Morgunblaðið - 27.07.2002, Síða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 47
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Lausar
kennarastöður
Við Öldutúnsskóla eru lausar eftirtaldar
stöður:
● Kennsla í sérdeild (100%)
● Tónmenntakennsla (60%)
Allar upplýsingar um störfin veitir skóla-
stjóri, Helgi Þór Helgason í síma 895 8648.
Umsóknarfrestur er til 2. ágúst og
umsóknir berist til Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 31 en
einnig er hægt er sækja um rafrænt
á hafnarfjordur.is .
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.
Kennarar
Tálknafjörður er góður valkostur
Við grunnskólann á Tálknafirði vantar fjölhæf-
an kennara til starfa.
Til greina kemur:
Almenn bekkjarkennsla á miðstigi.
Kennsla í íslensku í 10. bekk.
Kennsla í dönsku á mið- og unglingastigum.
Stuðningskennsla.
Ýmislegt fleira.
Vinnuaðstaða kennara er mjög góð, allgott
tölvuver og hljóðver til tungumálakennslu.
Kennarar fá fartölvur, sem gefur möguleika
á sveigjanlegum vinnutíma. Nemendur við
skólann eru um 65 í 1.—10. bekk. Samkennsla
er allnokkur og eru 7 til 16 nemendur í hverjum
hóp/bekk. Flutningsstyrkur og niðurgreitt hús-
næði.
Umsóknarfrestur er til 6. ágúst 2002.
Tálknafjörður er skjólgóður, lygn og gróðursæll fjörður miðja vegu
á milli Bíldudals og Patreksfjarðar. Fjölbreytt mannlíf, gott félagslíf,
afar virkur og góður tónlistarskóli, íþróttamannvirki eins og þau
gerast best og margt fleira. Í kauptúninu búa um 370 manns.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingólfur Kjartansson skólastjóri í símum
456 2660 og 897 6872.
Heimasíða Tálknafjarðarhrepps er: www.talknafjordur.is .
Netfang skólastjóra er: ingolfur@talknafjordur.is .
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Hús og mannvirki í Sauðanesi, 50% ehl. Kristins Péturssonar, þingl.
eig. Kristinn Pétursson og Rósa Benónýsdóttir, gerðarbeiðandi Vélar
og þjónusta hf., fimmtudaginn 1. ágúst 2002 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
26. júlí 2002.
TIL SÖLU
Sumarbústaður við
Þingvallavatn
í Mjóaneslandi, vel viðhaldinn, til sölu. Stór
baðstofa m. kamínu, hreindýrahöfuð, húsgögn,
panilklæddur. Einnig stórt og gott veiðisvæði
og stór lóð m. friðsælum skógi.
Uppl. í síma 561 1590 og heima 561 6290.
TILKYNNINGAR
50% afsláttur af öllum bókum,
aðeins þessa helgi.
Gvendur dúllari, alltaf góður
Fornbókaverslun, Kolaportinu.
VEIÐI
Norðurá
Óvænt losnuðu tvær stangir í bestu á
landsins 30. júlí 2002. Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í síma 897 5547, Steingrímur eða
862 2363, Sigurbjörg.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
28. júlí, sunnud.: Ok við Kalda-
dal (1.198 m). Brottför frá BSÍ kl.
10.30 með viðkomu í Mörkinni 6.
4—5 klst., fararstjóri Þóroddur
Þóroddsson. Verð 2.200/2.500.
Verslunarmannahelgi með FÍ:
Fjölskylduhelgi í Þórsmörk
2.—5. ágúst; göngur, leikir, grill.
Hraðganga um Laugaveginn
2.—5. ágúst. Fossar í Þjórsá
3.—4. ágúst (uppselt). Lónsör-
æfi 31. júlí—3. ágúst (uppselt).
Þjórsárver 2.—7. ágúst (upp-
selt).
Trússferð um Laugaveginn
1. ágúst, 3 sæti laus, Kjalvegur
hinn forni 7. ágúst, nokkur sæti
laus. Norðurárdalur — Hjalta-
dalur 10. ágúst, nokkur sæti
laus. Sími FÍ 568 2533.
www.fi.is, textavarp RUV
bls. 619.
28. júlí. Botnsúlur. Leiðin er
12-14 km. Áætlaður göngutími 5-
6 tímar og hæðaraukning um
1050 m. Brottför frá BSÍ kl. 10.30.
Verð kr. 1.800/2.100. Fararstjóri:
Tómas Þ. Rögnvaldsson.
VERSLUNARMANNAHELGI
3.–5. ágúst.
Básar á Goðalandi. Dveldu í
Básum um Verslunarmanna-
helgina. Brottför frá BSÍ kl.
08.30. Verð kr. 7.100/8.300 í
skála, kr. 6.300/7.300 í tjaldi.
3.–5. ágúst. Fimmvörðuháls
(Næturganga). Brottför frá BSÍ
kl. 17.00. Verð kr. 8.200/9.700.
1.-5. ágúst. Laugavegurinn.
Trússferð. Brottför frá BSÍ kl.
08.30. Verð kr. 20.900/23.800.
Fararstjóri: Ingibjörg Eiríksdóttir.
2.-5. ágúst. Sveinstindur -
Skælingar. Trússferð.
Fararstjóri: Sigurður Jóhanns-
son. UPPSELT.
2.-5. ágúst. Strútsstígur.
Trússferð. Brottför frá BSÍ kl.
08.00. Verð kr. 16.900/19.500,-
Fararstjóri: Steinar Frímannsson.
3.-9. ágúst. Gæsavatnaleið
(Jeppadeild). Brottför frá
Hrauneyjum kl. 12.00. Verð kr.
10.900/12.900 pr. bíl. Fararstjóri:
Jósef Hólmjárn.
4.-7. ágúst. Fögrufjöll –
Sveinstindur. Bakpokaferð.
Brottför frá BSÍ kl. 08.30. Verð
kr. 13.900/15.700.
6.–8. ágúst. Snæfellsöræfi -
Jökudalsheiði. Þriggja daga
öku- og gönguferð norðan
Vatnajökuls. Nú fer hver að
verða síðastur að skoða fyrir-
hugaðar virkjanaslóðir. Brottför
frá Egilstöðum kl. 10.00.
Verð kr. 16.900/19.200. Farar-
stjórar: Gunnar Hólm Hjálmars-
son og Anna Soffía Óskarsdóttir.
mbl.is
ATVINNA
YFIRREIÐ biskups í Borgarfjarð-
arprófastsdæmi hófst annan dag
páska í Hallgrímskirkju í Saurbæ og
lauk á Borg sunnudaginn 21. júlí sl.
Alls voru haldnar 17 messur og
guðþjónustur auk 5 helgistunda í
vísitasíuferðinni í prófastsdæminu,
en yfirreiðin var tvískipt, í seinni
heimsóknarlotunni voru Fitjakirkja í
Skorradal, Knarranes, Hjörsey og
Borg heimsótt.
Fitjakirkja fékk heimsókn bisk-
ups föstudaginn 19. júlí sl. Með bisk-
upi voru prófasturinn sr. Þorbjörn
Hlynur Árnason og sóknarprestur
Hvanneyrarsóknar, sr. Flóki Krist-
insson. Hin 105 ára gamla kirkja á
Fitjum var þéttsetin í messunni, en
kirkjugestir voru 35. Eftir messu
buðu kirkjueigendur til veislu, en
Fitjakirkja er bændakirkja, og þar
var biskupi gefin útskorin mynd af
Fitjakirkju gerð af Guðmundi Þor-
steinsyni, bónda í Efri-Hreppi, til
minningar um heimsóknina. Síðasti
biskup sem messað hafði á Fitjum í
vísitasíuferð, var faðir núverandi
biskups, sr. Sigurbjörn Einarsson,
en hann messaði á Fitjum sumarið
1969.
Laugardaginn 20. júlí fór biskup
með föruneyti í Knarranes og í
Hjörsey, þar sem kirkja stóð í aldir,
en nú er það ekkert guðshús, svo
guðþjónustan fór fram í gamla
kirkjugarðinum.
Síðasta messa biskups í þetta sinn
var svo á Borg sunnudaginn 21. júlí.
Kirkjan á Borg er orðin sérlega
glæsileg, söfnuðinum, prófastinum
og þeim iðnaðarmönnum sem að
verkinu komu til sóma. Viðgerðin
stóð frá hvítasunnu 2001 til hvíta-
sunnu 2002. Eftir eftirminnilega
biskupsmessu í Borgarkirkju, þar
sem viðstaddir voru auk biskups og
prófasts, prestarnir sr. Árni Pálsson,
sr. Brynjólfur Gíslason og sr. Ágúst
Sigurðsson.
Að lokinni messu bauð sóknar-
nefndin til veislukaffis á Hótel Borg-
arnesi. Þar flutti Árni Guðmundsson
frá Beigalda stórfróðlegt erindi um
Borg á Mýrum og staðarhaldara þar.
Þar kom meðal annars fram að
einungis voru þrír prestar kosnir í
Borgarprestakalli sl. 114 ár. Sr. Ein-
ar Friðgeirsson fékk prestakallið 18.
júlí 1888 og þjónaði til 27. mars 1929,
sr. Björn Magnússon fékk presta-
kallið 3. júlí 1929 og þjónaði til 16.
október 1945. Sr. Leo Júlíusson kom
að Borg 28. febrúar 1946 og fékk
lausn 1981. Núverandi prestur, sr.
Þorbjörn Hlynur Árnason, kom að
Borg í júní 1982, svo miðað við aldur
hans nú verður næsta prestskosning
í Borgarprestakalli árið 2024.
Að lokum má geta þess að síðustu
þrír Borgarprestar hafa allir orðið
prófastar og annað óvenjulegt gerð-
ist á Borg árið 1990; þá leysti faðir
núverandi prests, sr. Árni Pálsson,
son sinn af og þjónaði Borgarpresta-
kalli til ársins 1995.
Vísitasíu biskups í Borgar-
fjarðarprófastsdæmi lokið
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
F.v.: Séra Ágúst Sigurðsson, séra Þorbjörn Hlynur Árnason, prestur á Borg, biskup Íslands, séra Karl Sig-
urbjörnsson, séra Árni Pálsson, faðir Þorbjörns Hlyns, og séra Brynjólfur Gíslason, prestur í Stafholti.
MARKAÐUR verður haldinn í
Lónkoti í Skagafirði sunnudag-
inn 28. júlí frá kl. 13 til 18.
Markaður í
Skagafirði
Trabant sér
um hljóðmynd
Í frétt í blaðinu á miðvikudag
um æfingar Dansleikhússins með
Ekka á dansverkinu Evu láðist að
geta þess að hljómsveitin Trabant
sér um hljóðmynd verksins og er
öll tónlistin frumsamin.
Stofnfjárfundur
SPRON 12. ágúst
Ranglega var sagt í Morgun-
blaðinu á fimmtudag að fundur
stofnfjáreigenda í Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis yrði
haldinn 16. ágúst. Fundurinn verð-
ur haldinn 12. ágúst eins og raun-
ar hefur áður komið fram í
blaðinu. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt
millinafn
Rangt var farið með seinna nafn
Helgu Laufeyjar Finnbogadóttur í
blaðinu í gær en hún er ein þriggja
söngkvenna sem syngja á sumar-
tónleikum við Mývatn í Reykja-
hlíðarkirkju í kvöld.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT