Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
SK Radíó X
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10. B.i. 12.
1/2
HI.Mbl
HK DV
Kvikmyndir.com
SK.RadioX. i
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
-Kvikmynd eftir-
Baltasar Kormák
Tímamótaverk í
íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís
leiða
eftirminnilegan
leikarahóp sem á
þátt í að gera
Hafið að einni
bestu íslensku
kvikmyndinni
1/2 HK DV
Rás 2
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30. B. i. 12.
MBL
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5 og 7. Vit 426
Hetja framtíðarinnar er mætt í
frábærri grínmynd!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 432
Sýnd kl. 9. Vit 427
Mathew Perry (Friends) og Elizabeth Hurley fara á
kostum í þessari sprenghlægilegu gamanmynd sem
kemur verulega á óvart.
Það eina sem getur
leitt þau saman er
HEFND
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429
Líf þitt mun
aldrei verða eins!
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 435
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
„Litla bláa geimveran Stitcher
skemmtilegasta persónan sem komið
hefur úr smiðju Disney.“ „Frábær
skemmtun fyrir börn og fullorðna.“
„Stitcher ekkert venjulegt Disneykrútt!“
ÞÞ Fréttablaðið
MBL
„ÞEGAR ég fór út í gerð þessarar
myndar gerði ég mér ekki grein
fyrir hvort þetta efni væri fyrir
áhorfendur eða ekki,“ segir Balt-
asar Kormákur, leikstjóri og með-
höfundur kvikmyndarinnar Hafið,
sem frumsýnd var um helgina við
betri viðtökur en íslensk mynd
hefur áður hlotið.
„Það er frábært að horfa upp á
mynd með Gunnari Eyjólfssyni og
Herdísi Þorvaldsdóttur leggja að
velli ameríska hasarmynd á borð
við þær sem markaðurinn er fullur
af,“ segir Baltasar kíminn og á þar
við að Hafið hafi hlotið meiri að-
sókn en bandaríska stórmyndin
xXx með vöðvabúntinu Vin Diesel í
aðalhlutverki. „Það er flott að eiga
þátt í að geta séð Gunnar taka Vin
Diesel í sjómanni.“
Alls lögðu 8.176 manns leið sína
á myndina frá frumsýningardeg-
inum á föstudag og fram á sunnu-
dag en engin íslensk mynd hefur
farið svo vel af stað síðan mæl-
ingar á aðsókn hófust á vegum
hlutlausra aðila.
„Miðað við viðbrögðin sem við
fengum við myndinni á frumsýn-
ingunum hér heima og á kvik-
myndahátíðinni í Toronto koma
þessar hlýju móttökur þó kannski
ekki á óvart,“ segir Baltasar.
Hafið hefur ekki einasta fengið
góðar viðtökur meðal almennra
bíógesta á landinu því gagnrýn-
endur hafa og hlaðið hana svo
miklu lofi að annað eins hefur vart
tíðkast um íslenska mynd.
Hafið segir harmræna sögu af
sundraðri útgerðarfjölskyldu í
ónefndu sjávarplássi úti á landi.
Gunnar Eyjólfsson leikur útgerð-
armann á efri árum sem orðið er
umhuga um hver örlög ævistarfs-
ins verða, enda ekki nema von því
uppkomin börn hans hafa lítinn
áhuga á að halda áfram rekstri út-
gerðarinnar og vilja miklu fremur
selja útgerðina og kvótann og
græða á öllu saman. En það er
ekki eini vandinn sem fjölskyldan
stendur frammi fyrir því mörg og
miður skemmtileg leyndarmál eiga
eftir að koma upp á yfirborðið og
vinna henni enn frekari skaða.
Gagnrýnendur eru almennt sam-
mála um að Baltasar hafi tekist
betur en nokkrum öðrum að fanga
þennan alíslenska veruleika, þá
kreppu sem steðjar að íslenskum
sjávarútvegi og lífi þeirra sem alið
hafa manninn á útgerðarstöðum
landsins.
„Mér fannst kominn tími til að
segja sögu í íslenskri bíómynd sem
skiptir fólk máli,“ segir Baltasar.
Hann segist hafa gert sér grein
fyrir að efni myndarinnar kynni að
verða umdeilt. „Þegar ég geri bíó-
mynd er markmiðið síður en svo
að reyna að þóknast öllum. Þetta
eru engar rómantískar kómedíur.
Það er því þeim mun ánægjulegra
að finna fyrir þeim jákvæðu við-
brögðum sem myndin hefur hlotið
úr öllum áttum.“
Myndin var nær alfarið tekin í
Neskaupstað og til þess að heiðra
heimamenn, framlag þeirra til
myndarinnar og gestrisni var
myndin frumsýnd þar í bæ degi
fyrr en á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarbúar voru greinilega afar
spenntir að sjá afraksturinn því nú
þegar hafa 900 manns séð mynd-
ina þar, sem verður að teljast til
tíðinda á stað sem telur um 1.500
íbúa.
Af þessum góðu viðtökum sem
myndin fékk að dæma má fastlega
búast við því að myndin verði í
hópi þeirra mest sóttu á árinu.
Christof Wehmeier hjá Sambíóun-
um og Háskólabíói telur lítinn vafa
leika á því, sérstaklega í ljósi hins
góða orðs sem af myndinni fer og
að auglýsingaherferð í tengslum
við myndina sé ekki komin á fullan
skrið. Christof segir og vega þungt
hversu mikið af eldra fólki komi og
sjái Hafið, en það sé sá markhópur
sem erfiðast sé, alla jafnan, að laða
í bíó.
Góðar viðtökur hér á landi og í
Toronto hafa þegar vakið athygli
utan landsteinanna og hefur fag-
kvikmyndaritið virta Screen Int-
ernational t.a.m. í hyggju að gera
þeim skil. „Það þykir stórfrétt í
kvikmyndabransanum þegar „lo-
cal“-mynd, eins og það er kallað,
mynd sem hefur menningarlegri
Íslenska myndin Hafið slær nýtt frumsýningarmet
Yfir 8 þúsund gestir
á þremur dögum
Miðað við fyrstu viðbrögð má búast við því að Hafið skipi sér í hóp með
vinsælustu íslensku kvikmyndunum.
Á LAUGARDAGINN var Drag-
drottning Íslands kosin í sjötta
sinn og fór keppnin fram á Spot-
light. Húsið var yfirfullt, að sögn
Georgs Erlingssonar, sem var
annar tveggja framkvæmdastjóra
keppninnar, og komust færri að
en vildu.
Þetta árið sigraði Skjöldur Ey-
fjörð sem hin óviðjafnanlega Mio
og var atriði hans rafmagnað, í
orðsins fyllstu merkingu. Þema
ársins var Evróvisjón og söng
hann lagið „Energy“ sem Nusa
Derenda söng fyrir Slóveníu í
fyrra.
Georg segir að úr vöndu hafi
verið að ráða hvað sigurvegara
varðaði en keppendur voru alls
níu í ár. Réðust úrslitin ekki fyrr
en í síðustu umferð en að sjálf-
sögðu voru stig gefin að hætti
Evróvisjónkeppninnar.
Áhorfendur gátu greitt at-
kvæði, annaðhvort með seðli eða
sms, og dómnefndin var skelegg
að vanda en hún var þetta árið
skipuð þeim Felix Bergssyni, Þór-
unni Lárusdóttur, Ragnheiði Ei-
ríksdóttur, Margréti Eiri, Hálf-
dani Steinþórssyni, Sólveigu
Zophoníasdóttur og Þorsteini Vil-
hjálmssyni.
Mio fór á kostum.
Þátttakendur fagna að lokinni vel heppnaðri keppni.
Kraftur
í Skildi
Café Romance Ray Ramon og
Mete Gudmundsen spila fyrir gesti.
Félagsheimilið á
Kirkjubæjarklaustri Tónleikar með
Bubba Morthens og Heru.
Regnboginn Spænska kvik-
myndahátíðin í fullum gangi.
Eftirfarandi myndir eru sýndar: Síð-
asta ferð R.R. og Pau & bróðir hans
kl. 18, Ræddu málin og Elskhugar
kl. 20, Rigning í skónum og Smit-
aður/stuttmyndir kl. 22.15.
Í DAG
Nýjasta mynd Almodóvars, Ræddu mál-
in, er sýnd í kvöld í Regnboganum. Sjá einnig Staður og stund á mbl.is