Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 9 Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.- Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is ...framundan RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI Fös. 27. sept. Geir Ólafsson og bigband Fim 3. okt. Konukvöld, Létt FM 96.7. Lau. 5. okt. KSÍ lokahóf - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Sun. 6. okt. Jazzhátíð Reykjavíkur. Fim 10. okt. Októberfest. Fös. 11. okt. Októberfest. Lau. 12. okt. Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Fös. 18. okt. Pacha FUTURA II. Lau. 19. okt. Viva Latino. Fös. 25. okt. Viva Latino. Love Box náttfataball. Fös. 8. nóv. Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 9. nóv. 80 ára afmæli Fáks og og uppskeruhátíð hestamanna. Sun. 10. nóv. Íslandsmeistaramótið í vaxtarækt. Fös. 15. nóv. Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 16. nóv. Viva Latino. Fim. 21. nóv. Herra Ísland. Fös. 22. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 23. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Fös. 29. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 30. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 7. des. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Fös. 13. des. Jólahlaðborð - ELVIS, stórsýning. Lau. 14. des. Jólahlaðborð - ELVIS, stórsýning. Lau. 21. des. Love Box partý, jólaball Þri . 31. des. GAMLÁRSKVÖLD - Sálin, dansleikur 1. jan. 2003 Óperuballið Frábær sýning, sem slegið hefur rækilega í gegn! Miðaverð: 6,400 kr. fyrir sýningu og kvöldverð . 2,500 kr. fyrir sýningu. Húsið opnar klukkan 19:00 fyrir matargesti. Sýningin hefst kl. 22:00 Föstudagur 27. september: Sýningar til jóla: 5. október, 3ja rétta kvöldverður 12. október, 3ja rétta kvöldverður 25. október, 3ja rétta kvöldverður 8. nóvember, 3ja rétta kvöldverður 15. nóvember, 3ja rétta kvöldverður 16. nóvember, 3ja rétta kvöldverður 22. nóvember, jólahlaðborð 23. nóvember, jólahlaðborð 29. nóvember, jólahlaðborð 30. nóvember, jólahlaðborð 7. desember, jólahlaðborð ásamt frábærum gesta söngvurumog stórhljómsveit Geir Ólafsson Stjörnur kvöldsins eru ungir og upprennandi leikarar og söngvarar.Matseðill:Saffranbætt sjávarréttasúpa. Einiberjaleginn lambavöðvi m/gráðosta-bláberjasósu Frönsk súkklaðiterta m/vanilluís. Sýning þar sem að leikarar, listamenn og dansarar skemmta og þjóna gestum hússins.Syngjandi þjónar... ...grín, glens og gamanVerð fyrir kvöldverð og sýningu er 6.400,- krónur.Litla sviðið opnar klukkan 19.30 - Sýningin stundvíslega kl. 20.00 Sýningar á föstudögum og laugardögum. Síð pils með jökkum Glitrandi jakkar og samkvæmisdress Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. STÓRLAXARNIR lúta nú í gras hver af öðrum og ekki að sjá að minna sé af þeim en síðustu sumur, þvert á móti. Nú síðast fréttist af 22 punda hæng sem veiddist í Ármóta- hyl í Hrútafjarðará fyrir nokkrum dögum. Herma fregnir að laxinn hafi verið allleginn og heilir 108 sentimetrar á lengd, eða jafnlangur og sá stóri af Hólmavaðsstíflunni í Laxá í Aðaldal á dögunum, en sá lax vigtaðist 24 pund. Annar 18 punda lax og fleiri væn- ir veiddust í sama holli í Hrútunni, en úr ánni í sumar eru komnir um 170 laxar, sem er næstum 50 löxum meira en allt síðasta sumar. Hrota í Litluá Vel hefur gengið í Litluá í Keldu- hverfi að undanförnu og fiskur að veiðast á öllum svæðum. Nýverið var þar þriggja daga holl með ríf- lega 60 fiska, mest sjóbirtinga, en einnig nokkra laxa, bleikjur og stað- bundna urriða. Þórarinn Eyfjörð var í hollinu og sagði hann veiðitúr- inn hafa verið draumi líkastan. „Það fór allt saman; frábært veð- ur og fiskur af öllum gerðum á öll- um svæðum. Við fengum þessa fiska á allt frá smáum kúlupúpum og upp í straumflugur. Ég get nefnt Rektor, Grey Ghost, Flæðarmúsina, Peacock, Mobuto og Black Zulu.“ Eins og kviðpokaseiði Þórarinn átti ekki orð yfir hold- astuðli fiska sem veiddust. Sjálfur veiddi hann staðbundinn urriða sem var 63 cm en svo feitur að hann var með fitufellingar fram á sporð. „Þetta var nánast eins og skrímsli, hann var vaxinn eins og kviðpoka- seiði,“ bætti Þórarinn við. Hann veiddi einnig 78 cm sjóbirting sem var hnöttóttur af spiki. Var hann áætlaður á bilinu 12 til 14 pund. Alls veiddi hópurinn sjö birtinga sem metnir voru um og yfir 10 pund. Ýmsar fréttir Síðastliðinn föstudag kom 500. laxinn úr Leirvogsá. Þann dag veiddust sex laxar í ánni og allir á flugu. Gott vatn er í ánni, mikill lax og enn sjást nýir fiskar. Þetta er frábær útkoma í ánni, en veitt er út vikuna. Breiðdalsá er að leka yfir 300 laxa og að sögn leigutakans, Þrast- ar Elliðasonar, eru að reytast þetta 3 til 7 laxar á dag og alltaf ein- hverjir nýgengnir í bland. Mjög stórir laxar sjást í ánni á nokkrum stöðum, vel yfir 20 punda, en þeir hafa ekki tekið enn sem komið er. Laxar þessir sjást t.d. í Gljúfrahyl, Ármótum í Tinnu og Skútahyl í Norðurdalsá. Sjö laxar veiddust á eina stöng í Hvolsá/Staðarhólsá í fyrramorgun, en þar hefur laxveiðin verið afar döpur í sumar. Einn laxinn var 13 pund. Bleikjuveiðin er einnig mun lakari en vant er, innan við 500 fisk- ar að sögn Þrastar Elliðasonar, annars leigutaka svæðisins. 22 punda hæng- ur úr Hrútunni Morgunblaðið/Páll Ketilsson Sævar Garðarsson og Björn Björnsson með 9 og 13 punda laxa sem þeir fengu í Langá fyrir nokkrum dögum. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga Íbúarnir verði ekki færri en 500–1.000 HUGSANLEGT er að kannaðar verði aðrar leiðir í sameiningarferli sveitarfélaga, meðal annars að hækka lágmarksíbúatölu úr 50 í 500– 1.000 íbúa, ef ekki næst viðunandi ár- angur á næstu árum í sameiningar- málum, að sögn Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar, formanns stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á landsþingi sambandsins sem fram fer á Akureyri dagana 25.–27. september nk. verða til umfjöllunar næstu skref í sameiningarmálum sveitarfélaga og segir Vilhjálmur að sú hugmynd hafi einnig verið rædd að fram fari umræða um hvort leggja eigi fram heildstæða tillögu í sam- starfi ríkis og sveitarfélaga um skiptingu landsins í sveitarfélög. „Þetta eru hugmyndir sem menn hafa verið að velta upp. Ég held að það séu flestir sammála um að þrátt fyrir þennan mikla árangur sem náðst hefur undanfarinn áratug séu sveitarfélög með 50–60 íbúa ekki nægjanlega sterkar stjórnsýsluein- ingar til að sinna þeim viðamiklu og vandasömu verkefnum sem sveitar- félögum er ætlað að sinna,“ segir Vil- hjálmur. Fjallað um hlutverk og framtíð sveitarstjórnarstigsins Yfirskrift landsþingsins á Akur- eyri er: Búseta – lífsgæði – lýðræði. „Við ætlum í víðu samhengi að fjalla um þessi þrjú grundvallarorð sem snerta ekki síst störf sveitarfé- laganna og tengjast skyldum þeirra og verkefnum,“ segir Vilhjálmur. Þinginu verður skipt í sjö vinnu- hópa þar sem tekin verða fyrir til- tekin umfjöllunarefni og stefna sam- bandsins til framtíðar mótuð. Þá verður fjallað um hlutverk og framtíð sveitarstjórnarstigsins og munu Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Reyk- hólahrepps, og Ejgil W. Rasmussen, formaður Danska sveitarfélagasam- bandsins, m.a. flytja framsögu. LÝSTAR kröfur í þrotabú Ný- brauðs ehf. í Mosfellsbæ, sem varð gjaldþrota í júní í sumar, námu 290 milljónum króna en samþykkt- ar voru kröfur að upphæð 170 milljónir króna. Stærstu kröfuhaf- arnir eru Veðsalarnir, Sparisjóður Hafnarfjarðar, Sýr, Kornax og Bú- land. Hluti kröfuhafa í þrotabúið tók við rekstrinum í kjölfar gjald- þrotsins undir nafni Brauðsölunn- ar ehf. Þeim rekstri var hætt nú nýlega þar sem sýnt þótti að reksturinn stæði ekki undir sér. Einungis um 58% krafna feng- ust samþykkt en að sögn Sigur- mars K. Albertssonar, skiptastjóra búsins, er stærsti hluti þeirra krafna, sem hafnað var, veðkröfur sem í raun eru gildar. „Veðkröf- unum var öllum hafnað vegna þess að það var búið að samþykkja yf- irtöku annars fyrirtækis á rekstr- inum og það tók jafnframt yfir veðkröfurnar. Þannig að það er annað mál í sjálfu sér og veðin eru fyrir hendi.“ Gjaldþrot Nýbrauðs í Mosfellsbæ Lýstar kröfur 290 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.