Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 11 frá Góð gjöf verð frá 5.900 kvenfataverslun Skólavörðustíg 14, sími 551 2509. Ítölsku peysurnar Lagersala Antik-hússins er opin alla daga frá kl. 14.00-18.00 í Suðurhrauni 12, Garðabæ. Borðstofuhúsgögn, bókaskápar, skrifborð og skrautmunir. BÚNAÐARBANKINN ætlar að tryggja að listaverk í eigu bankans verði þjóðinni aðgengileg hér eftir sem hingað til og er ekki fyrirhuguð nein breyting á þeirri stefnu sem bankinn hefur fylgt til þessa í tengslum við Listasafn bankans. Bankaráð Búnaðarbankans sam- þykkti bókun um málið á fundi sínum í gær og er skilningur á ákvörðuninni hjá S-hópnum svonefnda, kjölfestu- fjárfesti bankans, að sögn Þorsteins Ólafssonar varaformanns bankaráðs- ins. Þorsteinn segir að upplýst hafi ver- ið á fundinum að skilningur væri á þessari ákvörðun af hálfu nýrra hlut- hafa. „Það er búið að festa þessa stefnu í sessi og vonandi verður henni fylgt í framhaldinu,“ segir hann. Vegna umræðna um Listasafn bankans áréttar bankaráðið í bókun sinni að bankinn hafi lagt metnað sinn í að varðveita Listasafn bankans tryggilega. Verkin séu skipulega skráð og vel fylgst með ástandi þeirra. „Listaverk bankans eru að jafnaði til sýnis í afgreiðslusölum bankans eða öðrum húsakynnum hans. Verkin eru sýnd í sérstökum sýningarglugga aðalútibúsins í Austurstræti og enn- fremur lánuð til sýningahalds utan bankans. Þess er gætt að skipta reglubundið um málverk til þess að viðskiptavinir og aðrir listunnendur fái notið þeirra sem best. Bankinn hefur haft þá stefnu að lána myndir til sýninga eða stuðlað að og styrkt sjálfstætt sýningahald á málverkum. Bankinn hefur kappkost- að að eiga gott samstarf við listasöfn og áhugamenn um sýningahald. Bankaráðið áréttar að ekki er fyr- irhuguð nein breyting á þeirri stefnu sem fylgt hefur verið og er markmið bankans annars vegar að varðveita Listasafnið tryggilega og hins vegar að listaverkin verði þjóðinni aðgengi- leg hér eftir sem hingað til,“ segir í bókuninni. Þorsteinn Ólafsson, varaformaður bankaráðs Búnaðarbankans Stefna um aðgengi þjóðarinnar að lista- verkum fest í sessi „LÆKNI er heimilt að taka sjúkra- tryggðan einstakling til meðferðar án greiðsluafskipta sjúkratrygginga ef sjúkratryggður óskar þess.“ Þetta er hluti ákvæðis 5. greinar samnings milli Tryggingastofnunar ríkisins, TR, og sérgreinalækna. Það er því ekki samningsbrot þegar sjúklingur greiðir fyrir læknisþjónustu úr eigin vasa án afskipta TR til að fá þjón- ustuna fyrr. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem Læknafélag Reykjavíkur, LR, boðaði í gær vegna frétta um að læknar, sem hafa veitt ákveðna þjón- ustu á árinu og þurfa nú að veita TR afslátt til áramóta, væru að veita læknisþjónustu gegn fullri greiðslu sjúklinga. Þórður Sverrisson, formaður samninganefndar LR við TR, sagði að ákvæðið biði vissulega upp á tvö- falt kerfi og við því hafi læknar var- að. „Við teljum að læknar séu ekki að brjóta samninginn. Í þessum tilvik- um sem hafa komið upp er þetta ekki spurningin um hvort viðkomandi fái þá þjónustu sem hann er að leita eft- ir heldur hvenær. Þessir læknar sem hlut eiga að máli hafa bent fólki á að það geti leitað eftir þjónustunni ef það telji sig hafa þörf fyrir hana fyrr en annars væri hægt að bjóða hana með því að fara framhjá kerfinu á þennan hátt. Þeir eru ekki að brjóta samninginn með því að vísa í þetta ákvæði sem hefur verið lengi í samn- ingnum.“ Þórður sagði að læknar hefðu fyr- irfram haft áhyggjur af því að sam- komulagið væri til þess fallið að fólki væri mismunað í heilbrigðiskerfinu. Þá sagði hann að sjúklingar gætu hvenær sem er ársins beðið um þjón- ustu utan almannatryggingakerfis- ins en það væri fyrst nú, þegar ákveðnir læknar eru farnir að þurfa að veita TR verulegan afslátt af þjónustu sinni, sem á því fer að bera. „Það eru afsláttarmörkin sem valda þessu, samningarnir sníða læknum þröngan stakk. Nú er svo komið að þeir vilja ekki taka á sig fleiri verk en þeir gera, nema þá að fólk vilji leita eftir því með sérstökum hætti.“ Læknar gætu þurft að gefa TR 90% afslátt Stefán Matthíasson, sem situr í samninganefndinni, sagði afsláttar- kerfi lækna vera byggt á tveimur þáttum, annars vegar einstaklings- bundnum, þ.e. hver og einn læknir gefur TR afslátt þegar hann nær ákveðnum þjónustumörkum, og síð- an eru einstakar sérgreinar með sameiginlegan „pott“ sem þýðir að þegar ákveðnum heildareiningum er náð á ársgrundvelli leggst afsláttur- inn jafnt á alla lækna greinarinnar. Hann segir Læknafélagið ekki hafa verið sátt við þetta samkomulag sem undirritað var sl. sumar, en ver- ið undir miklum þrýstingi að sam- þykkja það. Hann sagði að með því geti einstakir læknar þurft að veita TR 90% afslátt af þjónustu sinni. Er talið að læknar sem þeim mörkum hafi náð séu þeir sem nú séu að veita sjúklingum þjónustu án afskipta TR. Stefán tók fram að eðlilegt væri að læknar gæfu einhvern afslátt en að hann gengi að mati læknanna of langt. Hann sagði að ítrekað hefði samninganefndin beðið um að þegar umsamndar einingar væru búnar í lok árs yrði samið um framhaldið hverju sinni en að TR væri ekki tilbúin til þess. Ekki samningsbrot að draga saman vinnu Þá benti Sveinn Geir Einarsson, sem einnig á sæti í samninganefnd- inni, á að þó að ákveðnir læknar haldi sig innan afsláttarmarkanna þurfi þeir að veita TR afslátt fari heildar- einingar greinarinnar sem þeir starfa í yfir ákveðin mörk. Í því fæl- ist óréttlæti þar sem sumir læknar vinni jafnframt inni á sjúkrahúsum og starfi aðeins að hluta samkvæmt samningnum við TR. Hann sagði ekki brot á samningn- um að draga saman vinnu sína þegar afsláttarmörkum væri náð, enginn gæti skyldað lækna frekar en aðra til að vinna á skertum launum. Læknafélag Reykjavíkur segir sérgreinalækna ekki brjóta samning við TR Sjúklingur getur beðið um þjónustu án afskipta TR BRESKUR ríkisborgari var í gær dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að rækta hass í íbúð unnustu sinnar. Fyrir dómi breyttu hann og unnusta hans framburði sínum og reyndi hún að taka sökina á sig því ákærði var á reynslulausn og á yfir höfði sér brottvísun úr landi. Við handtöku mannsins fannst 21 kannabisplanta sem hann hafði rækt- að á heimilinu og rúmlega 110 grömm af afskornum kannabislaufblöðum. Viðurkenndi hann hjá lögreglu að vera eigandi þeirra og þótti skýra á greinargóðan hátt frá því hvernig hann hefði staðið að ræktun þeirra. Framburður unnustunnar hjá lög- reglu var í samræmi við framburð ákærða í öllum meginatriðum. Lög- regluskýrslu gaf hann í viðurvist skip- aðs réttargæslumanns síns og voru hann og unnustan ekki í aðstöðu til að samræma framburð sinn á meðan á skýrslugjöf stóð. Fyrir dómi neitaði ákærði hins vegar sök og kvaðst hafa tekið á sig sök fyrir unnustu sína sem sömuleiðis breytti framburði fyrir dómi og sagðist hafa átt allt efnið. Breyttur framburður hennar þótti ekki vera í neinu samræmi við fram- burð þriggja rannsóknarlögreglu- manna sem komu fyrstir á vettvang. Ákærði var dæmdur í 3 mánaða fangelsi á síðasta ári vegna fíkniefna- brota en fékk reynslulausn er hann hafði afplánað helming dómsins. Rauf hann eins árs skilorð reynslulausnar- innar með broti sínu nú og var dæmd refsing í einu lagi fyrir það brot og óaflplánaðar eftirstöðvar refsingar. Unnustan reyndi að taka á sig sök ÞAÐ var margt um manninn í há- tíðarsal Menntaskólans á Egils- stöðum þegar Jóni Böðvarssyni voru veitt Verðlaun Jónasar Hall- grímssonar í tilefni af Degi ís- lenskrar tungu. Lítil hnáta í fangi pabba síns sofnaði út af undir ræðu- höldunum, enda vart komin á aldur til að huga að varðveislu þjóðtung- unnar svo heitið geti. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Gott að kúra í pabbafangi www.avon.is Snyrtivöruverslun opin allan sólarhringinn ATVINNA mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.