Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Háhraðasítenging við Netið ÞAÐ VETRAÐI frekar snemma í beitilöndum hreindýra á Snæfells- öræfum. Snjóinn hefur þó ekki fest og því hafa hreindýrin væntanlega ekki flutt sig um set. „Mér skilst að það hafi rifið af uppi á heiðum og því ekki víst að veðrið hafi haft mikil áhrif á hreindýrin ennþá,“ sagði Skarphéðinn Þórisson, líf- fræðingur hjá Náttúrustofu Aust- urlands, við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Þegar rífur af fara þau upp á hæðir í ætisleit. Það hefur ekki verið það mikill snjór, svo þau geta krafsað eftir æti með fótunum. Þetta eru skepnur sem eru aðlag- aðar kulda þannig að þær þola um- talsvert. Þetta er ekkert sem þrengir að þeim.“ Snæfellsöræfin eru stærsta bú- svæði hreindýra á Íslandi. Þar dvel- ur um helmingur stofnsins sem er á fjórða þúsund dýr. Hinn helming- urinn er dreifður um Austfirði. Á haustin leita dýrin sem halda til við Snæfell út á heiðarnar og á vetrum leita þau ætis á Fljótsdalsheiði, að- allega í heiðarbrúninni þar sem er snjóléttara. „Ef þrengir að þeim leita þau niður, en það er yfirleitt ekki fyrr en seinni hluta vetrar,“ segir Skarphéðinn. Dýrin léttast töluvert yfir vetr- artímann en undanfarin ár hefur verið sjaldgæft að þau drepist úr hor. „Þau safna fitu yfir sumartím- ann sem þau lifa á ef það er hart í ári. Svo þau þola mikil harðindi.“ Skarphéðinn segir að reynt hafi verið að halda hreindýrastofninum stöðugum undanfarin ár. „En vegna þess að tíðarfar hefur verið mjög gott, frjósemi er í hámarki og að dregið hefur úr ólöglegum veið- um eru dýrin fleiri en við bjugg- umst við. Talningar á þessu ári sýna að stofninn var aðeins stærri en við héldum.“ Skarphéðinn segir að stofninn hafi verið nærri 4.000 dýr í sumar. Eftir veiðar haustsins er hann því líklega um 3.500 dýr. Veiðitímabilið stóð yfir frá 1. ágúst til 15. september og gekk veiðin mun betur en í fyrra, þegar felld voru 338 dýr af 413 dýra kvóta. Í ár veiddust 426 dýr. Morgunblaðið/RAX Vetur í beitilöndum hreindýra Ráeyri keypti í gær 45,95% hluta- bréfa í Þormóði ramma-Sæbergi af Afli fjárfestingarfélagi að nafnverði 597,3 milljónir á genginu 5,35 eða tæplega 3,2 milljarða króna að markaðsvirði. Jafnframt keypti Rá- eyri 9% hlut í Þorbirni-Fiskanesi af Afli í gær, að nafnverði 100,1 millj- ón króna á genginu 6,3. Samkvæmt því var kaupverðið um 630 milljónir króna. Þannig seldi Afl allt hlutafé sitt í þessum tveimur fyrirtækjum. Ólafur Marteinsson vildi ekki tjá sig um viðskiptin við blaðið í gær. Samkvæmt heimildum var hafin töluverð barátta um yfirráðin yfir Þormóði ramma-Sæbergi milli Afls fjárfestingarfélags og annarra eig- enda Þormóðs ramma-Sæbergs, NÝTT hlutafélag, Ráeyri ehf., keypti í gær hlutabréf í tveimur út- gerðarfyrirtækjum, Þormóði ramma-Sæbergi og Þorbirni-Fiska- nesi, fyrir tæpa 4 milljarða króna. Stjórn og eigendur í Ráeyri sam- kvæmt hlutafélagaskrá eru þeir Ólafur Helgi Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma-Sæ- bergs, og Gunnlaugur Sævar Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri Urðar, Verðandi, Skuldar og stjórnarfor- maður Ísfélags Vestmannaeyja. Í hlutafélagaskrá segir að til- gangur félagsins sé kaup og rekstur fiskiskipa, kaup og sala hlutabréfa, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og önnur skyld starfsemi. Félagið var stofnað sl. föstudag. meðal annarra þeirra Ólafs Mar- teinssonar framkvæmdastjóra og Róberts Guðfinnssonar stjórnarfor- manns en þeir keyptu Þormóð ramma af ríkissjóði á sínum tíma en síðar sameinaðist Sæberg í Ólafs- firði félaginu. Niðurstaða þeirrar baráttu varð svo sala Afls á öllum hlut sínum í Þormóði ramma-Sæ- bergi og Þorbirni-Fiskanesi. Ekki liggur ljóst fyrir hverjir standa að baki Ráeyri, en þátttaka Gunnlaugs Svævars Gunnlaugsson- ar bendir til tengsla við Ísfélag Vestmannaeyja og Tryggingamið- stöðina. Gunnlaugur Sævar er enn- fremur stjórnarmaður í SH eins og þeir Ólafur Marteinsson og Róbert Guðfinnsson. Þorsteinn Vilhelmsson, stærsti hluthafi Afls, vill sem minnst segja um þessi viðskipti. Hann segir þó niðurstöðuna góða fyrir Afl og hlut- hafa þess, sem séu fjölmargir. Ýmis fjárfestingartækifæri Hver framvindan verði segir Þor- steinn að þeir muni fara sér hægt. Enn eigi Afl stóran hlut í hrað- frystihúsinu Gunnvöru, sem síðan eigi mikið í Guðmundi Runólfssyni hf. Loks eigi Afl 8% í SH svo af- skipti félagsins af sjávarútvegi séu enn veruleg. „Við sjáum bara hvað setur. Það eru ýmis fjárfestingar- tækifæri framundan en við erum ekkert að flýta okkur,“ segir Þor- steinn. Nýstofnað félag, Ráeyri, fjárfestir í sjávarútvegsfyrirtækjum Keypti hlutabréf fyrir tæpa 4 milljarða króna LAGANEFND Framsóknarflokks- ins hefur úrskurðað aðalfund Fé- lags ungra framsóknarmanna ólög- mætan og ógildan og þar með allar afgreiðslur og kosningar á fund- inum. Jón Sveinsson, formaður nefndarinnar, segir að einnig hafi verið lagt fyrir stjórn félagsins, sem boðaði upphaflega til aðal- fundarins, að boða til aðalfundar sem fyrst og fara þá vandlega yfir félagaskrá. Harðar deilur hafa verið meðal framsóknarmanna í Reykjavík vegna aðalfundarins og um val full- trúa á kjördæmisþing framsóknar- manna í Reykjavík suður, sem halda á í kvöld. „Af hálfu nefndarinnar var ekki tekið sérstaklega á því hvort fresta skuli kjördæmisþingi framsóknar- manna í Reykjavíkurkjördæmi suður. Það er því í raun sjálfstæð ákvörðun að meta í framhaldinu hvernig verður farið með kjör- dæmisþingið.“ Kjördæmissambandið virðir niðurstöðuna Guðjón Ólafur Jónsson, formað- ur Kjördæmissambands framsókn- armanna í Reykjavík suður, segir að menn fari auðvitað eftir niður- stöðu laganefndarinnar, um annað sé ekki að ræða. „Það er réttur hvers og eins að leita réttar síns innan stofnana Framsóknarflokks- ins og ég hef alltaf lagt áherslu á að menn leituðu þangað með mál sem þeir teldu sig vera ósátta við. Það þýðir hins vegar ekki endilega að ég sé efnislega sammála þessari niðurstöðu en hún liggur fyrir og er bindandi. Þetta er fyrst og fremst áfellisdómur yfir vinnu- brögðum fráfarandi stjórnar Fé- lags ungra framsóknarmanna og hlýtur að vera þeim alvarlegt um- hugsunarefni.“ Aðalfund- ur ungra framsókn- armanna ógildur  Harðar/6 GRÆNLANDSVALUR, öðru nafni hvítfálki, hefur haldið til í Hrísey í haust. Þarna er á ferðinni ársgam- all kvenfugl, að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglaáhugamanns. Hvítfálki er sjaldséður gestur á Ís- landi nú um stundir, en var algeng- ari á árum áður þegar fálkaútflutn- ingur átti sér stað. Hann hefur í haust sótt að rjúpu í Hrísey en þess- ari tegund fugla finnst einmitt rjúp- an algjört hnossgæti. Fálkinn er gestur frá Grænlandi. Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Hvítfálki gistir Hrísey

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.