Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SVO er að sjá sem brottvikning Jó-
hanns Einvarðssonar, fyrrverandi
bæjarstjóra og alþingismanns, úr
starfi sjúkrahúsráðsmanns í Kefla-
vík geti orðið sú sprengja, sem kos-
ið verður um í næstu kosningum, en
ekki hugsanleg innganga Íslendinga
í Efnahagsbandalag Evrópu eins og
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur vonað og undirbúið. Í fréttum
hefur verið talað um hugmyndaleg-
an ágreining Jóhanns við ráðuneyt-
isstjórann í heilbrigðisráðuneytinu.
Vitað er að Jóhann lagði höfuð-
áherslu á, að nýbyggð D-álma við
sjúkrahúsið í Keflavík yrði öll tekin
í notkun þegar í stað, og vitnaði þá í
loforð Ingibjargar Pálmadóttur,
fyrrverandi ráðherra. Sú fram-
kvæmd mundi minnka hinn langa
biðlista aldraðra eftir sjúkrahúsvist
á Suðurnesjum til muna. Um síð-
ustu áramót voru um 70 á slíkum
lista en þegar þetta er skrifað er
hann kominn í 85 nöfn, þar af eru
30–40 í brýnni þörf. Einn af læknum
stofnunarinnar viðraði nýlega allt
önnur sjónarmið í grein í Víkur-
fréttum. Í stað þess að ræða neyð
aldraðra vill Konráð gera spítalann
að tískufyrirbrigði fyrir ríkt fólk,
ekki síst útlendinga. Á þann veg tel-
ur hann að hægt sé að snúa halla-
rekstri í gróða og hækka þar með
laun starfsfólks. Enginn mér vitan-
lega hefur tekið undir hin annarlegu
viðhorf læknisins nema hinn við-
felldni nýkjörni bæjarstjóri okkar,
Árni Sigfússon. Hins vegar hygg ég,
að Finnbogi Björnsson, stjórnandi
elliheimilanna Garðvangs í Garði og
Hlévangs í Keflavík, hafi andað létt-
ar við brottrekstur Jóhanns. Í fund-
argerð þjónustuhóps aldraða á Suð-
urnesjum frá því í vetur var
nefnilega bókun um að fagleg vinnu-
brögð væru nauðsynleg við innlagn-
ir á vistunarstofnanir svæðisins.
Þessi bókun var gerð eftir mikið og
hart stríð við Finnboga og ráðskonu
hans og þess óskað að heilbrigð-
isráðuneytið tilnefndi mann sem
færi með endanlegt innlagningar-
vald.
Stjórn aldraðra á Suðurnesjum
hefur vegna þessara atburða óskað
eftir viðtali við ráðherra. Nú erum
við komnir að kjarna málsins. Heil-
brigðiskerfi okkar hefur lengi verið
þyrnir í augum sanntrúaðra mark-
aðshyggjumanna. Flest sem heitir
húmanismi eða mannúð er eitur í
þeirra beinum. Aldraðir og öryrkjar
eru nokkurs konar skítugir Palest-
ínumenn í augum hins djúpvitra
Davíðs og þar af leiðandi ekki á vet-
ur setjandi í hinu nýja þjóðfélagi
frjálshyggjunnar. Það er vel, að al-
þingiskosningar í vor snúist um
þessi mál.
HILMAR JÓNSSON,
rithöfundur og formaður eldri
borgara á Suðurnesjum.
Stórárás á
heilbrigðiskerfið
Frá Hilmari Jónssyni:
BORGARSTJÓRI gerði sér lítið
fyrir um daginn og sýndi vinsælasta
þingmanni alþýðunnar, Jóhönnu
Sigurðardóttur, þá lítilsvirðingu að
lýsa yfir stuðningi við félaga sinn úr
Kvennalistanum. Þetta frumhlaup
hennar verður Samfylkingunni ekki
til framdráttar, enda fyrir neðan all-
ar hellur að foringi sundri í stað þess
að sameina. Jóhanna Sigurðardóttir
er ötulasti talsmaður láglaunafólks,
aldraðra og öryrkja. Hún er nánast
eini þingmaðurinn sem þorir að
fletta ofan af fjármálaóreiðu, svikum
og prettum hvort sem í hlut eiga op-
inberir aðilar eða aðrir. Hún er um-
fram alla þingmenn Samfylkingar sú
sem þjóðin treystir. Af félögum sín-
um á þingi er hún með mest fylgi og
margfalt á við flesta. Fylgismenn
Bryndísar Hlöðversdóttur hafa
komið því svo fyrir að einungis
flokksbundnir fái að kjósa í próf-
kjöri, en ef aðeins þeir kysu Sam-
fylkinguna yrði hún atkvæðalítil. Ég
skora á jafnaðarmenn að fylkja sér
um Jóhönnu því án hennar væri
jafnaðarflokkurinn ekki trúverðug-
ur. Ég minnist þess ekki að hafa
heyrt Bryndísi taka upp hanskann
fyrir láglaunastéttirnar, hvað þá
aldraða og öryrkja, enda ESB henni
meira hugleikið. Áróður félaga
minna í Samfylkingunni fyrir inn-
göngu Íslands í ESB er varasamur.
Ágætir ungkratar þekkja ekki ok og
ófrelsi undir erlendu valdi og berjast
því glámskyggnir fyrir að kynnast
því. Alþýðan veit að ungmennin vilja
vel og eru dugleg í sakleysi sínu og
barnalegri trúgirni. Aðeins sjávar-
auðlindir okkar eru fyrirstaða fyrir
inngöngu í ESB að mati margra. En
það er mikið fleira varhugavert. Í
ESB er herskylda og enginn Íslend-
ingur vill börnum sínum slíkt, en
undan því yrði ekki komist. ESB-
löndin eiga í vandræðum með of-
framleiðslu matvara á meðan hung-
ur hrjáir milljónir í öðrum löndum.
Það er ekki gæfulegt að bindast
þjóðabandalagi sem er svo ranglátt
að kvarta yfir að hafa of mikið af því
sem aðra sárvantar til að deyja ekki
úr hungri. Vegna uppgjafar Sam-
fylkingarinnar í Kárahnjúkamálinu
munu komandi kynslóðir skipa
henni á bekk með umhverfissóðun-
um. Nú er svo komið að landið og
komandi kynslóðir eiga allt undir að
framsýnu fólki eins og Hildi Rúnu
Hauksdóttur og öðrum umhverfis-
vinum takist að vekja þjóðina til vit-
undar um hættuna. Fólksins við
minnisvarða Jóns forseta munu
óbornar kynslóðir minnast með að-
dáun og virðingu.
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
Ekki Samfylkingu
til framdráttar
Frá Alberti Jensen: