Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 45
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 45 ... Á næsta ári, nánar tiltekið 28. febrúar, munu Kiss halda eina tón- leika í Telstra Dome-höllinni í Melbourne í Ástralíu. Tekur hún tæplega 50.000 áhorfendur. Með glysrokkurunum leikur sinfóníu- hljómsveit borg- arinnar. Tilefnið er 30 ára afmæli hljómsveitarinnar og allir upp- runalegu meðlimirnir verða með … New Edition, sem talinn er ein fyrsta R og B-sveitin, eins og það form þekkist í dag, ætlar að koma saman aftur. Bad Boy Records, merki P. Diddy, gefur út en upp- runalegi söngvarinn, Bobby Brown, verður ekki með … 15. október kom út plata með áður óútgefnum lögum Jeffs Buckleys. Í endaðan nóvember kemur svo út fimm diska kassi sem kallast mun The Grace EPs. Þar verða hljómleika- upptökur, annars konar útgáfur af þekktum lögum og 14 lög sem aldr- ei hafa komið út áður. Allt tengist þetta plötunni Grace frá 1994 á einn eða annan hátt … Safnplata með skóglápssveitinni Ride er væntanleg. Hún var í forvígi skóg- lápssenunnar sem tröllreið Bret- landi í upphafi tíunda áratugarins og innihélt einnig sveitir eins og Chapterhouse, Lush og Slowdive. Platan kallast 0X4: The Best Of Ride … Gamalkunnir Íslandsvinir í tæknósveitinni 808 State, sem m.a. hafa unnið með Björk, gefa loks út nýja plötu. Outpost Trans- mission kemur út í nóvember en síðasta plata, Don Solaris, kom út 1996 ... Shane Filan úr Westlife ætlar að giftast kærustu sinni til margra ára, Gillian Walsh. POPPkorn VERÐLAUN voru afhent í mynd- listarmaraþoni Unglistar 2002 á laugardaginn. Þrettán manns tóku þátt í mara- þoninu og var þemað „flétta“. Kvenkyninu virðist hafa líkað þemað vel og skipuðu ungar konur, Björg Guð- mundsdóttir, Inga María Brynjarsdóttir og Una Lorenzen, þrjú efstu sætin. Sýning á verk- um úr myndlistarmaraþoninu er haldin í Galleríi Tukt í Hinu hús- inu, menningar- og upplýsinga- miðstöð ungs fólks við Póst- hússtræti. Sýningin stendur yfir þar til 2. nóvember en þá tekur við sýning á myndum úr ljós- myndamaraþoni sömu hátíðar. Embla Kristjáns- dóttir, umsjónarmaður Unglistar 2002, er ánægð með hvernig til tókst með þessa listahá- tíð ungs fólks í ár en hátíðin stóð yfir 18. til 26. októ- ber. Hún segir mætingu á Unglist hafa verið góða en alls hafa hátt í 2.000 manns sótt viðburði hátíð- arinnar í þetta sinnið, auk þeirra 250 eða svo, sem tóku þátt í henni með beinum hætti. Morgunblaðið/Jim Smart Frá verðlaunaafhendingunni í Galleríi Tukt. Þriðja til fyrsta sæti: Una Lor- enzen, Inga María Brynjarsdóttir og Björg Guðmundsdóttir. Verðlaunaafhending í Málaðar fléttur myndlistarmaraþoni Unglistar sérsniðin innheimtulausn Opið fimmtudaginn 23. október til 3. nóvember Verðdæmi: Regatta flíspeysur fullt verð 7.500 - okkar verð 3.700 Barna götuskór fullt verð 3.000 - okkar verð 1.000 Isit ZO brettabuxur fullt verð 9.000/12.000 okkar verð 3.900/5.900 Adidas hettupeysur fullt verð 5.990 - okkar verð 1.500 LA Gear ljósaskór fullt verð 4.500 - okkar verð 1.500 Flíshanskar fullt verð 990 - okkar verð 350 Adidas/O`Neill/Speedo-sundbolir fullt verð 2.900/4.900 okkar verð 1.500 Barnaúlpur frá 2.500 66°Norður flísjakkar og úlpur Opnunartími virka daga frá kl. 14-18, helgar frá kl. 11-18 Stendur til 3. nóvember. Upplýsingasími 561 0580 Barnafatnaður Nú endurtökum við leikinn frá því í fyrra með „outlet“-sölu að bandarískri fyrirmynd. Eingöngu merkjavara og verð sem varla sést nema hjá okkur. Mikið af barnafatnaði. Ford Focus hefur hlotið frábæra dóma og er nú vinsælasti bíll í heimi. fordfocus Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • brimborg.is Pantaðu núna. Nýr Ford Focus kostar frá 1.495.000 kr. Er hægt að hljóta meiri viðurkenningu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.