Morgunblaðið - 30.10.2002, Side 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 41
ÍSLENDINGAR sigruðu Para-
gvæ í þriðju umferð í opnum flokki
á ólympíumótinu í skák í Bled. Lið
Paragvæ er í 62. sæti í styrk-
leikaröðinni á mótinu, en Íslend-
ingar í 43. sæti. Hannes Hlífar
Stefánsson vann eina stórmeistar-
ann í liði Paragvæ af öryggi og
Helgi Ólafsson sigraði einnig í
sinni fyrstu skák á mótinu eftir
töluverðar sviptingar. Stefán
komst ekkert áfram gegn and-
stæðingi sínum, sem tefldi stíft
upp á jafntefli. Helgi Áss Grét-
arsson lenti í þröngri stöðu og
missti af leið sem hefði getað jafn-
að taflið. Honum tókst ekki að
losna úr klemmunni og andstæð-
ingurinn tefldi í lokin af miklu ör-
yggi. Þröstur Þórhallsson og Jón
Garðar Viðarsson hvíldu að þessu
sinni.
1. Hannes Hlífar – Z.F. Ocampos
(2.504 SM) 1–0
2. Helgi Áss – Jose F. Cubas
(2.430 FM) 0–1
3. Helgi Ólafsson – E. Peralta
(2.355 FM) 1–0
4. Stefán Kristjánss. –
J.S. Harrison (2.311 FM) ½–½
Íslenska kvennaliðið mætti
skáksveit Filippseyja sem er í 40.
sæti á styrkleikalistanum, en Ís-
land er þar í 75. sæti. Það var því
ljóst að á brattann yrði að sækja.
Aldís Rún Lárusdóttir sigraði and-
stæðing sinn af öryggi, en Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir lenti í
heiftarlegu tímahraki og tapaði.
Harpa Ingólfsdóttir lék af sér í
byrjuninni og átti enga möguleika
á að flækja taflið eftir það. Úrslitin
urðu því 2–1 Filippseyingum í vil.
Þetta eru vissulega viðunandi úr-
slit gegn svo sterkri sveit og
kvennaliðið hefur staðið sig mjög
vel það sem af er mótinu.
1. Lilja – Arianne Caoili (2.309) 0–1
2. Harpa – Beverly Mendoza (2.132) 0–1
3. Aldís Rún – Ann Cruz Kathryn 1–0
Þær Arianne og Beverly eru
báðar alþjóðlegir meistarar
kvenna.
Helstu úrslit á efstu borðum í
þriðju umferð urðu þessi:
Rússland – Indland 3–1
Kúba – Búlgaría 2½–1½
Pólland – Króatía 3–1
Georgía – Grikkland 3–1
Armenía – Kanada 3½–½
Kazakstan – Bandaríkin 2½–1½
Júgóslavía – Indónesía 3–1
Bosnía/Herz. –
Argentína 2½–1½
Slóvenía – Singapúr 3–1
Kína – Slóvenía-C 4–0
Danir unnu einn sinn besta sig-
ur á ólympíuskákmóti í langan
tíma þegar þeir lögðu Ísrael í
þriðju umferð 2½–1½, en Ísrael er
með fjórða sterkasta liðið á
mótinu.
Hægt var að fylgjast með bein-
um útsendingum skáka þriðju um-
ferðar, eftir að tæknileg vandamál
höfðu komið í veg fyrir það í
fyrstu tveimur umferðunum. Hins
vegar gerist það enn á ný að
skipuleggjendur vanmeta gjörsam-
lega vinsældir skákarinnar og
þrátt fyrir öflugan tölvubúnað réð
hann engan veginn við það álag
sem skapaðist. Því hefur vefsíða
mótsins legið niðri drjúgan hluta
mótsins og verið afskaplega hæg-
virk þegar hún hefur verið í gangi.
Heimsmeistaramót
öldunga
Sex umferðum er nú lokið á
Heimsmeistaramóti öldunga í
Þýskalandi. Ingvar Ásmundsson
gerði jafntefli við svissneska skák-
manninn Peter Hohler (2.210) í
sjöttu umferð og er með 4½ vinn-
ing í 13.–29. sæti. Þýski stórmeist-
arinn Wolfgang Unzicker (2.432)
heldur forystunni á mótinu og er
með 5½ vinning. Ingvar hafnaði í
24.–32. sæti á hraðskákmóti kepp-
enda sem haldið var um helgina.
Heimsmeistari öldunga í hraðskák
varð lettneski alþjóðlegi meistar-
inn Josef Petkevitch (2.439).
Hrókurinn hættur
í Bikarmóti ÍAV
Íslandsmeistarar Hróksins hafa
tilkynnt að þeir séu hættir í Bik-
armóti ÍAV, en þeir áttu að mæta
A-sveit Taflfélags Reykjavíkur í
átta-liða úrslitum á mánudags-
kvöld. Viðureignin var á Lengj-
unni. Samkvæmt yfirlýsingu frá
Hróknum ákvað félagið að draga
sig út úr bikarmótinu vegna kæru
sem skipuleggjandi þess, Taflfélag
Garðabæjar, lagði fram vegna liðs-
uppstillingar Hróksins í öðru móti,
Íslandsmóti skákfélaga.
Kjartan Maack efstur
á U-2000-mótinu
Kjartan Maack náði forystunni
af Stefáni Frey Guðmundssyni á
U-2000-mótinu eftir sigur í inn-
byrðis viðureign þeirra. Kjartan er
einn efstur á mótinu með 4½ vinn-
ing. Helstu úrslit 5. umferðar:
Kjartan Maack – Stefán F. Guðmundss.
1–0
Árni Þorvaldss. – Guðni S. Péturss. ½–½
Rúnar Gunnarss. – Daníel Péturss. 0–1
Ægir Ó. Hallgrímss. – Rafn Jónss. 0–1
Hjörtur Jóhannss. – Óskar Haraldss.
½–½
Staðan eftir 5 umferðir:
1. Kjartan Maack 4½ v.
2.–6. Stefán Freyr Guðmundsson, Guðni
Stefán Pétursson, Árni Þorvaldsson,
Daníel Pétursson, Rafn Jónsson 4 v.
7.–8. Kristján Halldórsson, Þorsteinn
Magnússon 3½ v.
9.–19. Rúnar Gunnarsson, Ægir Óskar
Hallgrímsson, Óskar Haraldsson, Hjörtur
Jóhannsson, Arnbjörn Barbato, Helgi
Hauksson, Sigurjón Friðþjófsson, Páll
Sigurðsson, Andrés Kolbeinsson, Kristján
Þór Sverrisson, Grímur Daníelsson 3v.
20.–24. Þórarinn Björnsson, Sigurður
Sverrisson, Atli Freyr Kristjánsson, Að-
alsteinn Thorarensen, Víðir Petersen 2½
v. o.s.frv.
Íslendingar
sigruðu
Paragvæ
Daði Örn Jónsson
SKÁK
Bled, Slóvenía
35. ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
25. okt. til 10. nóv. 2002
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra
kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og
spjall.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Andleg
vanlíðan eftir fæðingu. María Guðna-
dóttir hjúkrunarfræðingur. Samveru-
stund fyrir 6–8 ára börn kl. 15 í kórkjall-
ara. 910 klúbburinn kl. 16. 112
klúbburinn kl. 17.30.
Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð
með orelleik og sálmasöng. Allir vel-
komnir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu (kr. 300). Kl. 13–16 opið
hús fyrir eldri borgara. Söngur, spjall,
föndur og tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl.
17–18.10 Krúttakórinn, 4–7 ára. Kl.
17–18.30 Ævintýraklúbburinn, 7–9 ára
starf. Kl. 18–18.15 kvöldbænir í kirkj-
unni. Kl. 18.15–19 trú og líf. Prestar
kirkjunnar bjóða upp á umræður og
fræðslu um ýmis trúaratriði sem vakna
hjá þátttakendum og hafa einnig stutt
innlegg um trúmál. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4.
bekkur) kl. 14.10. Leikir, söngvar, bibl-
íusaga, bænir, djús og kex. TTT-fundur
(10–12 ára) kl. 16.15. Menntaskóla-
nemarnir Andri og Þorkell leiða starfið
ásamt hópi sjálfboðaliða. Fermingartími
kl. 19.15. Unglingakvöld Laugarneskirkju
og Þróttheima kl. 20 (8. bekkur). (Sjá
síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárus-
dóttir. Kirkjustarf fyrir 7 ára börn kl.
14.30. Sögur, leikir, föndur og fleira. Op-
ið hús kl. 16. Kaffi og spjall. Biblíu-
fræðsla kl. 17. Farið verður í sálma Dav-
íðs. Umsjón sr. Frank M. Halldórsson.
Fyrirbænamessa kl. 18. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Léttur hádegisverður eftir stundina.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrir-
bænir og íhugun. Kl. 13–15 opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir
7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið
er upp á léttan hádegisverð á vægu
verði að lokinni stundinni. Allir velkomn-
ir. Kirkjukrakkar fyrir börn 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30, KFUM fyrir
drengi 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl.
17.30–18.30. TTT fyrir börn 10–12 ára í
Rimaskóla kl. 18.30–19.30. Æskulýðs-
félag fyrir unglinga í 8. bekk í Engjaskóla
kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–
12. Opið hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17. Tólf spora námskeið kl.
20.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára
börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–
12 ára börnum TTT á sama stað kl.
17.45–18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjart-
anlega velkomnir. Tekið á móti fyrir-
bænaefnum í kirkjunni í síma
567 0110. Æskulýðsfundur fyrir ung-
linga 14–15 ára kl. 20.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra
ungra barna, kl. 10–12. Heitt á könn-
unni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag
eldri borgara á Álftanesi. Notalegar sam-
verustundir með fræðslu, leik, söng og
kaffi. Auður eða Erlendur sjá um akstur
á undan og eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hitt-
umst og spjöllum. Heitt á könnunni og
djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir
með eða án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu
og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til
sóknarprests eða kirkjuvarðar. Bóka-
kynning. Í tilefni af áttræðisafmæli sr.
Jörg Zink verður bókakynning í safnaðar-
heimilinu í kvöld kl. 20.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
16.20 TTT – yngri hópur. Söngvadagur.
Kirkjustarf 9–10 ára. Kl. 17.30 TTT –
eldri hópur. Söngvadagur. Kirkjustarf
11–12 ára. Sr. Þorvaldur og leiðtogarnir.
Kl. 20 opið hús í KFUM&K. Hulda Líney
Magnúsdóttir og leiðtogarnir.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu
verði, allir aldurshópar. Umsjón Ólafur
Oddur Jónsson. Æfing Kórs Keflavíkur-
kirkju frá kl. 19–22.30. Stjórnandi Ester
Ólafsdóttir.
Njarðvíkurkirkja. Foreldramorgunn í
Safnaðarheimilinu í dag, miðvikudag, kl.
10.30 í umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petr-
ínu Sigurðardóttur. Sóknarprestur.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar
í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiks-
molar og vitnisburðir. Allt ungt fólk vel-
komið.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl.
10 í safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og
spjall. Safi fyrir börnin. Fundur í Æsku-
lýðsfélagi Akureyrarkirkju, yngri deild, kl.
20 í Safnaðarheimili. Biblíulestur kl.
20.30. Í fangelsi í Róm. Post. 28:11–
31. Sr. Guðmundur Guðmundsson hér-
aðsprestur. Sjálfshjálparhópur foreldra
kl. 20.30.
Safnaðarstarf
KYNNINGARFUNDUR verður í
Bústaðakirkju á morgun, fimmtu-
daginn 31. október, kl. 20.
Í vetur verður boðið upp á tólf
spora hópastarf í Bústaðakirkju.
Fundir verða öll fimmtudagskvöld
eða í 30 vikur alls.
Starfið fer fram í litlum hópum,
svokölluðum fjölskylduhópum, sem
í eru 5–7 manns, í flestum tilfellum
kynskiptir hópar. Fyrstu 3–4 fund-
irnir eru öllum opnir en frá og með
fjórða fundi, sem áætlaður er 21.
nóvember, verður hópunum lokað.
Í fjölskylduhópnum deilir fólk
reynslu sinni, styrk og von hvert
með öðru og myndar þannig vin-
áttu- og trúnaðartengsl.
Tólf spora vinnan er skemmti-
legt en á stundum erfitt ferðalag,
sem er fyrir alla, sem í einlægni
vilja vinna með sínar tilfinningar.
Ferðalagið skapar öruggan
grundvöll til að eignast betri líð-
an, gleði og meiri lífsfyllingu.
Ferðalagið er byggt á leiðsögn
kristinnar trúar. Þátttaka er
ókeypis og í boði kirkjunnar að
öðru leyti en því að kaupa þarf
bókina, eins og að framan greinir,
og leggja lítilsháttar í kaffisjóð
vikulega.
Unnið er eftir vinnubókinni
Tólf sporin – andlegt ferðalag en
hún fæst í Kirkjuhúsinu og í
stærri bókaverslunum. Einnig er
hún seld í kirkjunni á fyrstu fund-
unum.
Með því að velja Tólf spora
ferðalagið er valin leið sem áður
hefur verið stikuð af öðru fólki.
Þetta er góð aðferð, sem hjálpar
okkur að enduruppgötva og dýpka
andlega þáttinn í okkur sjálfum.
Allir eru velkomnir og nánari
upplýsingar er að finna á heima-
síðu Bústaðakirkju, kirkja.is.
Pálmi Matthíasson.
Áhrif atvinnu-
missis á líðan fólks
MIÐVIKUDAGINN 30. október kl.
13.30 stendur kærleiksþjónustusvið
Biskupsstofu fyrir fræðslu- og um-
ræðufundi í Hallgrímskirkju um at-
vinnumissi og áhrif hans á líðan
fólks og hvernig skynsamlegt er að
bregðast við. Allir sem eiga erindi
eru velkomnir.
Boðið verður upp á kaffi og með-
læti.
Tólf sporin –
andlegt ferðalag
Morgunblaðið/Ómar