Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 13

Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 13 HITABLÁSARAR Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070 STJÖRNUBÍÓ er brátt lítið annað en minning ein eins og þessi mynd ber með sér en að undanförnu hefur verið unnið við að rífa það. Þær eru líklega ófáar minning- arnar sem bíógestir hafa úr sölum þessa gamla húss enda hafa kvik- myndir verið sýndar þar í rúma hálfa öld. Þrjár húseignir á þessu svæði, Laugavegur 86b, 92 og 94, verða rifnar auk þess sem húsið við Laugaveg 86 verður flutt en til stendur að gera bílastæði á lóð húsanna fyrir jólavertíðina í des- ember. Í framtíðinni eru svo uppi hug- myndir um að gera bílakjallara og hugsanlega tengja hann við þjónustu- og verslunarhúsnæði á lóðinni. Morgunblaðið/Jim Smart Stjörnu- bíó minn- ing ein Miðborg STUTTMYNDAHÁTÍÐ verður haldin í Háteigsskóla í dag þar sem fjöldinn allur af glænýjum stuttmyndum verður frumsýndur. Myndirnar eru allar unnar í sam- vinnu norskra og íslenskra skóla- krakka sem eiga það sameiginlegt að vera í 10. bekk grunnskóla. Skólarnir sem taka þátt í verk- efninu eru Háteigsskóli, Rétt- arholtsskóli og Ringstabekk-skóli í Bærum í Noregi en krakkar þaðan eru nú staddir hér á landi til að vinna að framleiðslu myndanna í samvinnu við íslenska jafnaldra sinna. Meðal þeirra sem hafa tekið þátt í verkefninu eru Hauður Freyja Ólafsdóttir úr Háteigsskóla, Katr- ín Ingibergsdóttir úr Réttarholts- skóla og Bendik Iversen úr Ringstabekk–skóla. Þau upplýsa blaðamann um að frumkvæðið að verkefninu hafi komið frá Norð- mönnunum sem hugðu á námsferð. Þvoðu bíla og seldu vöfflur „Kennarinn okkar vildi að við myndum fara í ferð innan Noregs en þá ákváðum við að hafa at- kvæðagreiðslu í bekknum og allir vildu fara til útlanda,“ segir Ben- dik. „Ég held að Ísland hafi orðið fyrir valinu vegna þess að enginn hafði komið til landsins og fólki fannst spennandi að fara til ein- hvers óþekkts lands og kynnast því betur.“ Ferðina fjármögnuðu þau síðan að miklu leyti sjálf. „Við bara unn- um – þvoðum bíla, seldum vöfflur, vorum barnapíur og gerðum allt mögulegt. Svo fengum við styrk frá sveitarfélaginu okkar til að fara.“ Gistingin er síðan ókeypis því hluti norsku krakkanna býr inni á heimilium þeirra íslensku en aðrir gista í félagsmiðstöðvum hverfanna tveggja. Stuttmyndagerðin hefur farið þannig fram að krökkunum var skipt upp í litla hópa sem hver um sig vann að gerð einnar stutt- myndar og var gætt að því að fulltrúar beggja landa væru í hverjum hópi. Hóparnir hafa séð um allt frá handritsgerð, kvik- myndatöku, leik, leikstjórn og búninga að klippingu og lokafrá- gangi og segja krakkarnir að það hafi vissulega verið lærdómsríkt. Enda er þetta í fyrsta sinn sem þeir koma nálægt stuttmyndagerð að undanskilinni Hauði sem segist eitthvað hafa fiktað við slíkt í fé- lagi við vini sína. „En þetta er fyrsta alvöru myndin og við þurft- um virkilega að leggja eitthvað á okkur til að gera hana. Svo sýnd- um við kennurunum hana sem síð- an bentu okkur á hvað mætti bæta og gáfu okkur góð ráð. En að mestu leyti gerum við þetta ein og allar hugmyndirnar að myndunum eru okkar.“ Garðálfar í ævintýrum Í ljós kemur að undirbúning- urinn hefur staðið yfir í þó nokk- urn tíma þó að norsku krakkarnir hafi ekki komið fyrr en síðastlið- inn sunnudag og öll tökuvinna og klipping hafi farið fram í þessari viku. Og það hefur ekki vantað hugmyndir þegar verið var að ákveða viðfangsefnin. „Okkar mynd er um garðálfa sem lenda í alls kyns ævintýrum,“ segir Katr- ín. „Hún var tekin í Elliðaárdal og við leikum þetta allt sjálf. Við er- um bara með húfur sem tákna að þetta séu garðálfar.“ Bendik, sem vinnur að sömu mynd, tekur undir þetta og upplýsir að hann sé einn af leikurunum. Hauður segir myndina sem hún vinnur að ekki eins jákvæða. „Þetta er um stelpu sem er að fara til vinkonu sinnar um kvöld og það er einhver morðingi sem hleypur á eftir henni allan tímann. Þannig að þetta er svona spennumynd.“ Krakkarnir eru sammála um að þetta verkefni hafi kveikt hjá þeim löngun til að halda slíku áfram og segja hlæjandi að lokum að hver viti nema þau verði kvikmynda- gerðarmenn þegar þau eru orðin stór. Morgunblaðið/Árni Sæberg Katrín Ingibergsdóttir úr Réttarholtsskóla, Hauður Freyja Ólafsdóttir úr Háteigsskóla og Bendik Ivarsen frá Noregi eru sammála um að stuttmyndagerðin hafi verið ákaflega lærdómsrík. Íslenskir og norskir krakkar í stuttmyndagerð „Fyrsta alvöru myndin“ Reykjavík BÆJARYFIRVÖLD í Garðabæ und- irbúa nú útboð fyrir íþróttahús í Hofs- staðamýri en ráðgert er að fram- kvæmdir hefjist í mars á næsta ári. Fjárhagsáætlun vegna hússins hljóð- ar upp á rúmar 500 milljónir króna. Að sögn Gunnars Einarssonar, for- stöðumanns fræðslu- og menningar- sviðs Garðabæjar, hefur húsið verið minnkað frá því sem upphaflega var áætlað þar sem kostnaður vegna slíks húss þótti of mikill. Var í fyrstu drög- um gert ráð fyrir tveimur handbolta- völlum og hefði kostnaður þá orðið um 700 milljónir króna. „Eftir að þær tölur birtust var sett- ur á laggirnar starfshópur sem fór of- an í allar forsendur fyrir húsinu og niðurstaðan var að ráðast í minna hús. Það, auk ýmissa annarra breytinga, gerir það að verkum að kostnaðurinn verður rétt rúmlega 500 milljónir.“ Í húsinu verður einn löglegur keppnisvöllur í handbolta. „Svo er hægt að skipta honum niður og búa til tvo löglega körfuboltavelli eða vera með kennslu í tveimur sölum,“ segir Gunnar en að auki er í húsinu gert ráð fyrir sundlaug sem yrði 10 x 16,7 metrar að stærð. „Þetta þýðir að það er hægt að vera með allt að þrjá bekki í kennslu í einu, þ.e. einn í sundlauginni og svo sinn í hvorum salnum.“ Að auki verða bún- ingsklefar, þreksalur, geymsla og að- staða fyrir tómstundaheimili Hofs- staðaskóla og félagsstarf. Í notkun frá morgni til miðnættis Gunnar segir íþróttahúsið hugsað sem kennsluhúsnæði fyrir Hofsstaða- skóla og Fjölbrautaskólann í Garða- bæ. Þá segir hann að húsið muni nýt- ast fyrir íþróttafélag bæjarins, Stjörnuna. „Það má segja að þetta sé nánast 100 prósent aukning á þeirra æfingaaðstöðu. Við höfum þurft að leigja tíma, t.d. fyrir handboltaiðk- endur, í öðru sveitarfélagi en það breytist með tilkomu þessa húss. Markmiðið er að hafa húsið í notkun frá átta á morgnana til klukkan tólf á kvöldin því húsið er allt of mikil fjár- festing til að láta það standa autt.“ Að sögn Gunnars er verið að und- irbúa útboð fyrir húsið. „Við sjáum fyrir okkur að framkvæmdir gætu hafist þarna í mars á næsta ári og áætlunin er að taka húsið í notkun haustið 2004 sem passar vel við upp- haf skóla og íþróttastarfseminnar.“ Handboltavöllur, sund- laug og þreksalur Garðabær Útboð fyrir íþróttahús í Hofsstaða- mýri í undirbúningi hjá bænum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.