Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 31
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 31
STARFSHÓPUR um gerð fjöl-
skyldustefnu í Reykjanesbæ beinir
þeim tilmælum til íbúa bæjarins, ein-
staklinga, hópa, félaga og samtaka,
að senda honum hugmyndir um at-
riði sem þeir telja mikilvæg í slíkri
stefnu.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hef-
ur ákveðið að mótuð skuli heildstæð
fjölskyldustefna í sveitarfélaginu,
sem taki mið af þörfum fjölskyldunn-
ar og þá sér í lagi barnafjölskyldna
með það að markmiði að auðvelda
þeim að rækja hlutverk sitt.
Öll stjórnsýslusvið bæjarins koma
með einum eða öðrum hætti að mót-
un stefnunnar en fjölskyldu- og fé-
lagsþjónusta Reykjanesbæjar fer
með verkefnisstjórn. Verklok eru
áætluð í mars 2003.
Í fréttatilkynningu frá starfshópn-
um segir að til þess að fjölskyldu-
stefna verði eitthvað meira en falleg
orð á pappír telji hann nauðsynlegt
að sem flestir komi að gerð hennar,
því þannig sé best tryggt að sjón-
armið flestra komi fram og um leið
meiri líkur á að stefnunni verði fram-
fylgt. Því hafi verið ákveðið að beina
því til íbúanna að senda inn hug-
myndir um atriði sem þeir telja mik-
ilvæg í slíkri stefnu.
Tillögum skal skilað á skrifstofu
fjölskyldu- og félagsþjónustunnar í
Kjarna, Hafnargötu 57, 230 Kefla-
vík, merkt Fjölskyldustefna b/t
Hjördís Árnadóttir, eigi síðar en 15.
desmber 2002. Einnig má skila til-
lögum í tölvupósti á netfangið hjor-
dis.arnadottir@reykjanesbaer.is.
Óskað eftir
hugmynd-
um í fjöl-
skyldustefnu
Reykjanesbær
GEFIN hefur verið út handbókin
Vettvangsferðir um nánasta um-
hverfi leikskólans. Bókin er af-
rakstur þróunarverkefnis sem
unnið hefur verið að á leikskól-
anum Tjarnarseli í Keflavík.
Björk Guðjónsdóttir, forseti bæj-
arstjórnar Reykjanesbæjar, og
Guðríður Helgadóttir leikskóla-
fulltrúi tóku við eintökum af
handbókinni á afmælishátíð sem
haldin var á leikskólanum í gær.
Nemendur, foreldrar og starfs-
fólk Tjarnarsels minntust þess í
gær að liðin eru 35 ár frá því
Keflavíkurbær hóf rekstur leik-
skólans Tjarnarsels. Áður höfðu
kvenfélagskonur rekið barna-
heimili á sumrin frá 1954, meðal
annars í félagsheimili sínu,
Tjarnarlundi. Kvenfélagskonur
gáfu síðan bæjarfélaginu lóð und-
ir barnaheimilið Tjarnarsel. Er
það elsti leikskóli Reykjanesbæj-
ar.
Í gær var afmælisins minnst og
voru meðal annars tvær forystu-
konur kvenfélagsins á þessum
tíma, Guðrún Árnadóttir og Guð-
rún Ármannsdóttir, viðstaddar en
þær unnu mikið fyrir barnaheim-
ilið.
Fram kom í máli Ingu Maríu
Ingvarsdóttur leikskólastjóra að
starfsfólk skólans hefur, undir
stjórn fimm leikskólakennara,
unnið að verkefninu Vettvangs-
ferðir um nánasta umhverfi leik-
skólans frá því vorið 1997 að
skólinn fékk fyrst styrk úr Þró-
unarsjóði leikaskóla hjá mennta-
málaráðuneytinu. Eitt af mark-
miðum þess var að þjálfa og
kenna börnunum umhverfishugs-
un sem fælist meðal annars í því
að gefa umhverfi sínu nánari
gaum og þykja vænt um uppruna
og sögu bæjarfélagsins.
Afraksturinn varð handbók
sem kom út í gær. Hún er ætluð
leikskólakennurum í öllum leik-
skólum bæjarins til að þróa vett-
vangsferðir með börnunum.
Fjallar er um hlutverk kennarans
í því efni. Þá má finna í henni
upplýsingar og lýsingar á svæð-
unum og möguleikum þeirra til
leikja og náttúruskoðunar og
upplýsingar um hættur sem
skapast geta í slíkum ferðum.
„Ekki er hægt að líta svo á að
vinnu okkar sé lokið nú þegar
handbókin lítur dagsins ljós. Við
munum áfram upplifa og fagna
hverri nýrri vitneskju um nán-
asta umhverfi okkar sem breytist
dag frá degi, hvort heldur er frá
hendi náttúrunnar eða af manna-
völdum. Þótt starfsfólk hætti og
nýir bætist við á að vera auðvelt
að halda verkefninu áfram þar
sem grunnur hefur verið lagður,“
sagði Inga María meðal annars á
hátíðinni í gær.
Minnast 35 ára afmælis
leikskólans Tjarnarsels
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri færði Guðrúnu Árnadóttur og
Guðrúnu Ármannsdóttur rós fyrir stuðning við leikskólann.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Leikskólabörn sungu afmælissönginn og fleiri lög á hátíðinni í gær.
Skila af sér hand-
bókum um
vettvangsferðir
Keflavík
FRÆÐASETRIÐ í Sandgerði hef-
ur fengið fiskinn stóru sænál lif-
andi og er hann geymdur í fiska-
búri í húsnæði setursins. Er talið
trúlegt að þetta sé eini fiskurinn
af þessari tegund sem til er lif-
andi í safni hér á landi.
Skipverjar á Hólmsteini GK
komu með fiskinn til Sveins Kára
Valdimarssonar, forstöðumanns
Náttúrustofu Reykjaness í Sand-
gerði. Fann hann fljótt út að
þetta væri stóra sænál. Skipverj-
arnir tóku eftir fiskinum þegar
þeir voru að draga netin um sjö
mílur austur af Garðskaga, en
hann hafði vafið sig um einhvern
hluta veiðarfæranna. Þeir settu
hann í fötu og fóru í Fræðasetr-
ið.
Sveinn segir að fiskurinn verði
geymdur í Fræðasetrinu, þar til
hann deyr. Þá hafi Gunnar Jóns-
son fiskifræðingur áhuga á að
láta teikna hann upp. Sveinn
vonast til að önnur sænál finnist
af gagnstæðu kyni og hægt
verði að láta þær fjölga sér í
Fræðasetrinu.
Stóra sænálin er brún á lit,
ákaflega mjóvaxin og um 25
sentímetrar að stærð. Fiskurinn
getur orðið rúmlega metri við
hagstæð skilyrði. Heimkynni
hans eru frá Asóreyjum og
Portúgal, norður til stranda
Noregs og Íslands.
Fram kemur í Fiskabókinni að
hér hefur stóru sænálar orðið
vart við vestanverða suður-
ströndina og í Faxaflóa. Lætur
Sveinn þess getið að Gunnar
Jónsson sem fylgst hafi með
furðufiskum í fjörutíu ár hafi í
fyrsta skipti séð stóru sænál
með eigin augum síðastliðið vor.
Stóra sænál náðist lifandi í land
Sandgerði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stóra sænálin er um 25 sentímetra löng.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Reynir Sveinsson í Fræðasetrinu og
Sveinn Kári Valdimarsson í Nátt-
úrustofu Reykjaness halda á íláti
með stóru sænál.
AXEL Svan Kortsson og Lauf-
ey Svala Kortsdóttir sem búa
að Víkurbraut 17 í Sandgerði
færðu Hvalsneskirkju tvö-
hundruð þúsund krónur að gjöf
til minningar um foreldra sína
Kort Elísson (f. 1883) og Guð-
nýju Gísladóttur (f. 1884) en
þau bjuggu að Melabergi á
Miðnesi. Gjafaféð er notað til
að kosta lagfæringar á þaki
kirkjunnar.
Í fréttatilkynningu frá sókn-
arnefndinni kemur fram að lok-
ið er við að setja kopar á þak
kirkjunar ásamt því að turn
hefur verið lagfærður og mál-
aður, svo og gluggar og hurðir.
Hvalsnes-
kirkju
færð gjöf
Sandgerðisbær