Morgunblaðið - 17.09.2002, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 11
fyrir þína fegurð
COLOUR
PLEASURE
Veronika notar
COLOUR PLEASURE
Corail nr 532.
Aldrei fyrr
hafa varir þínar
verið eins mjúkar
og freistandi.
NÝTT!
Nú eru komnir 24
nýir litir sem allir innihalda
nýja verndandi formúlu sem
gerir varir þínar bæði mjúkar
og fallegar.
´
GÍSLI Rafn Árnason veiddi fyrir
fáum dögum risahæng á Horninu á
Hólmavaðsstíflu í Laxá í Aðaldal.
Laxinn var veginn 24 pund, en heilir
108 sentimetrar. Þetta var grútleg-
inn hængur og vel hægt að hugsa
sér sé eitthvert vit í þumalputtaregl-
unum, að hann hefði verið a.m.k. 26
pund í byrjun sumars. Þetta er lík-
lega stærsti laxinn sem veiddist á
svæðum Laxárfélagsins í sumar og
við hæfi að hann veiddist á þeim
fræga stórlaxastað Hólavaðsstíflu.
„Við vorum tveir félagar í klak-
veiðinni í einn og hálfan dag, 8. og 9.
september, og það var mun meira líf
en oft áður. Við settum í 15 laxa með
tvær stangir og lönduðum þar af sjö.
Tveir þeirra fóru í klakkistur, en
hinum var sleppt, m.a. þeim stóra.
Auk stórlaxins var skemmtilegt að
aðeins tveir þessara laxa voru smá-
laxar,“ sagði Gísli Rafn.
Laxinn veiddi Gísli á einhendu og
notaði Black Sheep túpuflugu,
tommulanga. Þyngd laxins var ekki
áætluð, heldur var hann veginn og
mældur áður en honum var sleppt á
ný.
Enn er rólegt á Iðu
Enn verður að teljast rólegt á Iðu
en á sama tíma hefur verið reyt-
ingur í Stóru Laxá. Venjulega glæð-
ist á báðum stöðum, en að undan-
förnu hefur verið gríðarlega mikið
vatn á svæðinu, bæði í Hvítá og
Stóru Laxá og telja ýmsir að þá
stoppi laxinn síður í skilunum á Iðu.
Það hefur þó ekki verið ördeyða og
einn daginn fyrir skemmstu veidd-
ust t.d. tíu laxar, þar af einn 20
punda hængur.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Gísli Rafn Árnason með risahænginn skömmu áður en hann sleppti hon-
um. Með honum á myndinni er Bjarni Gunnarsson.
Risalax úr
Aðaldalnum
STJÓRN Félags íslenskra heimils-
lækna segir að tillögur fram-
kvæmdastjórnar Heilsugæslunnar í
Reykjavík, sem nýlega hafi verið
lagðar fyrir heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra breyti í engu
stefnu félagsins í þeirri réttindabar-
áttu sem það standi. Tillögurnar lýsi
hugmyndum stjórnenda Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík um hvernig megi
bæta rekstur stofnunarinnar en séu
ekki innlegg í deilu heimilislækna við
yfirvöld.
„Grundvallarkrafa heimilislækna
er að þeir fái að njóta sömu starfs-
kjara og aðrir sérfræðimenntaðir
læknar. Í því felst að okkur verði
gert mögulegt að reka læknastofur
með samningum við Trygginga-
stofnun ríkisins óháð vinnu okkar á
heilsugæslustöðvunum. Núverandi
stefna yfirvalda felur í sér mismunun
sem heimilislæknar munu aldrei
sætta sig við. Óbreytt ástand mun
leiða til hruns. Óbreytt skipulag í
heilsugæslunni mun á endanum þýða
að enginn læknir mun fást til að
starfa innan hennar.“
Þá er bent á í yfirlýsingunni að
eins og nú hátti til vanti um tólf
heimilislækna árlega til að manna
heilsugæslukerfið og atgervisflótti
sé úr stéttinni. „Þannig hafa a.m.k.
50 sérfræðingar í heimilislækning-
um sagt upp störfum frá árinu 1996.
Forsenda þess að unnt verði að snúa
þessari þróun við er að heimilislækn-
ar fái notið sömu starfskjara og aðrir
læknar.“
Yfirlýsing Félags íslenskra heimilislækna
Tillögur hafa engin áhrif
á réttindabaráttuna
BOÐAÐ hefur verið til borgarafund-
ar um Vestmannaeyjar og samgöngu-
mál næstkomandi föstudag og við það
tækifæri á að afhenda samgönguráð-
herra eða fulltrúa hans undirskrifta-
lista þar sem mótmælt er ófremdar-
ástandi í samgöngumálum eyjanna.
Með undirskriftasöfnuninni er þess
krafist að ríkisvaldið tryggi að
minnsta kosti tvær ferðir með Herj-
ólfi á dag allt árið og geri nú þegar
ráðstafanir til að fá nýja og hrað-
skreiða ferju til landsins. Herjólfur er
farinn áleiðis til Danmerkur þar sem
hann fer í slipp en á meðan sinnir ferj-
an Baldur siglingum milli Þorláks-
hafnar og Vestmannaeyja.
Mótmælalistarnir hafa legið
frammi víða í Vestmannaeyjum und-
anfarna daga og að sögn Kristjáns
Bjarnasonar, garðyrkjustjóra í Vest-
mannaeyjum og eins af forsvars-
mönnum undirskriftasöfnunarinnar,
hafa um 1.600 manns skráð sig á
listana. Hann segir að samgönguráð-
herra, formanni samgöngunefndar
Alþingis og þingmönnum Suðurlands
hafi sérstaklega verið boðið á opna
borgarafundinn og hafi þegar nokkrir
staðfest komu sína.
Borgarafundurinn hefst kl. 20
föstudaginn 20. september nk. og m.a.
kynnir skipamiðlari ferjur sem eru til
sölu, en talsmenn undirskriftasöfnun-
arinnar hafa lýst áhuga á að fá ferju
frá Noregi í staðinn fyrir Herjólf.
Vestmannaeyingar vilja ræða um samgöngumál
Undirskriftalistar af-
hentir á borgarafundi
SIGURÐUR Þórðarson, ríkisend-
urskoðandi, segist ósammála Guð-
mundi Einarssyni, framkvæmda-
stjóra Heilsugæslu Reykjavíkur,
sem gagnrýnir útreikninga Ríkis-
endurskoðunar m.a. á einingaverði
þjónustu HR. Segir Sigurður að
HR hafi búið yfir ófullnægjandi
upplýsingum um málið. Hann segir
Ríkisendurskoðun hafa farið vel í
gegnum málið og sé einfaldlega
ósammála Guðmundi, þegar hann
segir stofnunina hafa reiknað ein-
ingaverð þjónustunnar 500 til 1.000
krónum of hátt.
„Við sjáum ekki að þær forsend-
ur sem við gefum okkur séu rang-
ar,“ segir Sigurður. Hann segir
Ríkisendurskoðun hafa byggt mat
sitt á upplýsingum frá HR og vísar
til þess sem segi í skýrslu Ríkisend-
urskoðunar, að töluvert vanti upp á
að upplýsingar HR teljist nægilega
góðar. Af þeim sökum hafi Rík-
isendurskoðun í sumum tilvikum
bætt við ýmsum óvissuþáttum í út-
reikningum sínum.
Upplýsingum
Heilsugæslu Reykja-
víkur ábótavant
ENDURSKIPULAGNING stendur
yfir á tímaritinu Eiðfaxa og er gert
ráð fyrir nokkrum breytingum á út-
gáfunni, að sögn Braga Ásgeirsson-
ar, formanns útgáfustjórnar.
Eiðfaxi hefur komið út tíu sinnum
á ári, en síðan hafa komið út sex tölu-
blöð árlega á þýsku og jafnmörg á
ensku. Ennfremur hefur verið gefið
út stóðhestablað einu sinni á ári og
sérstakt blað um ræktun fjórum
sinnum á ári auk þess sem netútgáfu
hefur verið haldið úti. Þegar mest
var voru starfsmenn ellefu en nú eru
fimm manns í fullu starfi.
Bragi segir að Eiðfaxi hafi fundið
fyrir erfiðleikum í útgáfumálum eins
og önnur útgáfufyrirtæki og unnið sé
að hagræðingu í rekstrinum. Vilji sé
til að halda allri útgáfunni áfram og
verið sé að blása til sóknar í þeim til-
gangi. Reyndar sé útgáfunni vel tek-
ið og til dæmis sé erlenda útgáfan,
sem hófst árið 1994, seld í 24 löndum.
Hagræðing
hjá Eiðfaxa
STAÐFEST hefur verið að
ungur ökumaður bifreiðar sem
lenti utan vegar á Nesjavalla-
vegi aðfaranótt laugardags var
ekki ölvaður við aksturinn.
Hann var með bróður sínum í
bílnum og voru báðir fluttir til
Reykjavíkur á Landspítalann.
Ökumaðurinn hálsbrotnaði í
slysinu en hefur mátt í höndum
og fótum.
Var allsgáð-
ur við stýrið