Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 7 Hagstæð skíðafargjöld með Flugleiðum og SAS á bestu skíðasvæði Evrópu ÍTALÍA Mílanó 42.870 kr.* • Madonna di Campiglio • Val di Fassa • Selva Val Gardena FRAKKLAND Genf 43.280 kr.* • Val d´Isère / Tignes • Dalirnir þrír (Méribel, Courcheval og Val Thorens) • Chamonix AUSTURRÍKI München 43.300 kr.* • Kitzbühel / Kirchberg • Zell am See • Lech / St. Anton SVISS Zürich 43.600 kr.* • St. Moritz • Cranz Montana • Davos Skíða-ævintýri FRANKFURT – flug og bíll 48.565 kr.** m.v. 2 í bíl í B flokki í eina viku. PARÍS – flug og bíll 47.775 kr.** m.v. 2 í bíl í B flokki í eina viku. Snjórinn færir okkur nær hvert öðru… Ferðir þessar gefa 3600-4200 ferðapunkta * Verð með flugvallarsköttum og þjónustugjaldi. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn og áfram með SAS. Ferðir skulu farnar á tímabilinu 1.des.-31.mars (síðasti heim komudagur er 31. mars). Bókunarfyrirvari er 7 dagar. Lágmarksdvöl er 7 dagar og hámarksdvöl er 21 dagur. ** Verð með flugvallarsköttum og þjónustugjaldi. Ferðir skulu farnar á tímabilinu 1. okt.-31.mars (síðasti heimkomu dagur er 31.mars). Enginn bókunarfyrirvari. Lágmarksdvöl er 7 dagar og hámarksdvöl er 21 dagur. */** 2ja–11 ára börn greiða 67% og yngri en 2ja ára greiða 10% af fargjaldi. Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða Fjarsölu Flugleiða í síma 50 50 100 (svarað mánud.–föstud. kl. 8–20, laugard. kl. 9–17 og á sunnud. frá kl. 10–16). www.icelandair.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 18 61 1 0 9/ 20 02 Halldóri og Árna Steinari Jó- hannssyni, varforseta þingsins, og fleiri alþingismönnum. Ferðaðist sendinefndin meðal annars til Mývants. Í dag þiggur írska sendinefndin hádegisverð á Þing- völlum í boði Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, og fer m.a.í skoðunarferð á írskar söguslóðir á Akranesi og Kjalarnesi. Á morgun mun O’Hanlon og írska sendinefndin heimsækja Al- þingishúsið og ræða við fulltrúa þingflokkkanna en heimsókn hans lýkur á föstudaginn. RORY O’Hanlon, forseti neðri deilar írska þingsins, er staddur hér á landi í opinberri heimsókn í boði Halldórs Blöndals, forseta Alþingis. Með O’Hanlon í för er Séamus Pattison, varaforseti neðri deildar þingsins, en hann hefur setið á þingi í rúma fjóra áratugi, og sex aðrir þingmenn írska þingsins auk fulltrúa frá sendiráði Írlands í Kaupmanna- höfn. Á mánudaginn og í gær var O’Hanlon og írska sendinefndin á ferðalagi um Norðausturland með Ljósmynd/Pétur Bjarni Gíslason Rory O’Hanlon, Árni Steinar Jóhannsson, Séamus Pattison og Halldór Blöndal við Mývatn í gær. Forseti írska þingsins sækir Ísland heim BIFREIÐASTJÓRI flutninga- bifreiðar á Selfossi slasaðist í gær er hann féll aftur fyrir sig úr utanáliggjandi stiga bifreið- ar sinnar. Maðurinn lenti á malbikuðu plani og var fallið um 3 metrar. Var maðurinn fluttur á Sjúkrahúsið á Sel- fossi. Ekki var þó talið að meiðsli hans væru alvarleg. Stiginn mun hafa brotnaði undan manninum með fyrrgreindum afleiðingum. Vinnueftirlit ríkis- ins var látið vita af óhappinu. Féll úr stiga bifreiðar BÆNDUR í Hrunamannahreppi eru ekki sáttir við umgengni gæsa- skyttna á Hrunamannaafrétti. Loft- ur Þorsteinsson, fyrrverandi sveitar- stjóri í Hrunamannahreppi, segir að dæmi séu um að gæsaskyttur loki ekki hliðum á afréttargirðingum, gangi illa um hús hreppsins á afrétt- inum og skilji eftir jeppa- og fjór- hjólaför utan vegslóða. Þá sé búið að sundurskjóta skilti. Loftur tekur þó fram að vissulega hafi komið gæsaskyttur sem gangi vel um svæðið. „En við viljum að sjálfsögðu að allir gangi vel um.“ Loftur, segir það m.a. slæmt að gæsaskyttur skilji hlið á afréttinum eftir opin. Það verði til þess að fé renni í gegnum hliðin og fram í byggð. Daginn fyrir réttirnar, sem voru 13. september sl., hafi bændur á Haukholtum og Skipholti þurft að keyra á þriðja hundrað fjár í rétt- irnar, sem komið var fram í byggð, vegna þess að hlið höfðu verið skilin eftir opin. Loftur segir ennfremur að bændur í hreppnum séu ósáttir við hve gæsaveiðitíminn byrji snemma, en hann byrjar 20. ágúst. „Við teljum að gæsaveiðitíminn byrji of snemma því það kemur styggð á féð.“ Hrunamannaafréttur Ósáttir við umgengni gæsaskyttna BORGARRÁÐ hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi vegna fyr- irhugaðrar stækkunar Grand hótels á Sigtúni 38. Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar, greiddi atkvæði gegn tillögunni. Breytt deiliskipulag gerir ráð fyr- ir tveimur 12-13 hæða turnum sem verða byggðir ofan á hótelið. Fjórar athugasemdir bárust við skipulagstillöguna á sínum tíma þar sem lýst var áhyggjum af skugga- varpi frá turnunum og þeir ekki tald- ir í samræmi við byggð sem fyrir er í hverfinu. Skipulag við Grand hótel samþykkt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.