Morgunblaðið - 17.09.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 9
Bankastræti 14, sími 552 1555
Meira úrval
af nýjum vörum
Komið fagnandi!
Nýtt!
Haust/vetur 2002
Hágæða
undirföt
Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Ullarkápur og frakkar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Matseðill
www.graennkostur.is
27/8-02/9 frá GRÆNUM KOSTI, Skólavörðustíg 8.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 11.30-21.00,
sunnudaga kl. 13.00-21.00. Pantanir í síma 552 2028,
skrifstofa 552 2607, fax 552 2607
Þri 17/9: Grænmetissnúðar & fleira gott
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Mið 18/9: Gadó Gadó = indónesískur
pottréttur m/fersku salati, hrísgrjónum
& meðlæti.
Fim 1/9: Moussaka = grískur ofnréttur
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Fös 20/9: Koftas & karrý & koftas & karrý
& koftas m/fersku salati, hrísgrjónum &
meðlæti.
Helgin 21/9 & 22/9: Austurlenskar
kræsingar mmmmmmmmm.
Mán 23/9: Núðlur & steikt grænmeti.
Geggjaður haustfatnaður!
Peysur með skinnkraga
Stærðir 36-44 & 44-56
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Sendum lista út á land
Sími 567 3718
Haustvörur
Ný sending
Stærðir 36-52 (S-3XL)
20% afsláttur af silfurhúðun á kaffikönnusettum
Við gefum gömlu hlutunum þínum nýtt líf
síðan 1969
Álfhólsvegi 67, Opið frá 4.30-6
sími 554 5820. þri., mið., fim.
Laugavegi 63, sími 551 4422
Haustlínan
er komin
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið mán - fös 10 -18
laugard 10 -14
Ný sending frá
Haustuppskera!
Þú kaupir buxur eða pils og færð fríar sokkabuxur með.
Fallegur frábrugðinn fatnaður.
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Fataprýði, sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Viltu léttast
um 1-4 kíló á viku
Símar 557 5446 og 892 1739
HÓPUR skólabarna um 80 talsins,
austan af Héraði var í þriggja daga
fræðsluferð í Mývatnssveit á dög-
unum. Ferðin er hluti af verklegri
náttúrufræðikennslu barnanna þar
sem þeim er kynnt orkan, jarð-
fræðin, lífríkið og fleira.
Börnin eru frá skólunum á Hall-
ormsstað, Fellabæ, Egilsstöðum,
Brúarási og Borgarfirði. Verkefnið
er samvinnuverkefni kennara við
fyrrgreinda skóla og Grunnskólann
í Reykjahlíð. Næsta vor er síðan
reiknað með að börn úr Mývatns-
sveit fari austur og kynnist náttúru
og mannlífi Austurlands. Hluti
hópsins fór um Kröflusvæðið og
virkjunina en annar hópur fór m.a.
í Kísiliðjuna, Náttúrurann-
sóknastöðin við Mývatn kemur
einnig sterklega að þessu verkefni.
Að sjálfsögðu þurftu síðan allir að
fá sér bað í Bjarnarflagslóni og þar
var einmitt hluti hópsins þegar
fréttaritara bar að garði.
Morgunblaðið/BFH
Hópur skólabarna af Héraði baðar sig í Bjarnarflagslóni í Mývatnssveit.
Í skólabúð-
um í Mý-
vatnssveit
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
ÓMAR Ragnarsson og Trausti Vals-
son eru á meðal átta manna sem
koma til greina vegna náttúru- og
umhverfisverðlauna Norðurlanda-
ráðs, en verðlaun ársins verða afhent
ásamt öðrum verðlaunum ráðsins á
50 ára afmælishátíð þess í Helsinki í
Finnlandi í næsta mánuði, að sögn
Stígs Stefánssonar, ritara Íslands-
deildar Norðurlandaráðs.
Náttúru- og umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs, sem hafa verið
veitt síðan 1995, skal í ár veita ein-
staklingi á Norðurlöndum sem þróað
hefur og breitt út hugmyndir sem
varpa ljósi á aðstæður nútíma-
mannsins og tengsl samfélagsins við
náttúruna við upphaf 21. aldar.
Fimmta september síðastliðinn var
tilkynnt um að búið er að þrengja
hóp tilnefndra niður í átta manns.
Tilkynnt verður næstkomandi föstu-
dag hver hlýtur verðlaunin.
Kvikmyndaverðlaun Norður-
landaráðs verða veitt í fyrsta skipti í
ár. Tilkynnt verður um tilnefningar í
byrjun október og um ákvörðun
dómnefndar á Norðurlandaráðs-
þinginu í lok sama mánaðar. Dóm-
nefnd bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs ákvað á fundi sínum í
Reykjavík 11. febrúar að veita Lars
Saabye Christensen verðlaunin fyrir
skáldsöguna Hálfbróðurinn. Af Ís-
lands hálfu voru tilnefndar bækurn-
ar Heimsins heimskasti pabbi eftir
Mikael Torfason og Gula húsið eftir
Gyrði Elíasson.
Tónlistarnefnd Norðurlandaráðs
veitti Færeyingnum Sunleif Rasm-
ussen tónlistarverðlaun ráðsins fyrir
verkið Symfoni nr.1 - „Oceanic
Days“. Frá Íslandi voru tilnefnd Jón
Nordal fyrir verkið Haustvísu fyrir
klarinett og hljómsveit og Karólína
Eiríksdóttir fyrir kammeróperuna
Människan levande. Tónlistarverð-
launin voru fyrst veitt 1965 og síðan
annað hvert ár til 1988, en þá var
reglunum breytt og frá 1990 hafa
þau verið veitt á hverju ári.
Öll verðlaunin verða afhent við at-
höfn sem fram fer í tengslum við 50
ára afmælisþing Norðurlandaráðs í
Helsinki 28. til 29. október nk.
Ómar Ragnars-
son og Trausti
Valsson tilnefndir
Náttúru- og umhverfis-
verðlaun Norðurlandaráðs
Lögreglan á Selfossi
Rannsókn lok-
ið í netamálinu
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar á Selfossi hefur lokið rann-
sókn sinni á meintum ólöglegum
netalögnum á vatnasvæði Ölfusár og
Hvítár. Er málið nú komið til emb-
ættis sýslumanns og lögreglustjóra á
Selfossi sem ákveða framhaldið.
Líkt og Morgunblaðið greindi frá
fyrr í sumar lagði Hreggviður Her-
mannsson í Langholti, félagi í Veiði-
félagi Árnesinga, fram kæru til lög-
reglunnar vegna neta sem hann taldi
að hefðu ekki verið lögð frá föstu
landi, eins og lög kveða á um. Var
haft eftir Hreggviði að hann teldi
þolinmæði stangveiðimanna og
margra landeigenda á þrotum.