Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 59
Fundarherbergi
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 59
ÞAÐ kom mér ekki á óvart að sjá
grein eftir Jakob Björnsson, fyrrver-
andi orkumálastjóra, um virkjana-
áform og stóriðju á Íslandi í Morg-
unblaðinu 6. október sl. Það kom
mér aftur á móti á óvart að hann
skyldi ráðast á Halldór Laxness fyr-
ir greinina Hernaðinn gegn landinu,
sem hann skrifaði á gamlársdag
1970. Þarna var Jakob að reyna að
sýna fram á að Halldór hefði haft
rangt fyrir sér, og áform Landsvirkj-
unar og stjórnvalda hefðu verið allt
önnur og betri. Hann velur það að
skýra ekki frá því sem hann og skoð-
anabræður hans sögðu og skrifuðu á
þessum tíma og Halldór var að
svara, heldur ber skrif Halldórs við
nútímann, sem skoðanir Halldórs og
annarra hafa mótað og gert yfir-
bragð virkjanaáætlana aðeins mild-
ara gagnvart náttúrunni en það var
fyrir 32 árum.
Jakob skýrir frá því að þrátt fyrir
að hrakspár Halldórs um framtíð
Mývatns vegna „efnabrennsluhelvít-
is“ Kísiliðjunnar hafi Mývatni ekki
verið tortímt. Satt er, Mývatn er enn
á sínum stað, en lífríki þess hefur
tekið miklum breytingum síðan Kís-
iliðjan hóf rekstur sinn og framhald-
ið er óljóst.
Næst reynir Jakob að sýna fram á
að það hafi ekki verið ætlun Lands-
virkjunar eða stjórnvalda að eyði-
leggja Þjórsárver og „reynt hefur
verið að draga úr skaðlegum áhrifum
á umhverfið“. Sem betur fer tókst að
koma í veg fyrir ráðagerðir um 200
km² lón í Þjórsárverum, m.a. fyrir
tilstilli greinar Halldórs, en 15. júní
1969 hafi framkvæmdastjóri Lands-
virkjunar „frá því skýrt“ í Morgun-
blaðinu „að á fyrsta virkjunarstigi
yrði að öllum líkindum aðeins stíflað
upp í hæð 582. Við slíka stíflu færi
nokkurt graslendi í kaf, en þó lítið.
Aðalgæsavarpið er nú rétt innan
þess svæðis sem færi undir vatn.
Yrði í því tilfelli að flytja varpstöðvar
sínar um 2 km til vesturs“ og „síðar
yrði hins vegar að reikna með að lón-
ið yrði hækkað um eða yfir 10 metra.
Þá yrði að hefja ræktun á svæðinu til
að sjá gæsinni fyrir nýjum beitilönd-
um og gera aðrar þær ráðstafanir
sem niðurstöður rannsókna segðu
fyrir um“. Í gegnum þessa vitleysu
sá Halldór, en ekki Jakob. Nú sækir
Landsvirkjun enn í að stækka lónin í
Þjórsárverum. Ef áform Landsvirkj-
unar verða að veruleika verða lón í
Þjórsárverum orðin 60–70 km², þrátt
fyrir samkomulag um að Náttúru-
vernd ríkisins sé leyfisveitandi, og
hefur hún lagst gegn framkvæmd-
unum þar sem þær rýra náttúru-
verndargildi Þjórsárvera óhæfilega.
Jakob ásakar einnig Halldór um
þann „misskilning“ „að rafmagn frá
54 megawatta virkjun í Laxá hafi
verið ætlað til þarfa „stórra orkunot-
enda““. Þarna fer Jakob alveg yfir
strikið, því hann gleymir sjálfur
frægri grein sem hann skrifaði í 2.
tbl. Samvinnunnar 1970 um virkj-
anaáform í Laxá í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Þar segir hann: „En Laxá býð-
ur upp á enn meiri virkjunar-
möguleika en við Brúar. Frá
Mývatni niður að fyrirhuguðu lóni í
Laxárdal er á annað hundrað metra
fall, og í Kráká er sömuleiðis svipuð
fallhæð tiltæk. Með Suðurárveitu
verða þessar fallhæðir álitlegri til
virkjunar. Með veitu úr Skjálfanda-
fljóti eykst enn hagkvæmni þeirra.
Virkjunin við Brúar er þannig aðeins
byrjunin og Gljúfurver er aðeins
hluti af fullvirkjun við Brúar.“ –
„Með hliðsjón af þeim margvíslegu
auðlindum, sem Laxár-Mývatns-
svæðið hefur að geyma, og að fram-
an er vikið að, virðist mér það nálg-
ast barnaskap að ímynda sér, að
núverandi umhverfi á svæðinu geti
haldizt óbreytt. Með því er vitanlega
ekki sagt, að einstakir staðir, svo
sem gígar, eldfjöll, eyjar o.fl., geti
ekki haldizt óbreyttir innan skyn-
samlegs heildarskipulags.“ Þrátt
fyrir samkomulag við bændur 1973
um að fara ekki fram á hækkun stíflu
í Laxá hefur Landsvirkjun boðað
hækkun hennar nýlega, kannski sem
næsta skref til að uppfylla gamlan
draum.
Það er alveg skýrt hver áformin
voru 1970 þegar Halldór skrifaði
sína grein og þau eru uppi enn. Grein
Jakobs er einfaldlega uppspuni frá
rótum, til að sverta minningu mesta
skálds 20. aldarinnar og á sama tíma
hvítþvo sjálfan sig og aðra náttúru-
böðla. Grein Halldórs, „Hernaðurinn
gegn landinu“, á sama erindi til les-
enda í dag og hún átti fyrir þremur
áratugum.
Skáldaníðingur
Eftir Gísla
Má Gíslason
Höfundur er prófessor í vatna-
líffræði við Háskóla Íslands.
„Grein Jak-
obs er ein-
faldlega
uppspuni frá
rótum. “
í p r ó f k j ö r i S j á l f s t æ ð i s f l o k k s i n s í R e y k j a v í k
Kosningaskrifstofan, Suðurlandsbraut 8, verður opin frá kl. 11 – Kosningavaka hefst kl. 18 · sími: 594 7660 · www.astamoller.is
Ég gef kost á mér til áframhaldandi setu á Alþingi
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
Stöndum saman og tökum þátt í prófkjörinu
Góð þátttaka er þýðingarmikið
veganesti fyrir alþingiskosningarnar að vori
og vonast eftir stuðningi ykkar í 4.-5. sæti