Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 60
UMRÆÐAN 60 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Hallvarðsson var aðalhvatamaður að stofnun sambands eldri sjálfstæðismanna, en hann varð var við að eldri sjálf- stæðismenn töldu sig lenda til hliðar í störfum sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík. Hvatti Guðmundur því til og stóð að stofnun sambands eldri sjálfstæðismanna. Það hefur sýnt sig og sannað að samband eldri sjálfstæðismanna eru með öflugri félögum eldri borgara í dag. Guð- mundur vill efla og bæta réttindi ellilífeyrisþega er vilja búa sem lengst í eigin húsnæði og njóta engra aðstoðar við. Með störfum sínum hjá DAS hefur Guðmundur Hallvarðsson sannað að betri mál- svara fyrir hagsmuni eldri borgara er vart hægt að finna. Um helgina fer fram prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ég hvet því alla þá sem taka þátt í prófkjörinu til að setja Guðmund í fimmta sætið og tryggja þannig að málsvari eldri borgara fái öruggt sæti. Guðmundur er öflugur málsvari eldri borgara Svava Sigurjónsdóttir, í stjórn sjálfstæð- ismanna í Nes- og Melahverfi, skrifar: Í DAG lýkur prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík. Grundvöllur stefnu Sjálfstæðisflokksins er ein- staklingsfrelsið, sem birtist m.a. í þátttökuréttinum í prófkjörum – að hafa áhrif á röðun frambjóðenda á listum hans í sveitar- og þingkosn- ingum. Ég hef átt sæti á Alþingi frá 1991 og býð mig nú fram í þriðja sæti listans í Reykjavík. Í Alþingiskosn- ingunum í vor verður kosið í fyrsta sinn skv. nýrri kjördæmaskipan sem ætlað er að stuðla að auknu jafnvægi atkvæða landsmanna. Alþingis- mönnum Reykvíkinga mun fjölga, en þar ætlum við sjálfstæðismenn okk- ur stóran hlut. Mikilvægt er að flokksmenn neyti lýðræðislegs rétt- ar síns og fjölmenni á prófkjör- sstaðina. Sýnum í verki öfluga liðs- heild sjálfstæðismanna og þýðingu Sjálfstæðisflokksins í forystu í ís- lenskum þjóðmálum. Málaflokkar dóms- og kirkjumála- ráðuneytisins eru umfangsmiklir og krefjast náins samstarfs við stóran hóp fólks. Það hefur verið mér sér- stök ánægja að kynnast öllum þeim fjölda einstaklinga sem daglega leggja mikið af mörkum, oft án þess að áberandi sé, til þess að stuðla að velferð og öryggi í íslensku sam- félagi. Eftir Sólveigu Pétursdóttur Höfundur er dóms- og kirkju- málaráðherra og býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna. „Sýnum í verki öfluga liðsheild sjálfstæð- ismanna og þýðingu Sjálfstæð- isflokksins í forystu í ís- lenskum þjóðmálum.“ Sjálfstæðismenn – tryggjum glæsi- legt prófkjör ÉG STYÐ frambjóðanda sem vill létta skattbyrði fólks og veita fyr- irtækjum og einstaklingum athafna- frelsi. Ég tel að frambjóðandi sem leggur áherslu á að öryggi borgaranna sé forgangsverkefni sé verðugur kostur. Það þarf að einfalda skattkerfið, leggja af ósanngjarna skatt- heimtu eins og eign- ar- og erfðaskatta. Tolla og marg- víslegar hindranir þarf að fella niður. Það þarf að lækka tekju- skattshlutfallið og skoða áhrif jað- arskatta. Hagræðingar er þörf í rík- isfjármálum og forgangsröðunar til málaflokka eins og löggæslu og rétt- arkerfis. Sigurður Kári Krist- jánsson, lögmaður og fyrrverandi formaður SUS, hefur þessi mál að sínum stefnumálum. En hann er ekki bara maður orða heldur at- hafna, það þekkja þeir sem hafa kynnst störfum Sigurðar Kára. Við sjálfstæðismenn verðum að velja sterkan lista, lista fólks með málefni og kraftinn til þess að fylgja þeim eftir. Fáum er betur treystandi til þeirra verka en Sigurði Kára. Sigurð Kára í 7. sætið Haukur F. Leósson skrifar: BJÖRN Barnason er einn of okk- ar merkustu stjórnmálamönnum, kraftmikill, réttsýnn og staðfastur einstaklingur með ríka forystuhæfi- leika. Okkur sjálfstæð- ismönnum og raunar Íslendingum öllum er akkur í því að eiga slíka fulltrúa á Al- þingi og í stjórn- málum yfirleitt. Á Alþingi er mikilvægt að sitji fólk sem við borgararnir treystum til að vinna mál af alúð og festu en jafnframt af virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum. Björn Bjarnason er einn þeirra. Sem náinn samstarfsmaður og síðar aðstoðarmaður Björns í menntamálaráðuneytinu fylgdist ég með Birni takast á við og ljúka fjöl- mörgum verkefnum sem öðrum hafði reynst um megn, ekki hug- kvæmt eða slegið á frest. Ef eitt- hvert eitt hugtak lýsir tíð Björns sem menntamálaráðherra er það „árangur“. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer í dag sækist Björn Bjarnason eftir 3. sæti. Hvet ég flokksfólk í Reykjavík eindregið til að veita honum brautargengi í það sæti. Réttsýnn og staðfastur Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, skrifar: NÚ er gaman að vera sjálfstæð- ismaður, frambjóðendur eru hver öðrum hæfari og getur vart komið annað en góður listi fram, slíkt er mannvalið. Þó er þannig með hvern og einn að hann hallast frekar að einum en öðrum og liggja til þess ýmsar ástæður. Svo er með mig. Ég notast oft við að inna eftir því hverra manna einhver er þegar nokkrir koma til greina. Tveir ungir menn biðja um stuðn- ing í kjörinu og ætla ég að verða við því. Þeir eru Sigurður Kári Krist- jánsson og Birgir Ármannsson, báð- ir úr forystuliði ungra flokksmanna og hertir af vopnaskaki ungliða og áttu báðir góðan feril í SUS. Feðrum þessara heiðursmanna hef ég báðum kynnst; Kristján er duglegur, útsjón- arsamur og fylginn sér. Svo mun einnig með son hans Sigurð Kára. Ármanni heitinn var prúður og gegn maður, en samt fastur fyrir. Svo mun einnig með son hans Birgi. Ég hvet alla miðaldra íhaldsmenn að líta til þessara sómamanna þegar þeir ákveða sig um röðun á listann góða. Tveir góðir Bjarni Kjartansson verkefnastjóri skrifar: GUÐMUNDUR Hallvarðsson gegndi formennsku í þing- mannanefnd um tillögugerð að stefnumarkandi áætlun í öryggis- málum sjómanna. Nefndin fór yfir slysamál sjómanna og gerði tillögur um 18 atriði til úrbóta er varða öryggismál sjómanna. Öll þessi atriði sem nefndin benti á hafa verið tekin upp sem eitt af meginmálum langtímaáætlunar í öryggismálum sjómanna, en sam- gönguráðuneytið gaf út áætlunina sem stefnumarkandi áhersluatriði er varðar fækkun slysa á sjó. Ég hvet alla sem þátt mega taka í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík að setja Guðmund Hallvarðsson í fimmta sætið – því þar fer maður sem lætur málefni sjómanna í land- inu sig varða. Guðmundur vinn- ur að öryggis- málum sjómanna Jóhann Gíslason vélstjóri skrifar: GUÐRÚN Inga Ingólfsdóttir er ung kona með skýra framtíðarsýn sem gefur kost á sér í níunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hún leggur áherslu á að dregið verði úr skattlagningu þegn- anna og allt gert til að einfalda skatt- kerfið, draga úr tví- sköttun og síðast en ekki síst afnema tolla. Tollar eru skaðlegasta form skattlagningar, þeir eru neyslustýrandi, hækka vöruverð á nauðsynjavörum eins og matvælum og fatnaði og eru faldir. Ólíkt virðisaukaskatti sem prent- aður er á kvittanir hefur neytandinn ekki greiðan aðgang að upplýsingum um hversu stór hluti vöruverðsins er tollur. Þess vegna er það svo að fæst okkar gera sér grein fyrir að við borgum samtals um 10 milljarða á ári í gjöld af innfluttum varningi eins og mat og fatnaði. Þetta vill Guðrún Inga afnema og því styð ég hana í ní- unda sætið í prófkjörinu um næstu helgi. Veljum nýja rödd, nýja konu í níunda sæti. Veljum Guðrúnu Ingu. Nýja rödd í 9. sæti Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, verkefnastjóri Auðs í krafti kvenna, skrifar: Prófkjör Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram- bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is. UNDANFARNAR vikur hefur staðið yfir kosningabarátta vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sú barátta hefur verið drengileg og ég hef haft ánægju af því að kynnast betur stuðnings- mönnum flokksins sem og frambjóð- endum. Málflutningur minn hefur einkum beinst að fimm málefnum. Tollum, sköttum, jafnrétti, menntamálum og heilbrigðismálum. Menntun mín er á sviði hagfræði og því hafa efna- hagsmál og þá sérstaklega skatta- mál verið mér hugleikin. Tollar eru að mínu viti tímaskekkja. Þeir valda verðhækkunum og eru neyslustýr- andi. Ég vil afnema þá í skrefum eins og ég hef áður skrifað um hér í blaðinu. Í starfi mínu innan SUS þar sem ég er ritari framkvæmdastjórnar hef ég lagt áherslu á jafnréttismál. Hvetja þarf ungar konur til að vera meira áberandi bæði í atvinnulífinu og í stjórnmálum. Þetta var m.a. markmiðið með stofnun vefritsins Tíkin.is sem ég kom að. Mikilvægt er þó að gera sér grein fyrir því að jafnréttisumræðan nær til fleiri sviða en jafnréttis kynjanna, svo sem skattlagningar einstaklinga. Mikið réttlætismál er að leggja af eignaskatt og erfðafjárskátt, enda í báðum tilvikum um tvísköttun að ræða. Ég tók virkan þátt í starfi Vöku á námsárum mínum. Námslánakerfið er eitt af stærstu hagsmunamálum stúdenta en endurgreiðslur geta reynst þungar þegar þær hefjast tveimur árum eftir að námi lýkur. Þetta er óheppilegur tími því al- gengt er að námsmenn séu um leið að fjárfesta í fyrstu fasteign. Létta á endurgreiðslurnar fyrst í stað og þyngja þær svo smám saman á fimm ára tímabili þar til þær ná full- um þunga sjö árum eftir að námi lýkur. Heilbrigðiskerfið tekur til sín æ meira fjármagn á Íslandi. Mikilvægt er að stemma stigu við útgjalda- aukningu. Verja þarf fénu á mark- vissari hátt og ein leið er að skilja á milli þess aðila sem veitir þjón- ustuna og greiðir fyrir hana. Minnk- uð miðstýring og aukin tækifæri til sjálfstæðs rekstrar heilbrigðis- starfsmanna er lykill að farsælli hagræðingu sem tekur fullt tillit til þarfa sjúklinga. Ungt fólk á ekki marga fulltrúa í þingflokki sjálfstæðismanna og því er mikilvægt að flokksmenn hafi það í huga þegar gengið verður til at- kvæða í dag og greiði ungum fram- bjóðendum atkvæði sitt. Pólitísk reynsla mín úr starfi í Vöku, SUS og skattanefnd Sjálfstæðisflokksins ásamt menntun minni á sviði hag- fræði og fjármála auk reynslu af fjármálamarkaðnum tel ég að muni verða mér styrkur komist ég á þing. Í dag er tækifæri til að kjósa ungt fólk, ekki vegna þess að við erum ung heldur vegna þess að við höfum góða og þarfa hluti fram að færa. Ég býð mig fram í 9. sætið. Í dag er tækifærið Eftir Guðrúnu Ingu Ingólfsdóttur „Í dag er tækifæri til að kjósa ungt fólk, ekki vegna þess að við erum ung heldur vegna þess að við höfum góða og þarfa hluti fram að færa.“ Höfundur gefur kost á sér í níunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. SJÁLFSTÆÐISMENN, nýtum tækifærið til þess að tryggja Sól- veigu Pétursdóttur dóms- og kirkjumálaráðherra forystusæti á lista sjálfstæð- ismanna í Reykjavík fyrir komandi Al- þingiskosningar. Hún er ötull og atorkumikill stjórn- málamaður sem gengur að hverju verki af festu og öryggi. Reynsla hennar og þekking á þjóðmálum hefur birst margsinnis á und- anförnum árum þegar hún hefur tekið á hverju umfangsmiklu málinu á fætur öðru og leyst þau vel af hendi. Ég hef þekkt Sólveigu og fylgst með störfum hennar um ára- bil og skora á alla sjálfstæðismenn að veita henni brautargengi í þriðja sæti listans í dag. Prófkjörið veitir okkur tækifæri til þess að hafa áhrif á val frambjóðenda á listann. Nýtum okkur það! Þriðja sætið fyrir Sólveigu! Guðmundur Jónsson, formaður hverfa- félags Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfis, skrifar: SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra hefur sýnt það og sannað á undanförnum árum að hún er stjórnmálamaður í allra fremstu röð. Síðan hún tók við ráðherraembætti vorið 1999, hefur fjölmargt áunnist í þeim stóru og mörg- um hverjum vanda- sömu málaflokkum sem heyra undir ráðuneytið. Sólveig hefur augljóslega ekki veigrað sér við að setja sig vel inn í málin og taka síðan á þeim af ör- yggi og festu. Verkin tala sínu máli. Í ráðherra- tíð Sólveigar hefur alþjóðlegt sam- starf á sviði löggæslu, tollgæslu og öryggismála verið aukið til muna. Umferðar-, grenndar- og fíkniefna- löggæsla hefur verið efld, ný og betri lög um málefni útlendinga, fasteignakaup og persónuvernd hafa verið sett og svo mætti lengi telja. Ég hvet allt Sjálfstæðisfólk í Reykjavík til að taka þátt í próf- kjörinu og tryggja Sólveigu 3. sætið á listanum. Sólveigu Péturs- dóttur í 3. sæti Þórunn Pálsdóttir fjármálastjóri skrifar: MEÐAL frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er ung kona, Guðrún Inga Ingólfs- dóttir. Hún er hagfræðingur að mennt og hafa stuðningsmenn hennar að und- anförnu auglýst að hún sé ný rödd og nýr styrkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þetta tel ég að séu orð að sönnu. Sjálfstæðisflokkurinn og þjóðin öll þurfa á ungu, duglegu fólki að halda og menntun Guðrúnar Ingu í hagfræði og reynsla hennar úr atvinnulífinu munu gagnast þjóð- inni í framtíðinni. Skoðanir hennar endurspegla þá frelsis- og sjálfstæð- ishyggju sem best er til þess fallin að tryggja hagsæld. Guðrún telur að ekki megi skerða þjónustu í heil- brigðis- og menntamálum, en að skilja verði milli greiðanda og rekstraraðila með því að hvetja til sjálfstæðs rekstrar. Þessar hug- sjónir eru grundvöllur sjálfstæð- isstefnunnar og flokkurinn á bjarta framtíð ef hann ber gæfu til að velja slíkt fólk á þing. Guðrúnu Ingu í ní- unda sætið. Nýr styrkur fyrir Sjálf- stæðisflokkinn Bjarney Sonja Ólafsdóttir handboltakona skrifar:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.