Morgunblaðið - 30.10.2002, Qupperneq 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 15
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
| Y
D
D
A
/
si
a.
is
N
M
0
7
6
4
7 • Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
HEIÐARSKÓLI í Keflavík gerðist
í haust, fyrstur skóla á Íslandi, að-
ili að samstarfsverkefninu Rain-
bow, sem er margþætt samskipta-
verkefni sem miðar að því að efla
færni í enskri tungu. Einu sinni í
viku setjast nemendur í 10. bekk
fyrir framan tölvurnar í tölvuveri
skólans og rabba við nemendur í
Hollandi í gegnum Netið. Að sögn
Ragnheiðar Ragnarsdóttur ensku-
kennara eru nemendurnir mjög
spenntir yfir þessu verkefni, enda
gefist þeim kostur á að nota ensk-
una á annan hátt en áður hefur
tíðkast í enskukennslu og verkefn-
ið sé því góð viðbót við hefðbundn-
ar kennsluaðferðir.
Rainbow var upphaflega sam-
starfsverkefni verkmenntaskól-
anna Friese Poort í Hollandi og
Malgomaj-skólans í Svíþjóð og er
hannað af tveimur kennurum frá
hvorum skóla, þeim Sjoukje Pieb-
enga, sem hefur yfirumsjón með
verkefninu og Hans Tegnander.
Verkefnið var í upphafi hugsað
sem góður kostur fyrir þá nem-
endur sem hugðust ljúka sínum
starfsréttindum erlendis. Með því
að komast í samband við nemendur
í viðkomandi landi gætu þau verið
búin að afla sér þekkingar á landi
og þjóð, ásamt því að kynna sig og
sitt heimaland. Öll samskipti nem-
enda fara fram á ensku, enda hefur
verkefnið verið fellt inn í ensku-
kennslu þátttökuskólanna. Auk
rabbsins þjálfar Rainbow-verkefn-
ið nemendur í að nota Netið með
marþættum verkefnum. Í þau þrjú
ár sem verkefnið hefur verið notað
hefur það gefið góða raun og hafa
Norðmenn, Þjóðverjar og nú síðast
Íslendingar bæst í hóp þátttöku-
þjóða.
Fleiri leyfi bjóða upp
á víðtækari notkun
Kennarar í Heiðarskóla kynnt-
ust verkefninu í kynnisferð sem
farin var til Hollands sl. vor og
urðu strax heillaðir. Sjoukje bauð
Ragnheiði Ragnarsdóttur, ensku-
kennara til samstarfs, enda vantaði
hollensku nemendunum erlenda
nemendur til að eiga samskipti við
á tíma sem þeim hentaði. Í haust
hófst svo tilraun í Heiðarskóla með
leyfi fyrir 5 nemendur en fljótlega
mun skólinn fá 20 leyfi til viðbótar.
Ekki kemur að sök þótt hollensku
nemendurnir séu eldri en þeir ís-
lensku, en nemendur Friese Poort
eru á aldrinum 16 til 20 ára.
Sjoukje kom til Íslands í byrjun
október og heimsótti þá m.a. Heið-
arskóla til þess að vinna með nem-
endum og kennara. Megintilgang-
ur ferðarinnar var þó að kynna
verkefnið með það að markmiði að
auka þátttöku í því. „Sjoukje kom
okkur vel af stað í verkefninu, en
enn sem komið er höfum við bara
nota rabbhluta þess. Það liggur
hins vegar fyrir að við fáum 20
leyfi til viðbótar innan fárra daga
og þá geta allur bekkurinn notað
verkefnið samtímis, en eins og
staðan er þurfa nemendur að
skiptast á,“ sagði Ragnheiður í
samtali við blaðamann. Að sögn
Ragnheiðar munu þau í framhaldi
jafnframt fara markvisst í verk-
efnahlutann, sem miðar að því að
þjálfa nemendur í notkun Netsins
og gera þau sjálfstæðari í notkun
enskrar tungu.
Ívar Rafn Þórðarson og Birkir
Már Jónsson voru í hrókasamræð-
um við tvo hollenska nemendur
þegar blaðamaður leit við í Heið-
arskóla sl. mánudag. Að þeirra
mati er Rainbow-verkefnið góð við-
bót við hefðbundna enskukennslu,
sérstaklega væri skemmtilegt að fá
tækifæri til að nota tungumálið til
að eiga tjáskipti við nemendur sem
eru að vinna að sömu verkefnum
og þau.
– Um hvað eruð þið svo að
rabba?
„Bara þetta venjulega, lífið og
tilveruna, áhugamál og annað slíkt.
Við erum mestmegnis að kynna
okkur sjálf,“ sögðu þeir félagar.
Rabbað við nem-
endur í Hollandi
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ívar Rafn Þórðarson og Birkir Már Jónsson, nemendur Heiðarskóla, á
tölvurabbi við tvo hollenska nemendur í Friese Poort-skólanum í Sneek. Í
baksýn sést til Guðna Kjærbo, tölvukennara skólans, en hann heldur utan
um Rainbow-verkefnið, ásamt Ragnheiði Ragnarsdóttur enskukennara.
Keflavík
Minnast 50
ára afmælis
Holtaskóla
HOLTASKÓLI í Keflavík heldur
upp á 50 ára afmæli sitt um þessar
mundir. Afmælishátíð verður í
Íþróttahúsinu við Sunnubraut næst-
komandi laugardag.
Mikið vatn er til sjávar runnið frá
því Gagnfræðaskólinn í Keflavík var
stofnaður fyrir fimmtíu árum. Skól-
anum var breytt í grunnskóla fyrir
nokkrum árum og hlaut núverandi
nafn. Er hann nú einn af fjórum lag-
skiptum grunnskólum í Reykja-
nesbæ, með 480 nemendur í fyrsta til
tíunda bekk.
Holtaskóli á sér fjölbreytta og
merkilega sögu og hann hefur fóstr-
að meirihluta bæjarbúa þar sem nær
allir unglingar í Keflavík sóttu hann,
auk margra annarra unglinga af
Suðurnesjum. Þar var einnig vagga
framhaldsmenntunar á svæðinu.
Dagskrá afmælishátíðarinnar
hefst í Íþróttahúsinu við Sunnubraut
klukkan 14 á laugardag. Að henni
lokinni verður boðið upp á veitingar í
sal Holtaskóla. Starfsfólk skólans og
nemendur láta þá ósk koma fram í
fréttatilkynningu að gamlir nemend-
ur og velunnarar skólans sjái sér
fært að gleðjast með þeim þessa dag-
stund.
Keflavík
Ölvaður
ökumað-
ur ók á
EKIÐ var aftan á kyrrstæða
bifreið sem var í stæði við
Hafnargötu í Keflavík, á móts
við skemmtistaðinn Rána,
snemma á sunnudagsmorgun.
Ökumaðurinn er grunaður
um ölvun við akstur en hann
kvaðst hafa dottað undir
stýri.
Ökumaðurinn var ekki með
bílbeltin spennt en öryggis-
púðar sprungu út við ákeyrsl-
una.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglu er talið að það hafi
komið í veg fyrir að hann
meiddist.
Keflavík
Garður og
Vogar fá 18
milljónir í
tekjujöfnun
GERÐAHREPPUR og Vatns-
leysustrandarhreppur fá liðlega 18
milljónir kr., hvort sveitarfélag, við
úthlutun tekjujöfnunarframlaga
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Hin
sveitarfélögin þrjú á Suðurnesjum
hafa hærri meðaltekjur og fá ekki
framlag.
Tekjujöfnunarframlögin renna
til þeirra sveitarfélaga sem hafa
lægri skatttekjur en sambærileg
byggðarlög. Reykjanesbær,
Grindavíkurbær og Sandgerðisbær
hafa öll tekjur yfir viðmiðunar-
mörkum. Raunar er Reykjanesbær
alveg við þessi mörk en Sandgerð-
isbær langt yfir þeim.
Gerðahreppur fær 18,3 milljónir
úr þessum sjóði í ár og Vatnsleysu-
strandarhreppur 18,1 milljón.
Í heild er úthlutað tekjujöfnun-
arframlag 692 milljónir kr. og
rennur til fjölda sveitarfélaga um
allt land.
Suðurnes
ÞAÐ hefur löngum fylgt manninum
að safna hlutum. Í Grindavík eru
það pokémonmyndir og það má
segja að krakkarnir séu gripnir æði
þessa dagana í endurteknu pok-
émonæði.
Börnin eru öllum stundum í
klappi, að skipta myndum eða
kaupa myndir. Allir þeir sem áttu
myndir eru búnir að draga þær
fram aftur. Það er því oft mikið fjör
eftir skóla á skólalóðinni eins og hjá
þessum ungu mönnum sem voru í
klappi þegar blaðamann bar að
garði. Klapp gengur út á það að
skella saman lófum með mynd í
hendi og vinnur sá myndina sem
lögð var undir ef hans mynd kemur
upp en mynd andstæðingsins kem-
ur með bakhliðina upp. Ef sama
hliðin kemur upp hjá báðum er leik-
urinn endurtekinn.
Pokémon-
æði end-
urtekið
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Grindavík
alltaf á föstudögum
♦ ♦ ♦