Morgunblaðið - 30.10.2002, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 43
DAGBÓK
TJALDIÐ er dregið frá og
komið er að einræðu suðurs,
sem hefur það hlutverk í
leikritinu að sigla sex tíglum
í örugga höfn. Fúlmennið í
austur hefur dúkkað í tví-
gang, en það er hlutskipti
suðurs að sýna fram á að hið
góða muni sigra að lokum.
Norður
♠ D8765
♥ Á942
♦ 6532
♣–
Vestur Austur
♠ G932 ♠ Á104
♥ 5 ♥ D876
♦ 1087 ♦ 9
♣DG1098 ♣Á7654
Suður
♠ K
♥ KG103
♦ ÁKDG4
♣K32
Spilið er framhaldsleikrit
frá því í gær og fyrir þá les-
endur sem nú eru að ganga í
salinn skal eftirfarandi rifj-
að upp: Suður spilar sex
tígla og fær út einspilið í
hjarta. Hann tekur slaginn
heima á tíuna, tekur þrisvar
tromp og spilar spaðakóngi.
Austur, sá svíðingur, dúkk-
ar! Sagnhafi hugsar sinn
gang og spilar næst hjarta-
gosa og hleypir yfir til aust-
urs. En aftur dúkkar austur!
Á þessum tímapunkti var
tjaldið dregið fyrir í gær, en
nú hefst síðari hlutinn:
Sagnhafi tekur tvo slagi í
viðbót á hjarta og endar í
borði:
Norður
♠ D876
♥ –
♦ 6
♣–
Vestur Austur
♠ G93 ♠ Á10
♥ – ♥ –
♦ – ♦ –
♣DG ♣Á76
Suður
♠ –
♥ –
♦ G4
♣K32
Afköst vesturs eru þving-
uð, því ef hann fækkar við
sig spöðum getur sagnhafi
spilað spaðadrottningu úr
borði og hent laufi heima. Þá
yrði austur að fría spaðann
eða gefa slag á laufkóng.
Eins og staðan er tromp-
ar sagnhafi spaða, trompar
lauf og aftur spaða. Í
tveggja spila endastöðu spil-
ar hann smáu laufi frá Kx.
Vestur á eftir laufdrottn-
ingu og einn spaða, en aust-
ur Á7 í laufi. Ef vestur fær
slaginn verður hann að gefa
blindum á spaðadrottningu,
en ef austur yfirtekur fær
suður á laufkóng.
Svo einfalt er það.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fágaður í framkomu
og nýtur trausts annarra.
Það eru forréttindi sem þú
þarft að standa vörð um.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samtal við vin getur gert þig
óöruggan og óvissan í þinni
sök. En þú ert ekki einn um
þetta. Eina ráðið er að bíða
rólegur þar til þokunni léttir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er eins og þú sért að
missa tökin á verkefnum þín-
um. Taktu þér hlé og skipu-
leggðu málin upp á nýtt frá a
til ö.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu ekki deigan síga þótt
menn sýni hugmyndum þín-
um takmarkaðan áhuga. Þú
verður beðinn um að taka for-
ystu í ákveðnu máli.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur oft reynzt erfitt að
fá aðra á sitt band. Láttu
glósur þeirra sem vind um
eyru þjóta. Þú átt upphefðina
skilið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú tekur að þér að leiða sam-
ræður er snúast um alvarleg
mál og skalt velja vandlega
stað og stund. Skynsamlegast
væri að segja fátt en taka
þeim mun betur eftir því sem
aðrir segja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er rangt að kætast við
ófarir annarra og aldrei að
vita nema að þú verðir sjálfur
skotspónninn áður en þú veist
af. Sýndu því tillitssemi og
umburðarlyndi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur lagt hart að þér til
að tryggja lífsöryggi þitt og
þinna. Börnin eru framtíðin.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú verður að hafa augun opin
fyrir þeim möguleikum, sem
felast í lífinu. Láttu engan
binda þig nauðugan í hlekki
vanans.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt rekast á einhver um-
mæli, sem hafa mikil áhrif á
þig. Það hefur mikil áhrif á
ákvarðanir þínar og þar af
leiðandi á alla framtíð þína.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt bágt með að einbeita
þér að starfinu þar sem
áhyggjur af einkamálum
dreifa athyglinni. Brjóttu odd
af oflæti þínu og leitaðu þér
aðstoðar ef með þarf.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert upp á kant við allt og
alla þessa dagana og þarft að
forðast þær aðstæður sem
koma þér í ham. Notaðu
kvöldið til að endurnýja orku
þína.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert glaður og fullur starfs-
orku. En gleymdu ekki sam-
verkamönnunum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÉG ÞRÁI HVÍLD
Ég þrái hvíld, en hvar er hana að finna,
þess hefi ég oft á liðnum árum spurt.
Og þetta er svarið vildar vina minna:
Þú verður þá að leita eitthvað burt.
Svo spyr ég heiminn, hvert á þá að fara,
því hefir enginn komið til að svara.
Einn ég sit og út í myrkrið stari,
því ævistarfi mínu virðist lokið;
lífið blaktir líkt og blys á skari,
af lífsins tré er æskubrumið fokið.
Svo hver og ein, sem hefir þar að unnið,
nú hvíli sig, því út er skeiðið runnið.
Því þeirra vegna vannst mér leitt að skrifa,
og vegna þeirra hefi ég ljóð mín kveðið.
Og þeirra vegna vildi ég reyna að lifa,
vegna þeirra hef ég dauðans beðið;
og hnuggin tárast einhver yngismeyja,
ef ég skyldi lifa það að deyja.
K.N.
1. e4 c5 2. Rc3 e6 3. f4 d5 4.
Bb5+ Rc6 5. Bxc6+ bxc6 6.
d3 c4 7. e5 cxd3 8. cxd3
Dh4+ 9. g3 Dd8 10. Rf3 Rh6
11. O-O Be7 12. Kg2 O-O 13.
Be3 c5 14. d4 Hb8 15. b3 c4
16. h3 cxb3 17. axb3 Db6 18.
Hb1 Ba6 19. Hg1 Hfc8 20.
Ra4 Db5 21. Rc5 Rf5 22. Bf2
Bxc5 23. dxc5 d4 24. Rxd4
Rxd4 25. Dxd4 Hd8 26. Dc3
Hd3 27. Dc1 Dc6+ 28. Kh2
Hbd8 29. Hb2 Bb7 30. b4 a6
31. Df1 h6 32. Be1 Hd1 33.
De2 H8d3 34. Hd2 H3xd2
35. Bxd2
Staðan kom upp í
fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem
fór fram í húsakynn-
um B&L. Tékkneski
stórmeistarinn Jan
Votava (2517) tefldi
fyrir b-lið Hróksins í
annarri deild, hafði
svart gegn Stefáni
Briem (2035).
35...Dh1+! og hvítur
gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir 36.
Hxh1 Hxh1#. Staða
efstu liða í 4.deild er þessi: 1.
Haukar 18½ vinningar af 24
mögulegum. 2. KR 18 v.
3.-5. TG-b, Laugdælir og
Vestmannaeyjar-b 14 v.
Potturinn og pannan í virku
starfi skákdeildar KR er
Kristján Stefánsson lög-
maður en fyrir Íslandsmótið
í ár gengu til liðs við hana
m.a. Jón Torfason, Gunnar
Gunnarsson og Jón G.
Briem. Haukar hafa einnig á
að skipa harðsnúnu liði og
verður baráttan um efsta
sætið á milli þessara tveggja
liða í algleymingi þegar
seinni hluti Íslandsmótsins
fer fram.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla
75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 30.
október, er 75 ára Herdís
Karlsdóttir, leikskólakenn-
ari, Frostafold 14, Reykja-
vík. Eignmaður hennar er
Gunnar Sigurðsson. Í tilefni
þessa taka þau á móti ætt-
ingjum og vinum á heimili
sínu í dag milli kl. 17 og 20.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní sl. í Riverside
í Kaliforníu þau Laura
Kristin Billmaier kennari
og Steinn Arnar Jónsson
tölvunarfræðingur. Heimili
þeirra er: 10974 Rose Ave.
Apt. 6, Los Angeles, CA
90034, USA.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 29. júní sl. í Lága-
fellskirkju af sr. Jóni Dalbú
Hróbjartssyni þau Sigríður
Gísladóttir og Bjarni Bogi
Gunnarsson.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Sverrir
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 1.931 kr.
til styrktar söfnuninni Göngum til góðs. Þeir heita María
Arnarsdóttir og Telma Svanbjörg Gylfadóttir. Á myndina
vantar Borghildi Einarsdóttur.
Firmakeppni hjá
Munin í Sandgerði
Fimmtudaginn 24. okt. byrjaði
firmakeppni Bridsfélagsins Munins í
Sandgerði með þátttöku níu sveita,
en spilað var með hraðsveitarfyrir-
komulagi, þ.e. allar – mið – allar.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Í fyrsta sæti er sveit OLÍS með
484 stig
Í sveitinni spiluðu:
Ævar Jónasson - Jón Gíslason
Traust Þórðarson - Þórir Hrafnkelsson
Í öðru sæti er sveit VÍS með 465
stig
Í sveitinni spiluðu:
Sigfús Ingvarsson - Karl Sigurbergsson
Sigurður Davíðsson - Skúli Sigurðsson
Í þriðja sæti er sveit Sjóvár-Al-
mennra með 451 stig
Í sveitinni spiluðu:
Guðjóns Svavar Jensen - Arnór Ragnarsson
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson
Fimmtudaginn 31. okt. kl. 19:30,
verður annað spilakvöld af þremur í
firmakeppninni.
Spilað verður á Mánagrund (við
hesthúsin, milli Garðs, Sandgerðis
og Keflavíkur), í félagsheimili brids-
félaga á Suðurnesjum og hesta-
manna.
Það er alltaf heitt kaffi á könnunni
og eru allir hvattir til að mæta, brids-
spilarar sem aðrir áhugamenn og
áhorfendur.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 24. október sl. lauk
keppni í Málarabutlernum 2002.
Lokastaða efstu para varð þessi:
Þröstur Árnas. –
Þórður Sigurðss./Stefán Jóhannss. 132
Guðjón Einarss. –
Ólafur Steinas./Vilhjálmur Þ. Pálss. 119
ristján M. Gunnarss. – Björn Snorras. 66
Anton Hartmannss. – Pétur Hartmannss. 39
Gunnar Þórðars. – Sigurður Vilhjálmss. 28
Garðar Garðass. – Auðunn Hermannss. 28
Eftirtalin pör skoruðu mest um kvöldið:
Brynjólfur Gestss. – Guðm. Theodórss. 52
Þröstur Árnas. – Stefán Jóhannss. 50
Garðar Garðass. – Auðunn Hermannss. 31
Guðjón Einarss. – Ólafur Steinas. 26
Anton Hartmannss. – Pétur Hartmannss. 13
Næsta mót er 3 kvölda hraðsveita-
keppni, sem hefst fimmtudaginn 31.
október. Raðað verður í sveitir með
það fyrir augum að sveitirnar verði
sem jafnastar að styrkleika. Spilað
er að venju í Tryggvaskála og hefst
spilamennska kl. 19:30.
Læknastofan er flutt í Lækningu, Lágmúla 5.
Viðtalsbeiðnir daglega
milli kl. 9 og 16 í síma
5 3 3 3 1 3 1
Bragi Guðmundsson læknir,
sérgrein bæklunarlækningar
Staður: Umsjón: Sími:
Reykjavík Valhöll (virka daga kl. 9-17) 515 1700
Akranes Sigurður Sigurðsson 696 9492
Benedikt Jónmundsson 897 3043
Borgarfjörður Snorri Sigurðsson 896 1995
Borgarnes Ingi Tryggvason 860 2181
Ingibjörg Hargrave 862 1399
Hjörtur Árnason 892 1884
Snæfellsbær Helgi Kristjánsson 894 2961
Björn Arnaldsson 863-1153
Grundarfjörður Sóley Soffaníasdóttir 892 4695
Ásgeir Valdimarsson 892 9360
Stykkishólmur Gunnlaugur Árnason 894 4664
Dalasýsla Jóhann Sæmundsson 434 1272
Kristján Sæmundsson 434 1540
Tálknafjörður Jörgína Jónsdóttir 456 2538
Reykhólar Guðjón D. Gunnarsson 866 9386
Patreksfjörður Ari Hafliðason 456 1500
N-Ísafjarðarsýsla Björn Jóhannesson 456 4577
Sigríður Hrönn Elíasdóttir 456 4964
Ísafjörður Björn Jóhannesson 456 4577
Bolungarvík Björn Jóhannesson 456 4577
Strandasýsla Engilbert Ingvarsson 893 3213
V-Húnavatnssýsla Karl Sigurgeirsson 895 0039
Blönduós Sigurður Kr. Jónsson 452 4173
Ágúst Þór Bragason 899 0895
Skagaströnd Lárus Ægir Guðmundsson 892 5499
Adolf Hjörvar Berndsen 892 5089
Skagafjarðarsýsla Brynjar Pálsson (Bókabúð Brynjars) 453 5950
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna
prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi þann 9. nóvember
2002 fer fram hjá eftirtöldum aðilum: