Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 17 SAMTÖK smásala í Bandaríkjunum, National Retail Federation, hafa höfðað mál á hendur greiðslukorta- fyrirtækjunum Visa og MasterCard. Kaupmennirnir eru óánægðir með að vera þvingaðir til að taka við deb- etkortum greiðslukortafyrirtækj- anna þar sem undirskriftar er kraf- ist og telja debetkort þar sem viðskiptavinurinn stimplar sjálfur inn leyninúmer (PIN-númer), öruggari en þau sem einungis krefj- ast undirskriftar. Félagar í NRF eru yfir 7,6 millj- ónir smásöluverslanir í Bandaríkj- unum og eru þær sjálfkrafa aðilar að málaferlunum og þurfa sérstaklega að skrá sig úr þeim ef ekki er vilji fyrir þátttöku, að því er fram kemur í fréttabréfi NRF. Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, segir í samtali við Morg- unblaðið að SVÞ sé vissulega sam- mála áliti NRF, en SVÞ á aukaaðild að bandarísku samtökunum. Það er álit SVÞ að svokölluð PIN-debetkort séu mun öruggari en debetkortin sem styðjast við undirskrift og notuð eru hér á landi, en á móti komi auk- inn kostnaður við tækjakaup. Þau fyrrnefndu eru mun útbreiddari t.d. á Norðurlöndunum. SVÞ eru aðili að EuroCommerce í Brussel, Evrópusamtökum verslun- ar. EuroCommerce stendur einnig í málaferlum við greiðslukortafyrir- tækin Visa og MasterCard. Sigurður segir að þau málaferli snúist fyrst og fremst um að gjaldskrár greiðslu- kortafyrirtækjanna séu ekki nægi- lega gegnsæjar. Einnig séu kaup- menn óánægðir með að vera skyldugir til að taka við öllum kort- um frá fyrirtækjunum. Sigurður segir að ástandið sé í raun verra á Íslandi en í Bandaríkj- unum þar sem greiðslukortavið- skipti séu svo mikil hér á landi. Fyr- irtæki verði að taka við greiðslu- kortum ella geti þau ekki stundað viðskipti. Reglurnar eru á forsend- um greiðslukortafyrirtækjanna og samningar í raun einhliða, að mati Sigurðar. Smásalar í Bandaríkjunum Sameiginlegt mál á hendur greiðslu- kortafyrirtækjum Reuters ÍSLANDSBANKI hefur verið valinn í hóp „bestu banka heims og út- nefndur besti bankinn á Íslandi árið 2002 af tveimur fagtímaritum um bankamál og fjármálamarkaði, The Banker og Global Finance. Þar með hafa þrjú bankatímarit valið Ís- landsbanka sem banka ársins hér á landi, en fyrir nokkrum vikum til- kynnti Euromoney val sitt á Ís- landsbanka sem besta banka lands- ins, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. Breska fjármálatímaritið The Banker rökstyður val sitt á Íslands- banka sem banka ársins á Íslandi með því að benda á þjónustuúrval bankans og rekstrarárangur. „Sam- runi Íslandsbanka og FBA hafi ver- ið árangursríkur og sterk fjárhags- staða Íslandsbanka og hærra lánshæfismat en hjá keppinautum veiti bankanum forskot í þjónustu við leiðandi fyrirtæki,“ að því er segir í tilkynningu. The Banker er gefið út af útgáfufyrirtæki Fin- ancial Times og voru verðlaun tímaritsins afhent nýverið. Bandaríska tímaritið Global Fin- ance velur árlega „bestu“ banka heims og er Íslandsbanki einn 32 banka frá 27 löndum í þeim hópi í ár. Verðlaunin verða afhent í Wash- ington í lok mánaðarins. Bankarnir eru valdir m.a. á grundvelli rekstr- arárangurs, orðspors og góðrar stjórnunar samkvæmt tillögum bankamanna og fjármálastjóra víða um heim. Tímarit velja „bestu“ bankana Íslandsbanki í hópi þeirra „bestu“ www.delta.is HLUTHAFAFUNDUR DELTA HF. Stjórn Delta hf. boðar hér með til hluthafafundar skv. gr. 4.03 í samþykktum félagsins. Hluthafafundurinn verður haldinn á Hótel Sögu í A-sal, 26. september 2002 kl. 17.00. Á fundinum mun stjórn félagsins leggja fram tillögu þess efnis að á grundvelli samrunaáætlunar sem stjórn félagsins undirritaði þann 12. ágúst síðastliðinn, verði samruni félagsins við Parmaco hf. samþykktur. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á hluthafafundinum, skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir fundinn eða fyrir lok dagsins 18. september 2002. Dagskrá hluthafafundarins og endanlegar tillögur og fylgiskjöl munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis frá og með 19. september 2002 og eru sendar sérhverjum skráðum hluthafa, sem þess óskar. Hafnarfirði 17. september 2002, stjórn Delta hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.