Morgunblaðið - 17.09.2002, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndir .com
DV
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6.
Tvær
vikur
á
toppnum
í USA!
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 14.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40 B.i. 14.
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
Yfir 20.000 MANNS
HL Mbl
Tvær
vikur
á
toppnum
í USA!
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
Yfir 27.000 MANNS
„meistaraverk sem
lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i
l i li
Sýnd kl. 5 og 8. B. i. 14.
Sannsöguleg
stórmynd
framleidd af
Sigurjóni
Sighvatssyni.
Ingvar
Sigurðsson fer á
kostum í
magnaðri mynd
sem þú mátt
ekki missa af!
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 12 ára.
kl. 4.45, 7.30 og 10.10.
Kvikmyndir .com
DV
Sýnd kl. 8.
The Sweetest Thing
Sexý og Single i l
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4 og 4.30.
Sýnd með íslensku tali.
Grimmur og óeðlilegur
Cruel and Unusual
Spennumynd
Bandaríkin 2001. Skífan VHS/DVD.
(101 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leik-
stjórn George Mihalka. Aðalhlutverk Tom
Berenger, Rachel Hayward, James
Ralph.
TOM Berenger er einn af þess-
um Hollywood-leikurum sem mega
muna sinn fífil fegri. Fyrir rúmum
áratug eða svo var hann ekkert
minna en einn sá heitasti er hann
lék í myndum á borð við Platoon,
Born on the
Fourth of July,
The Field og
Shattered. En í
dag bjóðast hon-
um greinilega
engin svo safarík
verk lengur og er
þessi mynd vitnis-
burður um þá
lægð sem karlinn
er í. Hann er ekki vondur leikari,
heldur kannski full takmarkaður,
of fastur í hlutverki þungbrýnda
fautans. Og viti menn, hann leikur
einn slíkan hér og þessi er þar að
auki kolgeggjaður fjöldamorðingi
sem fer kvenna á milli, vinnur
traust þeirra og rústar síðan lífi
þeirra. Flétta sem margoft hefur
verið notuð og oftast nær mun bet-
ur – eins og t.d. í Stepfather. Þar
var gerð heiðarleg og góð tilraun
til þess að skýra geggjun morð-
ingjans en hér er annað uppi á ten-
ingnum því berserkur Berengers
er bara morðóður og það á að
nægja manni. En það gerir það
bara ekki. Virkar kannski fyrir þá
sem nenna ekki að nota heilann
þegar þeir glápa en hinir ættu að
velja sér aðra spennumynd – bara
einhverja aðra.
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Berenger
gengur ber-
serksgang
SPENNUHRYLLIRINN Don’t
Say A Word með Michael Douglas
rennur vel ofan í myndbandaunn-
endur. Myndin nær nefnilega þeim
sjaldgæfa árangri að ná loks toppn-
um, sína þriðju viku á lista – nokkuð
sem gerir vísdómsmenn í vídeófræð-
unum næsta orðlausa!
Fjórar nýjar myndir gera sig þá
heimakomnar þessa vikuna. Fyrsta
ber að nefna Collateral Damage með
Adda Svakanagg (Arnold Schwarz-
enegger) í burðarrullu, en myndin sú
tafðist nokkuð í útgáfu vegna
hryðjuverkanna 11. september. Þá
kemur rómantíska gamanmyndin
My Big Fat Greek Wedding sterk
inn í fimmta sætið. Andfætlingurinn
óviðjafnanlegi Mel Gibson gerir þá
skurk með stríðsmyndinni We Were
Soldiers og að síðustu siglir mexí-
kóska Óskarsverðlaunamyndin Am-
ores Perros í örugga listahöfn, og
varpar akkerum í því átjánda.
! "# $
$
$
! "#
! "#
! "#
! "#
! "#
! "# $
! "#
! "#
! "#
! "# %
&
%
%
&
%
'
%
'
%
&
%
&
%
&
&
&
%
&
&
!"! #
$
%& ' (
)&*
$ &
' + ,
(
! "
- &.
Michael Douglas stendur í ströngu í Don’t Say A Word.
Orðlaus toppur
Rúntað með strákum / Riding in
Cars with Boys
½ Uppvaxtarsaga um stelpu
sem verður ófrísk 15 ára. Fremur til-
þrifalítil en þó þægileg áhorfs, fynd-
in á köflum og vel leikin af Drew
Barrymore og Steve Zahn.
Gíraffinn / Meschugge
/ The Giraffe
½ Ágæt evrópsk spennumynd
sem sálfræðilegu og heimssögulegu
ívafi. Hefur þó sína galla.
Helgarfrí / 15 Aout /
Weekend Break
Úrvalsgamanmynd, sem býr
yfir lúmskum og gráglettnum húmor
í anda Frakka.
Skepnuverksmiðjan /
Animal Factory
Mynd byggð á ritverki
bandaríska rithöfundarins Edwards
Bunker sem hefur í bókum sínum
brugðið upp raunsæislegri en um
leið óhugnanlegri mynd af lífi innan
fangelsisveggja. Sterk og vel leikin.
Gamli maðurinn sem las ást-
arsögur / The Old Man Who read
Love Stories
½ Mynd byggð á skáldsögu Luis
Sepúlveda sem færir áhorfandann í
fjarlægan heim. Richard Dreyfuss
túlkar hlutverk aðahlutverkið á eft-
irminnilegan hátt.
Dáleiðsla /Trance
Þessi er blessunarlega laus
við allar Tarantino-þreifingar, held-
ur er hún vel skrifaður krimmi af því
taginu sem Bretar hafa ávallt verið
afar lagnir við að gera.
Vatel
Vönduð og áhugaverð kvik-
mynd er lýsir stéttskiptu samfélagi í
Frakklandi á sautjándu öld. Gérard
Depardieu vinnur þar enn einn leik-
sigurinn.
Frelsið í haldi /
Liberty Stands Still
Í þessari metnaðarfullu kvik-
mynd Kari Skogland er deilt á
byssulöggjöfina í Bandaríkjunum, í
einfaldri og átakaþrunginni
spennufrásögn. Wesley Snipes og
Linda Fiorentino sýna á sér nýjar
hliðar.
Vitnavernd /
Federal Protection
½ Spennumynd sem lítur út fyr-
ir að vera klisjukennd, en skýtur
mörgum sömu tegundar ref fyrir
rass.
Þrítugur, enn ólofaður /
30, Still Single
½ Ágætisafþreying, sem nær
oft upp skemmtilegri kaldhæðni og
frumlegri frásagnarformgerð.
Christopher May er ósköp sjarmer-
andi í aðalhlutverkinu.
Einfarinn / Lone Hero
½ Spennumynd með Lou Diam-
ond Philips, þar sem unnið hagan-
lega með minnið úr hinum sígilda
vestra, High Noon og vélhjólakvik-
mynd Marlons Brandos, The Wild
One. Merkilegt nokk reynist sam-
blandan skemmtileg.
Djúpa laugin /
The Deep End
Saga af átökum móður og
fjárkúgara, þar sem flókin sálfræði-
leg glíma útfærð á trúverðugan hátt.
Dauðans alvara /Dead Simple
½ Gráglettinn noir krimmi í
anda Blood Simple með fádæma
luralegum Daniel Stern í hlutverki
lánlauss sveitasöngvara.
Ég án þín / Me Without You
Vel leikin mynd um vinkonur
í þrjá áratugi, frá pönki til ömm-
urokks. Tónlistarvalið smellið og
tískunostalgían vel ígrunduð.
Á vegum úti /
Highway
Tilraunakennd kynslóða-
stúdía. Andans vegamynd um þrjú
ráðvillt ungmenni á ómeðvitaðri leið
sinni í átt að minningarathöfn um
Kurt Cobain.
Auggie Rose /
Beyond Suspicion
Gott handrit og næmur leik-
ur Jeffs Goldblums gefur þessari
vikt en hún fjallar um lífsleiðan
mann sem ákveður að eigna sér líf
nýlátins tughúslims.
Snarlega strípaður /
Suddenly Naked
Hnyttin kanadísk gaman-
mynd um virtan rithöfund sem fellur
fyrir ungum frumlegum nemanda í
skapandi skrifum.
Lantana
½ Áhrifaríkt spennudrama
með úrvalsleikaraliði, nægir að
nefna þar Geoffrey Rush. Hér er
jafnfram unnið hreint meistaraverk í
handritssmíðum.
Valerie Flake
Lítil, jarðbundin mynd sem
endurspeglar trúverðuga tilfinn-
ingakreppu ungrar ekkju.
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Hildur Loftsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson/
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Nýr lífsstíll
Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is