Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 24
ERLENT 24 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁTÖK milli óeirðaseggja úr röðum múslíma og kristinna íbúa borgarinn- ar Kaduna í Norður-Nígeríu hafa kostað a.m.k. hundrað manns lífið, að sögn Rauða krossins í gær. Átökin blossuðu upp á miðvikudag þegar múslímar mótmæltu grein í nígeríska dagblaðinu This Day þar sem sagt var að hefði Múhameð spámaður séð kvennavalið á fegurðarsamkeppninni Ungfrú heimur, sem haldin verður í Nígeríu, hefði hann líklega tekið sér eina af fegurðardrottningunum fyrir konu. Margir múslímar eru andvígir því að fegurðarsamkeppnin verði haldin í Nígeríu og upp úr sauð þegar greinin var birt. Ungir múslímar gengu ber- serksgang um göturnar, réðust á veg- farendur með hnífum og bareflum, kveiktu í íbúðarhúsum, kirkjum og bílum. Óeirðaseggir úr röðum krist- inna borgarbúa svöruðu í sömu mynt, drápu múslíma og kveiktu í moskum. Hermenn hleyptu af byssum til að reyna að binda enda á átökin. Hópar kristinna ungmenna héldu óeirðunum áfram í gær. Þúsundir íbúa borgarinnar forðuðu sér inn í lögreglustöðvar og byggingar hersins í Kaduna. Reykjarmökk lagði yfir borgina frá húsum og vegartálmum sem óeirða- seggirnir kveiktu í. Stjórn Nígeríu sendi hundruð hermanna inn í borg- ina til að stilla til friðar og dregið hafði úr átökunum í gær. George Bennet, yfirmaður Al- þjóðasambands Rauða krossins í Níg- eríu, sagði að 50 manna hjálparsveitir nígeríska Rauða krossins hefðu fund- ið um 100 lík. Hann lagði áherslu á að glundroðinn væri svo mikill í borginni að ekki væri vitað með vissu hversu margir hefðu látið lífið. Að minnsta kosti 520 borgarbúar særðust og voru fluttir á sjúkrahús. Svipuð átök milli múslíma og krist- inna íbúa Kaduna kostuðu 2.000 manns lífið fyrir tveimur árum. Óttast að óeirðirnar breiðist út Leiðtogar múslíma og kristinna í Kaduna hvöttu ungmennin til að hætta óeirðunum eftir fund með níg- erískum embættismönnum í gær. Óttast var að óeirðirnar breiddust út og hópar múslíma kveiktu í bílum í höfuðborginni, Abuja, eftir bænasam- komur í gær. Öryggissveitir voru á varðbergi á götum stærstu borga landsins þar sem íslamskar konur mótmæltu fegurðarsamkeppninni og kröfðust þess að henni yrði aflýst. „Stjórnin verður að banna þessa smánarlegu sýningu. Bannað er að konur sýni karlmönnum, öðrum en eiginmönnunum, líkama sinn,“ sagði ein kvennanna. Fegurðarsamkeppnin Ungfrú heimur verður haldin í Abuja eftir hálfan mánuð. Íslamskar hreyfingar höfðu mótmælt því að samkeppnin og sýningar sem tengjast henni yrðu haldnar í Nígeríu á föstumánuði múslíma, ramadan. Skipuleggjendur keppninnar ákváðu því að fresta sam- keppninni til 7. desember þegar ram- adan er lokið. Talsmaður skipuleggjendanna sagði í gær að samkeppninni yrði ekki aflýst þrátt fyrir blóðsúthellingarnar í Kaduna. Ráðgert er að þátttakend- urnir í keppninni, 90 stúlkur, taki þátt í tískusýningu í borginni Port Har- court í suðurhluta landsins í dag. Áhrifamikil nefnd íslamskra fræði- manna lýsti fegurðarsamkepninni sem „léttúðugri sýningu á ósiðsemi og nekt“ og hvatti stjórn Nígeríu til að banna hana. Stjórnin hefur ekki svarað þessu en lofað að saksækja ritstjóra This Day fyrir að birta greinina sem varð til þess að óeirðirnar hófust. Ritstjór- arnir hafa fjórum sinnum beðist af- sökunar á greininni á forsíðu blaðsins og segja að ummælin um Múhameð spámann hafi verið birt fyrir mistök. „Hvað hefði Múhameð spámaður hugsað? Í sannleika sagt hefði hann sennilega valið sér konu úr hópnum,“ skrifaði höfundur greinarinnar sem þótti að öðru leyti ekki móðgunarefni. Hundrað manns liggja í valnum eftir óeirðir Skorað á stjórn Nígeríu að banna feg- urðarsamkeppnina Ungfrú heim Kaduna. AFP, AP. &'()* +,-.                             ! " #$%& #'      HERMAÐUR kemur ísraelskum fána fyrir á húsi nálægt Betlehem eftir að Ísraelar hertóku bæinn að nýju í gær. Fjórir voru skotnir til bana, þar á meðal brezkur starfs- maður Sameinuðu þjóðanna og palestínskur drengur, þegar her- inn ruddist fram í bæjum á Vest- urbakkanum og á Gaza í gær. Þessar aðgerðir hersins voru liður í viðbrögðum Ísraela við sjálf- morðssprengjuárás Palest- ínumanns í strætisvagni í Jerúsal- em í fyrradag, þar sem ellefu manns dóu auk tilræðismannsins. Bretinn hét Ian Hook og var verkefnisstjóri áætlunar SÞ um endurbyggingu íbúðarhúsa í flóttamannabúðunum í Jenin, en þær eru meira og minna í rústum.Reuters Ísraelsher hertekur Betlehem YFIRLÖGREGLUSTJÓRINN í Indónesíu sagði í gær að maðurinn, sem grunaður er um að hafa skipu- lagt sprengjutil- ræðið á Balí í síð- asta mánuði, hefði játað aðild sína að ódæðinu, sem og öðrum sprengjuárásum í Indónesíu undan- farin tvö ár. Mað- urinn, Imam Samudra, var handtekinn á fimmtudag. Samudra er sagður 35 ára að aldri. Da’i Bachtiar, hershöfðingi og yfir- lögreglustjóri í Indónesíu, sagði Samudra hafa skipulagt sprengju- árásina á Balí, þar sem fórust um 190 manns, og bætti Bachtiar því við að Samudra hefði ákveðið hvar og hve- nær sprengt var. Einnig hefði hann viðurkennt að hafa komið að sprengjuárásum í Jak- arta, Batam og víðar í Indónesíu um jólin 2000, en þær kostuðu 19 manns lífið. Þá sagði I Made Mangku Pastika, hershöfðingi á Balí, að Samudra hefði greint frá því við yfirheyrslur að maður að nafni Iqbal hefði komið sprengjunni fyrir á Paddýs Bar á Balí, þar sem önnur af tveimur sprengjunum sprakk. Mun Iqbal sjálfur hafa farist í sprengingunni. Lögreglan segir átta manns hafa far- ist í sprengingunni á Paddýs Bar en hún sprakk örskömmu áður en sprengjan á skemmtistaðnum Sari sprakk. Munu nokkrir þeirra, sem létust í seinni sprengingunni, hafa verið að flýja þá fyrri. Samudra mun hafa búið í Afgan- istan í tvö og hálft ár og í Malasíu í sex ár, en þar kynnti hann sér vopn og vopnabúnað. Hann er sagður einn forystumanna samtakanna Jemaah Islamiyah, sem tengjast al-Qaeda. Sagður játa aðild að árásinni á Balí Jakarta, Cilegon. AP, AFP. Imam Samudra ER Mannréttindadómstóll Evrópu í kreppu? Hefur verið slakað á kröfum um mannrétt- indi til að tryggja nýjum ríkj- um aðild að Evrópu- ráðinu? Þess- um spurning- um og öðrum verður varpað fram á fundi sem haldinn verður á veg- um Mannrétt- indaskrifstofu Íslands á mánudag kl. 16.30 í Litlu-Brekku við Bankastræti. „Það má segja að dómstóll- inn eigi við töluverðan vanda að stríða vegna stækkunar Evrópuráðsins,“ segir Björg Thorarensen, prófessor í lög- fræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið en Björg er einn af þremur frum- mælendum á fundinum. Auk hennar munu þar taka til máls þingmennirnir Lára Margrét Ragnarsdóttir og Margrét Frí- mannsdóttir en þær hafa báð- ar átt sæti á þingi Evrópuráðs- ins um árabil. Björg segir að sú staðreynd að aðildarríkjum að Evrópu- ráðinu hafi fjölgað úr 23 árið 1990 í 44 hafi haft þær afleið- ingar að málum, sem vísað er til dómstólsins, fjölgaði gífur- lega. Bárust dómstólnum 4.044 kærumál vegna brota á mann- réttindasáttmálanum árið 1988, en árið 2001 bárust 31.393 kærumál. Auk þess hafi innganga Austur-Evrópuþjóða haft breytingar í för með sér. Margar þeirra séu á mótunar- skeiði hvað varðar lýðræðis- legt stjórnarfar, mörg álitamál og erfið úrlausnarefni hafi því komið inn á borð dómstólsins af þeim sökum. Hitt sé einnig vandamál að Evrópuráðið sé ekki lengur samtök svipaðra, skyldra ríkja. Aðildarríkin séu nú mjög ólík innbyrðis, hvert með sína sér- stöðu. Þetta flæki óhjákvæmi- lega málin, mannréttindadóm- stóllinn eigi erfiðar með það en áður að vísa til sameiginlegra grundvallarreglna sem gilda í allri Evrópu. Mannrétt- indadóm- stóllinn í kreppu? Björg Thorarensen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.