Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 11 HORFUR eru á að samkeppni á kjöt- markaði verði mjög hörð í haust. Of- framboð er á svínakjöti og kjúklinga- framleiðsla, sem hefur verið í lægð í sumar, er að aukast mikið. Þetta leið- ir til þess að sauðfjárbændur eiga í verulegum erfiðleikum með að verja stöðu sína. Til margra ára hefur neysla á svínakjöti og kjúklingum aukist ár frá ári. Nautakjötið hefur að mestu leyti haldið markaðshlutdeild sinni. Neysla á lambakjöti hefur hins vegar dregist saman. Sölusamdrátturinn á síðustu 12 mánuðum er 3,2%. Frá maí til júlí seldist 1.541 tonn af svínakjöti en 1.767 tonn af lambakjöti. Guðmundur Lárusson, stjórnarfor- maður Kjötframleiðenda ehf., segir ljóst að ef fram haldi sem horfi verði ekki langt þangað til svínakjötsneysla á Íslandi verði orðin meiri en neysla á lambakjöti. Ójafnvægi á svínakjötsmarkaði Að undanförnu hafa framleiðendur svínakjöts og kjúklinga staðið í mikl- um fjárfestingum. Framleiðsla á svínakjöti hefur aukist mikið og raun- ar er nú svo komið að framleiðslan er meiri en salan. Verð á svínakjöti lækkaði mikið í sumar. Til að bregð- ast við þessu ójafnvægi hafa svína- kjötsframleiðendur ákveðið að taka kjöt út af markaðinum og selja tals- vert magn til Færeyja og Rússlands fyrir lágt verð. Jafnframt er reiknað með að framleiðendur muni leitast við að stjórna betur framleiðslunni á næstunni þannig að meira jafnvægi verði á markaðinum. Enginn vafi leikur á að þessi mikla framleiðsla á svínakjöti og verðlækk- unin hafa valdið sauðfjárbændum erf- iðleikum. Þótt jafnvægi komist á svínakjötsmarkaðinn verður áfram hörð samkeppni milli svínakjöts og lambakjöts. Hins vegar eru horfur á að lambakjötið, og raunar aðrar kjöt- tegundir, verði á næstunni fyrir enn harðari samkeppni frá kjúklingum. Framleiðsluerfiðleikar í kjúklingarækt að baki Neysla á kjúklingum hefur aukist jafnvel enn hraðar en á svínakjöti á síðustu árum. Síðasta ár hefur hins vegar verið nokkuð sérstakt hjá kjúk- lingabændum. Snemma á árinu kom upp svokölluð Newcastle-veiki í kjúk- lingum í Svíþjóð sem varð til þess að bann var sett á innflutning á eggjum til Íslands. Kjúklingaframleiðendur hafa treyst á að geta endurnýjað varpstofna með innfluttum eggjum frá Svíþjóð og þess vegna varð þetta bann, ásamt fleiru, til þess að það dró úr framleiðslu á búunum. Eftirspurn eftir kjúklingum var hins vegar jafn- mikil og áður og því varð skortur á kjúklingum í sumar. Kröfur komu m.a. fram um að leyft yrði að flytja inn kjúklinga á lágum tollum. Nú er hins vegar búið að aflétta banni á inn- flutningi á eggjum frá Svíþjóð og framleiðsla á kjúklingum er að kom- ast í eðlilegt horf. Því er útlit fyrir að miklu meira verði af kjúklingum á markaðinum á næstu vikum og mán- uðum en verið hefur. Samkeppni milli framleiðenda er líka mjög hörð og kjúklingaverð hefur heldur lækkað. Íslandsfugl á Dalvík hóf starfsemi í síðasta ári og kom það talsverðu róti á markaðinn. Nú hefur Auðbjörn Krist- insson, sem stofnaði Ísfugl en fór frá fyrirtækinu þegar fyrirtækið gekk í gegnum fjárhagslega endurskipu- lagningu fyrr á þessu ári, keypt svínabú á Suðurlandi og hyggst breyta því og hefja þar kjúklinga- framleiðslu. Hann reiknar með að koma inn á markaðinn með kjúklinga um næstu áramót. Til að byrja með stefnir hann að 300 tonn ársfram- leiðslu. Of miklar birgðir af lambakjöti Eins og áður segir hefur lamba- kjötið til margra ára verið í vörn. Fjárhagslegt skipbrot Kjötumboðs- ins, áður Goða, olli mörgum bændum verulegum erfiðleikum, en auk þess skapaðist tómarúm sem varð til þess að markaðsmálum lambakjöts var ekki vel sinnt. Sala á lambakjöti á fyrri hluta ársins hrundi, en salan í sumar var allgóð. Engu að síður er ljóst að sala á lambakjöti mun dragast saman á þessu ári. Um síðustu mánaðamót voru um 1.000 tonn af lambakjöti til í landinu, en í bréfi sem Bændasamtökin sendu landbúnaðarráðherra 22. ágúst sl. kemur fram að talið sé að um 400 tonna birgðir séu nægilegar við upp- haf sláturtíðar. Í bréfinu kemur fram að 6–8 milljónir kosti á ársgrundvelli að geyma 100 tonn af kjöti. Í bréfi Bændasamtakanna segir að „hæfileg birgðastaða [sé] forsenda af- urðalánafyrirgreiðslu og því trygging bænda og sláturleyfishafa fyrir því, að unnt sé að greiða bændum fyrir sauðfjárafurðir með eðlilegum hætti.“ Bændasamtökin lögðu til að út- flutningshlutfall í haust yrði 28%, en það var 21% í fyrrahaust. Landbún- aðarráðherra fór ekki að tillögum Bændasamtakanna og ákvað að hlut- fallið yrði 25%. Þetta þýðir að bændur eru skuldbundnir til að flytja út 25% framleiðslunnar, en verðið sem fæst fyrir hana er lægra en það sem bænd- ur fá á innanlandsmarkaði. Hærra út- flutningshlutfall þýðir því launalækk- un fyrir bændur. Ástæðan fyrir því að Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra vildi ekki fara að tillögum Bændasamtakanna var einmitt að hann vildi ekki taka svona stórt skref í þá átt að lækka laun bænda, auk þess sem hann vildi hvetja menn til að selja meira lambakjöt hér á landi. Guðmundur Lárusson er mjög gagnrýninn á ákvörðun landbúnaðar- ráðherra. „Það er eins og menn hafi ekki áttað sig á því að þetta útflutn- ingshlutfall er tæki sauðfjárbænda til að halda uppi verði á innanlands- markaði. Í raun og veru er landbún- aðarráðherra með þessu að ganga þvert á þann samning sem hann gerði sjálfur við Bændasamtökin. Ég efast ekkert um að Guðni vilji vel en það selst ekkert meira af kjöti með þess- ari aðgerð. Þetta veldur því að það verður bara enn meira offramboð á þessum íslenska markaði og verðið fer enn meira niður.“ Útlit fyrir framleiðsluaukningu í lambakjöti í haust Ákvörðun um að hafa útflutnings- skylduna 25% þýðir að það verður flutt út 200 tonnum minna af lamba- kjöti en gert hefði verið ef hlutfallið hefði verið 28%. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, sagði að útlit væri fyrir að framleiðsla á lambakjöti yrði meiri í haust en í fyrrahaust. Ástæðan væri annars vegar að meira hefði verið sett á af sauðfé í fyrrahaust en áður og eins benti flest til þess að fallþungi yrði meiri í haust en í fyrra. Hann sagði að í þeirri stöðu sem nú blasti við væri ekki annað að gera en að herða veru- lega sölustarfsemina. Guðmundur Lárusson sagðist telja að margt ylli þeirri varnarstöðu sem lambakjötið væri í. Lambakjötið hefði ekki haldið í við aðrar kjötgreinar í sambandi við vöruþróun. Seljendur hefðu minna upp úr því að selja lambakjöt en aðrar greinar. „Ég tel einnig að eitt af vandamál- unum sé að lambakjötið sé kjöt án hirðis,“ sagði Guðmundur. Hann benti á að Svínaræktarfélag Íslands og Landssamband kúabænda væru mjög sterk samtök sem héldu fast ut- an um sínar greinar. Landssamtök sauðfjárbænda og Bændasamtökin væru hins vegar bæði að bera fram hagsmuni sauðfjárbænda en hvorug- ur aðili bæri almennilega ábyrgð á málefnum greinarinnar. Kerfið væri óskaplega seinvirkt. Allir að tapa? Sala á nautakjöti hefur minnkað um 2% á síðustu 12 mánuðum. Fram- leiðendur kvarta mikið undan verðinu sem þeir segja ekki standa undir framleiðslukostnaði. Svínabændur segjast líka hafa verið að framleiða kjöt undir kostnaðarverði í sumar. Kjúklingaframleiðslan hefur heldur ekki verið eins ábatasöm síðustu misserin og hún var árin þar á undan. Það þarf heldur ekki að hafa mörg orð um afkomu sauðfjárbænda sem þurfa nú að taka á sig launalækkun sam- hliða auknum útflutningi. Útlit er fyrir að samkeppni á kjötmarkaði verði afar hörð í haust Framboð á kjúklingum er farið að aukast aftur Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Framleiðsla á kindakjöti á síðasta ári var um 8.620 tonn en horfur eru á að framleiðslan á þessu hausti verði heldur meiri. Á sama tíma og landbúnaðarráðherra skor- ar á sauðfjárbændur að herða sölu á lamba- kjöti hefur framboð á svínakjöti sjaldan ver- ið meira og framboð á kjúklingum er þessa dagana að stóraukast. Egill Ólafsson skoð- aði samkeppnina á kjötmarkaðinum. egol@mbl.is SIGURÐUR Björnsson, for- maður sérfræðingafélags ís- lenskra lækna, segir eðlilegt að skoða hvort læknar fái kostnað vegna endurmenntunar tví- greiddan, eins og ríkisendur- skoðun segir í umfjöllun sinni um samninga Tryggingastofn- unar ríkisins vegna sérfræði- lækna í skurð- og svæfingar- lækningum. Ríkisendurskoðun segir að í kostnaðarlíkani TR komi fram að í samningum hennar sé greitt fyrir tveggja vikna endur- menntun erlendis á hverju ári. Fái læknar á samningi við TR, sem eru í fullu starfi á opinberri sjúkrastofnun, endurmenntun- arkostnað tvígreiddan þar sem þeir hafi þegar fengið hann greiddan þar, þ.e. á sjúkrastofn- unum. „Samkvæmt mínum skilningi taka spítalar þátt í kostnaði vegna 15 námsdaga sem sér- fræðilæknar í fullri vinnu fá ár- lega,“ segir Sigurður. „Vinni læknar alfarið utan spítala munu þeir hafa samið við TR um viðlíka langt námsleyfi og læknar á spítulunum. Ef læknar eru í hlutastörfum, annars vegar inni á spítulum og hins vegar ut- an þeirra, er farinn einhvers konar millivegur. Komi það í ljós að það sé verið að tvígreiða læknum fyrir námsdaga finnst mér eðlilegt að það verði skoðað þannig að þeir geti ekki notfært sér námsrétt á báðum stöðum.“ Læknar notfæri sér ekki náms- rétt á báð- um stöðum FJÖLSKYLDA dr. Sunitu Ghandi, framkvæmdastjóra Ís- lensku menntasamtakanna, fær friðarverðlaun UNESCO, Menningarmálastofnunar Sam- einuðu þjóðanna, sem afhent verða í höfuðstöðvum stofnun- arinnar í París á mánudag. Foreldrar Sunitu og fjöl- skyldan eruverðlaunuð vegna City Montessori School á Ind- landi sem foreldrar hennar stofnuðu og er rekinn með sömu hugmyndafræði að leiðarljósi og Áslandsskóli í Hafnarfirði. Alls ganga 26 þúsund börn í skólann. Segir Sunita að þetta sé í fyrsta skipti sem skóli fær við- urkenningu frá UNESCO fyrir starf sitt í þágu friðar, þetta sé mikilvæg viðurkenning á því starfi sem skólar geta unnið til að stuðla að friði í heiminum. Móðir Theresa fékk þessi verð- laun fyrir ellefu árum og segir Sunita að þetta sé því í annað skiptið á tuttugu árum sem Ind- verjar hljóta verðlaunin. Hlutu friðar- verðlaun UNESCO HAFLIÐI Ragnarsson, bakara- og konditor- meistari í Mosfellsbakaríi, vann sigur í Belg- ian Chocolate Award, undankeppni Evr- ópukeppninnar í súkkulaðiskreytingum og Þormar Þorbergsson hjá Café Konditori var í öðru sæti. Keppnin var haldin í Óðinsvéum á Fjóni og er þetta er í fyrsta sinn sem Íslend- ingar taka þátt í henni. „Fjórir Danir og þrír Íslendingar kepptu og það komst einn áfram frá hvorri þjóð og ég mun því taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður í apríl á næsta ári en þar taka þátt átta til tíu Evrópuþjóðir. Belgísku yfirdóm- ararnir voru mjög hrifnir af því sem við vorum að gera og ég er mjög ánægður með þennan árangur,“ segir Hafliði. Hafliði segir að allir keppendur hafi fengið eitt þema, dulúð Austurlanda, og þeir hafi þurft að búa til tertu, tvær teg- undir af konfekti, sýningarstykki úr súkku- laði og eftirrétt fyrir sex manns. „Það er unnið í tíu tíma í einni lotu og allar reglur eru mjög strangar þannig að þetta tók vissulega á.“ Íslenskur sigur í súkkulaðiskreytingum Hafliði Ragnarsson TVÆR konur leituðu til neyðar- móttöku vegna nauðgana á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi eftir verslunarmannahelgina. Báðar nauðganirnar áttu sér stað á Þjóðhátíðinni í Vestmanna- eyjum, samkvæmt upplýsingum neyðarmóttökunnar. Annað málið var í athugun hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en hvorug konan kærði nauðgunina. Undanfarin ár eru dæmi um að kærur hafa borist nokkru eftir verslunarmannahelgi en svo var ekki nú. Eyrún Jónsdóttir hjá neyðar- móttökunni segir fjölda þeirra kvenna sem til móttökunnar leita ekki segja alla söguna varðandi nauðganir um verslunarmanna- helgina. Verslunarmannahelgin Nauðganir í Eyjum ekki kærðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.