Morgunblaðið - 17.09.2002, Page 49
ÍSLENSKA kvikmyndin Hafið
var frumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni í Toronto sem lauk um
helgina. Gagnrýnandi The
Globe and Mail, stærsta blaðs
Kanada, er ekki sérlega hrifinn
af myndinni og gefur henni
tvær stjörnur. Íslenskir gagn-
rýnendur hafa hins vegar borið
lof á myndina.
Í stuttri umsögn um myndina
á vef The Globe and Mail segir
að leikstjóri 101 Reykjavík
sendi frá sér svarta fjöl-
skyldukómedíu í anda Veisl-
unnar. Þegar fjölskyldan safnist
saman til að heiðra ættföðurinn
Þórð byrji alls kyns skrímsli að
hoppa út úr skápum. Þórður
reyni bæði að verjast tæknivæð-
ingu fiskiðnaðarins og lúmskum
en veikgeðja börnum sínum og
hreki alla fram af brún hyldýp-
isins.
Þá segir gagnrýnandinn að
blanda grófrar gamansemi og
geðleiks virki ekki sérlega vel
og leikstjórinn virðist ekki vita
fyrir víst hvaða tón hann vilji slá
í myndinni.
Hafið heillar
ekki í Kanada
Gagnrýnanda kanadíska blaðsins The Globe and
Mail þykir Hafið minna á dönsku Veisluna.
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
AKUREYRI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 422
Það eina sem getur
leitt þau saman er
HEFND
Sýnd kl. 4, 6,8 og 10.10. Vit 432
„Litla bláa geimveran Stitcher skemmtilegasta persónan
sem komið hefur úr smiðju Disney.“ „Frábær skemmtun
fyrir börn og fullorðna.“ „Stitcher ekkert venjulegt
Disneykrútt!“ ÞÞ Fréttablaðið
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 429
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 og 6. Enskt tal. Vit 430
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 435 Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 435Sýnd í lúxussal kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 16. Vit 428
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Vit 433
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára. Vit 427
Rás 2
HJ Mbl
1/2 HK DV
Mathew Perry (Friends) og Elizabeth Hurley fara
á kostum í þessari sprenghlægilegu gamanmynd
sem kemur verulega á óvart.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.isSG. DV
SV Mbl
Hetja framtíðarinnar er mætt í frábærri
grínmynd! KEFLAVÍK
Sýnd kl.8 og 10.20. B. i. 14. Vit 427
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8. Vit 433
Rás 2
HJ Mbl
1/2 HK DV
l
/
Sýnd kl. 10. Vit 433
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 429
1/2
Kvikmyndir.is
AKUREYRI
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit 435
Mathew Perry (Friends) og
Elizabeth Hurley fara á
kostum í þessari
sprenghlægilegu
gamanmynd
sem kemur
verulega á
óvart.
MBL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 49
Drekktu í þig fróðleik
ENDURMENNTUN HÁSKÓLA ÍSLANDS
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og veit-
ir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
MUSE átti flestum að óvörum
eina af allra bestu plötum síðasta
árs. Þessi sveit sem stimpluð
hafði verið enn einn Radiohead-
bastarðurinn eftir fyrstu plötuna
sýndi þá og sannaði að það væri
mun meira í hana spunnið.
Hér er ekki á
ferð eiginleg
þriðja plata Muse
heldur afgangur
eða samtíningur
eins og það er víst
kallað í sumum
héruðum. Þetta er með öðrum
orðum safn b-hliða, aukalög á
smáskífum sveitarinnar. Eins og
flestir vita geta slík lög verið ansi
hreint misjöfn að gæðum en þó
eru þau hið merkilegasta fyrir-
bæri því fátt gefur betur til kynna
hæfileika viðkomandi listamanna.
Bítlarnir, The Smiths og Radio-
head líka eru t.a.m. sveitir sem
aldrei hafa sent frá sér nein svo-
kölluð b-hliðarlög. Það var, eðli
málsins samkvæmt, bara ekki
meira pláss á a-hliðinni. B-hlið-
arlög Muse eru langt frá því að
vera einhver bítlasnilld en b-lög
eru þau ekki og hefðu flest sómt
sér vel á breiðskífunum tveimur,
þótt tilraunakenndari og stefnu-
lausari séu. Það er því algjör
skylda fyrir unnendur Muse að
kynna sér þetta safn en hinir ættu
a.m.k. að byrja á hinum tveimur
plötunum. Til þess að gera grip-
inn enn eigulegri inniheldur
seinni diskurinn upptöku frá tón-
leikum sveitarinnar frá því í októ-
ber í fyrra. Sveitin þykir með
þeim allra kröftugustu á sviði og
sannar það hér. Sérlega ánægju-
legt er líka að sjá lagavalið en í
stað þess að stilla upp einhverju
safni vinsælustu laga hefur greini-
lega verið farin sú leið að tína til
uppáhaldstónleikalög hörðustu
Muse-fylgjenda … sem vissulega
eru um leið lögin sem fara hvað
mest í fínustu taugar þeirra sem
ekki þola sveitina. Tónlist
Safarík-
ur sam-
tíningur
Muse
Hullabaloo Soundtrack
Taste Music
Tvöfaldur aukaskammtur frá seiðkarlin-
um Bellamy og félögum, helmingurinn
bestu b-hliðarnar og hinn helmingurinn
nýleg tónleikaupptaka.
Skarphéðinn Guðmundsson
KAMATO Hongo,
elsta kona heims,
varð 115 ára í
gær. Hongo er við
góða heilsu og
segist borða hráan
fisk og drekka te
daglega með
dropa af víni útí til
að halda sér í
formi. Hún er lík-
amlega hress og
gerir æfingar á
hverjum degi.
Hún fæddist 16.
september árið
1887.
Hongo ólst upp í
sveit en býr nú hjá
einni af dætrum
sínum í bænum
Kagoshima, sem
er suðvestur af
Tókýó. Í bænum
Kagoshima eru 74
íbúar sem eru
eldri en 100 ára.
Dóttir Hongo,
Shizue Kurauchi,
sem er 77 ára,
segir að móðir sín
sofi oft tvo daga í
einu og vaki síðan
næstu tvo. Meðal-
aldur fólks er
hæstur í Japan,
77,7 ár hjá körlum
og 84,6 ár hjá kon-
um. Elsti núlifandi
karlmaður í heimi
er Japaninn Yu-
kichi Chuganji,
sem er 113 ára.
Hann býr einnig á
eyjunni Kyushy
eins og Hongo.
Hongo heldur upp á
115 ára afmælið í dag
Elsta bros í heimi: Kam-
ato Hongo 115 ára.