Morgunblaðið - 30.10.2002, Síða 48
TRÚBADORKEPPNI hefst á kránni
O’Briens í kvöld. Haraldur Davíðsson
trúbador og Birgir Róbertsson, eigandi
staðarins, eiga heiðurinn af keppninni, sem
gengur undir nafninu „Óþekkti tónlist-
armaðurinn“. Keppnin stendur yfir næstu
daga en úrslitin fara fram mánudags-
kvöldið 4. nóvember. Þátttakendur eru alls
tuttugu og er um fjórðungur þeirra úr hópi
kvenna. Einu þátttökuskilyrðin voru þau
að keppendur gætu sungið og spilað á
hljóðfæri, væru 18 ára eða eldri og hefðu
ekki gefið út tónlist undir eigin nafni.
„Þetta er fólk á öllum aldri, sem tekur
þátt,“ segir Haraldur og bætir því við að
trúbadorar þurfi að kunna þá list að höfða
til margra mismunandi hópa inni á krán-
um. „Þetta er hugsað sem uppreisn ein-
yrkjans, upp úr skúffunni og útúr skápn-
um, fá nýtt blóð í þetta,“ segir hann um
tilgang keppninnar.
Margir notast við gítarinn en að sögn
Birgis er einnig píanó á staðnum, sem
stendur ekki ónotað á meðan á keppninni
stendur. „Sumir ætla að spila bæði á píanó
og gítar,“ segir hann.
Hver trúbador fær 20 mínútur til að
sýna sig og sanna með því að spila á bilinu
fjögur til fimm lög. Tveir af fimm komast
áfram eftir hvert kvöld en á undan-
úrslitakvöldinu á sunnudaginn keppa tíu
manns, útskýra félagarnir. Tveir trúbador-
ar keppa á úrslitakvöldinu og hljóta þeir
báðir vinninga en í boði er m.a. ferð til
Dublin og hljóðverstímar.
Fimm manna dómnefnd sér um að finna
hæfileikafólkið í hópnum og verður dóm-
nefndin ekki endilega sú sama öll kvöldin.
„Jafnvel kippum við einhverjum úr salnum
með í dómnefndina svona til að gæta jafn-
ræðis og hafa þetta eins sanngjarnt og
hægt er,“ segir Haraldur. Þrátt fyrir að
fulltrúi gestanna á staðnum sitji ekki endi-
lega í dómnefndinni er þess gætt að taka
tillit til þeirra. Atkvæði salsins gilda 30% á
móti 70% hlut dómnefndar.
Keppnin hefst á O’Briens milli 21 og 22
öll kvöldin og hvetur Birgir fólk til að
mæta snemma, þar sem staðurinn tekur
aðeins 70 manns. Aðgangseyrir er 500
krónur inná hvert kvöld en einnig er hægt
að kaupa aðgangskort með afslætti, sem
gildir á öll kvöldin.
Trúbadorkeppni fyrir óþekkta tónlistarmenn
Morgunblaðið/Kristinn
Birgir Róbertsson og Haraldur Davíðsson trúbador standa fyrir keppninni.
Uppreisn
einyrkjans
48 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER.
Sýnd kl. 7.
Kvikmyndir.com
HK DV
Sýnd kl. 4.50,
8 og 10.15. Bi 12.
SV Mbl
SK RadíóX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
B.i. 16.
1/2
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.45.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl.10. Sýnd kl. 8. B.i. 12. Sýnd kl. 10.20. B.i. 14.
Frumsýnd kl. 8.30.
Hátíðarfrumsýning
Takmarkað magn miða. Verð kr. 800.
Yfir 40.000 áhorfendur
HJ Mbl 1/2 HK DV
SFS Kvikmyndir.is
LOKSINS - LOKSINS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 448
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
SV. MBLDV
Það verður
skorað af krafti.
Besta breska
gamanmyndin síðan
„Bridget Jones’s
Diary.“ Gamanmynd
sem sólar þig upp úr
skónum. Sat tvær vikur
í fyrsta sæti í Bretlandi.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd kl. 8 og 10.10. Bi. 16. Vit 453
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit 460
SK RadíóX
Sýnd kl. 6. Vit 435
S Ý N D Í S A L 1
SARAH Jessica Parker,
aðalleikkonan í sjón-
varpsþáttunum Beðmál
í borginni, hefur alið
barn. Þetta er fyrsta
barn hennar og eig-
inmannsins Matthews
Brodericks. Drengurinn
kom í heiminn á Lenox
Hill-sjúkrahúsinu í New
York á mánudags-
morgun. Hann hefur
verið nefndur David
Perkins Broderick.
Parker, 37 ára, kom á
sjúkrahúsið í fylgd
tveggja bifreiða sem í
voru öryggisverðir og hindruðu þeir ljósmyndara í að ná
myndum af leikkonunni. Hún fæddi drenginn á einkastofu.
Hinir nýbökuðu foreldrar hafa fengið margar árnaðar-
óskir frá fjölskyldu og vinum, þar á meðal Cynthiu Nixon,
sem einnig er ófrísk, en hún leikur í Beðmálum í borginni
með Parker. Nixon heimsótti Parker á sjúkrahúsið síðdeg-
is í gær.
Bæði Parker og Broderick hafa lítið viljað tjá sig um
meðgönguna. Talið er að fyrstu myndirnar af David litla
muni seljast á ríflega 200.000 dollara eða 17,6 milljónir
króna.
Parker eignast
dreng
Ólétt Sarah Jessica Parker í
hlutverki sínu sem rithöfund-
urinn Carrie Bradshaw í nýjustu
þáttaröð Beðmála í borginni.
JETHRO Tull er líklega ein sér-
kennilegasta rokksveit heims um
leið og hún er með þeim allra þraut-
seigustu. Og merkilegt nokk á hún
sér auk þess bæði breiðan og trygg-
an aðdáendahóp sem dreifist um all-
ar álfur.
Nýverið voru þrjár sígildar hljóm-
plötur með sveitinni frá miðjum átt-
unda áratugnum endurútgefnar.
Þetta eru War Child (1974), Minstrel
in the Gallery (1975) og Too Old To
Rock’N’Roll (1976). Það er upp og of-
an hvernig til tekst við endurútgáfur
sem þessar en í þessu tilfelli hefur
verið vandað sérstaklega til verka.
Allar plöturnar hafa verið hljómjafn-
aðar upp á nýtt á stafrænan hátt og
hver þeirra inniheldur skammt af
aukalögum; t.a.m. eru þau sjö á War
Child. Aukalögin eru margvíslegs
eðlis; hér er t.d. að finna b-hliðar,
hljómleika- og útvarpsupptökur.
Pakkningarnar eru líka vandaðar;
innihalda áður óséðar ljósmyndir,
texta og greinaskrif eftir meistarann
sjálfan, hinn óstöðvandi „flautuþyr-
il“ Ian Anderson. Plöturnar koma í
búðir í byrjun nóvember.
Fyrr á þessu ári voru fyrstu þrjár
plötur Tull, This Was (1968), Stand
Up (1969) og Benefit (1970), endur-
útgefnar á líkan hátt, en þó með eilít-
ið breyttum formerkjum. Þá gaf
EMI, sem hefur eignarhald á flest-
um eldri plötum Tull, aftur út hljóm-
leikaplötuna Live Bursting Out
(1978) og hljóðversskífurnar Storm-
watch (1979), A (1980) og Under
Wraps (1984) fyrir stuttu. En þær
innihalda hvorki aukalög né bættan
hljóm!? Svo virðist sem þessi endur-
útgáfuáætlun EMI sé ekkert sér-
staklega vel útreiknuð og fylgir
greinilega lítilli rökvísi. Þrjár nýj-
ustu endurútgáfurnar lofa þó góðu
og vonandi að framhald verði á. Nóg
af efni er a.m.k. til.
Þrjár plötur með Jethro Tull endurútgefnar
Aldrei of gamall
til að rokka!
Ian Anderson á kynningarmynd
vegna War Child.
HINN geðþekki söngvari bresku
hljómsveitarinnar Pulp, Jarvis
Cocker, ætlar að flytja til Frakk-
lands. Hann eyddi síðustu viku í
húsnæðisleit í París. Hann var þó
ekki einn á ferð því með honum var
ólétt eiginkona hans, franski stílist-
inn og tískufrömuðurinn Camille
Bidault-Waddington.
Ein ástæða flutninganna er að
Jarvis telur að öruggara sé að ala
upp börn í Frakklandi en Bretlandi.
Annað er að söngvarinn sporlétti
hefur búið í London síðustu 14 árin
og finnst honum kominn tími til að
breyta um umhverfi.
Jarvis sagði í viðtali við tímaritið
Snug að hann ætti eftir að sakna
bresku kráarstemningarinnar hvað
mest. „Í Frakklandi er þetta öðru-
vísi og þar eru kúluspilakassar á
börunum, sem ég á aldrei eftir að
læra á,“ sagði hann.
Jarvis
flytur til
Frakk-
lands
Morgunblaðið/Sverrir
Jarvis kom til Íslands í vor og þeytti
skífum á Gauknum.