Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 19
fordfocus
Ford Focus hefur hlotið frábæra dóma og verið valinn bíll ársins
í Evrópu og Bandaríkjunum, besti bíllinn í Þýskalandi og er nú vinsælasti
bíll í heimi. Enginn bíll hefur hlotið meiri viðurkenningu.
Komdu og keyrðu. Vertu undir það búin að vilja ekki láta hann frá þér.
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • brimborg.is Opið laugardaga kl.12-16
Pantaðu núna.
Nýr Ford Focus kostar frá 1.495.000 kr.
Er hægt
að hljóta meiri
viðurkenningu?
AÐ minnsta kosti 54 menn létu lífið
í gær í miklum eldsvoða í stórri
skrifstofubyggingu í Ho Chi Minh-
borg, áður Saigon, í Víetnam og
líklega enn fleiri því að margra var
saknað. Er byggingin, sem hefur
verið aðsetur margra erlendra fyr-
irtækja, sex hæða há og stukku
margir út um glugga á efri hæð-
unum á flótta undan eldsvítinu. Um
500 manns störfuðu í byggingunni
en auk skrifstofanna var þar vin-
sæll dansstaður og margar versl-
anir. Óstaðfestar fréttir voru um,
að eldurinn hefði kviknað út frá
rafmagni á skemmtistaðnum en
talsmaður stjórnvalda vildi aðeins
segja það eitt, að ekki væri um
hryðjuverk að ræða. Vitni segjast
hafa heyrt neyðarópin frá fólkinu,
sem lokaðist inni, en það tók
slökkviliðið fimm klukkustundir að
ná tökum á eldinum. Myndin sýnir
eldtungurnar standa út úr bygg-
ingunni en baráttan inni í húsinu
sjálfu var mjög erfið að sögn.
Reuters
Tugir manna
fórust í eldsvoða
NORÐUR-Kóreumenn höfnuðu í
gær alþjóðlegum kröfum um að
þeir leggi niður kjarnavopnaáætl-
un sína. Kom þetta fram á fyrri
degi fundar þeirra með Japönum,
er ætlað er að koma samskiptum
ríkjanna í eðlilegt horf, að því er
japanskur embættismaður greindi
frá. Hafi N-Kóreumenn einnig
reynt að gera lítið úr því að þeir
rændu japönskum ríkisborgurum á
áttunda og níunda áratugnum, og
sögðu það mál „svo að segja leyst“,
en Japanir líti alls ekki svo á.
Japönsk stjórnvöld líta svo á, að
lausn þessara tveggja mála skipti
mestu í viðræðunum, er fara fram í
Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu,
og lýkur í dag. Höfðu Japanir hót-
að að hætta viðræðunum ef N-Kór-
eumenn neituðu að hætta þróun
kjarnavopna. En háttsettur jap-
anskur embættismaður sagði í gær
að viðræðunum yrði haldið áfram í
dag, eins og gert hefði verið ráð
fyrir, þó svo að enginn árángur
hefði náðst í gær.
Japanir, Bandaríkjamenn og
Suður-Kóreumenn hafa krafist
þess að N-Kóreumenn hætti þróun
kjarnavopna, og lögðu til að við-
ræðurnar við Japani gætu orðið
heppilegur vettvangur fyrir við-
brögð N-Kóreumanna við kröfunni.
Japanski embættismaðurinn sagði
í gær, að yfirmaður n-kóresku
sendinefndarinnar, Jong Thae-
Hwa farsendiherra, hefði hafnað
kröfunni, og „bætt því við að her-
skárri afstöðu Bandaríkjamanna
gagnvart N-Kóreu væri um að
kenna“.
Þegar Jong hafi verið spurður
frekar um kjarnorkuvopnaáætl-
unina hafi hann ítrekað það sem
fram kom í yfirlýsingu frá n-kór-
eska utanríkisráðuneytinu sl.
föstudag, að n-kóresk stjórnvöld
ættu rétt á að koma sér upp
kjarnavopnum. N-Kóreumenn hafa
játað að hafa brotið samning er
þeir gerðu við Bandaríkjamenn
1994 þar sem þeir lofuðu að stöðva
kjarnavopnaáætlun sína og leggja
hana alveg niður er fram liðu
stundir.
Neita að
hætta þróun
kjarnavopna
Viðræður Norður-Kóreumanna
og Japana ganga illa
Kuala Lumpur. AFP.
BANDARÍSK stjórnvöld telja að
rússnesk yfirvöld hafi beitt gasi
gerðu úr ópíati, virka efninu í
ópíumi, til að yfirbuga tsjetsj-
ensku hryðjuverkamennina sem
tóku um 800 manns í gíslingu í
leikhúsi í Moskvu í síðustu viku.
Eitt hundrað og fimmtán gísl-
anna létust þegar rússneskar
sérsveitir réðust til inngöngu í
leikhúsið aðfaranótt laugardags-
ins, allir utan einn, að því er talið
er, vegna eituráhrifa af gasinu.
Haft var eftir háttsettum,
bandarískum embættismanni,
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið, að þær upplýsingar sem
Bandaríkjamönnum væru teknar
að berast frá Rússum bentu til að
gasið hefði „að öllum líkindum“
verið búið til úr ópíati. „Það þýðir
að beiting þess hefur sennilega
ekki verið brot á alþjóðasáttmál-
anum um bann við beitingu efna-
vopna,“ sagði embættismaðurinn
við fréttastofuna AFP.
Fréttamaður breska ríkisút-
varpsins, BBC, segir, að sjúkra-
flutningafólki er meðhöndlaði
gíslana eftir áhlaupið á leikhúsið
hafi verið gefin fyrirmæli um að
sprauta gíslana með efninu nalox-
ón, sem er lyf sem oft er gefið
sjúklingum sem fengið hafa of
stóran skammt af efnum gerðum
úr ópíati, eins og til dæmis her-
óíni. Ópíat-efni hafa deyfandi
áhrif á skynfærin, en of stór
skammtur getur valdið dái og
dauða með því að stöðva öndun
og blóðstreymi.
Skýringin á
sprautunálunum
Naloxóninu var sprautað í gísl-
ana þar sem þeir lágu meðvitund-
arlausir í leikhúsinu eftir að
ópíatgasinu var dælt inn í húsið
um loftræstikerfið, að því er haft
var eftir lækni. Þetta sagði hann
útskýra hvers vegna sprautunál-
ar hefðu fundist í áhorfendasaln-
um, en sumir rússneskir fjöl-
miðlar höfðu dregið þá ályktun af
þeim að hryðjuverkamennirnir
hefðu verið lyfjafíklar.
Ópíat-efni eru náskyld morfíni
að gerð og verkun og er morfín
aðalvirka efnið í ópíumi. Morfín-
lyf eru eitruð og geta hæglega
valdið dauðsföllum, sagði Jakob
Kristinsson, dósent í eiturefna-
fræði við læknadeild Háskóla Ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að sér þætti ólíklegt
að morfín hefði verið notað við
áhlaupið á leikhúsið í Moskvu, til
þess væri það ekki nógu virkt. En
til séu efni sem virki á sama hátt
og morfín en séu miklu virkari,
þannig að mun minna magn þurfi
af þeim til að hafa sömu áhrif og
morfín.
Sagði Jakob, að sér dytti helst í
hug að notuð hefðu verið önnur,
vel þekkt efni af morfínlyfja-
flokki, sem eru allt að þúsund
sinnum sterkari en morfín. Meðal
slíkra efna séu fentaníl og súfent-
aníl. Þetta séu ákaflega hættuleg
efni er geti valdið öndunarlömun.
Jakob sagði aðspurður að ekki
væri neinum vandkvæðum bund-
ið að búa til gas úr þessum efn-
um, og benti á að menn hafi
löngum reykt heróín og jafnvel
líka morfín.
Talið að gas skylt morfíni hafi verið notað í Moskvu
Getur valdið lömun
í öndunarfærum
Washington, Moskvu. AFP.