Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 39
VERSLANIR Hans Petersen hf. hafa um árabil selt jólakort fyrir ljósmyndir og jafnlengi hefur fyr- irtækið látið tiltekna fjárhæð af hverju seldu jólakorti renna til styrktar góðu málefni. Í þetta sinn munu nýstofnuð samtök Regnboga- barna njóta styrksins. Regnboga- börn eru fjöldasamtök stofnuð af Stefáni Karli Stefánssyni leikara og er þeim m.a. ætlað að berjast gegn einelti á börnum og unglingum. El- ín Agnarsdóttir og Stefán Karl handsöluðu samninginn. Jólakort til styrktar Regnbogabörnum FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 39 Rangt föðurnafn Í leiðara undir fyrirsögninni Konur og fátækt í Morgunblaðinu í gær var rangt farið með föðurnafn Ragnhildar Guðmundsdóttur í Mæðrastyrksnefnd. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. Rangt nafn Þau leiðu mistök urðu í mynda- texta með frétt í blaðinu í gær, um útkomu bókarinnar Sjósókn og sjávarfang eftir Jón Þ. Þór, að rangur maður var tilgreindur. Höf- undur var sagður á myndinni en rétt er að Kjartan Jóhannsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, er þar ásamt þeim Þorsteini Páls- syni og Árna M. Mathiesen. Kjartan var sjávarútvegsráð- herra á árunum 1978–80. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Jón Thorstensen Jón Thorstensen var ranglega feðraður í Morgunblaðinu sl. laug- ardag. Beðist er velvirðingar á því. Jón var sóknarprestur á Þingvöll- um í um fjóra áratugi. Á dögunum var sett upp biblíuborð í Þingvalla- kirkju undir ljósprentaða Guð- brandsbiblíu sem gefin var í minn- ingu Jóns. LEIÐRÉTT Kyrrðarstund Íslandsdeild Amn- esty International efnir til kyrrð- arstundar fyrir framan sendiráð rússneska sambandsríkisins í Garða- stræti 33 í Reykjavík í dag, miðviku- dag, kl. 17. Tendruð verða kerti og þannig minnst fórnarlamba mann- réttindabrota og minningu fórn- arlamba gíslatökunnar í leikhúsinu í Moskvu sýnd virðing. Kyrrðarstundin markar upphaf al- þjóðlegrar herferðar Amnesty Int- ernational vegna mannréttindabrota í Rússlandi, segir í fréttatilkynningu. Í DAG Fræðslufundur í Verzlunarskóla Íslands Verzlunarskóli Íslands býð- ur til fræðslufundar um forvarnir og vímuefni fimmtudaginn 31. október kl. 20. Magnús Stefánsson fræðslu- fulltrúi hjá Marita forvarna- og hjálparstarfi verður aðalgestur fund- arins. Sýnd verður ný íslensk heim- ildarmynd sem sýnir heim sem fíkni- efnaneytendur lifa í. Eftir það ræðir Magnús m.a. um lífssýn unglinga og hvernig markaðurinn herjar á þá. Á fundinn mætir einnig lögreglumaður frá forvarna- og fræðsludeild lög- reglunnar í Reykjavík og fulltrúi frá Félagsþjónustunni. Í lok fundarins gefst kostur á að koma með fyr- irspurnir og taka þátt í almennum umræðum, segir í frétt frá Verzl- unarskóla Íslands. Fyrirlestur í Vísindafélagi Íslend- inga Fyrirlestur verður haldinn í Vísindafélagi Íslendinga fimmtu- dagskvöldið 31. október kl. 20 í Nor- ræna húsinu. Fjallað verður um það hvort unnt sé að ná 3–15 sinnum meiri orku upp úr háhitaborholum en hingað til hefur tekist með hefð- bundnum borunum. Fyrirlesari er Guðmundur Ómar Friðleifsson, jarð- fræðingur hjá Orkustofnun. Í fréttatilkynningu segir meðal ann- ars: „Í erindinu verður verkefninu lýst bæði frá faglegu og hagnýtu sjónarhorni. Rétt er að fram komi að engar ákvarðanir um djúpboranir verða teknar fyrr en að hag- kvæmniathugun lokinni. Djúpborun gæti því hið fyrsta hafist 2004-2005, og málið því rétt á byrjunarstigi. Einn til tveir áratugir gætu liðið áð- ur en endanlegt svar fæst við því hvort nýta megi jarðhita á yf- irmarkshita. Nýtanlegur orkuforði þjóðarinnar myndi hins vegar aukast umtalsvert ef svarið yrði jákvætt. Með djúpborunarverkefninu er því horft til hugsanlegs orkugjafa fram- tíðar, þó að ein vel heppnuð borhola gæti fleytt okkur nokkra áratugi fram á við í nýtingu háhitasvæða. Vel heppnaðar tilraunir hérlendis myndu að sama skapi gagnast al- þjóðasamfélaginu um nýtingu há- hitasvæða hvar sem er í heiminum. Því þarf að vanda til verka í upphafi.“ Fundurinn er öllum opinn. Nánari upplýsingar um djúpborunarverk- efnið má finna á heimasíðu verkefn- isins, www.os.is/iddp/ Ungt fólk með ungana sína Ungu fólki er boðið að koma með börnin sín í Hitt húsið, Pósthússtræti 3–5, alla fimmtudaga kl. 13–15. Léttar veit- ingar eru í boði og aðstaða fyrir börnin að leika sér, teppi og leikföng. Ýmsir fyrirlestrar og fræðsla verða á boðstólum í vetur öllum að endur- gjaldslausu. Næsta fimmtudag, 31. október, eru allir ungir foreldrar velkomnir. Nán- ari upplýsingar fást hjá Bergdísi í Hinu húsinu í síma eða á www.hitt- husid.is Á MORGUN Námskeið um ISO 9000 gæða- stjórnunarstaðla Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði fimmtudag- inn 7. nóvember fyrir þá sem vilja læra á nýja útgáfu ISO 9000 gæða- stjórnunarstaðlanna. Markmið námskeiðsins er að þátt- takendur geti gert grein fyrir meg- ináherslum og uppbyggingu kjarna- staðlanna í ISO 9000:2000 röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við að koma á og viðhalda gæðastjórn- unarkerfi. Auk þess að skýra upp- byggingu staðlanna, notkun og kröf- urnar í ISO 9001, verður farið yfir tengsl staðlanna og gæðastjórn- unarkerfis samkvæmt ISO 9000. Þátttakendur leysa hópverkefni í gerð verklagsreglna. Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178, kl. 8.30– 14.45. Nánari upplýsingar og skrán- ing á vef Staðlaráðs, www.stadlar.is, eða í síma. Á NÆSTUNNI Fundur um matvöruverð Opinn fundur um matvöruverð, verslun og landbúnað verður haldinn á kosn- ingaskrifstofu stuðningsmanna Stef- aníu Óskarsdóttur, Laugarásvegi 1, í kvöld, miðvikudaginn 30. október, klukkan 20. Að lokinni framsögu Stefaníu Óskarsdóttur verða al- mennar umræður. Kaffi á könnunni. Stefanía Óskarsdóttir, fráfarandi formaður Hvatar og varaþingmaður, er fertugur háskólakennari í stjórn- málafræði. Hún hefur gegnt öðrum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Stefanía sækist eftir 6. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík sem haldið verður 22. og 23. nóvember. Einar Oddur Kristjánsson hefur opnað heimasíðu. Slóðin á heimasíð- una er www.einaroddur.is Í DAG STJÓRNMÁL LANDSRÁÐSTEFNA Samtaka herstöðvarandstæðinga var haldin laugardaginn 26. október síðastlið- inn í húsnæði Reykjavíkur-akadem- íunnar, Hringbraut 121, í Reykjavík. Á fundinum var kosin ný miðnefnd samtakanna. Í kjölfar lagabreyting- ar fjölgar miðnefndarmönnum sam- takanna. Þeir vorutíu en framvegis verða þeir tólf. Miðnefnd skipuð fyrir næsta starfsár Miðnefnd Samtaka herstöðvar- andstæðinga, starfsárið 2002–2003 skipa: Bára Snæfeld Reykjavík, Einar Ólafsson Kópavogi, Hrafnkell Brynjarsson Akureyri, Páll Hilm- arsson Reykjavík, Sigurður Flosa- son Kópavogi, Sigþrúður Gunnars- dóttir Reykjavík, Stefán Pálsson Reykjavík, Stefán Þorgrímsson Reykjavík, Steinunn Þóra Árnadótt- ir Reykjavík, Sverrir Jakobsson Reykjavík, Tanya Pollock Reykjavík og Torfi Stefán Reykjavík. Landsráðstefnan sem haldin var á laugardaginn var fjölsótt. Ný miðnefnd Samtaka herstöðvar- andstæðingaRÁÐSTEFNA norrænna lýðhá- skólastjóra var haldin í Skálholti í síðustu viku. Á ráðstefnunni kom fram að um- talsverðar breytingar hafa orðið í ytri búnaði lýðháskólanna til þess að mæta þörfum og áhugasviði nem- enda á nýrri öld. Í Karlskoga- skólanum í Sví- þjóð til dæmis er að finna fullbúið hljóðver þar sem nemendur fá al- hliða þjálfun í upptökuvinnu auk kennslu í söng og hljóðfæraleik og þátttöku í samspili og samsöng. Þar er líka tölvuver þar sem kennd er gerð heimasíðna og notkun tölvu á margvíslegan hátt í mannlegum samskiptum. Ferðamálabraut er í skólanum og einnig brautir fyrir þá sem vilja vinna í æskulýðsstarfi eða við umönnun aldraðra. Allar þessar brautir tengjast svo almennu náms- efni skólanna og eru valkostir þar margir. Yfirleitt er skólavistin einn vetur. Í Karlskoga-skólanum eru nem- endur á öllum aldri, meðalaldurinn í fyrra var 29 ár þótt flestir nem- endur séu um tvítugt. Fólk tekur sér í vaxandi mæli ársleyfi frá störfum á miðjum aldri og sest í lýðháskóla og kynnist þar mörgu því sem annars er ekki beinn að- gangur að fyrir almenning. Við starfslok hafa menn og í vaxandi mæli leitað til lýðháskólanna til þess að þjálfa sig í því að njóta lífs- ins á eftirlaunum. Vinna mikilvægt starf í þágu innflytjenda Á ráðstefnunni í Skálholti kom fram að lýðháskólarnir hafa unnið mikilvægt starf í þágu innflytjenda en flestir skólanna hafa ákveðinn kvóta þeirra í nemendahópnum. Bæði er tungumál nýja heimalands- ins kennt þar með skipulegum hætti en einnig gefst þar tækifæri til að kynnast menningu þess og miðla af eigin menningararfleifð. Það kom einnig fram að við vaxandi hnattvæðingu verður æ brýnna að efla sitt nánasta menningarlega umhverfi til þess að eiga sér grið- land og styrkja sínar rætur um leið og yfirsýnin víkkar. Var sérstaklega hvatt til þess að efla tengslin við Ísland og vinna að því að fleiri íslenskir nemendur stundi nám við hina norrænu lýðhá- skóla sem starfa á kristnum grunni. Fram kom hjá Anders Hellgren, skólastjóra Karlskoga-skólans, að mjög góð reynsla væri af íslenskum nemendum og eru þeir ætíð vel- komnir í skólann til að fást við það sem hugurinn stendur til. Breytingar á starfi norrænna lýðháskóla Anders Hellgren SAMBAND íslenskra kristniboðs- félaga, SÍK, hefur ákveðið að efna til söfnunar vegna hungursneyðar í Pókot-héraði í Kenýu. Þar hafa íslenskir kristniboðar verið við störf um árabil og segir Salóme Huld Garðarsdóttir að talið sé að líf um 90 þúsund íbúa í Pókot sé í hættu vegna matarskorts og upp- skerubrests. Segir hún það um þriðjung Pókot-þjóðflokksins. Skúli Svavarsson, fram- kvæmdastjóri SÍK sem starfaði um árabil í Kenýu, tjáði Morg- unblaðinu að ástæðan fyrir upp- skerubrestinum væri þurrkar. Rigning hefði einnig brugðist í fjallasvæðum héraðsins þar sem gróðursælast er. Hann sagði upp- skerubrestinn þegar hafa áhrif á daglegt líf fólks, það væri veik- burða og næringarskortur og sjúkdómatíðni hefðu aukist. „Ber- ist þeim ekki hjálp er hætta á að margir deyi.“ Salóme Huld segir að leiðtogar kirkjunnar í Pókot og kristniboðar hafi hist nýlega til að ræða hvaða leiðir væru mögulegar til hjálpar. Unnið væri að skýrslugerð um ástandið fyrir yfirvöld og hjálp- arstofnanir en undirbúningur hjálparstarfs tæki langan tíma. Sagði hún því brýnt að fá sem fyrst fé til að kaupa matvæli og því hefðu erlendu kristniboðarnir ósk- að eftir beinum stuðningi að heim- an. Þegar hefur fengist leyfi yf- irvalda til að hefja hjálparstarf. Framlögum má koma til skila á reikning í Landsbanka Íslands 0117-26-9000. Söfnun vegna hungurs- neyðar í Kenýu Hafin er söfnun vegna hungursneyðar í Pókot-héraði í Kenýu. TRYGGINGASTOFNUN ríkisins hefur sent frá sér eftirfarandi at- hugasemd: „Vegna leiðara Morgunblaðsins, laugardaginn 26. október sl. þykir rétt að fram komi að Trygginga- stofnun ríkisins á ekki í samnings- deilum við Barnalæknaþjónustuna ehf. Þvert á móti vinna báðir aðilar eftir gildandi samningi. Samningurinn sem gerður er að frumkvæði heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins víkur frá þeirri meginreglu að frumþjónusta fari fram hjá heimilislæknum og heilsugæslustöðvum. Þjónusta sam- kvæmt samningnum er viðbót við þá þjónustu sem læknavakt heimilis- lækna veitir. Hún er því takmörkuð og er gert ráð fyrir að barnalækn- arnir forgangsraði eftir þörf barna fyrir sérfræðiþjónustu. Þeir skulu veita þjónustu allt almanaksárið inn- an þeirra marka sem samningurinn tilgreinir, en við samning um þjón- ustumagn var stuðst við ríflega með- altal koma sl. tveggja ára eða 11.000 komur.“ Athugasemd frá Trygg- ingastofnun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.