Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 16
LANDIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ undanförnu hefur verið gott at-
vinnuástand á Húsavík, að sögn
Aðalsteins Á. Baldurssonar, for-
manns Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Þar munar mest um að sláturtíð
stendur yfir hjá Norðlenska og
eins hefur verið töluvert um að að-
komuskip hafi landað í Húsavík-
urhöfn.
Þar er annars vegar um að
ræða línuskip frá fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtækinu Vísi hf. í
Grindavík sem fiskað hafa vel að
undanförnu. Afli skipanna er að
hluta til unnin hjá Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur hf. og annar hluti
hans keyrður burtu til vinnslu,
m.a. hjá Vísi hf. í Grindavík. Hins
vegar er um að ræða rækjubáta
sem landað hafa hér og eru í við-
skiptum við Fiskiðjusamlagið og
þá hafa rækjuskip á vegum Hrað-
frystihúss Eskifjarðar hf. landað
hér töluvert frá því í vor og aflan-
um ekið austur á Eskifjörð til
vinnslu þar. Aðalsteinn segir þessa
þætti hafa skapað töluverða vinnu
við löndun, flutninga og aðra þjón-
ustu við skipin og áhafnir þeirra
auk þess sem næg vinna er hjá
Fiskiðjusamlaginu, bæði í bolfisk-
deild og rækjuvinnslu. Aðalsteinn
segist ekki sjá annað en að gott at-
vinnuástand haldist fram eftir vetri
þótt blikur séu á lofti varðandi iðn-
aðarmenn í byggingariðnaði, lítið
sé byggt á svæðinu um þessar
mundir. Aðrar atvinnugreinar haldi
sínu og dæmi um verulega aukn-
ingu t.d. hjá Norðlenska sem þrátt
fyrir að hefðbundinni sláturtíð ljúki
um næstu mánaðamót hefur ákveð-
ið að slátra einn dag í viku fram í
desember.
Atvinnuástandið með
besta móti að undanförnu
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Línubátar Vísis hf. hafa landað á Húsavík að undanförnu, m.a. Garðey SF.
Húsavík
ÞÓTT frostið sé hart þá finnst
börnunum í leikskólanum Reykja-
hlíð ekki amalegt að leika sér úti á
snjóþotum í sólskinsblíðu með Unni
fóstru.
Morgunblaðið/BFH
Leikið við
kuldabola
Mývatnssveit
GUÐMUNDUR Tyrfingsson –
hópferðabílar hafa í samstarfi við
verslun Bónuss á Selfossi hafið
samstarf um að Bónus bjóði við-
skiptavinum sínum fríar sætaferðir
frá Stokkseyri og Eyrarbakka.
Sem kunnugt er hefur verslunar-
rekstri verið hætt á þessum stöð-
um.
Ferðirnar verða alla föstudaga
og er miðað við að komið sé í Bón-
us kl. 11 og til baka í kringum 12.
Ekið verður frá Stokkseyri kl.
10.40 og Eyrarbakka kl. 10.50.
Farið verður frá gömlu Kjarvals-
búðunum á báðum stöðum. Þeir
sem óska eftir sérstakri þjónustu
geta óskað eftir henni hjá Guð-
mundi Tyrfingssyni. Fyrsta ferðin
verður farin föstudaginn 1. nóv-
ember.
Fríar
sætaferð-
ir í Bónus
Selfoss
VÖRUBIFREIÐ með snjótönn
var að hreinsa snjó af veginum
milli Þórshafnar og Raufarhafnar
við Kollavík. Þegar vegurinn er
þíður undir snjónum er hætta á að
snjótönnin lendi ofan í slitlagi
vegarins og festist þar en bíllinn
haldi áfram og lendi uppi á
tönninni. Í þetta sinn slapp bíl-
stjórinn ómeiddur en snjótönnin
og bíllinn skemmdust talsvert.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Lenti uppi á tönninni
Þórshöfn
AÐ venju var spennuþrungið and-
rúmsloft þegar söngvara – og hæfi-
leikakeppni grunnskólanna á Akra-
nesi fór fram fyrir skemmstu, en
viðburður þessi er árviss í félagslífi
nemenda. Að þessu sinni var
skemmtunin tvíþætt og þar stigu
fyrst á stokk átta söngvarar sem
sungu við undirleik frá hljómsveit
sem skipuð var heimamönnum með
mikla reynslu á sínu sviði. Síðari
þáttur skemmtunarinnar var hæfi-
leikakeppni þar sem ýmist var leik-
ið á hljóðfæri, sungið, dansað eða
allt þetta í senn.
Afrakstur kvöldsins var glæsi-
legur og greinilegt að „starfsmenn“
skólanna á öllum aldri höfðu lagt
sitt af mörkum til þess að gera
kvöldið sem glæsilegast.
Athygli vakti hve margir af fyrr-
verandi nemendum skólanna
tveggja voru mættir í Grundaskóla
að nýju og að sjálfsögðu voru stoltir
foreldrar í salnum að fylgjast með
afkvæmum sínum. Skemmst er frá
því að segja að Ylfa Flosadóttir
sigraði í söngvakeppninni en Ylfa
er í 8. bekk Grundaskóla. Í hæfi-
leikakeppninni voru hlutskarpastir
fjórmenningarnir, Birkir Snær
Guðlaugsson, Jón Valur Ómarsson
og Hallgrímur Skaptason en þeir
tróðu upp sem hljómsveitin Etek,
en þeir tveir síðastnefndu koma úr
Brekkubæjarskóla.
Ylfa og
Etek þóttu
bera af
Akranes
Morgunblaðið/Sig. Elvar
Thelma Ýr Gylfadóttir sýndi fína takta á rafmagnsgítarinn.
SÍÐASTLIÐINN laugardag
var opnuð í Safnahúsinu sýning
á úrvali vatnslitamynda eftir
Ásgrím Jónsson sem eru í eigu
Listasafns Íslands og stendur
hún til 3. nóvember.
Guðni Halldórsson, forstöðu-
maður Safnahússins, segir það
töluvert mál að fá sýningu sem
þessa og að kostnaður sé nokk-
ur. Hann hafi sótt um styrk til
Safnaráðs í fyrra og fengið
nokkra upphæð til að geta boð-
ið upp á a.m.k eina slíka sýn-
ingu frá Listasafni Íslands á
þessu ári. Hann vonast þess
vegna til að fólk verði duglegt
að mæta á sýninguna.
Gott sé að hvíla sig á dag-
legu amstri hversdagsleikans
og njóta þess að sjá myndir
eftir þennan frábæra lista-
mann.
Myndirnar spanna í raun
langan feril Ásgríms, sú elsta
frá 1906 en þær yngstu frá
1951, eða sjö árum áður en Ás-
grímur lést.
Sýning á
vatnslita-
myndum
Ásgríms
Jónssonar
Húsavík
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll