Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ur á andlitssvip barna og unglinga. Bæði rabarbara-pappírinn og mynd- irnar eru falleg verk og vel unnin og lítil sýningarskrá einnig. Einnig er ágætt að fá að sjá í möppum hvernig Kristveig hefur farið höndum um annað grænmeti eins og rauðlauk, jökulkál og kíví. Kristveig er menntuð í Noregi og skrifaði þar lokaritgerð sína um handgerðan pappír sem sjálf- stætt tjáningarform. Ýmsir listamenn hafa unnið með handgerðan pappír á þeim forsendum, til dæmis Svava Björnsdóttir. Að verkum Kristveigar alls ólöstuðum standa þau þó nær list- rænni hönnun en nútímalist, einfald- leiki verka og hugmyndar gera það að verkum að verkin hefðu kannski notið sín betur í slíku samhengi, til dæmis á samsýningu fleiri hönnuða. Í arinstofu á jarðhæð sýnir Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir skúlptúr úr hvítmáluðu MDF, gleri og gardínu- efni. Á efri hæð eru fjórar ljósmyndir og skúlptúr í formi sýningarskáps, úr hvítmáluðu MDF og gleri. Á allt að tuttugu ára ferli hafa verk Guðrúnar Hrannar tekið ýmsum breytingum, á tímabili var hún til dæmis upptekin af Í LISTASAFNI ASÍ við Freyju- götu eru nú tvær afar ólíkar sýningar, svo ólíkar að undrun sætir. Eins og fram kom í umsögn um sýningar í Listasafni ASÍ fyrir nokkrum vikum hefur safnið nú tök á því að hætta að krefja sýnendur um greiðslu fyrir sýningaraðstöðu. Það verður spenn- andi að fylgjast með því hvaða áhrif þetta hefur á sýningarstefnu safnsins í framtíðinni. Í Gryfju sýnir Kristveig Halldórs- dóttir handunnin verk úr rabarbara sem hún kallar Rehum papyrus. Rab- arbarinn er þurrkaður og síðan límd- ur á glerplötur svo úr verður áferð- arfallegt og litfagurt efni sem minnir á papyrus. Samhliða þessu sýnir Kristveig ljósmyndir af áhrifunum sem bragðið af hráum rabarbara hef- kitch, hvað lægi að baki þeirri hugsun og hvernig slíkir hlutir yrðu til, – kannski eimir enn eftir af þeim verk- um í mynstruðu gardínuefninu í skúlptúrnum í arinstofunni. Hún hef- ur í gegnum árin stöðugt velt fyrir sér eðli og eiginleikum höggmynda og jafnframt listarinnar í heild. Með því að vinna verk sem líktust húsgögnum en höfðu ekki notagildi spurði hún spurninga um grundvallareinkenni höggmynda og sérkenni listaverka. Nú setur Guðrún verk sín í örlítið annað samhengi með því að nota form sýningarskápa. Fleiri listamenn hafa unnið með svipaðar hugmyndir á síðustu áratug- um. Verk Guðrúnar í ASÍ í formi sýn- ingarskáps minnir til dæmis á verk þýska listamannsins Reinhard Mucha þar sem hann tekur sýningarskápa og stöpla í eigu safna og sýnir þá eins og um höggmyndir væri að ræða. Í verki hans eins og í verki Guðrúnar spegl- ast áhorfandinn einnig greinilega í gleri skápsins eins og til að gefa til kynna að það sé návist áhorfandans og væntingar hans sem skapi verkið. Belgíski listamaðurinn Didier Ver- meiren kemur einnig upp í hugann, til dæmis verk hans Sculpture frá 1982 þar sem hann býr til tvo eins stöpla úr marmara og setur annan upp á hinn – varpar þannig fókusnum meira á það hvernig er sýnt heldur en hvað er sýnt. Allan MacCollum er líka á svip- uðum nótum í verki sínu Plastic Surr- ogates frá 1989 þar sem 288 gifshlutir eru sýndir í líki málverka. Hér virðist sú hugmynd liggja að baki að um- gjörð listarinnar hafi fengið yfirhönd- ina og lögð er áhersla á það með tilbú- inni fjarveru listaverksins sjálfs, tómum skápum, stöplum sem koma í staðhöggmyndar, eftirlíkingu mál- verka. Verk Stephen Prina koma einnig upp í hugann, hann er líka einn þeirra sem gert hafa framsetningu verka að inntaki þeirra og velt fyrir sér starfsemi listasafna. Ég fæ ekki betur séð en að á þess- ari sýningu sé Guðrún í svipuðum hugleiðingum. Ásamt MDF-verkinu á efri hæð, nákvæmri eftirlíkingu sýningar- skáps, sýnir hún fjórar ljósmyndir af loftljósum. Myndirnar eru teknar nokkurn veginn beint neðan frá og ljósin verða þannig að hringlaga dálít- ið lífrænum formum. Ég er ekki viss um hvernig á að túlka þessar myndir, en eins og skápurinn sem ekkert sýn- ir sjást hér ljós sem ekki varpa birtu á neitt. Hvort þessi tenging er sú sem Guðrún ætlaði sér veit ég ekki, en ljósmyndirnar eru skemmtilega líf- rænar í þessu frekar þurra samhengi. Verk Guðrúnar eru innlegg í um- ræðuna um eðli listaverka og þá stað- reynd að umgjörð listaverka er óað- skiljanlegur hluti af þeim, í samræmi við þá kenningu að skilaboðin felist í miðlinum sjálfum en ekki því sem hann segir. Guðrún tekur hér um- gjörðina og hlutgerir hana, gerir hana að listaverkinu sjálfu. Þó að þessi hugmynd sé kannski ekki ný af nál- inni hafa ekki margir íslenskir lista- menn fengist beinlínis við þetta efni í verkum sínum, að minnsta kosti ekki markvisst árum saman. Þessa um- ræðu mætti að ósekju opna áður en hún deyr út í naflaskoðun og sam- félagsádeilu sem nú virðast efst á baugi. Hver einstök sýning listamanns er aðeins brot af æviverki hans. Í tilfelli Guðrúnar er allur ferill hennar ein meira og minna samhangandi heild og verk hennar þróast hvert á eftir öðru í einhvers konar samhengi. Kannski fengi hver sýning aukið vægi ef hægt væri að skoða hana í sam- hengi við það sem á undan er gengið til dæmis með því að hafa ljósmynda- möppu á staðnum. Það myndi líka hjálpa áhorfendum að átta sig ef verkin á sýningunni væru á einhvern hátt auðkennd. Ég get skilið að Guð- rúnu finnist að þessi verk eigi að tala sjálf en vildi óska þess að hún hefði fylgt þeim eftir með einhverjum orð- um, hvort sem þau orð hefðu fjallað beinlínis um verkin sjálf eða eitthvað annað sem gæti óbeint varpað ljósi á þau. Það eru jú ekki óræðar, orðlaus- ar tilfinningar sem liggja að baki þessum verkum heldur ákveðinn hug- myndaheimur. Hann er áhugaverður og leitt ef verkin hafa ekki tilætluð áhrif vegna þess að hann stendur ekki opinn. Rabarbari og hugmyndalist MYNDLIST Listasafn ASÍ við Freyjugötu Til 22. september. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. BLÖNDUÐ TÆKNI, KRISTVEIG HALL- DÓRSDÓTTIR, GUÐRÚN HRÖNN RAGN- ARSDÓTTIR Ragna Sigurðardóttir Verk eftir Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. TRÍÓ Reykjavíkur hóf vetrar- áætlun sína við fjölmenni í Hafn- arborg með fyrstu tónleikum af fernum áformuðum. Gestaleikari á þessum tónleikum var Nina Flyer sem um skeið var fyrsti sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands á 8. áratug. Gunnar Kvaran lét því nægja að þessu sinni að kynna nánar verk og höfunda, sem vel tókst að vanda, enda hafa stutt óformleg spjöll hans jafnan sett notalegan aukasvip á tónleika tríósins. Verkin á dagskrá spönnuðu um 70 ár frá síðrómantík fram til loka nýklassíkur. Þau voru fjölbreytt og aðgengileg með enn greinanlegar rætur í „heimilismúsík“ 19. aldar. Það mátti m.a.s. heyra á yngsta verkinu sem leikið var í upphafi, Tríói í d-moll, sem tékkneska tón- skáldið Bohuslav Martinu (1890- 1959) samdi í Bandaríkjunum 1950. Þríþætt verkið var músíkantískt skrifað eins og Martinu átti vanda til, gætt lifandi rytmískum tilþrif- um í útþáttum og nærri epískri angurværð í miðju. Flutningur var hress og í ágætu jafnvægi. Dmitri Sjostakovitsj var ekki nema 16 ára er hann samdi ein- þætt tríó sitt Op. 8 nr.1 í Péturs- borg. Samt má þá og þegar finna mörg síðari persónueinkenni hans í þessu furðu þroskaða kortérslanga verki, bæði „róbótalegt“ scherzó- háðið, kyrrlátu ógnina og næmið fyrir hvössum kontröstum. Líkt og Sallinen í Finnlandi (nema hafi verið Kokkonen) vann hann fyrir salti í grautinn við að leika undir með þöglum kvikmyndum á píanó – reyndi skv. Gunnari m.a.s. þetta „fjöl-epísódíska“ verk á þeim vett- vangi – og hefur reynslan í flökt- andi ljósi bíótjaldsins án efa lagt til margt sviðsrænt svipbrigðið í seinni verkum. Einnig vottaði fyrir ballett-danskenndu efni og mátu- legum prufuskammti af Rakhman- inoff í fínlega spilaðri túlkun tríós- ins. Hin frekar stutta en ofurla- græna Elegía Josefs Suk Op. 23 var fallega „sungin“ og kom ekki á óvart að sumt gæti minnt á tengdapabbann Dvorák (og jafnvel á einum stað á Rúsölku). Að því loknu var tekið fyrir síðasta verk kvöldsins, Píanótríó nr. 1 í g-moll og fjórum þáttum, samið til dóttur Nadesjdu von Meck þegar De- bussy var kornungur heimiliskenn- ari velgjörðarkonu Tjækovskíjs í Moskvu sumrin 1879-82. Það er jafnframt ein fyrsta tónsmíð De- bussys og í dæmigerðum síðróm- antískum stíl, lítið gegnfært og langt í frá sambærilegur fyrirboði seinni verka eins og hið bráð- þroska æskuverk Sjostakovitsjar. Þó gutlaði á skemmtilega „etn- ískrí“ ferundasamstígni í spræka Scherzóinu og skáldlegri sólseturs- stemmningu í III. þætti (Andante espressivo). En langir útþættirnir komu helzt til ofhlaðnir og sund- urlausir fyrir, og urðu fyrir vikið heldur langdregnir. Tríó Reykjavíkur mátti samt hafa þökk fyrir að grafa þetta sjaldheyrða verk upp, þótt hæpið sé að auki miklu við orðstír tón- skáldsins. Innlifuð spilamennskan var trú ólgandi unglingsþrá höf- undar og Peter Máté gætti jafn- vægis í styrk af ýtrustu kostgæfni. Enda veitti ekki af, fyrir fullopnu flygilloki í glymhættum sal Hafn- arborgar. Æskuverk meistaranna TÓNLIST Hafnarborg Verk eftir Martinu, Sjostakovitsj, Suk og Debussy. Tríó Reykjavíkur (Guðný Guð- mundsdóttir fiðla, Nina Flyer selló, Peter Máté píanó). Kynnir: Gunnar Kvaran. Sunnudaginn 8. september kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Stefáni Sturlu Sigurjónssyni, leikara, leik- stjóra og gagnrýn- anda Rásar 2: „Kæru Íslendingar, þið fenguð yfirlýsingu frá stjórn Leikskálda- félags Íslands á síðum þessa blaðs um helgina. Að vísu er þess ekki getið að stjórnin sendi þessa yfirlýsingu frá sér, en það sá ég á heimasíðu félagsins frá stjórnar- fundi 6. september 2002. „Stjórnarmenn voru sammála um að ástæða væri til að fagna auknum hlut ís- lenskra verka og auknu áræði leikhús- stjóra við að ráða höfunda til starfa og kaupa verk á vinnslustigi. Hins vegar þóttu neikvæð viðbrögð nafn- kunnra gagnrýnenda við þessu bera vott um óþolandi fordóma. Töldu stjórnarmenn ljóst að með yfirlýs- ingum sínum hefðu téðir gagnrýn- endur þegar gert sig vanhæfa til að fjalla um viðkomandi verk á trúverð- ugan hátt. Félagið mun senda frá sér fagnaðarerindi til leikhúsanna, en senda athugasemd til fjölmiðla vegna viðbragða gagnrýnendanna sem um ræðir.“ Og sú varð raunin. Bent er á að undirritaður og Jón Við- ar Jónsson hefðu myndað sér fyrir- fram skoðanir á verkum sem sýnd verða á fjölum leikhúsanna á kom- andi vetri, einnig á mannaráðningum leikhússins. Skömm ef satt er, að gagnrýnendur séu nú farnir að mynda sér skoðanir. Kæru Íslendingar, ég vil aðeins minna á það sem ég fjallaði um í pistli mínum á Rás 2 hinn 2. sept- ember s.l. Ég var og er óhress með uppstillingu þjóðleikhússtjóra á verkum vetrarins. Ég fagna hins vegar fimm nýjum leikverkum og var ekki að fella dóm um þau að svo komnu máli, heldur hitt sem ekki er gert. Nú vil ég benda á að engin kona er í hópi þessara fimm kynntu leik- skálda. Ekkert ungskáld er í þessum fimm leikskálda hópi. Hvaða leikhús ef ekki Þjóðleikhúsið á að taka að sér konur og ungskáld að minnsta kosti til jafns við eldri karla. Og hvaða leikhús ef ekki Þjóðleikhúsið á að hafa þor til að nota eitt leiksvið þar sem eingöngu væru sýnd íslensk leikverk, leiklesin, leikin og unnin með höfundum. Ég vil benda á það að Þjóðleikhúsið hefur meira en tvö- falt hærra fjárframlag á ári en Leik- félag Reykjavíkur í Borgarleihúsinu. Við getum því gert kröfur til þjóðleikhússtjóra að hann taki eitt litlu leik- sviðanna undir tilrauna- hóp. Hissa var ég á því að Íslendingar skyldu fá yf- irlýsingu frá Leik- skáldafélagi Íslands þess efnis að menn skyldu vera vanhæfir vegna skoðana sinna á verkefnavali Þjóðleik- hússins, musteri ís- lenskrar menningar og stærsta vinnuveitanda leikskálda. Oft er það svo að gagnrýnandi hef- ur lesið þau leikverk sem sýnd eru á fjölum leikhúsanna og gjarnan myndað sér skoðun á þeim verkum. Það er einn hluti gagnrýninnar, það sem eftir stendur er leiksýningin sjálf, frammistaða leikhúslistamann- anna. Ef best væri að gagnrýni nýrra leikverka staðið þá sendu Leikskáldafélag Íslands, leikhúsin eða leikskáldin gagnrýnendum handrit nýrra leikverka fyrir frum- sýningu svo þeir mættu skoða vinnu leikskáldsins, rétt eins og gagnrýn- endur gera með eldri verk. Ekki hvarflaði að mér að Leikskáldafélag Íslands ryki upp „með því tilfinn- ingalega uppnámi sem einkenndi“ yfirlýsingu þess. Heldur hélt ég að það gleddi íslensk leikskáld að Þjóð- leikhúsið væri gagnrýnt fyrir að gera ekki nóg og nógu vel við íslensk leikskáld. Gott er að vita til þess að leikskáld eru södd með þá mögru sneið sem þeim er rétt, sérstaklega konum og ungum skáldum. Íslendingar, til ykkar var orðun- um væntanlega beint þegar Leik- skáldafélag Íslands segir í yfirlýs- ingu sinni „...að þeir hafi gert sig vanhæfa til að fjalla opinberlega um nýja, innlenda leikritun á komandi vetri“. Ég hef myndað mér skoðanir á eldri innlendum og erlendum leik- verkum, samkvæmt yfirlýsingu frá stjórn Leikskáldafélags Íslands er ég því algerlega vanhæfur að sinna því starfi sem ég hef tekið að mér á sunnudögum á Rás 2. Er ég hæfur ef ég mynda mér ekki skoðanir á nýjum verkum höfunda í Leikskáldafélagi Íslands og gagnrýni ekki verkefna- val Þjóðleikhússins? Er ég hæfur? Stefán Sturla Sigurjónsson Goethe-Zentrum, Laugavegi 18 Þýski spennutryllirinn „Der amerik- anische Freund“ (The American Friend) verður sýnd kl. 20.30. Myndin er frá 1976 í leikstjórn Wim Wenders en hann gerði myndina eft- ir sakamálasögunni „Ripley’s Game“ eftir Patriciu Highsmith. Hún hlaut verðlaun þýskra kvikmynda- gagnrýnenda 1977. Hinum slóttuga kaupsýslumanni Tom Ripley (Denn- is Hopper) tekst að telja hinn krabbameinssjúka myndaramma- smið Jonathan (Bruno Ganz) á að myrða fyrir sig hættulegan glæpa- mann úr röðum mafíunnar – fyrir 250 þúsund mörk. Jonathan fer til Parísar og lýkur verkefninu – og lendir í óheillavæn- legum flækjum þegar honum er ætl- að að fremja annað morð til viðbótar. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.