Morgunblaðið - 18.09.2002, Síða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 45
ÍSLENSKIR TÓNAR
Í gegnum árin hafa verið gefin út
ógrynni safnplatna á Íslenskum tón-
um sem saman spanna lungann af
tónlistarsögu Íslands. Í ár ber fyrst
að nefna umfangsmikla endurútgáfu
á ferli meistara Megasar. Hljóm-
plöturnar Fram og afur blindgötuna,
Á bleikum náttkjólum, Drög að
sjálfsmorði, Höfuðlausnir, Nú er ég
klæddur og kominn á ról og Í góðri
trú verða allar gefnar út á hljóm-
diski ásamt safni bestu laga, sem
kallast mun Englaryk.
Þá ber að nefna safnplötu Halla
og Ladda Roy Roggers: Vinsælustu
lögin, safnplötu sem spannar 30 ára
feril þessa knáa gamaneykis. Þess
má og geta að þeir bræður eru með
sýningu í gangi um þessar mundir í
Loftkastalanum, sem tengist að
sjálfsögðu efni plötunnar.
Nokkrar hljómsveitir og hópar fá
þá safnplötuyfirhalningu en sumar
þeirra hefur til þessa aðeins verið
hægt að nálgast á vínylplötum. Fer
þar helst Trúbrot sem mun eiga hina
við hæfi titluðu Brot af því besta og
þá á hið kunna þjóðlagatríó Þrjú á
palli safnplötuna Lífið er lotterí.
Einnig kemur safn með skyldri
sveit, Ríó tríó, sem ber hinn glettna
titil Skánar varla úr þessu.
Rokkarar, gamlir sem nýir fá þá
sinn skammt. Það fór vart fram hjá
neinum áhugamönnum um þann
geira að hafnfirsku rokkhundarnir í
Jet Black Joe gengu í endurnýjun
lífdaganna í ár og um jólin kemur út
safnplata sem m.a. mun innihalda
nokkur órafmögnuð lög. GCD verða
þá með safnplötu sem ber heitið
Mýrdalssandur og inniheldur hún
vel valda slagara frá ferli þessa
hreinræktaða rokkverkefnis Bubba
Morthens og Rúnars Júlíussonar.
Sjötta Óskalagaplatan hoppar þá
upp í hillurnar en einnig ný plata
með íslenskum sönglögum, safn-
plata með Guðrúnu Á. Símonar og
plata með ballöðum, sungnum af Bó
sjálfum, þ.e. Björgvini Halldórssyni.
SKÍFAN
Það er margt og mikið undir hatti
Skífunnar þetta árið. Sveitir sem
þreyta frumraun sína í breiðskífuút-
gáfu eru Daysleeper og Írafár en
einnig verða Í svörtum fötum með í
slagnum, og gefa út sína aðra plötu.
Þess má til gamans geta að fyrsta
plata þeirra, Verkefni 1 kom út jólin
2000 og var samin og tekin upp á 12
dögum! Land og synir koma þá líka
með langþráða skífu.
Söngmennirnir Páll Rósinkranz
og Bjarni Ara verða einnig með
plötu og Selma og Hansa verða með
plötu sem innihalda mun lög úr
söngleikjum.
Bubbi Morthens klikkar ekki
frekar en fyrri daginn og gefur út
nýja hljóðversskífu og sömuleiðis
sveiflukóngurinn Geirmundur Val-
týsson. Kaffibrúsakarlarnir snúa
sömuleiðis aftur með sitt óborgan-
lega grín og glens á plötu sem inni-
heldur upptöku frá endurkomu-
skemmtun þeirra fyrr á þessu ári.
Plata með barnasöngleiknum Bene-
dikt búálfi verður og gefin út á
merki Skífunnar og einnig safn ís-
lenskra jólalaga.
DENNIS
Eina plata hinnar ungæðislegu út-
gáfu Dennis þetta haustið er önnur
plata hinna ógurlegu XXX Rottweil-
erhunda sem slógu í gegn síðasta
haust með frumburði sínum, sam-
nefndum sveitinni. Ekki hefur þó
verið endanlega staðfest hvort plat-
an kemur út fyrir jól eður ei en fari
svo er réttast að spenna beltin …
VITUND
Sömuleiðis er eina útgáfa Vitund-
ar ný skífa frá Friðriki Karlssyni og
ber hún heitið Feng Zhui.
POTTÞÉTT
ÚTGÁFURÖÐIN
Hér verða gefnar út Pottþétt 29
og 30, Pottþétt 2002, Pottþétt djass
og Pottþétt ást 5. Þá kemur einnig
platan Rokkland 2002, sem tekur
andagift sína frá samnefndum út-
varpsþáttum Ólafs Páls Gunnars-
sonar á Rás 2.
Rapp,
rokk,
rólegheit
og allt
þar á milli
Írafár hefur verið lengi að en gefur nú út sína fyrstu breiðskífu.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjöldi platna Megasar verður
endurútgefinn um jólin.
Morgunblaðið/Sverrir
Erpur og félagar í XXX
Rottweilerhundum verða með í
jólaplötuflóðinu.
Haustútgáfa tónlistardeildar Norðurljósa
TENGLAR
.....................................................
www.skifan.is
Norðurljós eru með
fjölda tónlistarmerkja
á sínum snærum og eins
og undangengin ár
dembist meirihluti
útgáfunnar yfir um
haust og jól. Hér á eftir
fer yfirlit yfir þá titla
sem í boði verða.