Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 18

Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 18
LEIÐTOGAFUNDUR NATO Í PRAG 18 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0 G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir. Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á www.glitnir.is og fá›u a›sto› vi› a› velja flá fjármögnunarlei› sem hentar best. F T T E R F E T O T P E O P E Sér›u atvinnutæki› sem flig langar í? FYRSTI utanríkisráðherrafundur hins nýja samstarfsráðs NATO og Rússlands var haldinn í Prag í gær í tengslum við leiðtogafund banda- lagsins. Efst á baugi voru gíslamálið í Moskvu og baráttan gegn hryðju- verkum. NATO-ríkin fullvissuðu auk þess Rússa um að ákvörðunum leiðtogafundarins í Prag, sem m.a. samþykkti stækkun bandalagsins „væri ekki beint gegn öryggishags- munum Rússlands eða nokkurs annars samstarfsríkis,“ eins og það er orðað í yfirlýsingu fundarins. Stendur undir væntingum og gott betur George Robertson, framkvæmda- stjóri NATO, lýsti mikilli ánægju með fundinn og sagði hann hafa staðfest að hið nýja samstarf Rúss- lands og NATO, sem samkomulag náðist um á utanríkisráðherrafund- inum í Reykjavík í vor, „stendur undir væntingum og gott betur“. Hann sagði að þá hefðu margir haft efasemdir um að samstarfið myndi skila árangri, en nú hefði komið á daginn að ýmsum samstarfsverk- efnum hefði þegar skilað vel áleiðis. Meðal þess, sem fram kom á ráð- herrafundinum, var að árangur hefði náðst á sviði samstarfs um friðargæzlu á Balkanskaga og í bar- áttunni gegn hryðjuverkum og út- breiðslu gereyðingarvopna. Þá hefði sameiginleg almannavarnaæfing NATO og Rússlands í september skilað árangri og hafin væri vinna við sameiginlega áætlun á sviði eld- flaugavarna, þar sem m.a. væri stefnt að því að samhæfa vopnakerfi NATO og Rússlands. Um málefni Tétsníu sagði Ro- bertson að sterk samstaða hefði verið með Rússum vegna gíslamáls- ins í Moskvu og hefðu allir ráð- herrar NATO-ríkjanna lýst and- styggð sinni og hryllingi vegna árásar hryðjuverkamanna á óbreytta borgara. Hins vegar væru NATO-ríkin þeirrar skoðunar að finna yrði pólitíska lausn á Tétsníu- deilunni. Rússland ekki lengur andstæðingur Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði á fundi með blaða- mönnum að sú „umbreyting“ á her- málastefnu NATO, sem ákveðin hefði verið á leiðtogafundi banda- lagsins, væri fagnaðarefni og yki möguleika á enn nánara samstarfi bandalagsins og Rússlands. Rússneskur fréttamaður spurði Ívanov hvort Rússar hygðust bregð- ast við því, t.d. með því að færa til hersveitir, að landamæri NATO myndu senn færast alla leið upp að „Leníngrad“ – sem nú heitir Sankti Pétursborg. Ívanov svaraði því til að Rússar myndu skoða vandlega allar ákvarðanir, sem teknar hefðu verið á leiðtogafundinum, m.a. ræð- ur og yfirlýsingar einstakra leiðtoga og bregðast við í framhaldinu. „Í þessum yfirlýsingum var lögð áherzla á að NATO lítur nú ekki á Rússland sem andstæðing heldur sem samstarfsríki og að í samein- ingu standi Rússland og bandalagið frammi fyrir nýjum ógnum og við- fangsefnum,“ sagði Ívanov. „Jafn- framt var lögð áherzla á að NATO þyrfti að beina hernaðarstefnu sinni í nýjan farveg, hverfa frá kald- astríðshugsunarhætti og horfast í augu við nýjar ógnir og verkefni nú- tímans. Við lítum svo á að þessari umbreytingu NATO beri að fagna og líta á hana í almennu samhengi alþjóðlegrar viðleitni til að tryggja aukinn stöðugleika og öryggi í heiminum.“ Ívanov sagði að hvað stækkun NATO varðaði, hefði Rússland ætíð verið þeirrar skoðunar að „vélræn“ stækkun bandalagsins, án breytinga á hernaðaráætlunum bandalagsins, væri ekki í samræmi við hugmyndir um öryggi og samstarf á alþjóða- vettvangi. „En ef þessari umbreyt- ingu, sem nú hefur verið tilkynnt, verður raunverulega hrint í fram- kvæmd, ef raunveruleg skref verða tekin til að tryggja nýjan stöðug- leika og samstarf um að mæta nýj- um ógnum nútímans, sömu ógnum og Rússland horfist í augu við, þá eru möguleikar á að samstarfið milli NATO og Rússlands muni áfram vaxa.“ Lettar virði réttindi minnihluta Ívanov lagði áherzlu á að NATO stæði við alla samninga sína við Rússland, og það ætti líka við um nýju aðildarríkin. Hann nefndi sér- staklega CFE-samninginn um tak- mörkun hefðbundins herafla í Evr- ópu, en ýmis Austur-Evrópuríki hafa ekki staðfest samninginn. Í svari við spurningu frá lettn- eskum fréttamanni sagði Ívanov sem svo að samband Rússlands og Lettlands yrði að byggjast á gagn- kvæmri virðingu. Hann lagði hins vegar áherzlu á réttindi rússneska minnihlutans í landinu og sagði að þar sem Lettland væri nú á leiðinni bæði í NATO og Evrópusambandið yrðu menn að vona að þarlend stjórnvöld myndu taka undir sjón- armið beggja þeirra bandalaga um vernd réttinda þjóðarbrota. Rússar fagna „um- breytingu“ NATO Prag. Morgunblaðið. Reuters Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, og Joschka Fischer, starfs- bróðir hans frá Þýskalandi, á utanríkisráðherrafundinum í Prag í gær. ’ Við lítum svo á aðþessari umbreytingu NATO beri að fagna og líta á hana í al- mennu samhengi al- þjóðlegrar viðleitni til að tryggja aukinn stöðugleika og ör- yggi í heiminum. ‘ LEONÍD Kútsjma, forseti Úkraínu, fékk kuldalegar móttökur í Prag í gær þegar hann mætti til leiðtoga- fundar Evró-Atlantshafsráðsins, samkundu NATO-ríkjanna nítján og 27 samstarfsríkja þeirra í Evrópu og Mið-Asíu. Jafnt tékknesk yfirvöld sem forystumenn NATO höfðu gefið skýrt til kynna að Kútsjma væri óvelkominn á fundinn vegna meintra tengsla hans við vopnasölu til Íraks. Einhverjum snillingi hjá NATO hugkvæmdist hvernig gera mætti Kútsjma að hornkerlingu á leiðtoga- fundinum. Í stað þess að raða aðild- arríkjunum upp í stafrófsröð eftir ensku heiti þeirra – þar sem t.d. Bretland og Bandaríkin hefðu lent á eftir Úkraínu í stafrófinu – var ákveðið að raða í stafrófsröð eftir heitum ríkjanna á frönsku. Þannig lenti Úkraína aftast í stafrófinu og Kútsjma þar með úti á enda við fundarborðið. Berlusconi býður heim Ekki var þó einhugur um að ein- angra Kútsjma. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, lék einleik og bauð Kútsjma til fundar á Ítalíu í næstu viku til að ræða hugmyndir Úkraínumanna um NATO-aðild. Berlusconi lét svo um mælt að Úkra- ína væri mikilvægt land og yrði að vera í góðum tengslum við NATO. Sú skoðun var reyndar ítrekuð síðar um daginn, á fundi utanrík- isráðherra NATO-ríkjanna með ut- anríkisráðherra Úkraínu. Þar lögðu NATO-ríkin áherzlu á mikilvægi góðra tengsla við Úkraínu, en um leið voru Úkraínumenn húðskamm- aðir fyrir tengslin við Írak. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins gekk Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, eink- um hart fram. Á fundi Evró-Atlantshafsráðsins var ákveðið að auka samstarf NATO við ríkin, sem um ræðir, ekki sízt á sviði baráttunnar gegn hryðjuverk- um. Rætt var um að þau samstarfs- ríki, sem hefðu til þess vilja og getu, myndu leggja eitthvað af mörkum til aðgerða á vegum NATO. „Við erum að mynda eitt stærsta bandalag í heimi gegn þeirra, sem vilja sá fræj- um ótta í hjörtum landa okkar,“ sagði George Robertson, fram- kvæmdastjóri NATO, á blaðamanna- fundi undir lok leiðtogafundarins. Þeim blaðamannafundi lauk með óvæntum hætti þegar tveir rúss- neskir fylgismenn flokks þjóðern- issinnaðra bolsévika, sem höfðu villt á sér heimildir og þóttust vera blaðamenn, fleygðu tómötum að Ro- bertson og hrópuðu að NATO væri „verra en Gestapo“. Öryggisverðir slógu í skyndi skjaldborg um Ro- bertson lávarð og sneru óróaseggina niður, en af framkvæmdastjóranum datt hvorki né draup. Kútsjma settur aftast í stafrófið Prag. Morgunblaðið. Reuters Leoníd Kútsjma, forseti Úkraínu, á fundi Evró-Atlantshafsráðsins. Ljósmynd/NATO George Robertson, framkvæmdastjóri NATO, Davíð Oddsson forsætisráð- herra og Vaclav Havel, forseti Tékklands, á leiðtogafundinum í Prag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.