Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG ER mjög ánægður með viðbrögð fólks og hins opinbera í sambandi við baráttu okkar gegn fíkniefnum og handrukkurum,“ segir Guðmundur Sesar Magnússon, forsvarsmaður undirbúningsfundar að stofnun lands- samtaka áhugafólks um málefni fjöl- skyldunnar á Íslandi í dag, með það að markmiði að ná tökum á vanda- málum sem tengjast fíkniefnum. Guðmundur segir mikilvægt að koma réttum upplýsingum varðandi þessi mál á framfæri. Til þessa hafi fólk ekki verið tilbúið að koma fram og ræða málin opinberlega, en á því þurfi að vera breyting og því hafi þessi undirbúningsfundur verið hald- inn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Almenningur og yfirvöld verða að taka höndum saman „Þetta er samfélagssjúkdómur sem er að drepa börnin okkar, alveg eins og krabbamein eða hvaða annar sjúk- dómur,“ segir hann og bætir við að skilaboðin til almennings séu skýr. „Ef þú veist um einhvern sem fremur lögbrot, hvort sem það er með ógn- unum um ofbeldi eða sölu eiturlyfja, þá skaltu kæra, kæra, kæra,“ sagði Guðmundur. Sólveig Pétursdóttir, dómsmála- ráðherra, ávarpaði gesti og sagði að almenningur og yfirvöld yrðu að taka höndum saman í baráttunni gegn fíkniefnaneyslu og handrukkurum. Um mikla vá væri að ræða „og heiti ég ykkur því að ég mun svo lengi sem ég sit sem dómsmálaráðherra gera mitt besta til að vinna bug á þessum vanda með öllum tiltækum ráðum,“ sagði hún og kvaðst tilbúin til sam- starfs við samtökin. Í máli Sólveigar kom fram að hún fagnaði þessu frumkvæði um stofnun samtakanna. „Samstillt átak í þessum málaflokki er grundvallaratriði,“ sagði hún og gat þess að hún hefði varið miklum tíma í að efla löggæsl- una enda væri eitt mikilvægasta áhersluatriðið að tryggja öryggi al- mennings í daglegu lífi. „Eitt lykilat- riðið í þessu samhengi er að lögreglan verði sýnilegri hinum almenna borg- ara,“ sagði hún og nefndi í því sam- bandi eflingu grenndarlöggæslu, aukna þátttöku lögreglu í forvarnar- starfi og aukið samstarf við almenn- ing, íbúasamtök og fleiri. Sólveig greindi frá forvarnaverk- efni lögreglunnar í grunnskólum, mikilvægi Schengen-samningsins og góðum árangri lögreglunnar í Reykjavík og embættis ríkislögreglu- stjóra í fíkniefnamálum að undan- förnu. Hún sagði mjög mikilvægt að fíkniefnavandinn kæmi upp á yfir- borðið og það væri alvarlegt mál ef fólk væri svo hrætt um hefndarað- gerðir að það þyrði ekki að kæra hót- anir handrukkara til lögreglu. Mikil- vægt væri að lögreglan væri upplýst um slíkar hótanir og lög um vitna- vernd og nálgunarbann styddu þol- endur afbrota. Mesta forvörnin fari fram á heimilunum Birkir J. Jónsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, sagði ljóst að börn úr öllum stéttum þjóðfélagsins leiddust út í fíkniefnaneyslu. Hið op- inbera þyrfti að halda úti öflugu for- varnastarfi, en mesta forvörnin ætti að fara fram á heimilunum. Framtak forsvarsmanna fundarins væri virð- ingarvert og allir þyrftu að leggjast á eitt í baráttunni við sölumenn dauð- ans. Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, tók í sama streng og fagnaði stofnun þessara landssam- taka, því vakningu þyrfti til að vinna gegn þessum ófögnuði. Guðmundur Sesar Magnússon sagði að barátta foreldra fyrir lífi barna sinna, sem hefðu leiðst út í fíkniefnaneyslu, minnti því miður oft á bardaga við vindmyllur, en dóms- málaráðherra og félagsmálaráðherra hefðu lýst yfir vilja til samstarfs í þessu máli og fyrir það bæri að þakka. Aðgerða væri þörf því málið þyldi enga bið. Undirbúningsfundur að stofnun samtaka um málefni fjölskyldunnar Samstillt átak grund- vallaratriði Morgunblaðið/Kristinn Guðmundur Sesar Magnússon, forsvarsmaður undirbúningsfundarins, og Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra á fundinum. KRISTINN Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingar- bankans hf., vísar á bug sem firru þeim yfirlýsingum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á borgarstjórn- arfundi sl. fimmtudag að fjárvana verktakar í Grafarholti vinni að því að reisa íbúðir í skjóli bankans og bankinn hafi fengið lóðir þeirra framseldar til að forða þeim frá gjaldþroti. Kristinn furðar sig á málflutningi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og segir þá nota hvert tækifæri til að rífa Grafarholtið niður. Ummælin óvirðing við verktakana Fram kom á borgarstjórnarfund- inum að Frjálsi fjárfestingarbankinn er orðinn einn stærsti lóðarhafi í Grafarholti og á 284 íbúðir. „Við erum rétthafar að þessum lóðum,“ segir Kristinn. „Þetta er, eins og kom fram í svari Ingibjargar [Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra] hluti af okkar fjármögnunarferli. Þar sem ekki er hægt að veðsetja nema 50% hluta af lóðum í Reykjavík er þetta í raun og veru bara þáttur í fjármögnun fyrir verktakana. Þegar lóðarsamningur er svo útgefinn, eftir að búið er að steypa grunninn, þá færist þetta aftur yfir á verktakana og við tökum veð í framkvæmdun- um,“ segir hann. Kristinn segir ekkert óeðlilegt við þá fjármögnunarþjónustu sem bank- inn veitir verktökunum og hafnar með öllu þeim yfirlýsingum borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, að um fjárvana verktaka sé að ræða. Segir hann það mikla firru og óvirðingu við þá menn sem séu að byggja upp þetta hverfi í Grafarholtinu. „Þetta eru mjög sterkir byggingaverktak- ar, sem hafa byggt yfir 1.000 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann. „Þær lóðir sem eru í boði í borg- inni í dag eru þarna. Það er mikil eft- irspurn eftir að byggja þarna og það er hluti af okkar fjármagnsferli að veita þessa þjónustu. Við erum hins vegar eini aðilinn sem fer þessa leið að fá lóðirnar framseldar á okkur þangað til lóðarsamningur er gerður um lóðina,“ segir Kristinn og segist vera mjög bjartsýnn á uppbygg- inguna í Grafarholti. Furðar sig á niðurrifsstarfsemi „Við höfum verið að furða okkur á þessari niðurrifsstarfsemi hjá borg- arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins á Grafarholtinu. Þetta er búið að vera með eindæmum. Kannski má rekja hluta af þessum vanda sem var fyrir um ári til mjög neikvæðrar umfjöll- unar. Þeir nota hvert einasta tæki- færi til að rífa niður hverfið. Þetta hjálpar ekki við sölu,“ segir Kristinn. Framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingarbankans gagnrýnir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks Nota hvert tækifæri til að rífa Grafarholtið niður MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur borgar- stjóra: „Í Fréttablaðinu í gær eru höfð orð eftir Birni Bjarnasyni, borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um rekstur Leikskóla Reykjavíkur sem gera verður athugasemd við. Björn segir um nýsamþykkta gjaldskrár- hækkun leikskólanna: „Gjaldskrár- hækkun leikskólanna er sjúkdóms- einkenni sem sýnir einfaldlega að leikskólarnir eru illa reknir. Það er ekki reynt að komast að rótum vand- ans heldur gjöldin bara hækkuð.“ Hér er hart vegið að stjórnendum og starfsfólki leikskóla borgarinnar og ekki ástæða til þess að þeir sitji undir slíkum ávirðingum, enda full- yrðingar borgarfulltrúans með öllu úr lausu lofti gripnar. Hafa þarf í huga þegar rekstur leikskóla borgarinnar er skoðaður að 86% kostnaðarins eru fólgin í launakostnaði. Vegna síðustu kjara- samninga hefur á undanförnum tveimur árum launakostnaður þeirra aukist um 33% enda allir sam- mála um að laun starfsfólks leik- skóla þyrfti að bæta verulega. Það hefur verið gert. Nýir kjarasamn- ingar hafa vissulega leitt til aukins rekstrarkostnaðar, en taka verður fram að foreldrar greiða aðeins þriðjung af honum, en borgarsjóður tvo þriðju hluta. Þrátt fyrir heild- arkostnaðaraukningu hefur kostn- aður á dvalarstund í leikskóla farið lækkandi, eða um 100 krónur á dval- arstund milli áranna 2001–2002. Áætluð lækkun á næsta ári er tæpar 700 krónur á dvalarstund hvers barns. Þess ber einnig að geta að mismunur á fjárhagsáætlun Leik- skóla Reykjavíkur annars vegar og raunkostnaði hins vegar hefur á undanförnum árum einungis numið um 0,3% að meðaltali þannig að sjá má að því fer fjarri að þar hafi rekst- ur farið úr böndum. Þessar tölur sanna hversu vel starfsmenn og stjórnendur hjá Leik- skólum Reykjavíkur hafa haldið ut- an um rekstur leikskólanna, ekki að- eins náð að halda sér innan þess ramma sem þeim er sniðinn í fjár- hagsáætlun heldur einnig náð að lækka kostnað á hverja dvalarstund barns. Á sama tíma hefur launa- kostnaður hækkað um tugi pró- senta. Geri aðrir betur. Ég leyfi mér að fullyrða að hjá Leikskólum Reykjavíkur fari saman hagsýni og útsjónarsemi við erfiðar aðstæður. Starfsfólk og stjórnendur sem þar starfa eiga síst skilið þær köldu kveðjur sem borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins með Björn Bjarna- son í broddi fylkingar senda þeim þessa dagana.“ Yfirlýsing frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra Fer fjarri að rekstur leikskólanna hafi farið úr böndunum VERSLANIR Hagkaups munu um helgina endurgreiða virðisaukaskatt af öllum dömu- og herrafatnaði á Glasgow-dögum sem standa yfir í dag, laugardag, og á morgun, sunnu- dag. Í fréttatilkynningu segir að Hag- kaup vilji með þessu stuðla að því að verslun færist inn í landið svo við- skiptavinir þurfi ekki að fara til út- landa til að gera góð kaup. Þegar verslað er erlendis er hægt að fá virðisaukaskattinn endurgreiddan á flugvellinum og verður slíkt hægt í Hagkaupum þegar greitt er á kassa. Hagkaup Selja dömu- og herra- fatnað án vsk BORGARSTJÓRN Reykjavík- ur samþykkti á fundi sínum á fimmtudagskvöld að álagning- arstuðull útsvars í Reykjavík verði óbreyttur árið 2003, eða 12,79% á tekjur Reykvíkinga. Var það samþykkt með átta samhljóða atkvæðum meiri- hlutans. Fulltrúar minnihlutans sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Óbreytt útsvar í Reykjavík EDMUND Joensen, forseti færeyska lög- þingsins, og Daniel Skifte, forseti græn- lenska landsþingsins, komu til landsins síð- degis í gær í þeim tilgangi að funda með Halldóri Blöndal, forseta Alþingis. Þeir, ásamt Halldóri og föruneyti, héldu strax til Egilsstaða í gærkvöld, en í dag munu þeir m.a. sækja heim Síldarvinnsluna hf. í Nes- kaupstað og fleiri staði. Um hádegið verður siglt til Mjóafjarðar, þar sem laxeldisstöð Sæ- silfurs verður m.a. heimsótt. Þingforsetarnir fara til Reykjavíkur á morgun, sunnudag, en eftir hádegi fara þeir á vestnorrænu handverkssýninguna, sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Síðdegis munu þeir Joensen, Skifte og Halldór Blöndal funda í Alþingishúsinu ásamt embætt- ismönnum. Joensen og Skifte halda af landi brott á mánudag. Morgunblaðið/Kristinn Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tekur á móti Edmund Joensen, forseta færeyska lögþingsins, og Daniel Skifte, forseta grænlenska landsþingsins, á Reykjavíkurflugvelli í gær. Þingforsetar á Austfjörðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.