Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ G etur verið að það sé ekki eins slæmt að búa einn og margir halda fram? Eða er þetta tóm ímyndun í mér? Er það misskilningur að margir telji að það sé „hálf- sorglegt“ að búa einn? Getur verið að ég túlki ranglega svip- inn á fólki sem spyr mig: „Jæja, hvernig er að vera ein?“ Í stað vorkunnarsvipsins sem ég þykist sjá er kannski bara eftirvænt- ingarsvipur í bland við smáöf- und? En hvað um það. Það skiptir náttúrulega ekki máli hvað fólk heldur. Staðreyndirnar eru hins vegar þær að ávallt hef- ur verið til ákveðinn hópur sem kýs, af einhverjum ástæðum, að búa einn, þ.e. án maka. Og kunnugir telja að sá hópur fari sístækkandi. Alltént er ljóst að sá hópur sem býr með barni eða börnum sín- um án maka fer stækkandi. Töl- ur frá Hagstofu Íslands styðja það. Þannig voru skráðar sjálf- stæðar mæður (stundum kall- aðar einstæðar mæður) rúmlega 7.600 árið 1991, en tæplega 10.000 árið 2000. (Sjálf tilheyri ég þessum hópi.) Þá voru skráð- ir sjálfstæðir feður (einnig oft nefndir einstæðir feður) 552 árið 1991 en 839 árið 2000. Auðvitað eru margar ástæður fyrir þess- um tölum. Ein þeirra gæti þó verið sú að fólki finnist bara hreint alls ekki svo slæmt að búa eitt, þ.e. eitt án maka. Ég spurði einstæða vinkonu mína í vikunni um kosti þess og galla að búa ein. Hún svaraði því fyrst til að leigan væri dýr. Und- ir það get ég tekið, þ.e. það er óneitanlega miklu dýrara að reka heimili einn en tveir. Önnur kunningjakona mín, sem er ein og án barna, nefndi þetta atriði líka þegar ég innti hana eftir því í haust. Hún sagði einnig að það væri ósanngjarnt hve sjaldan væri tekið tillit til þeirra sem væru einir, t.d. væri víst að þeir borguðu margir hverjir ávallt sína skatta, en fengju á móti engar ívilnanir, t.d. skattaíviln- anir. Þeir tilheyrðu „hálf- afskiptum“ hópi ef svo má að orði komast, þeir væru ekki í umræðunni eins og t.d. fjöl- skyldufólk, sjálfstæðir foreldrar, eldri borgarar, öryrkjar o.s.frv. En kannski þessi hópur einstæð- inga, einhleypra eða hvað maður á nú að kalla hann eigi eftir að vekja meiri athygli þegar fram líða stundir. Ekki síst ef þróunin verður sú að hann haldi áfram að stækka. En víkjum talinu aftur að ein- stæðu vinkonu minni. Hún nefndi nefnilega annan augljósan ókost við það að búa ein. „Mjólk- in og grænmetið myglar alltaf áður en maður nær að klára það,“ sagði hún. „Og svo nennir maður aldrei að elda,“ bætti hún við. Ég verð þó að viðurkenna að ég veit ekki hvort síðastnefnda atriðið er kostur eða ókostur í mínum huga. Sjálf nenni ég sjaldnast að elda. Stundum reyndar þegar dóttir mín er hjá mér, en aldrei þegar hún er hjá föðurnum og ég er ein. Þá lifi ég á einskærri óhollustu, súkkulaði og öðru slíku. (Ég vona að dóttir mín lesi þetta ekki.) En öðru hvoru reyni ég að bæta mér upp óhollustuna með því að kaupa næringarríka skyndirétti sem hita má í flýti með því að stinga inn í örbylgjuofn. (Ég hef ótal sinnum þakkað mínum sæla fyr- ir skyndiréttina þótt úrvalið mætti vera meira.) Ég ætla þó ekki að gleyma kaffihúsunum. Ég á mér nefnilega eitt uppá- haldskaffihús hér í bæ og þang- að fer ég gjarnan til að drekka morgunkaffið. (Auðvitað nenni ég ekki að hella upp á bara fyrir mig eina.) Ég hef tekið eftir því að þangað koma líka aðrir „ein- stæðingar“ til að drekka sitt kaffi eða borða sinn morgunmat. Og stundum getur það verið ósköp notalegt; hver í sínu horni að drekka sitt kaffi og lesa sín blöð. Allir einir en samt ekki einir því einkennileg samkennd fyllir húsið. (Þess má geta að það að vera einn er ekki það sama og það að vera einmana.) Vinkona mín títtnefnda nefndi þó ekki bara ókosti. Hún nefndi líka kosti. „Maður lærir að nota borvél og hamar og …,“ þuldi hún upp. (Hér er augljóslega kona á ferð.) En þar sem ég er kona líka get ég tekið undir þetta. Maður neyðist víst til þess að læra þessa hluti. Til dæmis að skipta um dekk … og fleira. (Þótt ég reyni reyndar að kom- ast hjá því ef ég mögulega get. Það er svo leiðinlegt! Ég hef þó lært að stundum virkar bara nokkuð vel að brosa og „þykj- ast“ ekki kunna neitt … þá gera þeir allt fyrir mann, þessar elsk- ur, þ.e. hitt kynið.) En svo ég vitni áfram í vinkonu mína þá nefndi hún ennfremur fleiri mjög svo augljósa kosti. Til dæmis ræður maður því alger- lega sjálfur hvenær maður þvær upp og tekur til. Fatahrúgurnar geta t.d. hlaðist upp án þess að nokkur veiti því athygli nema maður sjálfur. „Og þá þvær eng- inn óvart hvítu nærbuxurnar með rauða bolnum,“ sagði vin- konan, „eða setur óvart nýju ull- arpeysuna á suðu.“ Og áfram hélt hún að telja upp kosti þess að búa ein. „Maður ræður sjálf- ur hvenær sjónvarpið er í gangi og á hvaða stöð er stillt og mað- ur getur haft íspakka í frystin- um og veit að hann er ekki tóm- ur næst þegar mann langar í ís.“ Já, vinkonan er greinilega barn- laus, því sjónvarpsstöðinni ræð- ur maður sjaldnast með barn í húsinu. Hvað þá að maður geti gengið að ísnum vísum. Hins vegar vildi ég að sjálfsögðu ekki skipta barninu fyrir þá mögu- leika eða nokkra aðra möguleika ef út í það er farið. Það sama segja sennilega þeir sem búa með sínum mökum. Þeir vildu líklega ekki skipta makanum fyrir þá „kosti“ sem hér hafa verið taldir upp. Enda var ekki ætlunin að halda því fram að það væri eintóm sæla að búa einn. Það er stundum sæla og stund- um ekki. „Til dæmis þegar eng- inn er til að kyssa mann góða nótt,“ eins og vinkonan orðaði það. Tek ég heilshugar undir þann ókost! Listin að lifa einn „Og þá þvær enginn óvart hvítu nærbuxurnar með rauða bolnum,“ sagði vinkonan, „eða setur óvart nýju ullarpeysuna á suðu.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is SIGÞRÚÐUR Jónsdóttir nátt- úrufræðingur ritar grein í Morg- unblaðið miðvikudaginn 9. október sl. um Þjórsárver og Norðlinga- ölduveitu. Þar sem margt af því, sem fram kemur í grein Sigþrúðar, stangast á við niðurstöður sem settar eru fram í skýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna Norð- lingaölduveitu, er óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við nokkur atriði greinarinnar. Umhverfisáhrif Í greininni kemur fram sú skoð- un Sigþrúðar að Norðlingaöldulón muni kaffæra neðsta hluta Þjórs- árvera, stefna stórum svæðum í hættu vegna rofs, áfoks, bakvatns- áhrifa og beinna og óbeinna áhrifa vegna aursöfnunar ofan lónsins. Vissulega mun lónið fara yfir neðsta hluta friðlands Þjórsárvera. Ekkert hefur hins vegar komið fram í niðurstöðum rannsókna á svæðinu sem bendir til þess að stórum svæðum í nágrenni lónsins stafi hætta af lóninu. Mat á um- hverfisáhrifum leiddi í ljós, að Norðlingaölduveita muni ekki hafa í för með sér breytingar á for- sendum fyrir tilvist Þjórsárvera. Í matsferlinu bárust yfir 80 at- hugasemdir við matsskýrsluna. Mjög margar athugasemdir sneru að rofi og hugsanlegri áfokshættu. Var þá einatt vísað til huglægra órökstuddra skoðana ýmissa aðila á því hvað hugsanlega gæti gerst. Ég leyfi mér að fullyrða að engin framkvæmd, sem ráðist hefur ver- ið í hér á landi, hefur verið rann- sökuð jafnmikið með tilliti til hugs- anlegrar rofhættu. Skýrsla, sem unnin var í tengslum við þessar rannsóknir, sýnir að rofhætta mun aukast mjög lítið með tilkomu lónsins. Að mati skýrsluhöfunda er með ein- földum mótvægisaðgerðum mjög auðvelt að koma í veg fyrir að rof hefjist á tilgreindum svæðum. Sigþrúður nefnir einnig óvissu um bakvatnsáhrif. Það er rétt að ekki er fyllilega ljóst hversu um- fangsmikil bakvatnsáhrifin geta orðið, þar sem ekki er þekkt vatnafræðilegt samhengi milli stöðu grunnvatns og myndunar jarðklaka. Eins og aðstæður eru við lón í 575 metra hæð yfir sjó er það mat þeirra aðila, sem leitað var til, að þessi áhrif verði að öll- um líkindum lítil. Í matinu kom skýrt fram hversu vel lög um mat á umhverfisáhrifum geta virkað. Þegar skoðuð var hugsanleg aursöfnun á eyrum fyrir ofan lónið kom í ljós að landlyfting yrði hraðari fyrir ofan lón í 575 m y.s. en án framkvæmda. Þessi landlyfting ætti sér ekki stað í sama mæli ef lónið næði upp í 578 m y.s. Gagnvart setmyndun og aurburði hefði lón í 578 m y.s. minni umhverfisáhrif en í 575 m y.s. Þegar þessar niðurstöður lágu fyrir var lagt í umfangsmikla vinnu til að lágmarka áhrifin eða draga úr þeim. Lagðar eru til mótvæg- isaðgerðir sem eru gerð setlóns fyrir utan friðland Þjórsárvera, dæling aurs úr Norðlingaöldulóni og gerð varnargarða í farvegi Þjórsár sem vernda verin ofan við lónið. Með þessum aðgerðum má verulega draga úr hugsanlegri landlyftingu og lengja þar með líf- tíma lónsins umtalsvert. Bent skal á að efnið sem til fell- ur er sams konar efni og það sem myndar áreyrar Þjórsár í dag. Áhrifasvæði framkvæmdar Sigþrúður segir að kort, sem gefur yfirlit yfir framkvæmdir, þ.m.t. setlón, gefi villandi mynd af áhrifum framkvæmdanna. Hún teiknaði nýtt kort sem hún segir að sýni hvernig ósnortin víðerni skerðist við framkvæmdina. Einnig gefur Sigþrúður í skyn að varn- argarðar muni teygja sig um 11 km inn í friðlandið. Það er vissulega rétt hjá Sig- þrúði að varnargarðarnir voru ekki teiknaðir inn á öll yfirlitskort matsskýrslunnar en þeir verða hins vegar ekki reistir nema þeirra gerist þörf. Umræddir varnargarðar eru, eins og áður sagði, í farvegi Þjórs- ár og liggja frá lóninu, um 2–5 km að lengd og um 2–3 m að hæð. Mjög auðvelt á að vera að fella þá svo að landslaginu á þessum stað að dragi mjög úr áhrifum þeirra á ásýnd landsins. Sama er að segja um væntanleg haugstæði við set- lón. Með aðstoð landslagsarkitekta er hægt að móta haugana og fella að landslaginu. Skerðing víðerna er huglæg skil- greining sem fæst með því að draga línu á kort í 5 km radíus um- hverfis framkvæmdir. Það er alveg ljóst að ekkert rót eða fram- kvæmdir verða innan þessara svæða og því mun náttúrufar og verndargildi þeirra ekki skerðast þótt hluti þeirra falli ekki lengur undir viðkomandi skilgreiningu um ósnortin víðerni í lögum um nátt- úruvernd. Þegar Sigþrúður teiknar svæðin umhverfis framkvæmdirn- ar, sem hún segir að gefi „sannari“ mynd af áhrifunum, „gleymir“ hún eða áttar sig ekki á því að stór hluti þessara svæða flokkast ekki undir ósnortin víðerni. Friðlandsmörk Ekki ætla ég að blanda mér í deiluna um hvort friðlandsmörk Þjórsárvera séu rétt eða rangt dregin. Við gerð matsskýrslunnar var sú regla notuð, að tala um frið- landið í Þjórsárverum en um það gilda ákvæði friðlýsingarinnar. Um svæðið utan friðlands gilda engin sérstök verndarákvæði. Ef menn vilja breyta mörkum svæðisins þarf að fara með slík mál eins og kveðið er á um í náttúruvernd- arlögum. Lokaorð Fram kemur hjá Sigþrúði að niðurstöður náttúruvísindamanna beri allar að sama brunni, þ.e. að „umhverfisáhrif framkvæmdanna valdi óhæfilegum umhverfisáhrif- um“. Þessa fullyrðingu er erfitt að skilja, ekki síst í því ljósi að þetta kemur ekki fram í þeim skýrslum sem lágu fyrir í lok matsferilsins og stuðst var við þegar úrskurðað var um umhverfisáhrifin. Niðurstaða matsins er að um- hverfisáhrifin verða ekki mikil og styður úrskurður Skipulagsstofn- unar þá niðurstöðu, því að þar eru umhverfisáhrif vegna lóns í 575 m y.s. og 578 m y.s. ekki metin um- talsverð. Hálfkveðnar vísur Eftir Guðjón Jónsson „Norð- lingaöldu- veita muni ekki hafa í för með sér breytingar á forsendum fyrir tilvist Þjórsárvera.“ Höfundur er starfsmaður VSÓ Ráð- gjafar og verkefnisstjóri mats á um- hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu. Á HVERJUM degi heyrum við fréttir um vaxandi sókn flótta- manna til Evrópu og jafnframt heyrum við af vaxandi áhyggjum evrópskra ríkisstjórna af ólögmæt- um innflytjendum. Evrópusam- bandið hefur mótað stefnu um að hefta aðgang utanaðkomandi fólks til ríkja sambandsins, og Íslend- ingar hafa með Schengensam- komulaginu orðið meira og minna aðilar að þessari stefnu. Og það hafa lengi verið íslenzk lög, að það skiptir máli frá hvaða landi menn eru, þegar menn óska eftir rík- isborgararétti, – það tekur lengri tíma fyrir mann frá Afríku og Asíu að fá íslenzkan ríkisborgararétt en mann frá Danmörku. Dagblaðið birti fyrir nokkrum dögum niðurstöður skoðanakönn- unar, þar sem fram kemur, að um fjórðungur Íslendinga er andsnú- inn því, að litað fólk setjist hér að til langframa. Ekki veit ég, hverja blaðamenn Dagblaðsins telja lit- aða, en líklega er átt við þá, sem ekki eru evrópskir að uppruna. Blaðið hefði eins getað spurt: Hver er afstaða þín til þess, hvort fólk af ólíkum menningaruppruna setj- ist hér að til langframa? En er ástæða til að hafa áhyggj- ur af þessari skoðanakönnun? Ég held ekki. Skýra má niðurstöður hennar með mjög einföldum hætti. Fólk er einfaldlega hrætt við, að hér fari að myndast sérstakir minnihlutahópar, sem muni ekki renna saman við Íslendinga, ef innflytjendur verða of margir. Á hverjum degi heyrum við fréttir frá Afríku og Asíu, sem nær allar eru á þá lund, að þar búi fólk við vaxandi einræði, fátækt og villimennsku. Daglega heyrum við fréttir um, að í ríkjum Múhameðs- trúarmanna fái þeir vaxandi fylgi, sem vilja stjórna eftir fornum lög- um Kóransins, þmt. að grýta falln- ar konur og höggva hórkarla, handhöggva þjófa og svipta konur mannréttindum, og jafnframt eru kristnir menn ofsóttir. Nær dag- lega heyrum við fréttir um kyn- þáttaóeirðir frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og þar eru menn að þrengja innflytjendalöggjöfina. Röksemdir þeirra, sem vilja herða löggjöfina eru allar á sömu lund: Við gengum of langt, – vestrænt frjálslyndi hefir leitt okkur í ógöngur. Skoðanakönnun Dagblaðsins endurspeglar þau viðhorf, sem birtast í stefnu íslenzkra og evr- ópskra stjórnvalda í innflytjenda- málum. Ísland hefir verið friðsamt ríki, sem reisir stjórnskipan sína á kristinni trú og vestrænni menn- ingu, og almenningur vill, að svo verði áfram. Sú afstaða, sem birtist í nið- urstöðum skoðanakönnunarinnar, lýsir hins vegar ekki almennu við- horfi til þess erlenda fólks, sem hér hefir setzt að. Það fólk hefir undantekningarlítið komið sér vel, sýnt dugnað og samvizkusemi, og ég efast um, að í þess hópi sé hlut- fallslega meira af fólki, sem komizt hefir í kast við lögin en hjá hinum. Eðlileg niðurstaða Eftir Harald Blöndal „Fólk er ein- faldlega hrætt við, að hér fari að myndast sérstakir minnihluta- hópar.“ Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.