Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁTÖK eru meðal framsóknarmanna
í Reykjavík vegna gagnrýni og
deilna á vinnubrögð við val fulltrúa á
kjördæmisþing framsóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi suður, sem
halda á í kvöld. Laganefnd Fram-
sóknarflokksins fjallaði í gær um
tvær kærur sem henni höfðu þá bor-
ist vegna málsins.
Fimm af sex nýkjörnum stjórnar-
mönnum í Félagi ungra framsókn-
armanna sögðu af sér í fyrrakvöld og
birtu yfirlýsingu þar sem þau mót-
mæla harðlega „þeim vinnubrögðum
og þeirri valdníðslu“ sem þau segja
að viðhöfð hafi verið á aðalfundi fé-
lagsins 15. október sl. Halda þau því
fram að lög félagsins hafi verið
margbrotin og að þau séu því ekki
rétt kjörin í stjórn félagsins. Er
gagnrýninni einkum beint að Guð-
jóni Ólafi Jónssyni, formanni Kjör-
dæmissambands framsóknarmanna
í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Á kjördæmisþinginu verður
ákveðið hvaða aðferð verður viðhöfð
við val á framboðslistum fyrir al-
þingiskosningarnar í vor.
Haukur Logi Karlsson, einn
þeirra stjórnarmanna sem sagt hafa
af sér, sagði í gær að kjördæmis-
þingið hlyti að teljast ólöglegt þar
sem fulltrúar félags ungra fram-
sóknarmanna væru ekki rétt kjörnir
á þingið.
Vigdís Hauksdóttir, varaþingmað-
ur flokksins, skrifaði grein í Morg-
unblaðið sl. laugardag þar sem hún
gagnrýndi einnig harðlega vinnu-
brögð innan flokksins, einkum Guð-
jóns Ólafs Jónssonar, bæði á aðal-
fundi Framsóknarfélags Reykja-
víkur suður og á aðalfundi Félags
ungra framsóknarmanna, en Guðjón
er gagnrýndur fyrir að hafa komið
með hóp gesta á fund ungra fram-
sóknarmanna og „tekið yfir fund-
inn“. Skv. lögum félagsins þurfi
menn hins vegar að hafa verið sjö
daga í félaginu til að geta tekið fullan
þátt í störfum á aðalfundi. Því séu
ákvarðanir fundarins ólögmætar.
„Alrangt að ég hafi
verið að smala“
Guðjón Ólafur vísar gagnrýninni
sem fram hefur komið á bug. Hann
segist hafa verið beðinn um að vera
fundarstjóri á aðalfundi Framsókn-
arfélagsins í Reykjavík suður. Þar
hafi verið samþykkt tillaga frá Jón-
ínu Bjartmarz um framboðsmál.
Einnig hefði komið fram tillaga frá
Vigdísi Hauksdóttur um prófkjör,
sem hafi verið vísað til stjórnar.
Samskonar tillögu hafi verið vísað til
kjördæmisþings í Framsóknarfélag-
inu í Reykjavík norður. Jafnframt
hafi fundarmenn ákveðið að vísa
tveimur listum um val á kjördæm-
isþingsfulltrúum til stjórnar. ,,Það er
vanvirðing við flokksmenn að halda
því fram að ég hafi ráðið öllu þarna.
Þetta var um 200 manna fundur,“
segir hann. Guðjón Ólafur bendir
einnig á að hann hafi verið félagi í
Félagi ungra framsóknarmanna í tíu
ár. ,,Ég mætti á fundinn og það er al-
rangt að ég hafi verið að smala þar
saman hópi manna,“ segir hann.
Fjórir forystumenn senda frá
sér stuðningsyfirlýsingu
Í gær sendu fjórir formenn félaga
framsóknarmanna í Reykjavík auk
varaformanns eins félags í Reykja-
vík frá sér yfirlýsingu til stuðnings
Guðjóni Ólafi. Þar segir m.a. að síð-
ustu daga hafi „fáeinir einstaklingar
í Framsóknarflokknum ráðist með
afar ódrengilegum og ósmekklegum
hætti í fjölmiðlum persónulega að
Guðjóni Ólafi Jónssyni, formanni
Kjördæmissambands framsóknar-
manna í Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur. Virðist markmiðið það eitt að
níða skóinn af Guðjóni Ólafi sem
mest menn mega og sýnist tilgang-
urinn þar helga meðalið.“
Átök framsóknarmanna í Reykjavík fyrir kjördæmisþing
Harðar deilur um vinnu-
brögð við val fulltrúa
Á VERKSTÆÐI Jóhanns Vilhjálms-
sonar byssusmiðs á Dunhaganum
eru tveir ungir byssusmiðir í læri,
Michael Martinez frá Belgíu og
François Bastin frá Frakklandi.
Þeir eru að ljúka námi í byssusmíði
frá Léon Mignon-skólanum í Liège í
Belgíu en þar nam Jóhann sjálfur
byssusmíði fyrir fimm árum.
Verða þeir hér í einn mánuð og
hafa nú verið í tvær vikur. „Okkur
líst ágætlega á verkstæðið hérna,
við höfum lært mikið, sérstaklega
um hálfsjálfvirk vopn,“ segir Bast-
in. „Við lærum mikið meira í byssu-
smíði hér en í skólanum, þar förum
við líka í tíma í frönsku, sögu og
öðru sem tengist byssusmíðinni ekki
beint, en hér erum við allan daginn
að vinna með vopn,“ segir Martinez.
Ekki hættulegt starf
Báðir segjast þeir hafa farið á
veiðar með feðrum sínum og öfum
frá því þeir voru smástrákar og
þannig hafi þeir fengið áhuga á
byssusmíðinni. „Ég hef því alltaf
verið í þessu umhverfi og vissi um
þennan skóla í Belgíu sem er ekki
langt frá heimili mínu,“ segir Bastin
sem býr í smábænum Valenciennes í
N-Frakklandi. Þeir segja starf
byssusmiðsins ekki hættulegt. „Það
er ákveðinn grunnur sem maður
þarf að læra og starfsvenjur sem
maður þarf að temja sér, athuga t.d.
hvort byssan sé hlaðin áður en mað-
ur byrjar að vinna,“ segir Martinez.
Það var að frumkvæði Jóhanns
sem þeir félagar komu hingað í
starfsþjálfun. Hann segir að hann
hafi reglulega boðið nemendum við
skólann í starfsþjálfun frá því hann
kom aftur heim eftir námið og það
hafi reynst honum vel að hafa nem-
endur í læri. Þannig haldi hann
einnig tengslum við skólann. Að-
spurðir hvernig fjölskyldur þeirra
og vinir hafi tekið fréttunum þegar
þeir sögðust ætla alla leið til Íslands
í starfsnám, segja þeir báðir að allir
hafi verið mjög hissa, en foreldrum
þeirra hafi fundist það vel til fundið
þar sem það sé góð reynsla að prófa
að starfa í útlöndum.
Þeir félagar segja atvinnumögu-
leika byssusmiða ágæta. Þeir hafi
mestan áhuga á að opna eigin verk-
stæði en einnig fari byssusmiðir til
starfa í hernum, innan lögreglunnar
eða í verslunum þar sem byssur eru
seldar. Þetta er síðasti veturinn
þeirra í náminu en í skólanum læra
þeir að smíða byssur frá grunni.
Byssusmiðir í læri
á Dunhaganum
Morgunblaðið/Golli
HÁLFFERTUG kona var í gær
dæmd í 14 mánaða fangelsi fyrir
fjárdrátt en brotin framdi hún í
starfi sem skrifstofustjóri Lækna-
vaktarinnar og Læknavaktarbíls-
ins. Með svikum dró hún sér sam-
tals 13,4 milljónir úr sjóðum
fyrirtækjanna á tæplega tveimur
árum, þar af 450.000 frá síðar-
nefnda fyrirtækinu.
Konan játaði á sig brotin og
kvaðst hafa notað féð í óstjórnlega
eyðslu til eigin þarfa og þriggja
barna sinna. Hún sagðist hafa átt
við þunglyndi að stríða á undan-
förnum árum og bar því við að hún
upplifði ekki þessa háttsemi sína
sem skipulega brotastarfsemi
heldur að einhverju leyti sem af-
leiðingu veikinda sinna, með þessu
hefði hún viljað veita sínum nán-
ustu sem mesta gleði og ánægju.
Læknir konunnar staðfesti að hún
ætti við alvarlegt þunglyndi að
stríða en taldi á hinn bóginn að
ekki væru bein tengsl á milli veik-
inda konunnar og þeirra atburða
sem hún var ákærð fyrir. Fram
kom hjá konunni að hún byrjaði
fyrst að draga sér fé vegna fjár-
hagsörðugleika og ætlaði að end-
urgreiða það, en það orðið henni
um megn og hún haldið áfram að
draga sér fé, sem hún hafi notað
til að kaupa sér vináttu annarra.
Í niðurstöðu dómsins segir að
þótt ekki séu bein tengsl milli
brotastarfsemi ákærðu og veikinda
verði ekki horft fram hjá því að
óbeint kunna þau að hafa valdið
því að hún hélt áfram brotastarf-
semi. Þá hefðu skilvirkari og tíðari
endurskoðun á bókhaldi fyrirtæk-
isins og eftirlit með því átt að leiða
til þess að brot ákærðu hefðu
uppgvötast langtum fyrr. Engu að
síður væru brotin alvarleg og var
talið hæfilegt að hún sætti fangelsi
í 14 mánuði, greiddi Læknavakt-
inni 13,4 milljónir, Læknavaktar-
bílnum 460.000 auk alls kostnaðar
vegna málaferlanna, samtals um
670.000 krónur.
Af hálfu sýslumannsins í Kópa-
vogi flutti Sigríður Elsa Kjartans-
dóttir málið. Skipaður verjandi
konunnar var Magnús Baldvinsson
hdl. Björgvin Þorsteinsson hrl.
gætti hagsmuna fyrirtækjanna
fyrir dómi. Guðmundur L. Jóhann-
esson héraðsdómari kvað upp
dóminn.
Kona dæmd í 14 mánaða fangelsi
fyrir fjárdrátt hjá Læknavaktinni
Dró sér 13,4
milljónir á
tveimur árum
GÆSLUVARÐHALD yfir tveimur
bræðrum sem sakaðir eru um
hrottafengna líkamsárás í íbúð í
vesturbæ Reykjavíkur 2. ágúst sl.
hefur verið framlengt til 24. janúar
nk. eða þar til dómur fellur. Lögregl-
an í Reykavík hefur lokið rannsókn
málsins og verða málsgögn send rík-
issaksóknara innan tíðar.
Bræðurnir hafa viðurkennt að
hafa að morgni 2. ágúst sl. veist að
manni, sem var gestkomandi á heim-
ili þeirra, meðal annars slegið hann
margsinnis í höfuðið og klippt hluta
úr eyra hans með gatatöng á meðan
hann lá rotaður á gólfi. Þeir hafa
jafnframt viðurkennt að hafa þá um
morguninn skilið manninn eftir í
blóði sínu á lóð leikskóla nærri heim-
ili þeirra þar sem hann var algjör-
lega hulinn runna. Við komu á
sjúkrahús var maðurinn, sem var
höfuðkúpubrotinn og með fjölmarga
áverka á líkama, þar á meðal eftir
eggvopn, talinn í bráðri lífshættu.
Faðir bræðranna sat um tíma í
gæsluvarðhaldi en honum var síðar
sleppt.
Gæsluvarð-
hald fram-
lengt yfir
bræðrum
SÍÐASTA flug Flugleiða frá
New York að sinni verður 11.
nóvember næstkomandi. Flug
til New York hefst síðan aftur
rúmum fjórum mánuðum síðar
eða hinn 14. mars á næsta ári.
Flugleiðir fljúga á fjóra staði
vestan hafs í vetur, þ.e. til Balti-
more/Washington, Minneapolis,
Boston og Orlando í Flórída.
Guðjón Arngrímsson fram-
kvæmdastjóri kynningarmála
hjá Flugleiðum segir að hlé á
flugi til New York kalli ekki á
neinar breytingar nú enda hafi
legið fyrir um nokurt skeið að
hlé yrði á fluginu yfir hávet-
urinn.
Síðasta flug frá New
York 11. nóvember