Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 47 Hverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 8. Allra síðustu sýningar. 1/2HL MBL SG DV ÓHT Rás2 „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“  HK DV Sýnd kl. 10.30. Gott popp styrkir gott málefni Sýnd kl. 7. B.i. 16. www.regnboginn.is Sýnd kl. 10.10. B.i. 14. Sýnd kl. 7.40 og 10. B. i. 16. 1/2Kvikmyndir.com USA Today SV Mbl RadíóX 1/2RadíóX www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10. SK. RADIO-X SV Mbl FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B. i. 16. . Sýnd kl. 6, 8 og 10. 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  HK DV  SK RadíóX  SV Mbl  ÓHT Rás 2 ÞAÐ er ekkert minna en hvalreki að fá Stereolab hingað til lands til hljómleikahalds. Þessi tilraunaglaða poppsveit hefur verið ein sú frumleg- asta sinnar tegundar í meira en ára- tug og gæðastaðallinn þar á bæ ávallt í hæsta lagi. Eftir langa bið – alltof langa bið – hóf Orgelkvartettinn Apparat leik sinn. Klukkan var þá tekin að ganga eitt. Sumt virðist seint ætla að breytast í hérlendri tónleika- menningu. Það var vel við hæfi að Apparat skyldi hita upp enda á svip- aðri bylgjulengd og aðalnúmer kvöldsins. Frammistaða kvartettsins var sveiflukennd, í hraðari stuðlögum náði hann sjálfum sér og öðrum á flug en stemningin datt dálítið niður í hægari lögunum. Stereolab mætti á svið í „stækk- aðri“ útgáfu: var vel vopnum búinn sextett. Keyrt var af stað og prýðileg- asta stemning myndaðist fljótlega. Grand rokk er ekki stór staður og var hann því dægilega troðinn fólki og greinilega margir heitir Stereolab aðdáendur þar á meðal. Andrúmsloft- ið var afar íslenskt, öskur og læti í bland við þungt og reykmettað loftið. Svo virtist sem Stereolab-liðar væru pínkuhvumsa yfir þessu, þótt þeir létu á litlu bera. Tónleikarnir voru engu að síður keyrðir áfram af fag- mennsku og það létti yfir mönnum þegar á leið. Líkt og hjá Apparatinu duttu tónleikarnir við og við niður í tormeltari lögum. Ekkert setti þó strik í reikninginn hjá þeim allra trú- uðustu sem voru efalaust í himnaríki þetta kvöldið. Sveitin slaufaði svo kvöldinu með glans í uppklappinu og sýndi og sannaði af hverju hún hefur verið lofuð í hástert umliðin ár af leik- mönnum sem og poppfræðingum. Öll sem eitt læstu þau sig í tilrauna- kennda stemmu, hvar spunnið var af fingum fram af miklu listfengi. Enn var klappað og stappað í lokin en allt kom fyrir ekki. Kvöldi lokið. Þetta voru um margt undarlegir tónleikar verður að segjast og virk- uðu þeir í raun á tvennan hátt. Harðir Stereolab-aðdáendur fengu hina full- komnu kvöldstund á silfurfati en fyrir óvanari eyru var þetta minna sann- færandi, einhver deyfð skaut upp kolli við og við, á milli annars firnagóðra spretta. Það var eins og eitthvað skyggði á áru Stereolab-liða; hvort það var þungt loftið eða eitthvað allt annað þori ég þó ekki að segja til um. Tónlist Steríó, rokk og ról Tónleikar Grand rokk Stereolab Tónleikar bresku sveitarinnar Stereolab á Grand rokk, föstudagskvöldið 25. októ- ber 2002. Um upphitun sá Orgelkvartett- inn Apparat. Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Jón Svavarsson Stereolab á sviði. Mary Hansen í forgrunni. LEIÐRÉTT ÞAU mistök urðu í síðasta föstudagsblaði að Örlygur Þór Örlygsson, einn aðstandenda Stereolab-tónleikanna, var sagður Eyþórsson. Leiðréttist það hér með og er hlutaðeig- andi beðinn velvirðingar. ORGELKVARTETTINN Apparat hefur vakið mikla athygli að und- anförnu en nú síðast lék hann á tónleikum á Grandrokk um helgina ásamt ensk-frönsku hljómsveitinni Stereolab. Til viðbótar er nýkomin út fyrsta breiðskífa kappanna og héldu þeir blaðamannafund af því tilefni í kringum Iceland Airwaves- tónlistarhátíðina. Uppátækjasemi fimmmenninganna í kvartettinum kom berlega í ljós á blaðamanna- fundinum sem haldinn var með mjög svo formlegu sniði. Ragnar Kjartansson stjórnaði blaðamannafundinum en hann bað viðstadda vinsamlegast um „að vera nákvæma í spurningum“ sín- um til hljómsveitarinnar. Blaða- mannagjörningurinn sló í gegn hjá viðstöddum erlendum fjölmiðlum, sem og öðrum gestum. Hörður Bragason, Jóhann Jóhannsson, Sig- hvatur Ómar Kristinsson og Úlfur Eldjárn orgelleikarar og Arnar Geir Ómarsson trommuleikari svör- uðu spurningum fréttamanna sam- viskusamlega auk þess að leika lag á lófaorgel. Ennfremur kynnti Ragnar til sögunnar fimm stúlkur úr Jazzball- ettskóla Báru og sýndu þær dans við „Stereo Rock & Roll“ íklæddar rauðum Apparat-bolum. Í bakgrunni mátti svo sjá mál- verk Markúsar Þórs Andréssonar af kvartettinum í gervi Playmo- karla. Morgunblaðið/Þorkell Úlfur sýnir viðstöddum hvernig eigi að dansa við lag sveitarinnar „Stereo Rock & Roll“. Uppátækjasamur orgelkvartett ZENTROPA Entertainments,kvikmyndasamsteypa Lars von Triers og Peters Albæcks Jensens í Kaupmannahöfn, hefur valið heimildarmyndina Ljós heimsins um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrr- verandi forseta Íslands, í heims- dreifingu á sínum vegum. „Það er ofsalega gaman þegar svona al- vörufólk kann að meta það sem maður er að gera,“ segir Ragnar Halldórsson, höfundur mynd- arinnar. „Zentropa var viðloðandi fram- leiðsluna án þess að leggja fé í hana. Þeir fylgdust með verkefn- inu í framleiðslu,“ segir Ragnar, sem útskýrir komu Zentropa að verkefninu nú. „Í þessu tilfelli eru þeir að selja hana í sjónvarp og taka þóknun fyrir. Þeir kaupa ekki myndina fyrir heiminn heldur taka sölu- laun, sem þýðir að þeir tryggja hámarksverð,“ segir og útskýrir að myndinni verði dreift í svoköll- uðum 1. flokki skapandi heimild- armynda. „Það þýðir dreifingu á öllum markaðssvæðum heimsins nema Íslandi,“ segir hann. Ragnar útskýrir að peningarnir komi inn á lengri tíma heldur en ella með þessari aðferð. „Það fæst kannski aðeins meira fyrir hana í staðinn. Þetta er dæmigert fyrir það hvað hlutirnir taka stundum langan tíma í kvikmyndagerð.“ Í Ljósi heimsins leikur Vigdís sjálfa sig en myndin sýnir hvern- ig hún tekst á við lífsbaráttuna, sjálfa sig og heiminn. Ljós um heim allan Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, leikur sjálfa sig í heimildarmyndinni Ljósi heimsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.