Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VATNINU í sturtum borgarbúa og
rafmagninu sem sér þeim fyrir lýs-
ingu er frá og með deginum í gær
stjórnað frá Réttarhálsi. Fyrsta
skrefið í flutningi Orkuveitu Reykja-
víkur var þá tekið þegar stjórnkerfi
veitnanna var fært yfir í nýjar höf-
uðstöðvar.
Að sögn Gunnars Aðalsteinssonar,
framkvæmdastjóra kerfisstjórnar
Orkuveitunnar, var mögulegt að
flytja stjórnkerfið án þess að það
raskaði rafmagns- og vatnsflæði í
borginni vegna þess að kerfið er tvö-
falt. „Þetta eru svokallaðir kerfaráð-
ar, annar fyrir vatnið og hinn fyrir
rafmagnið. Bæði þessi kerfi eru tvö-
föld. Fyrst fluttum við helminginn af
hvoru kerfi hingað upp eftir og
tengdum það á meðan við vorum með
hinn helminginn af stjórnstöðinni
niður frá virkan. Þegar þessir tveir
helmingar voru farnir að virka hérna
megin slökktum við niður frá og flytj-
um síðan þann hluta einnig upp eft-
ir.“
Von var á að kerfinu yrði að fullu
stjórnað frá Réttarhálsi í gærkvöldi
en hluti kerfisins er þó látinn bíða þar
til í dag af óvenjulegum ástæðum.
„Við erum frekar hjátrúarfullir í
bransanum þannig að við klárum
ekki fyrr en á laugardag þegar kerfið
sem stýrir götuljósunum verður flutt.
Þannig getum við sagt með góðri
samvisku að við flytjum á laugardegi
til lukku því þá kemur síðasti hlutinn
af þessum stjórnbúnaði hingað upp
eftir.“
Með fingurna í kross
Hann sagðist í gær ekki búast við
því að borgarbúar yrðu varir við
flutninginn. „Vonandi ekki en við er-
um svolítið með krosslagða fingur því
ef kerfið bilaði á meðan við værum
með það einfalt værum við svolítið illa
settir. En við myndum nú einhvern
veginn vinna okkur út úr því.“
Guðmundur Sigurvinsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitunnar, segir
flutning kerfisstjórnarinnar mikil-
vægan áfanga enda sé mikil tilhlökk-
un í starfsmönnum að flytja í nýjar
höfuðstöðvar. Með flutningnum sé á
vissan hátt rekinn endahnúturinn á
sameiningu veitufyrirtækjanna. „Það
er afskaplega mikilvægt fyrir okkur
sem höfum lent í þessari sameiningu
að komast undir eitt þak. Við lítum
eiginlega á kerfisstjórnina sem
hjarta fyrirtækisins því hún er fyrsti
staðurinn sem notendur okkar og við-
skiptavinir hafa samband við ef eitt-
hvað kemur upp á. Það fer kannski
lítið fyrir þessari deild en hún er
óskaplega mikilvæg. Þannig að hjart-
að fer fyrst og svo fylgir hitt á eftir.“
Kerfisstjórn Orkuveitu Reykjavíkur flutt í nýjar höfuðstöðvar við Réttarháls
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðmundur Sigurvinsson og Gunnar Aðalsteinsson við stjórnborðið þar
sem öll stjórnun á veitu rafmagns og vatns í borginni fer fram.
Hálsar
„Hjartað fer fyrst og
svo fylgir hitt á eftir“
ÞEIR voru eins og kóngar og
drottningar, krakkarnir á leikskól-
anum Brákarborg í gær þegar
haldið var upp á 50 ára afmæli skól-
ans. Af því tilefni gerðu börn og
starfsfólk leikskólans sér glaðan
dag og buðu aðstandendum og vel-
unnurum til afmælisveislu á opnu
húsi milli klukkan hálfþrjú og fjög-
ur.
Það vantaði heldur ekki
skemmtiatriðin því kór Brák-
arborgar söng nokkur lög fyrir
gestina auk þess sem þeir fengu
tækifæri til að spjalla saman og
skoða sig um í húsnæði skólans. Morgunblaðið/Golli
Haldið upp
á hálfa öld
Sund
SEX hreinræktaðir Hafnfirðingar
hafa tekið sér stöðu víðs vegar um
Hafnarfjörð og munu verða upp-
lýstir á næstunni. Ekki er um að
ræða mennska einstaklinga heldur
grenitré sem hafa alið alla sína tíð í
hafnfirskum görðum en hafa nú
horfið þaðan til að þjóna bæjarbú-
um sem jólatré næstu vikurnar.
Jólatrén koma frá húseigendum í
Hafnarfirði sem hafa viljað fjar-
lægja stór tré úr görðum sínum og
gert það með þeim hætti að gefa
bænum þau til skreytinga. Að sögn
Guðjóns Sverrissonar, verkstjóra
hjá Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar,
eru trén stór og myndarleg og vel
til þess fallinn að skreyta bæinn
með yfir hátíðarnar. „Þetta eru
mjög falleg tré en þau voru farin að
skyggja á í görðunum þannig að
fólkið hafði samband við garðyrkju-
stjórann okkar til að fá ráðlegg-
ingar um hvernig ætti að fella þau.
Þetta á sér langa sögu því í nokkr-
um tilfellum hringdi fólk síðasta
vetur og ef það hefur verið tilbúið
til að bíða fram að þessum tíma þá
höfum við tekið trén.“
Þetta er í fyrsta sinn sem bærinn
fær öll jólatrén sín gefins en fyrir
utan hafnfirsku grenitrén sex koma
tvö frá erlendum vinabæjum,
Cuxhaven og Frederiksberg. Þau
verða staðsett á Thorsplani og við
Flensborgarhöfnina og stendur til
að kveikja á þeim með viðhöfn hinn
7. desember næstkomandi. Hafn-
firsku trén verða hins vegar upplýst
á mánudag. Í gær var hins vegar
kveikt á öðrum jólaskreytingum í
bænum.
Biðlisti kominn fyrir næstu jól
„Þetta er svolítið sérstakt,“ segir
Guðjón. „Þetta byrjaði á einu tré en
svo fjölgaði þeim smám saman. Við
höfum verið að fá eitt og eitt tré
síðustu ár en núna náðist í tré fyrir
alla staðina.“
Reyndar má segja að framboðið
hafi gert gott betur en að anna eft-
irspurninni því að segja má að strax
sé kominn biðlisti fyrir næstu jól.
„Við fengum gefins þremur trjám of
mikið og erum ekki farnir að taka
þau en í fyrra var okkur gefin tré
rétt fyrir jólin sem við tókum fyrst
núna,“ segir Guðjón. „Það er nátt-
úrlega heilmikill kostnaður fyrir
fólk að fjarlægja þetta sjálft og ef
það er tilbúið að bíða með að gefa
trén fram að jólum þá er það bara
besta mál.“
Hann tekur undir að þetta geti
verið ágætis innlegg í sparnaðar-
aðgerðir bæjarins og segir að
kannski þyki fólki vænt um að vita
af því að trén geri eitthvert gagn
eftir að þau eru farin úr görðunum.
Hafnfirsku trén eru við Hamar-
inn, Ljónagryfjuna svokölluðu við
Klapparholt, á hringtorginu við A.
Hansen, í Engidal og loks eru tvö
tré staðsett við Sólvang. Þau eiga
því eflaust eftir að gleðja bæjarbúa
í svartasta skammdeginu fram yfir
jólin.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðjón Sverrisson við stórt og myndarlegt grenitré sem íbúar við Hraun-
kamb 4 gáfu. Tréð var farið að skyggja um of á sólina og því endar það daga
sína í þjónustu við Hafnfirðinga sem jólatré á hringtorginu við A. Hansen.
Upplýstir
Hafnfirð-
ingar á að-
ventunni
Hafnarfjörður
STEFÁN Hermannson borgarverk-
fræðingur segir að einhverjar vikur
muni líða þar til búið verði að breyta
staðarmörkum Reykjavíkur og
Kópavogs og lóðirnar fimm við
Bleikargróf í Kópavogi verði til að
mynda innlimaðar í Reykjavík.
Fyrir liggur umsögn borgarlög-
manns þar sem lagt er til að borg-
arráð samþykki tillöguna og borgar-
stjóra verði falið að ganga endanlega
frá formlegu samkomulagi við bæj-
arstjórn Kópavogs um breytinguna
og leggja hana fyrir félagsmálaráð-
herra til staðfestingar. Jafnframt að
óskað verði breytinga á kosningalög-
um reynist slíkt nauðsynlegt að mati
stjórnarráðsins.
Að sögn Stefáns verður málið að
öllum líkindum tekið fyrir á næsta
borgarráðsfundi. Hann segir að farið
verði að óskum íbúa í Bleikargróf og
að gatan verði botnlangi en ekki
gegnumakstursleið.
„Þetta tengist auðvitað fram-
kvæmdum við mislæg gatnamót sem
gert er ráð fyrir að bjóða út á fyrstu
mánuðum næsta árs. Í tengslum við
það myndum við væntanlega fara í
að gera hljóðmanir og lagfæringar á
götum sem af þessu leiða,“ segir
Stefán.
Gatan
verður
botnlangi
Færsla Bleikargrófar
tekur einhverjar vikur
Kópavogur/Reykjavík