Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
ógilti í gær bann við einkadansi í
Reykjavík. Bannákvæðið var að
finna í lögreglusamþykkt Reykjavík-
ur sem dómsmálaráðuneytið sam-
þykkti en héraðsdómur taldi að
bannið ætti sér ekki stoð í lögum.
Þegar bannið tók gildi 31. júlí sl.
voru fjórir nektarstaðir í borginni en
nú er Óðal við Austurvöll eini stað-
urinn.
Eigendur Óðals fóru í mál við
borgina og dómsmálaráðuneytið og
kröfðust þess að bannið yrði ógilt.
Helstu rök þeirra voru þau að með
banninu væri vegið gegn atvinnu-
frelsi sem væri tryggt í stjórnar-
skránni.
Í dómnum segir að starfsemi nekt-
arstaða byggist á skýrri heimild í
lögum um veitinga- og gististaði.
Þetta séu sérlög sem geti þrengt
valdheimildir sem eru til staðar í lög-
reglusamþykkt. Með breytingum á
samþykktinni hafi ekki falist almenn-
ar takmarkanir, svo sem um opnun-
ar- og lokunartíma heldur hafi
ákvæðið falið í sér bann við einum
þætti í starfsemi Óðals. Því yrði að
telja að með banninu hafi verið farið
út fyrir heimild í lögum um lögreglu-
samþykktir.
Nektarstaðir hafa verið umdeildir
maður, flytti málið f.h. borgarinnar. Í
samtali við Morgunblaðið í gær sagði
hann að þar sem málstaður Óðals
hafi m.a. byggst á hans eigin laga-
áliti, hafi verið eðlilegt að annar lög-
maður yrði fenginn til að verja mál-
stað borgarinnar.
Borgarráð mun taka
ákvörðun um áfrýjun
„Í sjálfu sér koma þessi úrslit mér
ekki á óvart. Þetta var eitthvað sem
gat brugðið til beggja vona. Ég held
hins vegar að þau rök sem við höfum
lagt fram fyrir héraðsdómi séu mjög
gild og ég held að skyldur borgarinn-
ar til að standa vörð um velsæmi og
allsherjarreglu séu ótvíræðar. Það
hlýtur því að vera látið reyna á þetta
mál fyrir Hæstarétti,“ segir Helga
Jónsdóttir, borgarritari Reykjavík-
urborgar, sem er staðgengill borg-
astjóra en hún er erlendis.
Málið verði lagt fyrir borgarráð á
fundi þess á þriðjudag og þar verði
ákvörðun um áfrýjun tekin.
Staðfesti Hæstiréttur dóm héraðs-
dóms, segir Helga ljóst að það sé í
valdi Alþingis að ákveða hvort laga-
heimildir eigi að vera til þess að
banna einkadans, en koma verði í ljós
hvort eigendur nektarstaða höfði
skaðabótamál á hendur borginni.
Það er ljóst að við höfum orðið fyr-
ir umtalsverðu fjártjóni vegna þess-
ara aðgerða sem nú er búið að dæma
ólöglegar,“ segir Grétar Berndsen,
framkvæmdastjóri og einn af eigend-
um Óðals við Austurvöll, og bætir við
að ekki sé búið að taka ákvörðun um
hvort Reykjavíkurborg eða dóms-
málaráðuneytið verði krafin skaða-
bóta.
„Niðurstaðan kemur ekki á óvart
en hún skiptir okkur rosalega miklu
máli. Á þriðja tug starfsmanna vinna
hjá fyrirtækinu og það hefur verið
mikil óvissa að undanförnu og slæm
umræða. En við löguðum reksturinn
strax að nýju lögreglusamþykktinni,
þannig að staðurinn hefur verið op-
inn,“ segir Grétar.
Meðal annars hafi þurft að breyta
innréttingum og eins og þær séu nú
sé ekki hægt að bjóða upp á einka-
dans á staðnum.
Á Akureyri er svipað ákvæði í lög-
reglusamþykkt um að einkadans sé
bannaður og tók það gildi á sama
tíma og breytingar á lögreglusam-
þykktinni í Reykjavík.
„Sjálfsagt hlýtur þessi dómur að
verða til þess að við skoðum okkar
stöðu í þessu efni,“ segir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri.
frá upphafi. Í september 2001 lagði
starfshópur Reykjavíkurborgar og
lögreglunnar í Reykjavík fram ýms-
ar tillögur til úrbóta, ein var sú að
einkadans yrði bannaður. Leitað var
eftir áliti borgarlögmanns á að slíkt
bann yrði sett í lögreglusamþykkt
borgarinnar og taldi hann hæpið að
slíkt stæðist lög. Skrifstofustjóri
borgarstjóra komst á hinn bóginn að
gagnstæðri niðurstöðu. Ákveðið var
að leita álits dómsmálaráðuneytisins
sem taldi að ekkert stæði í vegi fyrir
því að staðfesta fyrrnefndar breyt-
ingar á lögreglusamþykkt Reykja-
víkur. Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti breytingarnar 13. maí sl.
með 14 samhljóða atkvæðum en einn
sat hjá. Breytingarnar voru í kjölfar-
ið staðfestar af dómsmálaráðherra.
Hálfum mánuði eftir að bannið tók
gildi stefndu eigendur Óðals borg-
inni og dómsmálaráðuneytinu og
kröfðust þess að bannið yrði ógilt.
Allan V. Magnússon héraðsdómari
kvað upp dóminn. Karl Georg Sig-
urbjörnsson hdl. flutti málið f.h. Óð-
als. Einar Karl Hallvarðsson hrl. var
til varnar f.h. íslenska ríksins og
Gestur Jónsson hrl., fyrir Reykjavík-
urborg.
Að öllu jöfnu hefði mátt búast við
að Hjörleifur Kvaran, borgarlög-
Héraðsdómur ógildir breytingar á lögreglusamþykkt Reykjavíkur
Telur bann við einkadansi
ekki eiga sér stoð í lögum
BÓKIN Brauðréttir Hagkaupa eftir
Jóa Fel hefur selst í 13 þúsund eintök-
um á rúmum mánuði og segir Sigurð-
ur Reynaldsson, innkaupastjóri Hag-
kaupa, að hún sé tvímæalalaust
metsölubók þessa hausts.
Bókin er eingöngu seld í verslunum
Hagkaupa og því er hana ekki að
finna á hefðbundnum listum yfir sölu-
hæstu bækur. Sigurður segir að bók-
in hafi verið prentuð í 20 þúsund ein-
tökum og viðbúið sé að prenta þurfi
viðbótar upplag enda selst hún í 400–
700 eintökum dag hvern. Hann segir
að Hagkaup hafi gefið út nokkrar
bækur en engin þeirra hafi selst jafn
vel fyrstu vikurnar og þessi nýja bók.
Bók um brauð
selst eins og
heitar lummur
1.777 manns greiddu atkvæði í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík í
gær. 170 þeirra skráðu sig í flokk-
inn á kjörstað. Áður höfðu 400
manns greitt atkvæði utan kjör-
fundar, að sögn Ágústs Ragn-
arssonar, framkvæmdastjóra próf-
kjörsins. Prófkjörið fer jafnframt
fram í dag, laugardag, frá kl. 10 til
18. Kosið er á sex stöðum í sjö kjör-
hverfum. Búist er við fyrstu tölum
um svipað leyti og kjörstöðum verð-
ur lokað. Miðað er við að úrslit liggi
fyrir um klukkan 23.
Sautján manns gefa kost á sér í
prófkjörinu, þar af níu þingmenn.
Tæplega 15.600 manns eru á kjör-
skrá en þeim hefur fjölgað um 300
síðustu vikurnar. Allir félagsbundn-
ir sjálfstæðismenn í Reykjavík, 16
ára og eldri, hafa rétt á að kjósa.
Að sögn Ágústs greiddu rúmlega
7.000 sjálfstæðismenn atkvæði í
prófkjörinu í Reykjavík fyrir al-
þingiskosningarnar 1994 og um
7.000 í prófkjöri flokksins í Reykja-
vík fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar 1997.
Morgunblaðið/Kristinn
„Bentu á þann sem að þér þykir bestur…“ Kjósendur í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík geta glöggvað sig á
frambjóðendum í kjörklefanum, hafi þeir ekki enn gert upp hug sinn. Alls höfðu tæplega 2.200 manns kosið í próf-
kjörinu, þegar kjörfundi lauk í gærkvöld. Í dag er kosið á sex stöðum.
Tæplega 1.800 greiddu atkvæði í gær
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
fengið ábendingu um að á markaði
hafi fundist ranglega merkt ung-
barnablanda
af tegundinni
SMA Gold,
sem innflutn-
ingsfyrirtæk-
ið Austur-
bakki hf.
flytur inn.
Í frétt frá
Hollustu-
vernd segir að
verulegt ósamræmi hafi verið í leið-
beiningum um blöndun á dósinni á
ensku og álímdum ráðlegginum frá
innflutningsaðila á íslensku. Sam-
kvæmt ensku leiðbeiningunum, sem
teljast réttar, á að nota tvöfalt meira
af duftinu í hvern ml af vatni en fram
kemur í íslensku leiðbeiningunum.
Vill Hollustuvernd ríkisins því
biðja þá sem keypt hafa SMA Gold
ungbarnablöndu um að yfirfara ís-
lenskar álímdar merkingar á umbúð-
um vörunnar og hafa samband við
Hollustuvernd ríkisins eða heilbrigð-
iseftirlitið á hverju svæði.
Rangar merk-
ingar á ung-
barnablöndu
RÚMLEGA tvítugur karlmaður var
dæmdur í hálfs árs fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa
samfarir við 12 ára stúlku sem hann
komst í samband við á spjallrás á
Netinu, svonefndu Irki. Hann var
hins vegar sýknaður af því að hafa
þröngvað henni til samræðis.
Maðurinn var ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot með því að hafa með ólög-
mætri nauðung þröngvað stúlkunni
til samræðis, fyrst á heimili hans í
Reykjavík og daginn eftir í bifreið í
nágrenni Reykjavíkur.
Ákærði neitaði alfarið við lögreglu-
rannsókn að þekkja nokkuð til stúlk-
unnar þrátt fyrir að fyrir lægju lýs-
ingar hennar á íbúð hans, bifreið
þeirri sem hann ók, örum á líkama
hans og o.fl. Fyrir dómi breytti hann
framburði sínum og féll þá frásögn
hans og stúlkunnar í meginatriðum
saman. Þó hélt hann því fram að hafa
ekki haft samræði við stúlkuna í þau
tvö skipti sem þau hittust. Eins
kvaðst hann ekki hafa vitað að hún
var þá 12 ára gömul.
Fjölskipuðum dómi þótti frásögn
stúlkunnar skýr um öll atriði sem
máli skiptu og framburður hennar
stöðugur og trúverðugur, ólíkt því
sem átt hefði við um ákærða. Auk
fangelsisrefsingar var ákærði dæmd-
ur til að borga stúlkunni 250 þús. kr. í
miskabætur auk sakarkostnaðar.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Valtýr Sigurðsson dómsformaður,
Allan V. Magnússon og Sigurður T.
Magnússon. Verjandi ákærða var
Örn Clausen hrl. Réttargæslumaður
stúlkunnar var Berglind Svavars-
dóttir hdl.
Fangelsi fyrir samræði við 12 ára stúlku
Komst í samband við
stúlkuna á Netinu
HALLDÓRA Bald-
vinsdóttir, 9 ára
keppandi í ítalskri
barnasöngva-
keppni á Bologna,
er komin í 10
manna úrslit eftir
að hún náði best-
um árangri kepp-
enda í undan-
úrslitum á
fimmtudag. 14
keppendur, sem valdir voru úr 2.300
manna undankeppni, voru í undan-
úrslitunum og fer lokakeppnin fram
í dag kl. 16 að íslenskum tíma.
Keppninni verður sjónvarpað
beint á ítölsku sjónvarpsstöðinni Rai
1. Halldóra syngur lag og texta á
ítölsku eftir Ítalann Leone Tinga-
nelli, sem búið hefur hérlendis und-
anfarin 16 ár og starfað sem tónlist-
armaður. Lag hans heitir Se cicredi
anche tu (Ef þú trúir líka).
Halldóra
Baldvinsdóttir
Keppir
til úrslita
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ISUZU-jeppi manns, sem saknað
hefur verið tæpan hálfan mánuð
fannst yfirgefinn við Hvítá skammt
frá Brúarhlöðum í gær.
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
eiganda hennar, Þóri Jónssyni, 39
ára. Hann er 177 cm á hæð, skol-
hærður og mjög snöggklipptur, þétt-
vaxinn og brúneygur. Þeir sem gefið
geta upplýsingar um ferðir Þóris frá
10. nóvember eru beðnir um að hafa
samband við lögregluna.
Jeppinn fannst
við Hvítá
♦ ♦ ♦