Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 7 VÍGSLUBISKUPSKJÖR í stækkuðu Hólastifti fer að öllum líkindum ekki fram fyrr en eftir áramót. Á nýafstöðu Kirkju- þingi var samþykkt að stækka stiftið til austurs með því að bæta Múla- og Austfjarðapró- fastsdæmum við prófastsdæmin á Norðurlandi. Breytingin tekur gildi 1. nóvember nk. og eftir það verður farið að vinna í kjör- skrá. Kjörstjórn hefur ekki komið saman vegna kjörsins. Séra Bolli Gústavsson er að láta af störfum sem vígslubisk- up í stiftinu en að undanförnu hefur sr. Sigurður Guðmunds- son, forveri Bolla í starfinu, ver- ið settur vígslubiskup í hans stað. Þrjú einkum nefnd sem vígslubiskupsefni Formlega séð eru allir prest- ar á landinu í kjöri eða „hver guðfræðikandídat, sem fullnæg- ir skilyrðum til þess að vera skipaður prestur í þjóðkirkj- unni“, eins og segir í starfs- reglum um kosningu vígslubisk- ups og biskups Íslands. Kosningarétt eiga allir prestar í Hólastifti auk leikmanna sem sitja í kirkjuráði, leikmanna úr stiftinu sem sitja kirkjuþing og leikmanna í héraðsnefnd hvers prófastsdæmis Hólastiftis. Heimilt er þeim sem hafa kosn- ingarétt að tilnefna kjörgengan mann sem vígslubiskupsefni. Til að sú tilnefning sé gild þurfa að lágmarki 10% kosningabærra manna að standa að henni. Engar tilnefningar eru komn- ar fram en ýmis nöfn hafa verið nefnd meðal presta sem líkleg vígslubiskupsefni. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru aðallega þrír prestar nefnd- ir. Það eru séra Kristján Valur Ingólfsson, lektor í guðfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi rektor í Skálholti og prestur á Grenjaðarstað í S-Þingeyjar- sýslu, sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur í Skagafjarðarpró- fastsdæmi og prestur á Mikla- bæ í Skagafirði, og sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur í Húna- vatnsprófastsdæmi og prestur á Melstað. Þar til nýlega var nafn sr. Sigfúsar J. Árnasonar á Hofi í Vopnafirði, prófasts í Múlapró- fastsdæmi, ofarlega í um- ræðunni en í bréfi til presta og kjörmanna í stiftinu segist hann ekki ætla að gefa kost á sér en lýsir yfir stuðningi við sr. Krist- ján Val. Í samtali við Morgunblaðið staðfesti Kristján Valur að hann gæfi kost á sér. Þegar haft var samband við Döllu vildi hún ekki tjá sig að öðru leyti en því að starfsbræður sínir og -systur hefðu leitað til sín og skorað á sig að fara fram. Sr. Guðni Þór sagðist ekki hafa gefið út neina formlega yf- irlýsingu um að vera í kjöri. Við þá sem til sín hefðu leitað um að fara fram hefði hann sagt að hann ætlaði ekki að skorast undan þeim áskorunum. Prestafélag Hólastiftis kemur saman til fundar í byrjun nóv- ember og þá verður vígslubisk- upskjörið meðal annars á dag- skránni. Vígslubiskups- kjöri frestað framyfir áramót Á FÖSTUDAGINN er eins gott fyr- ir ökumenn að nota handfrjálsan búnað við farsímann um leið og þeir aka bílnum. Þá verður lögreglu heimilt að sekta fyrir brot gegn lög- um sem tóku gildi 1. nóvember 2001 en í lögunum segir: „Ökumanni vélknúins ökutækis er við akstur óheimilt að nota farsíma án hand- frjáls búnaðar.“ Á föstudaginn verður nákvæm- lega ár liðið frá því lögin tóku gildi. Ökumönnum var gefinn árs aðlög- unartími og voru þeir áminntir fyr- ir brot á lögunum en ekki sektaðir. Að sögn Karls Steinars Valssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykja- vík, hefur lögreglan í Reykjavík gert athugasemdir við 311 öku- menn sem töluðu í farsímann án þess að skeyta um handfrjálsa bún- aðinn, þar af rúmlega 100 í þessum mánuði. Aðlögunartíminn er nú lið- inn og því ekki seinna vænna að láta af þessum ósið. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðu- neytinu verður sektin 5.000 krónur. Handfrjáls búnaður við akstur skylda Morgunblaðið/Þorkell Frá og með föstudeginum verða ökumenn að muna eftir handfrjálsa síma- búnaðinum eða eiga á hættu að lögreglan sekti þá um 5.000 krónur. Byrjað að sekta á föstudaginn TENGLAR ..................................................... www.handfrjals.is Ert flú me› handfrjálsan búna›? H an dfrjáls b ú n a › u r H r-30%afsláttur Fyrir ári sí›an gengu í gildi lög sem kve›a á um a› ökumönnum sé óheimilt a› nota farsíma í bílum án handfrjáls búna›ar. Síminn og Umfer›arstofa hafa teki› höndum saman og hvetja ökumenn til a› auka öryggi og flægindi vi› akstur. Síminn b‡›ur 30% afslátt af handfrjálsum búna›i í verslunum sínum til 1. desember 2002. Förum a› lögum – aukum öryggi og flægindi N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 0 7 6 8 2 / s ia .i s Afslátturinn gildir í öllum verslunum Símans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.