Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 39
Gott er að hreinsa hófbotninn vel með hófhnífnum, sérstaklega næst hófvegg en gæta þarf þess þó að fara ekki of djúpt með hnífinn. ÞÓTT heldur hafi teygst á útreiða- tímabili hestamanna eru þeir flestir sem draga undan og koma hrossum sínum í hausthaga. Fer það að sjálf- sögðu eftir tíðarfari hvenær menn hætta og þeim fer stöðugt fjölgandi sem ríða út fram eftir hausti. En rétt er að minna á nokkur at- riði sem gott er að hafa í heiðri þeg- ar þessi tími er kominn og þar fyrst að nefna að gleyma ekki gæðing- unum í nauðbitnum reiðhestahólf- um. Oft hefur mátt sjá hesta híma í haustrigningum í gras- og skjóllaus- um hólfum sem hafa gagnast vel yf- ir sumarið. Fóðurgildið fellur ört Þeir sem hyggja á haustútreiðar þurfa einnig að huga að beitinni. Fóðurgildi og efnainnihald grasa fellur mjög á þessum tíma og þurfa hrossin því að innbyrða meira magn en á hágróandanum. Vissulega er hægt að viðhafa randbeit fyrir reið- hross í einhverri mynd að hausti þar sem aðstæður leyfa en gæta verður þess að skammta nóg í hvert mál. Góður mælikvarði á það hvort hross fá nóg má sjá á feldi þeirra, ef fitu- söfnun í feldi er góð og holdafar heldur að aukast en hitt eru hlut- irnir í lagi. Þótt útreiðar séu stund- aðar þurfa hrossin eftir sem áður að ná að undirbúa sig fyrir veturinn með fitusöfnun í feldi og holdum. Þá er að sjálfsögðu mikilvægt að geta sett hrossin inn ef illa viðrar eða í mjög góð skjól. Rétt er að gera sér grein fyrir því að þegar hross eru svituð vinnur það gegn fitusöfnun í feldi. Haustin geta hentað vel til út- reiða fyrir þá sem hafa aðstöðu til þess. Þá þykir mjög gott að frum- temja trippi á haustdögum. Á þess- um árstíma hægir á líkamsstarfsemi hrossa og trippin verða rólegri og auðveldari í meðförum. Í vöxt hefur færst að trippi séu tamin að hausti eða framan af vetri og síðan sleppt út. Sú skoðun að ekki sé forsvar- anlegt að sleppa hrossum eftir að þau hafa verið tekin á hús og þau svituð hefur verið afsönnuð fyrir löngu þótt ekki sé alveg sama hvernig að því er staðið. Gott er í slíkum tilvikum að gefa þeim frí frá reið síðustu dagana áður en þeim er sleppt svo þau nái að safna góðri fituvörn í feldinn. Eins er gott að velja góðviðrisdaga ef þess er kost- ur þegar þeim er sleppt. Í dag er slíkum hrossum gefið eftir að út er komið á öllum betri bæjum og að sjálfsögðu þurfa þau skjól eins og reglugerð kveður á um. Hófsnyrting nauðsynleg En fyrir þá sem hyggjast hætta útreiðum og sleppa hrossum í haust- hagann er það fyrsta sem gera þarf að draga undan og snyrta hófa. Er þá góður siður að nota hnykking- arskera sem réttir hnykkingar upp eða sker þær. Á það sér í lagi við ef hrossin eru á uppsláttarskeifum. Það er alltaf hvimleitt að brjóta stór stykki úr hófvegg þegar rifið er undan. Þá er næst að snyrta hófinn til og eru þá notaðar hófklippur eða hófbítur eins og sumir kalla það og hófhnífa. Er gott að hreinsa úr hóf- botnum með hófhnífnum, sér- staklega næst hófvegg en með því móti má fá gott plan til að klippa hófvegginn eftir. Að síðustu er gott að renna með hófraspi yfir hófvegg- inn að utanverðu og slétta yfir allar misfellur og skemmdir og sömuleið- is að sníða af brúnum hófveggjar. Mælt er með því ef um lélegt hóf- efni og flata hófa er að ræða að klippa þá eins mikið og mögulegt er. Í slíkum tilvikum getur verið gott að leita til fagmanna því góður frágangur á lélegum hófum að hausti getur stuðlað að mun betri hófum í byrjun vetrar. Einnig er gott að klippa reglulega mikið hall- andi hófa sem hafa tilhneigingu til að lengjast. Er það þá fyrst og fremst táin sem þarf að stytta. Fátt er ömurlegra en sjá hesta í vetrargöngu á skeifum sem hafa verið negldar undir síðsumars, hóf- ar orðnir mikið vaxnir fram og til hliða. Er þá gjarnan komin mikil spenna í efri hluta hófa. Slík um- hirða er ávísun á siginn hófbotn, sprungumyndun og almennt séð veikir það hófinn. Þurfi af ein- hverjum ástæðum að hafa hrossin á skeifum skal járna þá upp á eðlileg- um tíma þótt ekki séu þeir notaðir til reiðar. Ormalyfsgjöf að hausti er sjálf- sagður hlutur og þá best að gefa það inn þegar skipt er um beit- arhólf. Benda má á að gott er að skipta um tegund ormalyfs öðru hvoru til að tryggja að ormar sem í hrossunum lifa nái ekki að mynda ónæmi fyrir lyfinu sem oftast eða kannski alltaf er notað. Er þá gott að leita ráða hjá dýralæknum. Í haust- eða vetrarbeitarlandi þurfa að vera góð skjól annaðhvort frá náttúrunnar hendi eða mann- gerð skjól og að sjálfsögðu þarf að vera gott aðgengi að góðu vatni. Hvað vatnið varðar er að því er virðist tímabært fyrir hestaeigend- ur að huga mjög alvarlega að vatns- málum því ítrekað hafa komið upp salmonunellusýkingar í högum víða um land. Rennandi vatn er þar besti kosturinn. Vatn sem lítil hreyfing er á getur verið nokkuð varasamt. Þótt salmonellusýkingar séu ekki verulega útbreiddar eru tilfellin það mörg að sjálfsagt þykir að hesta- menn séu á verði gagnvart slíkri sýkingu. Saltsteinar eru að sama skapi nauðsynlegir. Að síðustu er svo rétt að benda hestaeigendum á að kynna sér reglugerð landbúnaðarráðu- neytisins um aðbúnað og hirðingu hrossa þar sem meðal annars er gert ráð fyrir því að reglulega sé fylgst með hrossum og ef þau eru í högum fjarri eiganda ber honum að verða sér úti um tilsjónarmann. Hugað að haustbeitinni Haustið er komið og þá verða kaflaskipti hjá flestum hesta- mönnum. Samkvæmt gamalli hefð hætta menn þá almennt út- reiðum og menn og hestar taka sér frí. Valdimar Kristinsson minnir hér á nokkur atriði sem tilheyra þessum kaflaskiptum. Góð haustbeit er hrossum mikilvæg þar sem þau hafa nægt gras, vatn, skjól og rými og ekki spillir að með fylgi náttúrufegurð. Til að létta undandráttinn og koma í veg fyrir að brjóta að óþörfu úr hófvegg er gott að rétta hnykkingarnar upp eða skera með áhaldi sem kalla má hnykkingaskera eða jafnvel hnykkingabana eins og einn ágæt- ur hestamaður stakk upp á. Slegið er með hamri á tólið. Morgunblaðið/Vakri Hestar hafa enn í dag miklu hlutverki að gegna í smalamennsku þar sem þeir gegna lykilhlutverki á haustin. Hér fer Gústaf Loftsson mikinn á bökkum Tungufljóts þar sem hann rekur fé í Tungnarétt. Góð undandráttartöng er nauðsynleg ef verkið á að ganga vel og er skolti hennar beitt undir hæla skeifunnar og henni lyft frá hófnum. vakri@mbl.is HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.