Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 67
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 67 Hús Kattavinafélags Íslands, Kattholt, verður opið á morgun, sunnudaginn 24. nóvember, kl. 13– 17. Starfsemi Kattholts verður kynnt og sýndir kettir sem fundist hafa í Reykjavík og nágrenni og vantar heimili. Þeir sem týnt hafa kekki geta kannað hvort hann sé í Kattholti. Jólamarkaðurinn verður opinn og rennur allur ágóði af sölu hans til katta. Allir velkomnir. Ferðafélag Íslands efnir til göngu- ferðar á Reykjanesskaga á morgun, sunnudaginn 24. nóvember. Gengið verður af Grindavíkurvegi austan Þorbjarnarfells á Melhól og síðan á Sundhnúksgíga. Gangan endar við Festarfjall austan Grindavíkur. Gangan tekur um 3 klukkustundir. Fararstjóri í ferðinni er Sigurður Kristjánsson. Brottför er frá BSÍ kl. 11 og komið við í Mörkinni 6. Þátt- tökugjald er 1.700 kr. fyrir fé- lagsmenn og 1.900 kr. fyrir aðra. Á MORGUN Ráðstefna um nýtingu lands norðan Vatnajökuls verður haldin á á Hótel Héraði, Egilsstöðum, fimmtudaginn 28. nóvember til efl- ingar byggðar á Austur- og Norður- landi. Ráðstefnan er haldin að frum- kvæði þróunarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga á svæðinu. Fjallað verður um þjóð- garðinn með tilliti til fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda. Sérfræðingar lýsa viðhorfum til landnýtingar og náttúruverndar. Upplýsingar veita Óðinn Gunnar Óðinsson, Þróun- arstofu Austurlands og Tryggvi Finnsson, Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Garðyrkjuskólinn stendur fyrir tveimur jólaskreytingarnám- skeiðum. Námskeiðunum verður skipt upp í tvo þætti, jólaskreytingar fyrir hádegi en jólaeftirréttir og jólakonfekt eftir hádegi. Nám- skeiðin verða laugardaginn 30. nóv- ember kl. 10–16 og laugardaginn 7. desember kl. 10–16 í húsakynnum skólans. Leiðbeinandi í blóma- skreytingahlutanum verður Júlíana Rannveig Einarsdóttir, fagdeild- arstjóri á blómaskreytingabraut. Sólveig Eiríksdóttir á Grænum kosti kennir fólki að útbúa sykurlaust jólakonfekt og eftirrétti. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá end- urmenntunarstjóra skólans eða á heimasíðunni, www. reykir.is. Á NÆSTUNNI Sýning í Skála Alþingishússins á munum og skjölum í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að vélræn upp- taka á þingræðum hófst stendur nú yfir. Á sýningunni má m.a. sjá gömul hljóðupptökutæki og hraðrit- unargögn. Einnig gefst tækifæri til að hlusta á raddir allra forsætisráð- herra frá 1952. Jafnframt er hægt að heyra brot af fyrstu tilraunaupptök- unni sem gerð var 1949. Sýningin í Skálanum er opin almenningi kl. 10– 12 og kl. 14–16 á virkum dögum til 13. desember. Í dag, laugardaginn 23. nóvember er sýningin opin kl. 13–17. Uppákomur í Smáralind um helgina Í dag, laugardaginn 23. nóv- ember, kl. 14–16, Listahátíðin Láttu drauminn rætast fer fram í boði Æv- intýraklúbbsins-Félagsstarfs þroskaheftra og Clarins. Blikandi stjörnur taka lög úr Hárinu og Jesus Christ Superstar. Tónlistar- myndband með Margréti Eiri söng- konu og leikurum í myndinni ,,Láttu drauminn rætast“ verður frumflutt auk þess sem atriði úr myndinni verða sýnd. Tískusýning verður á vegum Debenhams og Magadans.is þar sem módel frá Ævintýraklúbbn- um, Sólheimum og Hinu húsinu sýna ásamt magadansmeyjum. Sóley dansari frá Skálatúni sýnir listir sín- ar og hljómsveitin Daysleeper leikur lög af plötu sinni Evealice. Þá gefst gestum tækifæri á að skoða mynd- listarsýningu Ævintýraklúbbsins og Sólheima í Vetrargarðinum. Sunnudaginn 24. nóvember mun Ís- lenskum tónlistardögum sem staðið hafa yfir í verslun Hagkaupa í Smáralind ljúka með tónleikum í Vetrargarðinum. Þar koma m.a. fram Írafár, Í svörtum fötum, Rott- weiler, Geirmundur Valtýsson, Eyj- ólfur Kristjánsson, Papar, Bjarni Ara og Silja, Daysleeper, Selma og Hansa. Allar hljómsveitir sem fram koma árita plötur sínar að lokinni spilun auk þess sem öll íslensk tón- list verður seld á staðnum og í versl- un Hagkaupa með 25% afslætti. Tilboð verða á bíómiðum í Smárabíói til sunnudags á allar myndir nema Swimfan og kostar bíómiðin 300 kr. Tilboðið gildir ekki í lúxussal, segir í fréttatilkynningu. Jólalandið í Vetrargarðinum í Smáralind hefur verið opnað. Opið hús hjá Félagi húsbílaeig- enda verður í Húnvetningabúð laugardaginn 23. nóvember kl. 14– 17. Sýndar verða myndir fá liðnu sumri og verða félagsmenn með handverk sitt til sýnis og sölu. Heitt kaffi verður á könnunni. Kl. 21 verð- ur skemmtum fram eftir kvöldi. Tískusýning í Hafnarborg Menn- ingar og listastofnun Hafnarfjarðar, í dag, laugardaginn 23. nóvember, kl. 17. Sýndur verður fatnaður frá Ástu Guðmundsdóttur sem er ein af meðlimum Kirsuberjatrésins, Vest- urgötu 4, og Ingibjörgu Hönnu Pét- ursdóttur, hún leggur áherslu á hönnun á kvenfatnaði úr þæfðri ís- lenskri ull. Einnig verða til sýnis skartgripir frá Aurum, Laugavegi 27, hannaðir af Ásu Gunnlaugs- dóttur og Guðbjörgu Kr. Ingv- arsdóttur. Í DAG Stuðningsmenn Katrín Fjeldsted 4. sæti •Fylgir sannfæringu sinni •Rödd hins hófsama sjálfstæðismanns •Eini læknirinn á Alþingi Ljúffengur kostur! Op ið a l l a daga t i l 21 www.noa tun . i s f a s t la n d - 8 4 5 3 Hagsýnar húsmæður og heimilisfeður vita að kjúklingur er ódýr og ljúffengur kostur sem má nota á hundrað mismunandi vegu. Nú erum við með leggi og læri á sérstöku tilboði, 449 kr./kg og ferskar, beinlausar og skinnlausar bringur á 1399 kr./kg., en þær eru tilvaldar í ýmsa austurlenska rétti, sallöt og smárétti. Fyrir heilan eða grillaðan kjúkling mælum við með að þú prófir villisveppasósuna okkar eða púrtvíns- eða rauðvínssoð að hætti Nóatúns. Nýtt! Verði þér að góðu! Ferskar Móa skinnlausar bringur pr .k g.1399 Ferskir Móa leggir og læri pr .k g.449 Ferskur Móa kjúklingur pr .k g.395 www.bolstrun.is/hs Allt um bólstrun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.