Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTKOMANDI þriðjudag mun
líknarfélagið Skjöldur verða með
opið hús á Skólavörðustíg 30 í
tengslum við fyrirhugaða opnun
„Sober-house“-áfangaheimilisins,
1. desember nk. Áfangaheimilið
byggir á 12 spora kerfi AA-
samtakanna og er ætlað þeim sem
vilja sigrast á áfengis- og vímuefna-
fíkn.
Í húsinu verður rými fyrir 18
vistmenn auk íbúða fyrir starfs-
menn.
Heimilismenn hafa aðgang að
lækni og geðlækni en húsið er að
mestu rekið af utanaðkomandi að-
ilum, AA-mönnum og konum.
Áfangaheimilið byggir á starf-
semi Pathfinders Recovery Sober-
house samtakanna sem stofnuð
voru í Bandaríkjunum árið 1950.
Í tilkynningu frá líknarfélaginu
Skildi segir að grundvallarhug-
myndin að baki starfinu sé sú að
óvirkir alkóhólistar og fíklar að-
stoði áfengis- og vímuefnaneyt-
endur við að hætta neyslu. Lögð er
áhersla á að vinna 12 reynsluspor
um leið og líkamlegu jafnvægi er
náð og hefur starfsemi Sober-house
skilað góðum árangri erlendis en
hér sé um nýtt meðferðarúrræði að
ræða á Íslandi.
Þá segir enn fremur um starf-
semi Sober-house:
„Það er áfangastaður alkóhólista
og fíkla og heimili þeirra um níu
mánaða skeið á leið til bata og
virkrar þátttöku þeirra í þjóðfélag-
inu. Það er staðsett í hjarta borgar
en ekki utan alfaraleiðar. Það er
bæði ætlað fólki sem eru langt
gengnir alkóhólistar og fíklar og
hefur ekki tekist að ná valdi á sjúk-
dómi sínum þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir og sjúkrahúsinnlagnir og
einnig þeim sem eru að hefja göngu
sína í 12 spora samtökunum. Mark-
miðið er að sjá þessu fólki fyrir um-
hverfi þar sem þeir fá stuðning til
að tileinka sér 12 spora prógramm-
ið og læra að fylgja meginreglum
þess í lífi sínu og starfi í félagsskap
annarra á sömu braut.“
Í stjórn 12 spora húss Sober-
house eru: Guðjón Egill Guð-
jónsson, Guðrún Ögmundsdóttir,
Haraldur G. Óskarsson, Margrét
Frímannsdóttir, Benedikta Ketils-
dóttir, Magnús Skúlason og Fritz
M. Jörgensen auk 5 aðila sem sitja í
varastjórn.
12 spora hús, Sober-house, á Skólavörðustíg 30 opnað 1. desember nk.
Áfangaheimili fyrir áfengis-
og vímuefnaneytendur
Morgunblaðið/RAX
Hluti af stjórn 12 spora húss, Sober-house, læknar, o.fl . Frá vinstri: Fritz M. Jörgensson meðstjórnandi, Einar Ax-
elsson, læknir hjá SÁÁ, Óskar Hallgrímsson, aðstoðarmaður hjá Sober-house, Haraldur G. Óskarsson ritari, Bene-
dikta Ketilsdóttir meðstjórnandi, Magnús Skúlason, yfirlæknir á Sogni og meðstjórnandi, Margrét Frímanns-
dóttir, alþingismaður og meðstjórnandi, og Guðjón Egill Guðjónsson, formaður stjórnar.
lagna til þingsályktunar, sem liggi fyrir Alþingi
og hann og Jón Bjarnason séu flutningsmenn að.
Önnur tillagan er um úttekt á framtíðarhlutverki
Sementsverksmiðjunnar við förgun spilliefna og
hin um úttekt stjórnvalda á því með hvaða hætti
skuli bregðast við, stundi Aalborg Portland Ís-
landi hf. undirboð á íslenska markaðnum.
Fulltrúar Aalborg Portland, Akraneskaupstað-
ar, Verkalýðsfélags Akraness, starfsmannafélags
Semetsverksmiðjunnar, stjórnar verksmiðjunn-
ar, Samkeppnisstofnunar, Samtaka iðnaðarins og
fleiri sóttu fund iðnaðarnefndar. Árni Steinar
„ÉG lít svo á að ríkisstjórnin þurfi að taka ákvörð-
un um þessi mál á allra næstu vikum,“ segir Árni
Steinar Jóhannesson, þingmaður og fulltrúi
Vinstri-grænna í iðnaðarnefnd, um stöðu Sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi, en að beiðni
hans var í fyrradag haldinn aukafundur hjá
nefndinni til að ræða samkeppnisstöðu Sements-
verksmiðjunnar og það framtíðarhlutverk sem
hún gæti haft varðandi förgun orkuríkra úr-
gangsefna.
Árni Steinar Jóhannesson segir að aðgerða sé
þörf í máli verksmiðjunnar og vísar til tveggja til-
segir að menn hafi skipst á skoðunum og upplýst
nefndina en engin niðurstaða sem slík hafi hafi
fengist. Hins vegar sé ljóst að ríkisstjórnin verði
að bregðast fljótt við.
Bæjarráð Akraness samþykkti ályktun um
Sementsverksmiðjuna á fundi sínum í fyrradag
þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld, ríkisstjórn
og Alþingi „að grípa nú þegar til nauðsynlegra að-
gerða og gera hinum danska sementsframleið-
anda ljóst að tilraunum hans til yfirtöku á sem-
entsmarkaðnum á Íslandi verði mætt af fullri
hörku á meðan hann stundi óeðlilegt undirboð“.
Staða Sementsverksmiðj-
unnar rædd á aukafundi
ÍSLENSKA landsliðið í matreiðslu
hafnaði í níunda sæti á heimsmeist-
aramóti matreiðslumanna sem lauk í
vikunni í Lúxemborg. Íslendingar
fengu silfurverðlaun fyrir heita rétti
og bronsverðlaun fyrir kalda rétti.
Sé eingöngu litið til heitu réttanna
lentu Íslendingar í sjötta sæti.
Nokkrar þjóðir hljóta gull-, silfur-
og bronsverðlaun í hvorum flokki en
að lokum eru það heildarstig sem
ráða úrslitum. Svíar höfnuðu í fyrsta
sæti, Svisslendingar í öðru og Singa-
púrmenn í því þriðja. Á mótinu
kepptu alls rúmlega 700 mat-
reiðslumenn frá 34 löndum.
Að sögn Sturlu Birgissonar lands-
liðsþjálfara hafa Íslendingar unnið
sér þátttökurétt í meistarakeppni
matreiðslumanna sem fram fer í
Basel í Sviss í mars á næsta ári. Þá
mun landsliðið keppa á Ólympíu-
leikum matreiðslumanna sem haldn-
ir verða í Erfuhrt í Þýskalandi árið
2004.
Heimsmeistaramót matreiðslumanna í Lúxemborg
Ísland í
níunda sæti
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hluti af kalda borði íslenska landsliðsins: hrásíld með kartöflum. Geisjan
sem prýðir borðið er úr sykri.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í fyrradag
karlmann á sextugsaldri í 15 mánaða
fangelsi fyrir að hafa þrívegis gerst
sekur um líkamsrárás gegn öðrum
karlmanni og brot gegn vopnalögum.
Fyrst réðst ákærði á manninn í júlí
árið 2000 og tók hann kverkataki.
Mánuði síðar réðst hann aftur á
manninn og tveimur vikum síðar ók
ákærði á hann. Í dómi Hæstaréttar
kemur fram að ákærði sé að skilja
við konu sína sem hefur rekið nudd-
stofu en sá sem varð fyrir árásunum
var um tíma samstarfsmaður hennar
á stofunni. Eftir að hjónin slitu sam-
vistir varð konan fyrir verulegu
ónæði af völdum ákærða og hefur
verið sett nálgunarbann á hann.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Árni
Kolbeinsson og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir. Málið sótti Sigríður Jós-
efsdóttir, saksóknari hjá ríkissak-
sóknara. Verjandi ákærða var
Hilmar Ingimundarson hrl.
Réðst á
mann og
ók á hann
HÆSTIRÉTTUR þyngdi í fyrradag
refsingu héraðsdóms yfir karlmanni
á fertugsaldri og dæmdi hann í 10
mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
gagnvart fyrrverandi sambýliskonu
sinni og manni sem var gestkomandi
á heimili hennar. Einnig var maður-
inn sakfelldur fyrir tvö húsbrot og
eignaspjöll í tvö skipti. Hann hafði
áður verið sakfelldur fyrir líkams-
árás og var litið til þess við ákvörðun
refsingar.
Líkamsárásirnar þóttu hrottaleg-
ar og án nokkurs tilefnis, en þær
voru framdar í beinu framhaldi þess
að maðurinn réðst í heimildarleysi-
inn í íbúð konunnar, í fyrra skiptið í
júlí 2001 að næturlagi, en það síðara í
desember sama árs og var hann þá í
félagi við annan mann.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
áður dæmt manninn í 6 mánaða
fangelsi og til að greiða konunni 125
þúsund krónur í skaðabætur. Hæsti-
réttur staðfesti úrskurð héraðsdóms
um bætur.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Gunn-
laugur Claessen og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir. Verjandi ákærða var
Hilmar Ingimundarson hrl. Málið
sótti Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak-
sóknari hjá ríkissaksóknara.
10 mánaða
fangelsi fyrir
hrottalegar
líkamsárásir
REBEKKA Valsdóttir lífefnafræð-
ingur ver doktorsritgerð sína „The
role of small G proteins in cell org-
anization“ í dag, laugardag 23. nóv-
ember. Doktorsvörnin, sem er við
raunvísindadeild, fer fram í hátíðar-
sal Háskóla Íslands hefst kl. 10. And-
mælendur eru dr. Michael Bornens,
CNRS, París og dr. Bruno Goud,
CNRS, París. Hörður Filippusson
prófessor, deildarforseti raunvís-
indadeildar, stýrir athöfninni.
Ritgerðin í heild fjallar um svo-
kallaða G-hvata og hlutverk þeirra í
starfsemi frumna. Hún tekur einnig
á tveimur ólíkum ferlum innan frum-
unnar.
Rebekka útskrifaðist af náttúru-
fræðibraut Menntaskólans við Sund
árið 1994. Í október 1997 lauk hún
BS-prófi í lífefnafræði við Háskóla
Íslands. Frá 1997 til 1998 vann hún á
rannsóknastofu Jóns Braga Bjarna-
sonar, prófessors á Raunvísinda-
stofnun Háskóla Íslands. Frá 1998
þar til í febrúar árið 2001 vann Re-
bekka að doktorsverkefni hjá dr.
Tommy Nilsson, EMBL, Heidelberg
í Þýskalandi og frá febrúar 2001 hef-
ur hún unnið að doktorsverkefninu
hjá dr. Eric Karsenti, EMBL, Heid-
elberg í Þýskalandi.
Doktorsvörn í
Háskóla Íslands
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
STJÓRN Stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands gagnrýnir harðlega þá ákvörð-
un borgarráðs að hækka leikskóla-
gjöld um 8% frá og með næstu
áramótum. Í ályktun sem stjórnin
hefur samþykkt segir ljóst að breyt-
ingin komi illa við marga, svo sem
námsmenn, en hækkanir á gjaldskrá
Leikskóla Reykjavíkur taki einnig til
barna þeirra.
„Hækkun leikskólagjaldanna er
sögð gefa Leikskólum Reykjavíkur
50 milljónir króna í auknar árstekj-
ur. Furðulegt verður að teljast að
hækka þurfi leikskólagjöldin svo
mikið og svo skömmu eftir síðustu
hækkanir,“ segir í ályktuninni. Skv.
gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur
hækkar námsmannagjald vegna 8
klukkustunda vistunar á leikskóla úr
18.900 kr. í 20.400 kr. um næstu ára-
mót og námsmannagjald fyrir 4
stunda vistun úr 9.200 kr. í 9.900 kr.
Stúdentar gagn-
rýna hækkun
leikskólagjalda