Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 17 KAUPÞING seldi Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis Frjálsa fjárfestingarbankann fyrir 3.844 milljónir króna hinn 30. september síðastliðinn, eins og fram kom í til- kynningu í Kauphöll Íslands. Í til- kynningunni kom einnig fram að söluhagnaður Kaupþings vegna viðskiptanna er áætlaður um 1.500 milljónir króna og að fasteign Frjálsa fjárfestingarbankans í Sól- túni fylgdi ekki með í kaupunum. Það var hins vegar ekki fyrr en uppgjör Frjálsa fjárfestingarbank- ans fyrir fyrstu níu mánuði ársins var birt á mánudag að fram kom að Kaupþing fengi greiddan arð sem nemur ríflega 300 milljónum króna frá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Ákvörðun um þetta var tekin á hluthafafundi Frjálsa fjárfesting- arbankans 10. þessa mánaðar og nemur arðgreiðslan 30% af hlutafé, en arður hefur ekki áður verið greiddur til hluthafa Frjálsa fjár- festingarbankans frá því hann varð til við samruna Samvinnusjóðs Ís- lands og Fjárvangs árið 2000. Sé litið svo á að arðgreiðslan sé hluti af þeirri fjárhæð sem SPRON greiðir fyrir Frjálsa fjárfesting- arbankann hefur SPRON í raun greitt nær 4,2 milljarða króna fyrir bankann en ekki rúmlega 3,8 millj- arða króna eins og kaupverðið hljóðar upp á. Greiningardeild Búnaðarbank- ans gaf út greiningu á Kaupþingi fyrr í þessum mánuði þar sem fram kom það mat deildarinnar að verð- mæti Frjálsa fjárfestingarbankans fyrir Kaupþing hafi verið um 2,6 milljarðar króna. Miðað við það verð taldi greiningardeild Bún- aðarbankans því að verðmæti Kaupþings hafi hækkað um ríflega 1,2 milljarða króna við söluna. Þeg- ar arðgreiðslunni hefur verið bætt við hefur verðmæti Kaupþings við söluna á Frjálsa fjárfestingarbank- anum því aukist um 1,5–1,6 millj- arða króna miðað við forsendur greiningardeildarinnar. Eigið fé Frjálsa fjárfesting- arbankans lækkar sem nemur arð- greiðslunni, en það var 2,6 millj- arðar króna í lok september. Skiptar skoðanir hafa verið um verðlagningu Frjálsa fjárfesting- arbankans í viðskiptunum milli SPRON og Kaupþings. Ekkert ligg- ur fyrir um hvaða samlegð- aráhrifum eða annarri hagræðingu SPRON nær út úr kaupunum á Frjálsa fjárfestingarbankanum eða hverju hann mun skila SPRON. Hitt er ljóst að efasemdirnar um kaup- verðið minnka ekki við ríflega 300 milljóna króna arðgreiðslu til selj- andans. Innherji skrifar innherji@mbl.is ÁRSHLUTAUPPGJÖR Hraðfrysti- húss Eskifjarðar (HRESK) leiðir í ljós að hagnaður fyrstu níu mánaða ársins nemur 1.062 milljónum króna, miðað við 22 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur félagsins á tímabilinu nema 3.202 milljónum, en rekstrargjöld 2.109 milljónum. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er því 1.162 milljónir, eða 35,54% hlutfall af vergum rekstrar- tekjum. Afskriftir fastafjármuna nema rúmum 329 milljónum, en fjár- munagjöld eru jákvæð um tæpar 475 milljónir, fyrst og fremst vegna styrkingar íslensku krónunnar. Tekjuskattur nemur rúmum 245 milljónum. Heildareignir HRESK nema nú 7.344 milljónum króna, en voru 6.052 milljónir við síðustu áramót. Eigið fé félagsins er 2.295 milljónir, vex úr 1.372 milljónum og er 31,25% nú, miðað við 22,68% um síðustu áramót. Innra virði hlutafjár vex úr 3,08 við síðustu áramót í 5,23 nú. Heildar- skuldir félagsins nema 5.049 milljón- um samanborið við 4.680 í ársbyrjun. Nettóskuldir, þ.e.a.s. heildarskuld- ir að frádregnum veltufjármunum, standa nánast í stað og nema 3.498 miiljónum miðað við 3.517 milljónir við áramót. Veltufjárhlutfall er nú 1,04 miðað við 1,00 í ársuppgjöri. Hvað sjóðstreymi varðar skilar reksturinn rúmum 1.007 milljónum í veltufé frá rekstri, en handbært fé frá rekstri nemur 638 milljónum. Fjár- festingahreyfingar nema 1.141 millj- ón og fjármögnunarhreyfingar 432 milljónum. Uppistaðan í fjárfestinga- hreyfingum félagsins eru kaup á 47,48% hlut í Tanga hf. á Vopnafirði, en félagið fjármagnaði um 36% kaup- anna með rekstrarfé. Í samræmi við áætlun Í tilkynningu frá HRESK segir að niðurstaða tímabilsins sé í takt við rekstraráætlun félagsins, að undan- skildum 475 milljóna króna jákvæð- um fjármagnsgjöldum. Kemur þar til bókhaldslegur hagnaður af vaxta- skiptasamningi er nemur 210 millj- ónum og lækkun erlendra skulda vegna styrkingar íslensku krónunn- ar. Félagið gerir ráð fyrir að framlegð dragist saman er líður á árið með minnkandi veiðum og vinnslu. Í rekstraráætlun félagsins er gert ráð fyrir að hlutfallsleg framlegð af verg- um rekstrartekjum verði um 33% á árinu öllu. HRESK með rúman millj- arð í hagnað Í takt við rekstraráætlun ORÐRÓMUR hefur verið á kreiki um að vegna þess að GSM-símkerfi Ís- landssíma er nýrra en GSM-símkerfi Tals muni viðskiptavinir Tals koma til með að þurfa að skipta um síma, sím- kort eða jafnvel símanúmer ef kerfi félaganna verða sameinuð í kjölfar samruna símafyrirtækjanna. Pétur Pétursson upplýsingafulltrúi Íslands- síma segir þetta algjörlega úr lausu lofti gripið. „Verði af sameiningu sím- kerfanna á að vera hægt að færa öll símtöl auðveldlega á milli þannig að viðskiptavinir verði ekki varir við neitt. Ég get staðfest að það hefur verið einhver orðrómur á kreiki um þetta en hann er alveg úr lausu lofti gripinn,“ sagði Pétur Pétursson. Tal og Íslandssími Notendur ekki varir við skiptin LÆKNA LINDBæjarlind 12 • 201 KópavogurSími 520 3600 • Fax 520 3610www.laeknalind.is Hjá Læknalind komast skráðir sjúklingar að samdægurs hjá heimilislækni. Sími 520 3600 Samdægurs læknisþjónusta Engin bið AÐALFUNDUR Útvegsmanna- félags Snæfellsness var haldinn á Hellissandi 21. október sl. Mikil um- ræða fór fram um þróun sjávar- útvegs á Íslandi. Á Snæfellsnesi er enn öflugur bátafloti sem er í eigu einstaklinga sem er undirstaða þéttbýlis á norðanverðu Nesinu eins og smábátaflotinn er fyrir margar aðrar byggðir við sjáv- arsíðuna. Í félaginu eru útgerðir 48 skipa sem að stærstum hluta eiga sér langa sögu við Breiðafjörð. Bátaflotinn skapar því fjölda starfa til sjós og svo öruggt hráefni í landi. Það kom fram greinilegur ótti hjá fundarmönnum um þá sam- þjöppun veiðiheimilda til fárra fyr- irtækja sem nú á sér stað á landinu. Einstaklingsútgerðir eiga mjög undir högg að sækja. Sú stöðuga óvissa í sjávarútvegi sem fyrirtækin búa við fer mjög illa með þau og ekki síst skerðing í þorskafla ár eft- ir ár sem er meginhluti aflaheimild- anna. Nú er svo komið að aflaheim- ildir nægja til veiða hluta ársins. Við slíka stöðu er ekki hægt að búa við lengi. Eina vonin er að ná í meiri aflaheimildir. Verð á varanlegum aflaheimildum er það hátt að það reynist litlum útgerðum erfitt að komast yfir slík kaup. Til að koma þessum bátaflokki til hjálpar er mikilvægast að auka þorskveiði- heimildir. Það kom fram á fund- inum að einstaklingsútgerðir búa ekki við sömu kjör í bönkum og stærri útgerðarfélög, þó að áhætt- an væri ekki meiri í útlánum til þeirra og vaxtakjörin skiptu minni útgerðir jafnvel meira máli en þau stærri. Af öðrum málum sem voru til um- ræðu var að banna loðnuveiðar í Breiðafirði þar sem þorskinn í Breiðafirði vantar æti. Loðnan sem kemur inn í fjörðinn nýtist betur sem fóður fyrir fiskinn og annað líf- ríki, en sem lélegt hráefni til mjöl- vinnslu. Samþykkt var að leggja til- lögu þessa efnis fyrir aðalfund LÍÚ í þessari viku. Þá skorar fundurinn á stjórnvöld að setja skýrar reglur um þær aflabætur sem þau ákvarða að úthluta eða taka af útgerðum vegna aflabrests. Tryggja þarf að allar fiskitegundir séu með í þeim bótum. Bátar sem hafa miklar afla- heimildir í þorski, s.s. bátar við Breiðafjörð, hafa lagt mikið til þessarar jöfnunar á meðan útgerðir með aflaheimildir t.d. í uppsjáv- arfiski hafa ekki tekið þátt í þessari jöfnun nema þá sem þiggjendur. Útgerðarmenn dragnótabáta hafa áhyggjur af aukinni sókn dragnótabáta á miðin í Breiðafirði. Samþykkt var að óska eftir að bann verði sett við dragnótaveiðum í Breiðafirði frá kl. 19 á laug- ardögum til kl. 7 á mánudags- morgnum frá 1. september til 30. apríl ár hvert. Formaður Útvegs- mannafélags Snæfellsness er Ólaf- ur Rögnvaldsson, Hellissandi. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Aðalfundir Útvegsmannafélags Snæfellsness eru vel sóttir, enda fjöldi báta ennþá gerður út frá Snæfellsnesi. Vilja banna loðnuveið- ar á Breiðafirði Stykkishólmi. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.