Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kastari De-Lux gylltur
Verð áður: 2795 kr.
1.957 -
Verð áður: 1.745 kr.
Loftljós Chris
Verð áður: 4.195 kr.
2.517 -
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
18
79
0
0
9/
20
02
Loftljós Miramar, hvítt
995 -
Útiljós Classica úr áli
Verð áður: 6.795 kr.
4.345 -
Kastari De-Lux blár
Verð áður: 2795 kr.
1.957 -
40 og 60w
Ljósaperur
460 -
10
saman
í pakka
Ljósadagar
15-50% afsláttur
Norræn ráðstefna
Lýðræði eflt
í skólastarfi
LÝÐRÆÐI í skóla-starfi. Gildismat ímálefnum barna og
ungmenna á Norðurlönd-
um“, er yfirskrift ráð-
stefnu, sem haldin verður á
Hótel Loftleiðum á morg-
un. Þetta er ein af fimm
ráðstefnum sem haldnar
eru á Norðurlöndum í til-
efni af 50 ára afmæli Norð-
urlandaráðs. Sesselja
Snævarr, deildarsérfræð-
ingur í leik- og grunnskóla-
deild í menntamálaráðu-
neytinu, hefur verið
fulltrúi ráðuneytisins í nor-
rænum starfshópi um gildi
í skólastarfi, sem hóf störf
síðla árs 2000, og tekið þátt
í undirbúningi verkefnis-
ins. Var hún spurð um við-
fangsefni ráðstefnunnar.
„Fjallað verður um lýðræðisleg
gildi í skólastarfi, sem taka mið af
grunngildum hjá hverri þjóð. Þau
felast aftur í lögum og reglugerð-
um, sem tekið er mið af í aðalnám-
skrám skólanna. Það má segja að
hornsteinarnir séu umburðar-
lyndi, kristilegt siðgæði og lýð-
ræðislegt samstarf. Það er sá
grunnur sem allt samfélag okkar
byggist á. Það sem fyrir okkur
vakir er að skerpa á lýðræðisleg-
um gildum í skólastarfinu í leik-,
grunn- og framhaldsskóla.“
– Í hverju felast lýðræðisleg
gildi í skólastarfi?
„Það er auðvitað fjölþætt hug-
tak, sem felur m.a. í sér umburð-
arlyndi, gagnkvæma virðingu,
samvinnu, jafnrétti, tjáningar-
frelsi og gagnrýna hugsun. Við
þurfum að gera lýðræðisleg gildi
sýnileg, bæði í formlegu og óform-
legu námi.“
– Hvað áttu við með því?
„Nemendur þurfa að læra um
lýðræðisleg gildi en einnig þurfa
vinnubrögð í skólastarfi að vera
lýðræðisleg og ná til þátta eins og
félagsstarfa.“
– Ráðstefnan er haldin í tilefni
af 50 ára afmæli Norðurlandaráðs.
„Hugmyndin kviknaði hjá nor-
ræna samstarfshópnum, sem hafði
það verkefni að fjalla um gildi í
skólastarfi og draga einnig fram í
dagsljósið sameiginleg norræn
gildi. Til þess að ná markvissum
tökum á viðfangsefninu varð úr að
hópurinn takmarkaði sig við lýð-
ræði og lýðræðisleg gildi, enda eru
þau rótgróin í menningu allra
Norðurlandanna.“
– Þannig að ákveðið var að
standa fyrir ráðstefnu?
„Haldnar eru fimm ráðstefnur,
ein í hverju landi. Ráðstefnan hér
á landi er sú síðasta í röðinni, en sú
fyrsta var haldin 29. ágúst. Nið-
urstöðurnar verða svo kynntar á
lokamálþingi, sem haldið verður
29. október í Finnlandi í tilefni af
50 ára afmæli Norðurlandaráðs.
Þá verða einnig kynnt skólaverk-
efni frá hverju landi, og verður
okkar framlag verkefni um lífs-
leikni í grunnskólum.“
– Hvernig verður ráðstefnan á
morgun uppbyggð?
„Ráðstefnurnar
fimm eru eins upp-
byggðar og hefur Vig-
dís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Ís-
lands, verið aðalfyrir-
lesari á þeim öllum og fjallað um
lýðræði í daglegu skólastarfi. Í
hverju landi eru rannsóknir
kynntar og mun Sigrún Aðal-
bjarnardóttir prófessor halda er-
indi sem hún nefnir: „Að rækta
lýðræðisleg gildi – lykillinn að
betri heimi.“ Á síðari hluta nám-
skeiðsins verður fjallað um það
sem að okkur sjálfum snýr. Fyrst
verður stuttlega gerð grein fyrir
norræna samstarfinu. Síðan halda
tveir nemendur Menntaskólans
við Hamrahlíð erindi um skólalýð-
ræði. Þá verður Guðmundur Andri
Thorsson með hugleiðingu og loks
fáum við kynningu á lífsleikni í
grunnskóla.“
– Er lýðræði í skólastarfi ábóta-
vant hér á landi?
„Það er þörf á því að skerpa enn
frekar á lýðræðislegum gildum.
Ýmis teikn eru á lofti um aukið of-
beldi hjá börnum og unglingum,
t.d. einelti og agabrot. Og sú stað-
reynd að við lifum í fjölmenning-
arlegu samfélagi reynir á alla
þessa þætti, ekki síst gagnkvæma
virðingu og umburðarlyndi. Skól-
inn er vinnustaður nemenda og
flest börn eyða þar bróðurparti
dagsins. Því er það drjúgur hluti af
uppeldi barna, þó að frumábyrgð-
in hvíli á foreldrum. Allir þurfa að
leggjast á eitt í uppeldinu. Skólinn
þarf að efla sjálfstæð vinnubrögð,
gagnrýna hugsun, frumkvæði og
samstarfshæfni til að mæta kröf-
um nútímans. Það kallar á breytta
starfshætti í skólum og lýðræðis-
legri vinnubrögð í samstarfi við
ýmsa aðila, s.s. foreldra. Víða eru
þessi vinnubrögð viðhöfð og heil-
mikið af skemmtilegum verkefn-
um, t.d. í lífsleikni, en nokkur
þeirra verða sýnd á ráðstefnunni.
Ráðstefnan er ekki opin al-
menningi, en gefin verður út loka-
skýrsla um verkefnið hér heima,
sem við reynum að nýta
okkur sem allra best.
Við væntum þess að
ráðstefnan leiði til auk-
innar umræðu um lýð-
ræðisleg gildi í skóla-
starfi. Síðan verður
gefin út skýrsla á vegum norrænu
ráðherranefndarinnar um ráð-
stefnuna í október með samantekt
á íslensku. Skýrslurnar verða að-
gengilegar á heimasíðu mennta-
málaráðuneytisins, www.mennta-
malaraduneyti.is, og norrænu
ráðherranefndarinnar,
www.norden.org, þegar þar að
kemur.“
Sesselja Snævarr
Sesselja Snævarr fæddist árið
1947. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík og
síðan kennaprófi frá Kennara-
skóla Íslands 1968. Hún lauk svo
diplomanámi í uppeldis- og
kennslufræðum með áherslu á
stjórnsýslu frá Kennaraháskóla
Íslands 1998. Sesselja var grunn-
skólakennari frá 1968 og aðstoð-
arskólastjóri frá 1990 til 1999.
Hún er deildarsérfræðingur í
leik- og grunnskóladeild í
menntamálaráðuneytinu. Eig-
inmaður hennar er Kristján
Steinsson gigtarlæknir og eiga
þau fjögur börn.
Lýðræðisleg
gildi rótgróin
í menningu
Norðurlanda
ÞÆR voru nokkuð sportlegar dagmömmurnar Kol-
brún Ævarsdóttir og Guðný Stefánsdóttir, þar sem þær
gengu eftir Skógarlundinum á Akureyri, með heilan
hóp af ungabörnum. Alls voru börnin 9 í kerrunum
tveimur og var hópurinn á leið á einn af leikvöllum bæj-
arins, þar sem til stóð að bregða á leik í veðurblíðunni.
Börnin undu hag sínum vel og eitt þeirra hafði fengið
sér lúr og lagt höfuðið að öxl sessunautar síns.
Morgunblaðið/Kristján
Á leið á leikvöllinn