Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 19 S T Í L L E R E K K I S T Æ R Ð . . . H E L D U R V I Ð H O R F ! Stærðir 40-52 HAUST/VETUR O2 KYNNINGARDAGAR 18.-24. SEPT. Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862 FULLTRÚAR ríkjanna fimm sem eiga fast sæti í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna brugðust mjög ólíkt við yfirlýsingu Íraka frá því í fyrra- kvöld, um að þeir séu reiðubúnir til að heimila vopnaeftirlit í landinu á nýjan leik. Rússar fögnuðu ákvörðun Íraka og sögðu að þar með hefði stríði í Mið-Austurlöndum verið af- stýrt en Bretar tóku hins vegar und- ir með Bandaríkjamönnum að ekki yrði hjá því komist að öryggisráðið ályktaði að nýju um málefni Íraks. „Þökk sé samtakamætti okkar, hefur okkur tekist að afstýra stríði og getum nú hafist aftur handa við að leysa Íraksdeiluna eftir pólitísk- um leiðum,“ sagði Ígor Ívanov, utan- ríkisráðherra Rússlands. „Það skipt- ir öllu að á næstu dögum verði komist að samkomulagi um hvernig staðið skuli að vopnaeftirlitinu. Ekki þarf nýjar ályktanir [öryggisráðs] til þess,“ sagði Ívanov. Ekki er ljóst hversu djúpt klofn- ingurinn meðal fastafulltrúa í örygg- isráðinu ristir en auk Rússa, Breta og Bandaríkjanna hafa Kínverjar og Frakkar neitunarvald í ráðinu. Munurinn á viðbrögðum Breta og Rússa var þó afar mikill. Sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, að menn hlytu að hafa miklar efa- semdir um heilindi Íraka í þessu máli. Þá tók hann undir þau orð bandarískra stjórnarerindreka að áfram þyrfti að vinna að því á vett- vangi öryggisráðs SÞ að álykta um málefni Íraks. Ályktanir öryggis- ráðsins væru orðnar nokkurra ára gamlar og árétta þyrfti þann vilja al- þjóðasamfélagsins að Írakar uppfylli skyldur sínar og fargi gereyðingar- vopnum sínum, svo nokkuð sé nefnt. Verkin þurfa að tala Kínverjar tóku í svipaðan streng og Rússar og fóru fram á að vopna- eftirlitsmenn SÞ greindu hlutlaust frá vopnaeign Íraka, er þeir tækju þar aftur til starfa. „Ákvörðun Íraka er sú sem alþjóðasamfélagið, þ.m.t. Kína, vonaðist alltaf til að yrði ofan á,“ sagði Tang Jiaxuan, utanríkisráð- herra Kína, í samtali við Xinhua- fréttastofuna kínversku. Evrópuþjóðirnar fögnuðu ákvörð- un Íraka en voru varfærnari í yfir- lýsingum og tóku m.a. fram að nú þyrftu verkin að tala. Sagði Domin- ique de Villepin, utanríkisráðherra Frakka, að öryggisráð SÞ yrði nú „að sjá til þess að Saddam Hussein standi við orð sín“. Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, sagði tilkynningu Íraka „skref í rétta átt“ og að nú gæfist tækifæri til að starfa að því á vettvangi SÞ að finna pólitíska lausn á vandanum. Hann sagði hins vegar einnig að gera þyrfti Írökum ljóst að það væri undir þeim komið hvort tækist að afstýra harmleik í landinu og í heimshlutanum öllum. „Stjórnin í Bagdad verður nú að uppfylla skyldur sínar án undanbragða,“ sagði Fischer í yfirlýsingu sinni. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, þakkaði Amr Moussa, fram- kvæmdastjóra Arababandalagsins, fyrir það í fyrrakvöld að hafa stuðlað að því að Írakar tóku af skarið. Viðbrögð í öryggis- ráðinu afar ólík London, Sameinuðu þjóðunum. AFP. ’ Stjórnin í Bagdadverður nú að upp- fylla skyldur sínar án nokkurra undan- bragða. ‘ Reuters Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á fréttamannafundi í New York.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.