Morgunblaðið - 17.09.2002, Síða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 45
14.9. 2002
9
0 0 8 4 7
6 2 9 5 6
17 21 29 35
22
11.9. 2002
5 15 20
24 29 31
3 41
1. vinningur
fóf til Danmerkue
og Noregs
Þrefaldur
1. vinningur
næsta laugardag
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
4507-2900-0005-8609
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
! "#
"$%&'
()()$$$
Kringlunni 8-12, sími 533 4533
Laugavegi 23, sími 511 4533
Smáralind, sími 554 3960
Nýtt kortatímabil
10% kynningarafsláttur
og fallegur kaupauki
THE SWISS CELLULAR DE-AGERS
FALLEG HÚÐ TIL FRAMTÍÐAR
3 KYNNINGAR
Í dag í Smáralind
Mið. 18. sept. í Kringlunni
Fim. 19. sept. á Laugavegi
ÞAÐ er sjálfsögð ástæða aðrifja það upp hér að ummiðjan níunda áratuginnvar Bjartmar vinsælasti
poppari landsins og þá söng allur
landinn hátt og snjallt: „Pabbi minn
kallakókið sýpur/
Hann er með eyrnalokk og stríp-
ur/Og er að fara á ball“ (af Í fylgd
með fullorðnum, 1987). Og fleiri
smellina átti hann, gráglettna og
innihaldsríka slagara, sem deildu á
menn og málefni eins og lögin um
Sumarliða og hið nánast óþægilega
grípandi „Súrmjólk í hádeginu“.
Bjartmar hvarf svo af sjónarsvið-
inu og fór til Óðinsvéa þar sem
hann lagði stund á myndlist. Hann
sneri svo aftur á tónlistarlendurnar
með áðurnefndu Striki en nýju
plötuna Vor er hann þegar farinn
að kynna, hélt m.a. nokkra tónleika
á Kringlukránni í sumar sem hann
kallaði Sögustund. Þess ber að geta
að í byrjun október mun Bjartmar
taka til við sögustundirnar sínar á
nýjan leik en þar flytur hann eigin
lög frá löngum ferli og spjallar
þess á milli um tilurð laganna og
sögu þeirra. Kringlukráin verður
vettvangur þessara sagnastunda
sem fyrr en í framhaldinu mun
Bjartmar fara víðar með efnis-
skrána.
Eitt af einkennum Bjartmars
sem höfundar hafa einmitt verið
lipurlega samdir textar sem hafa
eitthvað segja; veri það kímileitar
pælingar um lífið og tilveruna eða
þaulskipulögð mótmæli við
ríkjandi samfélagsskipan. Textar
fylgja því með Vori sem er vel.
„Þetta er svona lítil ljóðabók,“
segir Bjartmar. „Platan byrjar
reyndar á ljóði eftir Stein Steinar
en ég hef það ekki þarna með. Það
er eitt að raula ljóð eftir hann en
annað að setja það í bókina sína
(hlær).“
Nýtt upphaf
Vor er fjölbreyttur diskur og
bregður Bjartmar fyrir sig hinum
ýmsu stílbrigðum. Ólíkt Striki, þar
sem lögin héldu sínu striki, ef svo
mætti segja.
„Þessi diskur er búinn að vera
svolítið lengi í deiglunni,“ upplýsir
Bjartmar. „Okkur Júlíus Frey Guð-
mundsson, Gáluna sjálfa, langaði til
að vinna saman og við kýldum loks
á það upp úr áramótum. Með okkur
eru t.d. Sigurgeir Sigmundsson gít-
arleikari og Þórir Baldursson. En
öll upptökustjórn og annað er í
höndum Júlíusar og ég er mjög
ánægður með okkar samstarf.“
Bjartmar segir öll lögin samin
sérstaklega vegna þessa verkefnis,
fyrir utan tvö eldgömul númer,
sem séu allt frá árinu 1984.
Bjartmar lítur á þann tíma er
hann var „heimsfrægur“ á Íslandi
með hæversku. „Ég veit ekki
hvernig það kom til en það gerðist
engu að síður. En ég var aldrei það
ástfanginn af því að ég gæti ekki
rifið mig upp og sest á skólabekk í
myndlist, þarna úti í Danmörku.“
Nú er hann alfluttur til landsins
og segir mynd- og tónlistina eiga
u.þ.b. sitt hvorn helminginn í sér.
„Vor…“ segir hann hugsi. „Ætli
það sé ekki bara upphafið að ein-
hverju…kannski bara upphafið að
því að ég hef svarið þess dýran eið
að svíkja aldrei tónlistargyðjuna.
Mig langar til að keyra þetta
tvennt saman. Í myndlistinni er
maður dálítið einn en þegar maður
tekur til við tónlistina kemst maður
í samneyti við fólk sem er bráð-
nauðsynlegt.“
Haustplatan Vor
Morgunblaðið/Kristinn
Bjartmar Guðlaugsson gefur út Vor
arnart@mbl.is
Bjartmar Guðlaugsson
geystist fram á tónlist-
arsviðið á nýjan leik
jólin ’99 með plötunni
Strik. Nú er hann hins
vegar kominn með
plötuna Vor og sagði
hann Arnari Eggert
Thoroddsen frá
tilurð hennar.
Bjartmar beinir listgáfum sínum á tvo staði; til mynd- og tónlistarinnar.
SVILARNIR Jón Viðar Matthías-
son og Ólafur Baldursson hjóluðu
nýverið frá Reykjavík til Akureyrar
um Sprengisand, um 400 km leið, á
27 klukkustundum.
Tengdaforeldrar þeirra fylgdu í
kjölfarið og gættu þess að drengirnir
færu sér ekki að voða. Hjólað var frá
Reykjavík eftir hádegi og áð í
Hrauneyjum eftir sjö klukkustunda
ferð. Snemma næsta morgun var
hjólað upp í Nýjadal, sopið kaffi í
skála Ferðafélags Íslands og teygt
úr tánum. Að því búnu var haldið
norður í átt að Kiðagilsdrögum og
svo vestur veg F881 og þá niður í
Eyjafjarðardal og að lokum hjólað
inn í Akureyrarbæ um miðnættið í
blíðskaparveðri.
Ferðin var hin hressilegasta og
komust menn í náin kynni og snert-
ingu við hina gömlu þjóðleið. Kveð-
skapurinn varð einnig áþreifanlegri
en nokkru sinni fyrr – „vænsta klár-
inn vildi ég gefa til að vera kominn
ofan í Kiðagil“.
Hjóluðu frá Reykjavík til Ak-
ureyrar á 27 klukkustundum
Hraustir hjólreiðagarpar
Svilarnir á Sprengisandi.
Hinn trúaði
(The Believer)
Drama
Bandaríkin, 2001. Myndform VHS. 100
mín. Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
Henry Bean. Aðalhlutverk: Ryan Gosling,
Summer Phoenix, Theresa Russel, Billy
Zane.
HÉR er komin kvikmynd sem
áhugamenn um ættu ekki að láta
fram hjá sér fara. Myndin er fyrsta
leikstjórnarverkefni Henry Bean
en sá hefur áður skrifað nokkrar
sálfræðilega sinnaðar spennu-
myndir. Í Believer, sem vann til
dómnefndar verðlaunanna á Sund-
ance-hátíðinni í fyrra, er Bean hins
vegar kominn upp
á æðra stig hvað
metnað varðar.
The Believer er
nokkurs konar
hugmyndafræði-
leg stúdía á gyð-
ingdómi og vest-
rænum samfélags-
viðhorfum við
upphaf 21. aldar. Aðalpersónan er
hinn ungi og gáfaði Danny Bailant.
Sá var alinn upp í gyðingasam-
félagi í New York, en hvarf frá
trúnni ungur að árum. Efasemdir
þessa eldhuga gagnvart trúnni og
réttlætis guðs síns hafa síðan rekið
hann yfir í hatur á öllu því sem
hann var alinn upp við. Myndin lýs-
ir átakasömu ferli, þar sem Danny
gengur í raðir nýnastista, og kynn-
ist leynilegri fasistahreyfingu sem
er í mótun meðal menntamanna.
Um leið umgengst hann gamla
skólabræður sína meðal gyðinga og
stúderar gyðingafræðin af ákefð.
Sú innri barátta sem Danny háir
með skelfilegum afleiðingum er
frábærlega túlkuð af ungum og
óþekktum leikara, Ryan Gosnell að
nafni. Believer er einkar óvenjuleg
mynd, ekki síst vegna þess hversu
hugmyndafræðilega sinnuð hún er.
Þar er ekki eingöngu rýnt ofan í
þau lífsviðhorf sem gyðingdómur-
inn felur í sér, heldur er um leið
velt upp spurningum um tilvistar-
aðstæður nútímamannsins, og
verður gyðingurinn eins konar
táknmynd hans.
Trú, þjóðarhugtakið og mann-
kynssagan, allt eru þetta þættir
sem snert er við í hinni merku
kvikmynd The Believer. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Í stríði við
sjálfan sig