Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 1
218. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 18. SEPTEMBER 2002
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna kom í gær saman til að ræða
hvenær fjalla skuli um tilboð Íraks-
stjórnar frá því á mánudag um að
vopnaeftirlitsmenn samtakanna fái
að halda aftur til landsins en þeir
voru reknir þaðan 1998. Rússar hafa
fagnað viðbrögðum Íraksstjórnar og
sögðust í gær ekki styðja tillögu
Bandaríkjamanna um að samþykkt
verði eftir sem áður ný ályktun í ör-
yggisráðinu um viðbrögð ef Írakar
leyfi ekki vopnaeftirlit án skilyrða og
hlíti öðrum fyrirmælum í ályktunum
sem SÞ hafa samþykkt á liðnum ár-
um. Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að fyrst yrði
að ganga frá samningum um eftirlitið
og koma myndi í ljós hvort Írakar
stæðu við tilboðið.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
varaði í gær SÞ við og sagði samtökin
ekki mega láta Íraka hafa þau að
leiksoppi. „Kominn er tími til að tak-
ast á við Saddam Hussein og tryggja
frið,“ sagði Bush. „Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna verður, í þágu frels-
is og réttlætis allra manna, að grípa
til aðgerða, verður að láta þessa ráða-
menn standa reikningsskil gerða
sinna, má ekki láta leika á sig, verður
að láta að sér kveða til að varðveita
friðinn,“ sagði forsetinn.
Ljóst er að stefnubreyting Íraka
hefur valdið klofningi meðal þeirra
fimm ríkja sem hafa neitunarvald í
öryggisráðinu, Bandaríkjanna, Bret-
lands, Frakklands, Rússlands og
Kína. Kínverjar taka undir með
Rússum, Bretar styðja Bandaríkja-
menn en afstaða Frakka er óljós.
Powell segir afvopnun
Íraka vera aðalmálið
Bandaríkjamenn og Bretar eru
tortryggnir og segja tilboð Íraka
ekki annað en nýtt klækjabragð.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagðist myndu beita
sér fyrir því að öryggisráðið sam-
þykkti harðorða ályktun og heimilaði
hernaðaraðgerðir ef önnur ráð þryti.
Írakar mættu ekki komast upp með
að teyma SÞ á asnaeyrunum enn eina
ferðina og vinna sér tíma.
„Munum að málið er ekki vopna-
eftirlitið heldur snýst það fyrst og
fremst um afvopnun,“ sagði Powell
sem sat við hlið Ívanovs á blaða-
mannafundi í New York en rússneski
ráðherrann hafði skömmu áður lýst
andstöðu við að samþykkja strax
nýja ályktun gegn Írökum. Rússar
leggja hins vegar áherslu á að Írakar
geti ekki sett nein skilyrði um aðgang
eftirlitsmannanna að grunsamlegum
stöðum í landinu. Sendiherra Íraks í
Rússlandi, Abbas Khalaf, sagði í gær
í Moskvu að afskipti Rússa hefðu
valdið miklu um að stjórn Saddams
hefði snúið við blaðinu og ákveðið að
hleypa eftirlitsmönnum aftur inn í
landið. Með þessari ákvörðun hefði
einnig verið grafið undan röksemd-
um Bandaríkjamanna fyrir því að
hernaður gæti reynst nauðsynlegur
til að afvopna Íraka, sagði Khalaf.
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftir-
litsins, átti í gær stuttan fund með
íröskum embættismönnum í New
York og sögðu hinir síðarnefndu að
ekkert væri því til fyrirstöðu að eft-
irlitsnefndin færi strax til landsins.
Ákveðið var að halda næsta fund eftir
tíu daga.
Misjöfn viðbrögð við tilboði
Íraka um vopnaeftirlit
Rússar andvígir kröfu Bandaríkja-
manna um að SÞ samþykki strax
harðorða ályktun og heimili hernað
SÞ, Nashville, London, Moskvu. AP, AFP.
Bandaríkin/18
Vopn/27
UNG stúlka liggur á götunni við
þinghúsið í Asuncion, höfuðborg
Paraguay, í gær en til átaka kom
milli um 13.000 andstæðinga stjórn-
arinnar og óeirðalögreglu. Beitti
lögreglan háþrýstivatnsbyssum,
gúmmíkúlum og táragasi og munu
alls um 100 manns hafa slasast. Rík-
issaksóknari landsins undirritaði í
gær skipun um handtöku stjórn-
arandstöðuleiðtoga sem neita að
kalla sitt fólk burt af svæðinu.
Reuters
Átök í
Asuncion
KIM Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu,
viðurkenndi í gær í fyrsta sinn, að
Norður-Kóreumenn hefðu rænt 11
japönskum borgurum og væru nokkr-
ir þeirra enn á lífi. Kom þetta fram á
sögulegum fundi hans með Junichiro
Koizumi, forsætisráðherra Japans.
Kvaðst Kim harma þennan glæp og
bætti við, að þeim, sem borið hefðu
ábyrgð á honum, yrði refsað harðlega.
Með játningunni ruddi Kim braut-
ina fyrir eiginlegar viðræður Japana
og Norður-Kóreumanna um bætt
samskipti og eiga þær að hefjast í
október. Á fréttamannafundi í Pyong-
yang, höfuðborg N-Kóreu, kvaðst
Koizumi hafa mótmælt mannránun-
um harðlega og hafði eftir Kim, að öfl
í hernum hefðu staðið fyrir þeim og
væri hafin rannsókn á málinu.
Japanir hafa lengi haldið því fram,
að N-Kóreumenn hafi rænt að
minnsta kosti 11 löndum þeirra á átt-
unda og níunda áratug liðinnar aldar í
því skyni að neyða þá til að kenna n-
kóreskum njósnurum japönsku og
fræða þá um japanska siði. N-Kóreu-
menn segja nú, að átta þeirra séu
látnir en þrír á lífi og dóttir eins hinna
látnu. Fólkið fær nú snúa aftur heim.
Baðst afsökunar
á hernámi Japana
Koizumi kom til móts við kröfur N-
Kóreustjórnar með því að biðjast af-
sökunar á hernámi og yfirráðum Jap-
ana í Kóreu á árunum 1910 til 1945.
Koizumi upplýsti einnig, að Kim
hefði heitið að „fresta eldflaugatil-
raunum til frambúðar“ en tilraunir N-
Kóreumanna með langdræga eld-
flaug 1998 ollu áhyggjum í Austur-
Asíu og víðar. George W. Bush, for-
seti Bandaríkjanna, sem hefur skipað
N-Kóreu á bekk með Írak og Íran
sem „öxli hins illa“, hvatti Koizumi til
þess í New York í síðustu viku að
ræða tilraunirnar við Kim og einnig
útflutning N-Kóreu á eldflaugatækni.
Ímynd ríkisins bætt
Koizumi, sem er fyrsti japanski for-
sætisráðherrann, sem heimsækir N-
Kóreu, ræddi við Kim í hálfa þriðju
klukkustund. Kvaðst Kim vona, að
fjandskapur milli ríkjanna heyrði nú
sögunni til en hann virðist vera stað-
ráðinn í að bæta ímynd ríkisins á al-
þjóðavettvangi. Í dag hefst vinna við
að tengja saman kóresku ríkin með
járnbraut, sem síðar á að tengjast
lestarkerfinu í Síberíu og Evrópu.
Sögulegur fundur leiðtoga
Japans og Norður-Kóreu
Viðurkenna
rán á japönsk-
um borgurum
Pyongyang. AFP.
UNGAR stúlkur sem ganga í of
kynæsandi fötum í Grimstad-
unglingaskólanum í Suður-Noregi
verða framvegis látnar fá gulan
bol til að hylja betur kroppinn, að
sögn Aftenposten. Reglurnar eiga
aðeins við um stúlkur í níunda
bekk en kennarar telja að þær fá-
klæddu trufli einbeitingu piltanna
við lærdóminn.
„Kennarinn sagði að ég væri í
allt of stuttum toppi, ég skyti fram
brjóstunum og buxnastrengurinn
væri of neðarlega,“ sagði Marga-
rita Tellefsen, sem er 14 ára.
Reglurnar tóku gildi í haust. „Við
gerum þetta til að nemendur verði
meðvitaðri í sambandi við klæða-
burð og teljum að þeim sé fyrir
bestu að við vekjum athygli á
þessu,“ segir Svein Pedersen
skólastjóri.
Nemendaráðið er ekki hrifið og
samþykkti á mánudaginn ályktun
gegn reglunum. Ekki fer neinum
sögum af því hvort strákarnir
mega sýna efsta hluta nærbrók-
anna eða láta glitta í rass.
Bert hold í hófi
RÚSSNESKIR meðlimir Pen-
klúbbsins, alþjóðlegu rithöf-
undasamtakanna, mótmæltu
opinberlega í gær áformum Júrí
Lúzhkovs, borgarstjóra
Moskvu, um að koma risastórri
styttu af Felix Dzerzhinsky,
stofnanda sovézku leynilögregl-
unnar, aftur fyrir á einu fjöl-
farnasta torgi rússnesku höfuð-
borgarinnar. Dzerzhinsky var
oft nefndur „Járn-Felix“.
Torgið er fyrir framan Lú-
bjanka-bygginguna, þar sem á
árum áður voru höfuðstöðvar
sovézku leyniþjónustunnar,
KGB og hýsir nú rússneska arf-
takann, FSB.
Þessi áform borgarstjórans
„eru ögrun sem gerir lítið úr
áralangri lýðræðisþróun,“ skrif-
uðu rithöfundarnir í sameigin-
legri yfirlýsingu sem birt var í
fjölmiðlum í gær.
Lúzhkov tilkynnti sl. föstu-
dag, að hann vildi endurreisa
minnismerkið á Lúbjanka-torgi,
þar sem múgur felldi það er
valdaskeiði kommúnista var að
ljúka árið 1991. Taldi Lúzhkov
að styttan væri „fagurt minnis-
merki“ sem hefði sett mikinn
svip á torgið. Myndhöggvarinn,
Jevgení Vútsjetítsj, væri enn á
lífi og yrði senn 100 ára.
AP
Dzerzhinsky felldur 1991.
„Járn-Felix“
aftur á stall?
Moskvu. AFP.