Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 75 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert sjálfstæður og ferð þínar eigin leiðir. Á sama tíma ertu umburðarlyndur. Á komandi ári muntu leggja áherslu á fjölskyldulíf þitt og náin sambönd. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fólk og aðstæður geta sleg- ið þig út af laginu í dag og vakið þig til umhugsunar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú munt gera breytingar í vinnunni eða fagna því að einhver annar geri það. Þú finnur á þér að þessar breytingar verði til batnað- ar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Daður og rómantík liggja í loftinu og geta lífgað upp á daginn. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Atburðir dagsins geta orðið til þess að leysa þig undan skyldum þínum á heimilinu. Þetta veitir þér aukið frelsi til að sinna öðrum málum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert ekki sáttur við hvers- dagslífið. Þú þarft að brjót- ast undan vananum og leita leiða til að gera líf þitt fjöl- breyttara. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Breytingar í vinnunni leysa þig undan hömlum sem hafa haldið aftur af þér. Líttu á þetta sem skref í átt til frelsis. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Óvænt ástarævintýri og skapandi tækifæri geta gert þetta að góðum degi. Njóttu þess sem að höndum ber. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ættir að endurskoða skilgreiningu þína á raun- veruleikanum. Fólk lítur líf- ið misjöfnum augum og þér er frjálst að velja þá sýn sem hentar þér best. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ættir að hlusta á vin sem hvetur þig til að gera eitt- hvað nýtt og ögrandi. Hér hefurðu tækifæri til vaxtar og þroska. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér gefst tækifæri til að sýna nýjar hliðar á þér. Vertu óhræddur við að sýna öðrum hver þú ert. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Láttu ekki fólk draga úr þér kjark til að gera eitthvað nýtt og spennandi. Þú ert tilbúinn að taka áhættuna og víkka sjóndeildarhring þinn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þetta er góður tími til vaxt- ar og þroska. Þú hefur tæki- færi til að læra meira um sjálfan þig en þú hefur gert í langan tíma. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT ÁST OG ÓTTI Gagntekinn, hrifinn, utan við mig enn af æsku þinnar fyrstu munarkossum ég finn í hjarta ást og ótta í senn slá undarlega saman heitum blossum. Þú ert svo björt, svo ung og blíð og góð, önd þín er gljúp sem mjúk er höndin ljúfa. En ég á dökkt og órótt ólgublóð, og ungur sló ég sigg á mína hnúa. Það stingur mig í hjartað eins og ör: Felst ef til vill í bylgjum sálar minnar eitthvað, sem kynni að setja fingraför á fagurhreinan spegil sálar þinnar. Hannes Hafstein Árnað heilla EDDIE Kantar kemur oft með skemmtilegar ábend- ingar. Ein er svona: Ef spil lítur út eins og einspil, hagar sér eins og einspil og lyktar sem einspil, þá eru allar lík- ur á því að um einspil sé að ræða. Norður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 73 ♥ D954 ♦ ÁG73 ♣ÁG5 Suður ♠ 652 ♥ ÁG1087 ♦ K5 ♣K93 Suður verður sagnhafi í fjór- um hjörtum eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður – 1 tígull Pass 1 hjarta 1 spaði 2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu Pass Pass Pass Vestur spilar út spaða- drottningu (ofan af röð) og skiptir yfir í laufdrottningu í öðrum slag. Hvernig myndi lesandinn spila? Á það verður að fallast með Kantar að laufdrottn- ingin ber öll einkenni þess að vera ein á ferð. Og þá er stunga yfirvofandi ef vestur á hjartakóng. Og auðvitað er hjartakóngurinn í vestur, því eftir útspilinu að dæma á austur ÁK í spaða og getur varla átt meiri styrk. Hjartasvíningin kemur því ekki til álita, en það er lítið betra að spila hjartaás og hjarta. Vestur á mjög lík- lega Kxx í trompi, og raunar bendir allt til þess að spilið í heild líti svona út: Norður ♠ 73 ♥ D954 ♦ ÁG73 ♣ÁG5 Vestur Austur ♠ DG1094 ♠ AK8 ♥ K62 ♥ 3 ♦ D1084 ♦ 962 ♣D ♣1087642 Suður ♠ 652 ♥ ÁG1087 ♦ K5 ♣K93 Ef þetta er legan er hægt að klippa á samgang varn- arinnar í spaða. Til að byrja með leggur sagnhafi niður hjartaásinn. Síðan tekur hann tígulkóng, svínar gos- anum, hendir spaða niður í tígulás og líka niður í fjórða tígulinn. Vörnin fær þá slag á tígul í staðinn fyrir spaða, en stunguhættan er liðin hjá. Það er lykilatriði að taka fyrst á hjartaásinn, því ella getur austur stungið í fjórða tígulinn og eyðilagt þannig skærabragðið. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 60 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 25. nóvember er sextugur Þórður Kr. Kristjánsson. Eiginkona hans er Ásta Guðmunds- dóttir. Í tilefni dagsins taka þau á móti ættingjum og vinum á heimili sínu Heið- arbakka 6, Keflavík, á sunnudag frá kl. 16. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 a6 10. O-O-O O-O 11. h4 Rxd4 12. Bxd4 b5 13. h5 Dc7 14. Hh3 b4 15. Ra4 Bxd4 16. Dxd4 a5 17. h6 g6 18. Kb1 Ba6 19. Bd3 Hfc8 20. Df2 Bxd3 21. Hhxd3 Ha6 22. He1 Hc6 23. Hd2 Rc5 24. Rxc5 Hxc5 25. g4 a4 26. f5 b3 27. c3 bxa2+ 28. Kxa2 Hb5 29. fxg6 fxg6 30. Df6 Hb6 31. Hf1 a3 32. b3 He8 33. Hdf2 Hbb8 34. Kxa3 Staðan kom upp á Ólympíu- skákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Bled. Harpa Ingólfs- dóttir hafði svart gegn Dörju Kaps (2224). 34...Da5+! 35. Kb2 Hxb3+! 36. Kxb3 Hb8+ 37. Kc2 Da2+ 38. Kd3 Dc4+ 39. Kc2 De4+ 40. Kc1 Hb1+ 41. Kd2 Hb2+ og hvítur gafst upp enda verður hann mát eftir 42. Kc1 Db1#. Úrslitavið- ureign í bikarkeppni ÍAV og Taflfélags Garðabæjar fer fram í kvöld, 23. sept- ember, kl. 20.00 í húsa- kynnum Skáksambands Ís- lands. Öllum er velkomið að fylgjast með viðureign- inni á staðnum eða á Net- inu. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Hlutaveltur Morgunblaðið/Ragnhildur Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 3.000 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Thelma Rut og Áslaug Dóra. Á myndina vantar Önnu Katrínu. 60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 23. nóvember, er sextug Val- gerður Bjarnadóttir, Hvassaleiti 60, Reykjavík. Í tilefni afmælisins býður hún fjölskyldu, vini og vanda- menn velkomna á heimili sitt kl. 17 á afmælisdaginn. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík YOGA Ný námskeið hefjast 25. nóvember. Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m.a. byggir námskeiðin á sinni eigin reynslu. Tilgangur námskeiðsins er að takast á við daglegt líf að nýju með aðstoð yoga, styrkja sig líkamlega og andlega auk þess að sættast við líkamann. Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar, Bolholti 4, 4. hæð til vinstri. fyrir alla sem eru að ganga í gegnum eða hafa lokið krabbameinsmeðferð Skráning og upplýsingar eru hjá Arnhildi í síma 895 5848. Gallafatnaður Bankastræti 11 • sími 551 3930 Rauðagerði 26, sími 588 1259 Haust – Vetur 2002 Útsala Útsala á vönduðum dömufatnaði í dag, laugardag, frá kl. 10–18. 30-75% afsláttur Stærðir 36-48 Kjólar, pils, peysur, bolir frá kr. 1.800 Verið velkomin Lára Margrét áfram í 5. sæti Kynntu flér stefnumálin á www.laramargret.is e›a hringdu í síma 551 3339 og 861 3298 Næsta námskeið verður haldið á morgun, sunnudaginn 24. nóvember Aðventukransar, hurðaskeytingar og jólaskreytingar. Skráning í síma 555 3932 • Upplýsingar í síma 897 1876 VR-styrkurSölusýning á staðnum Uffe Balslev blómaskreytir Jólaskreytingar í Hvassahrauni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.