máli!
Sigurlaug
Hauksdóttir
Bergþóra er framkvæmdastjóri
SAMFOK. Sigurlaug er yfirfélags-
ráðgjafi hjá Landlæknisembættinu.
Kynlíf
Foreldrar geta verið
öflugt mótvægi við þær
villandi upplýsingar og
þann mikla kynlífs-
þrýsting sem á sér stað í
þjóðfélaginu í dag, segja
Bergþóra Valsdóttir
og Sigurlaug Hauks-
dóttir, og leiðbeint
börnum sínum.
Bergþóra
Valsdóttir
FYRIRSÖGN þessa
greinarstúfs er sú ein-
kunn sem Ragnar Arn-
alds, formaður Heims-
sýnar, hreyfingar
sjálfsstæðissinna í Evr-
ópumálum, gefur ör-
stuttum pistli sem rit-
aður var á vef Samtaka
iðnaðarins hinn 10. júlí
sl. um samninga milli
Möltu og ESB.
Deilt á Möltu
Andstæðingar aðild-
ar Möltu að ESB hafa
gagnrýnt niðurstöð-
urnar í sjávarútvegs-
málum eins og raunar
niðurstöður allra þeirra 22 samn-
ingskafla sem Malta hefur þegar lok-
ið. Stjórnarandstæðingar hafa kallað
samninginn svik við þjóðarhagsmuni,
sbr. t.d. ummæli Noel Farrugia, sem
er talsmaður stjórnarandstöðu-
flokksins (Labour Party) í landbún-
aðar- og fiskveiðimálum. Í sama
streng tekur formaður flokksins Al-
fred Saint. Þeir hafa líka gagnrýnt
túlkun yfirvalda á Möltu á niðurstöð-
unum. Greinilegur samhljómur er í
gagnrýni þeirra og Ragnars Arnalds.
Óþörf gífuryrði
Það er óþarft af formanni Heims-
sýnar, þó að hann vilji vekja athygli á
viðhorfum stjórnarandstöðunnar á
Möltu, að grípa til þess að saka und-
irritaðan í Morgunblaðinu 24. júlí sl.
um „svæsnar rangtúlkanir“ og segja
„ … það harla ósvífið þegar talsmað-
ur Samtaka iðnaðarins laumar … að
lesendum sínum … “, þegar vitnað er
til opinberra skjala og túlkunar malt-
neskra samningamanna og stjórn-
valda um innihald og þýðingu samn-
ingsins.
Áróðursbragð ESB?
Á vef Samtakanna var einungis
vakin athygli á niðurstöðum samn-
inga sem Möltubúar
hafa gert við ESB á
sviði sjávarútvegsmála
í tengslum við aðildar-
viðræður. Í greininni er
vísað til frumheimildar
skrifanna sem er
fréttatilkynning frá
Malta-EU Information
Centre sem er opinber
stofnun sett á fót af
maltneskum yfirvöld-
um og hefur það hlut-
verk að upplýsa al-
menning á Möltu um
gang aðildarviðræðna,
þýðingu og áhrif aðild-
ar Möltu að ESB. Það
er því sérkennilegt að
sjá Ragnar enda grein sína á því að
upplýsa að „ … þessar blekkingar
hafa verið raktar beint til upplýs-
ingaskrifstofu ESB á
Möltu … … þarf tæpast að taka
fram að þessi blekkingaleikur hefur
vakið mikla reiði á Möltu og verið þar
harðlega fordæmdur.“ Það er því ein-
faldlega rangt hjá Ragnari að þessar
upplýsingar eigi með nokkrum hætti
rætur að rekja til ESB og fullyrð-
ingar hans um reiði og fordæmingu
eiga að minnsta kosti ekki við um
maltnesk stjórnvöld.
Maltnesk stjórnvöld ánægð
Í grein sem sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra Möltu, Ninu
Zammit, skrifar í The Times of Malta
12. júlí segir hann m.a:
„Framkvæmdastjórn ESB viður-
kenndi og samþykkti öll vísindaleg
gögn sem voru lögð fram [af Möltu]
og bauð Möltu að gera tillögur að
stjórnkerfi veiða innan verndarsvæð-
isins [25 mílna lögsögunnar] – hins
fyrsta innan ESB.
Reglurnar fyrir verndarsvæðið
voru ekki settar af ESB heldur voru
þær samdar af stakri vandvirkni af
maltenskum stjórnvöldum í sam-
ræmi við alþjóðlega viðurkenndar
aðferðir við að tryggja sjálfbærar
veiðar með ábyrgum hætti.
Það vill svo til að á sama tíma og
hinar nýju reglur hafa engin áhrif á
94% maltneska flotans þá er nánast
ómögulegt (practically impossible)
fyrir veiðiskip frá öðrum aðildar-
ríkjum ESB að veiða innan lögsög-
unnar.“ [leturbr. höf.]
Ráðherrann segir ennfremur:
„Maltneskir sjómenn og Möltubúar í
heild hafa sannarlega náð mjög dýr-
mætum samningi … “
Lítilfjörlegur
lærdómur
Ragnar Arnalds telur að það sé
harla lítilfjörlegt þegar sagt er á vef
Samtaka iðnaðarins: „Lærdómurinn
sem draga má af viðræðum ESB og
Möltu er sá að það er um eitthvað að
semja og það er hægt að semja um
niðurstöðu sem er ásættanleg, bæði
frá sjónarhóli ESB og umsóknar-
landsins.“ Ég stend hins vegar fast
við þessa skoðun mína. Samninga-
menn ESB og Möltu settust að
samningaborði og náðu samkomulagi
sem þeir telja viðunandi fyrir báða
aðila. Það er mergurinn málsins í
augum þeirra sem vilja semja um að-
ild Íslands að ESB.
Svæsnar rangtúlkanir
Jón Steindór
Valdimarsson
ESB
Samningamenn ESB og
Möltu settust að samn-
ingaborði, segir Jón
Steindór Valdimarsson,
og náðu samkomulagi
sem þeir telja viðunandi
fyrir báða aðila.
Höfundur er aðstoðarframkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins.