Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 35 því lífið hjá þér gekk ekki eins og þú vildir, við töluðum lengi saman og eins og alltaf tókst þér að brosa í gegnum tárin. Svo faðmaði ég þig bless í von um að þú breyttir um stefnu og lífið færi batnandi, en því miður fór það ekki svo. Ég hefði aldrei trúað að þetta væri síðasta skiptið sem ég hitti þig hér á jörð. Á vörum mínum brenna ótal spurningar, „af hverju“?, sem ekki verður svarað, ekki í þessu lífi... Þú varst mjög „spes týpa“ og er ég mjög stolt að hafa átt þig sem vin, enginn mun koma í þinn stað, það verður tómt þar til við hittumst síðar. Ási minn, þín er sárt saknað og ég mun hafa þig í bænum mínum og ég veit að núna líður þér betur því Drottinn heldur í hönd þína og verndar þig. Minningin um góðan dreng lifir í hjarta margra um ókomna tíð. Með tárin í augunum kveð ég þig, elsku vinur, og mundu að mér þykir vænt um þig. Í lokin kemur svo erindi úr ljóð, en þú varst alltaf að biðja mig um að gefa þér ljóð eftir mig. Hann Ási mun lifa um eilífð alla, til æðri heima, stígur þetta spor. Og eins og blómin fljótt í frosti falla, þau fögur lifna aftur næsta vor. Ég vil votta fjölskyldu og vinum mína dýpstu samúð. Þín vinkona, Berglind Heiða. Elsku Ásbjörn minn, ég ætla að kveðja þig með nokkrum orðum. Við kynntumst á Ásabrautinni þar sem við lifðum okkar fyrstu ár en fjölskyldur okkar bjuggu hvor á móti annarri. Það var mikið leikið sér og prakkarastrikin voru ófá. Þessi vinátta hélst góð fram að unglings- árum en þá skildu okkar leiðir. Minningarnar hlaðast upp og ekki ástæða að skrifa um það hér. Elsku Birna, Helgi og systkini, megi guð styrkja ykkur. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Sólrún Jensdóttir. Elsku vinur, þú ert nú farinn mér frá. Stundinar sem við áttum saman voru góðar og slæmar, en sama hvað gekk á þá reyndist þú mér alltaf vel. Þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu og ég veit við munum hittast á ný þegar minn tími er kominn. Ég mun ávallt elska þig og hlakka til að hitta þig á himnum, ég sakna þín sárt en huggun mín er sú að nú líður þér vel, við töluðum oft um lífið og ég veit hvernig þér leið. Nú ertu kom- inn þangað sem engin fíkn og kvöl er. Ef þú bara vissir hve mikið þú hjálpaðir mér, það er þér að þakka að ég er enn hér. Þú komst mér á rétta braut og svo ert þú farinn. Þú varst svo yndisleg persóna, en eitr- ið tók völdin og stjórnaði öllu. Elskan mín nú líður þér vel því jú þú átt það skilið, nú loksins ertu heill. Skín, ljósið náðar, myrkrin grúfa grimm ó, lýs mér leið og langt er heim, en nóttin niðadimm, ó, lýs mér leið. Úr fjarlægð huldu hirði ég þó ei neitt, ef, Herra, leiðir þú mig fótmál eitt. Ég veit sem fyrr þú blessar lífs míns leið og lýsir mér Í þrautum var, í jökulnepju og neyð uns nóttin þverr og við mér brosa englaandlit blíð, sem elskað hefi lengi, en misst um hríð. Svo áfram þá hið þyrnum stráða skeið, er gekkst fyrst heim, Jesú, heim, sem ljúfast barn mig leið í ljóssins vist, að hvílast megi ég eftir æviharm í eilífs friðar ljósi Guðs við barm. (Höf. ók.) Ég sakna þín og takk fyrir allt, þín vinkona Eva Björk. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 Ástkær eiginmaður minn, HALLDÓR G. JÓNSSON, frá Bíldudal, Miðtúni 15, Selfossi, andaðist á heimili okkar sunnudaginn 26. október. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 2. nóvember kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á félagið Heyrnarhjálp. Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna, Rósa Magnúsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJALTI PÁLSSON, Ægisíðu 74, sem lést fimmtudaginn 24. október sl., verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 15.00. Ingigerður Karlsdóttir, Karl Óskar Hjaltason, Guðrún Þóra Hjaltadóttir, Páll Hjalti Hjaltason, tengdadætur og barnabörn. Okkar ástkæra HELGA G. JÓNSDÓTTIR, Álftamýri 14, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 28. október. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á minningarsjóð hjúkrunarþjónustu Karitasar í síma 551 5606. Ingimar Guðmundsson, Bjarni Þorsteinsson, Ásta Jónsdóttir, Garðar Kristjánsson, Jón Trausti Jónsson, Hrefna Kristjánsdóttir, Halldóra Bjarnadóttir, Atli Guðlaugsson, Guðrún Bjarnadóttir, Jón Arnar Freysson, Katrín Líney Jónsdóttir, Þórður Örn Arnarson, Valdís Ingimarsdóttir, Raffy Torrossian, Ólafur Ingimarsson, Hafdís Gísladóttir, Auður Ósk Ingimarsdóttir, Eðvarð Hreiðarsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KARL HAFSTEINN PÉTURSSON, Hátúni 12, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 22. október sl., verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 31. október kl. 13.30. Hermann Karlsson, Guðrún Elísabet Jóhannsdóttir, Bryndís Karlsdóttir, Þórður Baldursson, Dagný Karlsdóttir, Unnsteinn B. Eggertsson, Sverrir Karlsson, Guðlaug Vestmann, Viðar Karlsson, Halla Valgerður Haraldsdóttir og barnabörn. Bróðir okkar, CESAR ÓLAFSSON, sem lést föstudaginn 25. október, verður jarð- sunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00 Systkini hins látna. Elskulegur eiginmaður minn, ÖRLYGUR SIGURÐSSON listmálari, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstu- daginn 1. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir um að láta líknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Unnur Eiríksdóttir. Frændi okkar, ÓLAFUR BJÖRGVIN ÞORBJÖRNSSON frá Reyðarfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 22. október. Útförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00. Systkinabörn. Elskuleg eiginkona mín og móðir, ODDNÝ DÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, Heiðarbóli 9, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 1. nóvember kl. 14.00. Jarðsett verður í Hólmbergskirkjugarði. Kristján Kristinsson, Þorsteinn Kristjánsson. Victoría fæddist og ólst upp í Reykjavík og starfaði lengi í sæl- gætisgerðinni Freyju. Hún kynntist tilvonandi eiginmanni sínum, Þór- arni Guðmundssyni, á ferðalagi um Bandaríkin. Þau giftust í Crookston í Minnesóta, 30. október 1947. Vict- oría og Þórarinn bjuggu um skeið í Christal og síðar St. Thomas, en settust loks að í Grand Forks í Norður-Dakóta, þar sem Þórarinn stofnaði byggingarfyrirtæki. Victor- íu og Þórarni varð ekki barna auðið, en 1952 ættleiddu þau dóttur, Vicky. Victoría var heimavinnandi hús- móðir allt til andláts eiginmanns síns 1963, en hóf þá störf sem sjúkraliði hjá Valley Memorial Home í Grand Forks. Árið 1990 fór VICTORÍA GUÐMUNDSSON ✝ Victoría Guð-mundsson í Grand Forks í Norð- ur-Dakóta í Banda- ríkjunum fæddist 30. október 1912. Hún lést 26. september síðastliðinn. Eigin- maður hennar var Þórarinn S. Guð- mundsson. Dóttir þeirra, Vicky Nel- son, býr í Boulder í Colorado. Bálför Victoríu var gerð í Boulder í Colorado og minn- ingarathöfn var haldin 13. októ- ber í Vikurkirkju í Mountain í Norður-Dakóta. hún á eftirlaun, en starfaði enn hjá Valley Memorial sem sjálf- boðaliði allt til ársloka 2000. Í janúar 2002 flutti Victoría að heimili dóttur sinnar og eigin- manns hennar í Bould- er, Colorado. Victoría var mjög virk fé- lagslega og var með- limur í Lady Elks, Lady Vets, Bethseda- samtökunum og gönguklúbb bæjarins. Hún hafði mikinn áhuga á hannyrðum, svo sem hekli og útsaumi, og naut þess einnig að baka hefðbundnar íslenskar krásir fyrir vini og vandamenn. Vicky Nelson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.