Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTA flug Lockheed P-38F- orrustuflugvélar í rúmlega 60 ár tókst með ágætum á laugardag. Flugvélinni var bjargað úr iðrum Grænlandsjökuls árið 1992 eftir áratugalanga leit sem nokkrir Ís- lendingar tóku m.a. þátt í. Vélin gengur undir nafninu „Glacier girl“ eða Jöklastúlkan. Hún var hífð í pörtum upp úr 85 metra djúpri borholu á Grænlands- jökli árið 1992 og síðan þá hefur þrotlaust verið unnið að end- urbyggingu hennar í Kentucky í Bandaríkjunum. Jöklastúlkan var ein af sjö flugvélum í hinni svo- nefndu „Týndu flugsveit“ sem hreppti aftakaveður á milli Græn- lands og Íslands. Flugsveitin sneri við en vegna eldsneytisskorts neyddust flugmennirnir til að nauð- lenda á Grænlandsjökli. Áhafnir vélanna komust klakklaust til byggða en smátt og smátt hurfu vélarnir ofan í ísdjúpið. Hópur Bandaríkjamanna hóf leit að flug- vélunum í byrjun níunda áratug- arins og með hjálp íslenskrar íssjár tókst þeim að finna vélarnar. Borað var niður á þær með gufubor og einni bjargað, Jöklastúlkunni. Slæmt veður var eina skýringin á óförum sveitarinnar Í Morgunblaðinu á föstudag gerði gamall „draugur“ vart við sig. Þá var ranglega sagt að Þjóð- verjum hefði tekist að villa um fyrir flugsveitinni og þannig orðið til þess að vélarnar urðu eldsneyt- islausar. Hið rétta er að á sínum tíma voru uppi getgátur um að Þjóðverjar hefðu skipt á veð- urskeytum til að blekkja flugmenn- ina til að fljúga inn í sífellt verra veður. Þetta var á hinn bóginn aldr- ei sannað og slæmt veður er því eina skýringin á óförum sveit- arinnar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. AP Jöklastúlkunni flogið í fyrsta sinn í 60 ár RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákveð- ið að ákæra ekki vegna láts manns í Hamraborg í Kópavogi í mars sl. Maður og kona voru um tíma grunuð um að hafa valdið manninum áverk- um sem drógu hann til dauða. Að sögn Sigríðar Jósefsdóttur, saksóknara hjá embætti ríkissak- sóknara þótti það sem kom fram við rannsókn málsins hvorki nægjanlegt né líklegt til að fólkið yrði sakfellt. Málið var því fellt niður. Ekki ákært vegna mannsláts JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra vísar því á bug að hann hafi misnotað jafnréttislög til að koma „sínum manni“ að þegar hann réð Sigríði Snæbjörnsdóttur sem fram- kvæmdastjóra Heilbrigðisstofnun- arinnar Suðurnesjum, eins og komið hafi fram í máli Skúla Thoroddsen, sem meirihluti stjórnar stofnunar- innar mælti með í starfið. „Ég kannast ekki við það að Sig- ríður Snæbjörnsdóttir sé neitt á mínum vegum. Ég vísa því á bug að ég hafi misnotað jafnréttislög, þau eru staðreynd og ég reikna með að þau hafi verið sett vegna þess að það ætti að taka tillit til þeirra,“ segir ráðherra. Hefur mikla reynslu Jón segir að Sigríður hafi mikla reynslu af spítalarekstri og að í lög- um um heilbrigðisþjónustu kveði á um að framkvæmdastjórar sjúkra- húsa og forstjórar ríkisspítalanna eigi að hafa sérþekkingu á rekstri sjúkrahúsa. Þá segist ráðherra einn- ig hafa tekið mið af ákvæðum jafn- réttislaga við ráðninguna, en engin kona hafi fram til þessa verið skipuð í embætti framkvæmdastjóra heil- brigðisstofnunar þar sem sjúkrahús og heilsugæslustöð eru rekin saman. Fjórir í stjórn Heilbrigðisstofnun- arinnar á Suðurnesjum gerðu tillögu um að Skúli Thoroddsen yrði ráðinn, en hann er lögfræðingur og forstöðu- maður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Einn stjórnarmanna lagði til að Sigríður yrði ráðin, en hún er hjúkrunarfræðingur og fram- kvæmdastjóri Heyrnar- og tal- meinastöðvarinnar. Jón segir að hann hafi farið yfir tillögur stjórn- arinnar, umsagnir og álit matsnefnd- arinnar. Stjórnin sé umsagnaraðili um ráðninguna en honum sé ekki skylt að fara eftir tillögum hennar. Vísar á bug að jafn- réttislög hafi verið misnotuð TVEIR nýlegir stórbrunar í Reykjavík þar sem grunur er um íkveikju sæta rannsókn lög- reglunnar í Reykjavík. Annars vegar er það bruninn í Fákafeni 7. ágúst og við Laugaveg 20. október. Að sögn Harðar Jó- hannssonar yfirlögregluþjóns er rannsókn hvorugs málsins kom- in á það stig að þeim verði ann- aðhvort hætt eða ákæra gefin út. Að sögn hans er hvorugt mál- anna rannsakað sem um tilraun til tryggingarsvika hafi verið að ræða. Ljóst sé að á báðum stöð- um hafi verið um íkveikju að ræða. Hvað Fákafensbrunann varði vanti enn vitneskjuna um tilganginn með íkveikjunni og brennuvarg. Ekki hafi fallið grunur á neinn og hið sama eigi við um íkveikjuna við Laugaveg þótt maður hafi verið handtek- inn í sambandi við rannsókn brunans. Hann hafi verið við vettvang um það leyti sem eld- urinn er talinn hafa kviknað og þurfti að gera grein fyrir ferð- um sínum. Það hafi hann gert en ekki séu þó öll kurl komin til grafar í því sambandi. Stefnt að því að opna verslun Ecco á morgun Tvær verslanir eyðilögðust al- gjörlega í eldsvoðanum, gler- augnaverslunin Sjáðu Lauga- vegi 40 og undirfataverslunin Misty Laugvegi 40a. Tvær að- liggjandi verslanir, Ecco skó- búðin Laugavegi 38 og tísku- vöruverslunin Noa Noa Lauga- vegi 42, skemmdust lítillega en eru enn lokaðar. Stefnt er að opnun í Ecco skóbúðinni á föstudag en ekki er ljóst hvenær opnað verður aftur í Noa Noa. Brennuvarga eftir tvo stór- bruna enn leitað STJÓRN Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins ákvað á föstudag að bæta við einni hæð ofan á bíla- geymslu stöðvarinnar en þar með stækkar slökkvistöðin um 460 m². Vaktmenn slökkviliðsins fá aðstöðu á efri hæðinni og að sjálfsögðu verða súlur settar á milli hæða svo slökkviliðsmennirnir geti rennt sér niður að bílunum. Nokkuð er síðan byrjað var að stækka slökkvistöðina en með ákvörðuninni á föstudag stækkar hún enn frekar og verður viðbygg- ing alls um 2.700 m² að stærð. Björn Gíslason, framkvæmdastjóri fast- eigna slökkviliðsins, segir að með því að byggja ofan á bílageymsluna verði til pláss fyrir fjarskiptafyr- irtækið Tetra-Ísland sem rekur fjar- skiptabúnað lögreglu og slökkviliðs. Þar með eflist slökkvistöðin enn sem e.k. neyðarmiðstöð en þegar fram- kvæmdum lýkur mun byggingin hýsa slökkviliðið, Almannavarnir, Neyðarlínuna, Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar og Slysavarnafélagið Landsbjörg auk Tetra-Íslands. Að sögn Björns er gert ráð fyrir að það kosti 91 milljón að byggja of- an á bílageymsluna. Arkþing sér um hönnun viðbyggingarinnar en gert er ráð fyrir að samið verði við Kefla- víkurverktaka um framkvæmdina. Eftir stækkun verður slökkvistöðin ríflega 6.000 fermetrar. Morgunblaðið/Júlíus Enn stækkar slökkvi- stöðin í Reykjavík SAMÞYKKT var á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðvestur- kjördæmi að fela uppstillingar- nefnd að stilla upp á lista fyrir al- þingiskosningarinar í vor. Þetta er eina kjördæmið þar sem Samfylk- ingin verður ekki með prófkjör. Á fundinum, sem haldinn var á Hólmavík, komu fram tvær tillögur frá stjórn kjördæmissambandsins um aðferð við val frambjóðenda. Meirihlutinn lagði til að uppstilling- arnefnd yrði falið að velja á listann, en minnihlutinn lagði til prófkjör. Á fundinum kom fram eins konar málamiðlunartillaga um að viðhaft yrði flokksval, þ.e. lokað prófkjör. Kosið var um þessa tillögu og til- lögu meirihluta stjórnar um upp- stillingu. Tillaga um uppstillingu fékk 43 atkvæði, en tillaga um flokksval fékk 37 atkvæði. Í fram- haldi af þessari niðurstöðu var kos- in uppstillingarnefnd sem falið er það verkefni að gera tillögu um uppröðun á listann. Tillagan verður síðan lögð fyrir kjördæmisþing sem reiknað er með að verði haldið í lok nóvember eða byrjun desember. Þingmenn Samfylkingarinnar í þeim kjördæmum sem mynda hið nýja Suðvesturkjördæmi gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu, en þeir eru Gísli S. Einarsson, Jó- hann Ársælsson og Karl V. Matth- íasson. Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi Tillaga um upp- stillingu samþykkt SJÖ umsækjendur eru um stöðu fréttastjóra á Sjónvarp- inu. Umsóknarfrestur rann út um helgina. Umsækjendur eru Elín Hirst varafréttastjóri, G. Pétur Matthíasson fréttamaður, Hjálmar Blöndal Guðjónsson blaðamaður, Logi Bergmann Eiðsson varafréttastjóri, Páll Benediktsson fréttamaður, Sigríður Árnadóttir varafrétta- stjóri og Valgerður A. Jóhanns- dóttir fréttamaður. Sjö sækja um stöðu fréttastjóra ♦ ♦ ♦ ÞRÍR voru fluttir á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri í gærmorg- un eftir bílveltu á Norðurlandsvegi, nálægt bænum Miðhúsum í Akra- hreppi í Skagafirði. Ökumaðurinn slasaðist sýnu meira en farþegar hans en var þó ekki talinn alvarlega slasaður. Kalla þurfti út tækjabif- reið til að ná ökumanninum út úr bílflakinu og er bifreið hans gjör- ónýt. Bifreiðin var nýkomin inn á ísing- arkafla á veginum þegar slysið varð, en hafði fram að því ekið á auðum vegi. Bílvelta í Skagafirði KVEIKT var í rusli við verslunar- miðstöð við Arnarbakka í gærkvöldi. Engin meiðsl urðu á fólki en slökkvi- lið kom á vettvang til að slökkva eld- inn. Samkvæmt upplýsingum slökkvi- liðs og lögreglu var hópur unglinga þar að verki. Í ruslinu voru m.a. dekk sem safnað hafði verið saman og kveikt í. Lögreglan var einnig kvödd á vettvang, en samkvæmt upplýsing- um hennar hafði verið kvartað vegna óláta í hópi unglinga við verslunar- miðstöðina. Kveikt í rusli við Arnarbakka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.