Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.11.2002, Qupperneq 34
NEYTENDUR 34 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÚMLEGA 93% munur er á hæsta og lægsta verði á súpukjöti í 1. flokki, samkvæmt nýrri verðkönnun Neyt- endasamtakanna. Könnunin var gerð á frosnu og ófrosnu kjöti hinn 18. nóvember síðastliðinn, bæði á Akur- eyri og í Reykjavík, að því er segir á heimasíðu samtakanna, www.ns.is. Kjötinu var skipt í fjóra flokka, svo- kallaðan úrvalsflokk, blandað- óflokkað, fyrsta flokk og annan flokk og var verðmunurinn innbyrðis 8,4%, 84,9%, 93,9% og 71,6%. Kjötið var frá sex framleiðendum og segja Neyt- endasamtökin ekki hafa verið sjáan- legan mun á gæðum. Hæsta verð á súpukjöti var á kjöti úr úrvalsflokki og kostaði það 1.299 krónur kílóið í Samkaupum í Hafn- arfirði, þar sem því var pakkað í plastbakka. Sama verð var í Úrvali á Akureyri, þar sem neytandinn valdi bita úr kjötborðinu og var kjötið frá Norðlenska/Goða í báðum tilvikum. Ódýrasta kjötið í þeim flokki var einnig selt í Samkaupum í Hafnar- firði, ófrosið, og kostaði 1.198 krónur kílóið. Lægsta verð á súpukjöti í könn- uninni var í Europris þar sem kíló af 2. flokks kjöti frá Ferskum afurðum kostaði 229 krónur, samkvæmt upp- lýsingum Neytendasamtakanna. Að- eins tvær verslanir seldu kjöt úr 2. flokki og kostaði kílóið af slíku kjöti frá Kjötvinnslu KS 393 krónur í Bón- usi. Sama verslun, mismunandi verð? Ódýrasta kjöt í 1. flokki var í versl- un Bónuss á Akureyri, einnig frá Kjötvinnslu KS. Kjöt í sama flokki frá Kjötvinnslu KS kostaði hins veg- ar 499 krónur í Bónusi í Kópavogi. Var það frosið í báðum tilvikum. Dýrasta kjötið í fyrsta flokki var frá Kjarnafæði og kostaði 725 krónur kílóið í 10–11 á Akureyri og í Hafn- arfirði. Í flokknum blandað-óflokkað var dýrasta og ódýrasta kjötið selt í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, hið dýrasta á 736 krónur kílóið og hið ódýrasta 398 krónur. Var hvort tveggja frá Fjallalambi. Kjöt í úrvalsflokki var einnig nefnt sérvalið, eðalkjöt eða valið kjöt og var einkum um að ræða framhryggj- arbita og bógbita. Í flokknum bland- að-óflokkað var um að ræða bestu bita úr 1. og 2. flokki. Sáust þar feitir bitar sem ekki hefðu verið valdir í 1. flokk. Í 1. flokki voru engir hæklar eða hálsbitar og ekki mjög feitir bit- ar. Kjöt í 2. flokki var einungis í tveimur verslunum og er ekki að finna nánari lýsingar á því á heima- síðu NS. „Eftir daginn var samdóma álit okkar að kjöt sem neytendum er boð- ið upp á í kjötsúpuna er fallegt og ákaflega girnilegt og eru engar und- antekningar þar á. Blæbrigðamunur er á 2. flokki og öðrum flokkum en bitarnir ekki verri á afgerandi hátt,“ segja Neytendasamtökin að síðustu. Neytendasamtökin kvörtuðu undan ókræsilegu súpukjöti frá Kjöt- vinnslu KS á dögunum, sem hér sést. Í nýjustu könnun Neytendasamtak- anna virðist hins vegar ekkert slíkt kjöt á boðstólum í verslunum. Allt að 93% verðmunur á súpukjöti RAFTÆKJAVERSLUNIN Expert verður opnuð í dag klukkan 10 í Skútuvogi 2. Fram kemur í til- kynningu frá versluninni að í Ex- pert verði að finna ýmsar nýj- ungar sem ekki hafi þekkst í stærri raftækjaverslunum hér, svo sem innréttingadeild þar sem hægt er að sjá hvernig heim- ilistæki líta út þegar heim er kom- ið, stórt hljóðherbergi þar sem hægt er að kanna hljómgæði í vönduðum hljómtækjum, við- gerðaþjónusta í sama húsi og verslun og aðstaða til þess að tylla sér niður og kíkja í tímarit og skoða bækur, svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið er í eigu Expert Norge ASA sem starfrækir rúmlega 380 verslanir á Norðurlöndum. Ný raftækjaverslun YFIRFERÐ á verðkönnun Baugs í eigin verslunum og sambærilegum búðum í Noregi og Danmörku hefur leitt í ljós nokkrar bagalegar villur, bæði til hækkunar og lækkunar á verði. Verðkönnunin var birt á neyt- endasíðu Morgunblaðsins síðastlið- inn þriðjudag. Verð á sveppum, sem sagðir voru kosta 157 krónur kílóið í Bónusi, án virðisaukaskatts, átti til að mynda að vera 482 krónur án virðisauka- skatts. Verð sem birt var í töflu með fréttinni átti við 250 g öskju. Gul- rætur í Bónusi áttu ennfremur að kosta 174 krónur með vsk., ekki 122 krónur. Kartöflur voru sagðar kosta 122 krónur án vsk. Rétt verð er 52 krón- ur, umrætt verð átti við 2 kílóa poka, svo dæmi séu nefnd. Frávikin frá réttu verði sem til urðu við fram- kvæmd og útreikninga leiddu meðal annars til þess að meðalverð á mat- arkörfu í Bónusi var ekki rétt. Í frétt Morgunblaðsins sagði meðal annars að verð í Bónusi væri að jafnaði 16% hærra en í Netto í Danmörku. Að teknu tilliti til allra leiðréttinga á verði vöruliða í könnuninni, er mun- ur á verði heildarkörfu Bónuss og Netto óverulegur, eða 0,02%, miðað við verð með virðisaukaskatti. Ef miðað er við verð án virðis- aukaskatts er verð á heildarmatar- körfunni tæpum 9% hærra í Bónusi en Netto í Danmörku. Ástæðan er mismunandi virðisaukaskattspró- senta, sem yfirleitt er 14% hérlendis en 25% í Danmörku. Þá skal bent á að verð í töflunni sem birtist á neytendasíðu á þriðju- daginn var er án virðisaukaskatts, sem valdið hefur misskilningi. Loks skal tekið fram að verðkönnunin var gerð 6. nóvember ytra en 15. nóv- ember í verslunum á Íslandi, sem einnig leiddi til misræmis. Lesendur eru beðnir afsökunar á rangfærslum í könnuninni. Athugasemd vegna verðkönnunar KOMNAR eru á markað fiskibollur í neytendaum- búðum frá Grími kokki í Vestmannaeyjum. Fiskibollurnar eru fulleldaðar og þær þarf því ein- ungis að hita á pönnu, í ofni eða ör- bylgjuofni í þrjár mínútur. Fram- leiðandi er Karató í Vestmanna- eyjum og eru bollurnar til sölu í öllum helstu stórmörkuðum, að því er fram kemur í tilkynningu. NÝTT Gríms fiskibollur MÓAR fuglabú hf. hafa sett á markað þrjá nýja rétti í vörulínu með fullsteikta kjúk- linga. Um er að ræða kjúklinga Gordon Bleu sem eru með skinku og osti, Partýbollur, það eru litlar kjúklingakjötbollur sem henta vel með hvaða sósu sem er, eða sem pinnamatur eða snakk. Kjúklinga Gordon Bleu NÓI Síríus hefur sett á markað þrjár nýjar vörutegundir. Um er að ræða súkkulaði- húðaðar rúsínur í 500 g öskju sem annars vegar eru með Síríus rjómasúkkulaði og hins vegar með dökku Síríus Kons- um súkkulaði. Einnig má nefna trompbita í pokum og loks súkkulaði fyrir sælkera, Síríus 70%. „Nafnið vísar til þess að kakóinnihald er 70% en í hefðbundnu súkkulaði er það mun lægra. Þetta súkkulaði er úr sérvöldu hráefni sem er bæði hent- ugt til matargerðar og sem átsúkku- laði,“ segir í tilkynningu frá fyrir- tækinu. Síríus 70% er í 100 g plötum. Dökkar rús- ínur frá Nóa MÓAR fuglabú kynna í þriðja lagi fullsteikt niðurskorið kjúklingakjöt í strimlum sem hentar vel í mexíkóska rétti, salöt, með pasta, í pítsur, samlokur, lasagne og fleira. Fyrir eru Móar með kjúklingabollur, kjúklinganuggets, kjúklingasnitsel og kjúklingahamborgara. Þá má nefna steikta vængi, „BBQ“-leggi og „Spare ribs“. Um er að ræða fulleldaðar vörur sem einungis þarf að hita og eru því fljótlegar og þægilegar í meðför- um, segir í tilkynningu frá Móum. Kjúklinga- strimlar ÍSLENSKIR tómatar verða á boðstólum í allan vetur og mun þetta vera í fyrsta skipti sem þeir fást allan ársins hring, að því er segir í tilkynningu frá Sölu- félagi garðyrkjumanna. Þrjár garð- yrkjustöðvar á Flúðum, það er Jörvi, Melar og Friðheimar hafa ákveðið að rækta tómatana í vetur með raflýs- ingu, segir ennfremur, og er haft eft- ir einum garðyrkjubændanna að sömu gæði fáist út úr þessari ræktun og að sumri til. Íslenskir tóm- atar í vetur LISTIR TVÆR sýningar verða opnaðar í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14–16, í dag, laugardag, kl. 15.00. Haraldur (Harry) Bilson opnar sína sjöundu einkasýningu hér á landi. Þar eru ný olíumálverk og heitir sýningin Lífs- gleði, en nafnið valdi listamaðurinn í tilefni þess að hann hefur náð sér eftir erfið veikindi. Haraldur Bilson er heims- hornaflakkari og hefur dvalist víða um heim við listsköpun sína. Frá árinu 1969 hefur hann sýnt verk sín í virtum listýningarsölum í fjölmörg- um löndum, í nánast öllum heims- álfum. Hann leggur þá ávallt mikla áherslu á íslenskan uppruna sinn. Bjartir litir, mannmergð, hestar, fuglar, trúðar og blöðurur einkenna myndir Bilsons á sýningunni í Fold. Myndirnar eru málaðar á síðustu átján mánuðum. Haraldur Bilson segist verða fyrir áhrifum af öllum sköpuðum hlutum á ferðum sínum um heiminn. „Í Kína halda sumir að ég sé kínverskur málari, í Banda- ríkjunum halda menn að ég sé einn af þeim, og í Frakklandi halda menn mig franskan. Mér finnst ég heppinn að flestar myndir mínar eru þess eðlis að þær gætu verið upprunnar hvaðan sem er. Þegar fólk spyr mig hvað myndirnar merkja, þá segi ég að þær geti merkt hvað sem er, það er persónuleg sýn hvers og eins sem ræður.“ Haraldur Bilson er augljóslega hreykinn af íslenskum uppruna sín- um, og segist njóta þess mjög að dvelja hér. Hann veiðir silung, fer í gönguferðir og sund og fór jafnvel í túr á handfærabáti á Suðureyri til að komast nærri uppruna sínum. Hann er líka viss um að ef Íslending- ar og Englendingar myndu keppa í fótbolta, myndi hann halda með Ís- lendingum. Íslenski maturinn er honum líka að skapi; hann kann að meta einfaldleika hans, svo sem soðna ýsu með soðnum kartöflum, og einn af uppáhaldsveitingastöðun- um hans er Múlakaffi. Á ferðum sín- um um landið er hann ætíð með mál- aradótið í bílnum og stoppar gjarnrn og tjaldar til að geta sest niður og málað. „Þá er ég ekki endi- lega að mála það sem fyrir augu ber, - ég er með alls konar hugmyndir í höfðinu og mála hvað sem er. Ég ætla til dæmis á eftir að fara bein- ustu leið upp á hótelherbergið mitt, því ég er í mjög skapandi ham þessa stundina.“ Á sama tíma og sýning Haraldar verður opnuð, hefst einni sýning í salnum Ljósfold á ljósmyndum frá Reykjavík sem Guðmundur Hann- esson ljósmyndari tók fyrir og eftir 1950 og nefnist hún Reykjavíkur- minningar. Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari hefur unnið myndirnar eftir filmum Guðmundar, en þær eru nú í eigu Ljósmyndasafns RTH/ Arctic Images. Guðmundur Hanneson lærði ljós- myndun hjá Óskari Gíslasyni ljós- myndara og lauk námi 1934. Hann var lengstum með eigin ljósmynda- sofu, en rak einnig fyrirtækið Edda- foto sem sérhæfði sig í póstkortaút- gáfu. Guðmundur lést árið 1987. Sýningarnar standa til 8. desem- ber. Opið er í Galleríi Fold daglega frá kl. 10–18, laugardaga til 17 og sunnudaga kl. 14–17. Harry Bilson: Red or White. Óður til lífsins í olíuverkum Listasafn Íslands Málþing um stöðu íslenskra listamanna og al- þjóðleg tengsl myndlistar verður kl. 11–13. Stjórnandi: Dr. Ólafur Kvar- an safnstjóri. Pallborðsumræður að erindum loknum. Þingið er í tengslum við sýninguna Íslensk myndlist 1980–2000 sem nú stendur yfir í safninu. Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18 Lesið úr nýjum barnabókum í barnadeildinni kl. 11: Marta smarta eftir Gerði Kristnýju, Ljósin í Dimmuborg eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Lúsastríðið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur. Nemendur Tónlistarskóla FÍH halda tónleika kl. 14 í Norræna hús- inu og eru þeir haldnir í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem var sl. laugardag. Fram koma píanó, söng og gítarnemendur og flytja íslenska dagskrá. Aðgangur er ókeypis. Gallerí Tukt, Hinu húsinu Margrét Rós Harðardóttir nemandi við LHÍ opnar sýningu kl. 16. Þar sýnir hún verk unnin með blandaðri tækni. Margrét Rós er á lokaári við mynd- listardeild skólans. Sýningin stendur til 8. desember. Edinborg, Ísafirði Hin árlega bók- menntavaka ,,Opin bók“ verður haldin í Menningarmiðstöðinni kl. 16. Már Jónsson flytur erindi og lesa upp úr bókinni Til merkis um mitt nafn en ritið er samantekt hans á dómabókum Markúsar Bergssonar sýslumanns Ísafjarðarsýslu 1711– 1729. Sigurbjörg Þrastardóttir les úr verðlaunabók sinni, Sólar sögu, Örn Bárður Jónsson úr smásagna- safninu Íslensk fjallasala og fleiri sögur og Andri Snær Magnason úr nýrri bók sinni Lovestar. Þá les Harpa Jónsdóttir úr bókinni Ferðin til Samiraka sem hlaut barna- bókaverðlaunin í ár og Þorsteinn Guðmundsson úr Hundabókinni. Í DAG 100. SÝNING á Karíusi og Baktusi verður í Þjóðleikhúsinu í dag kl. 14. Í tilefni dagsins munu þeir einnig bregða á leik ásamt öðrum gestum kl. 16.30 á tröppum Þjóðleikhússins. Karíus og Baktus hafa gert víð- reist á liðnu ári og heimsótt fjöl- margra leikskóla og stofnanir. Það eru þau Brynhildur Guðjóns- dóttir og Stefán Jónsson sem fara með hlutverk Karíusar og Baktusar. Síðar þennan sama dag munu Karíus og Baktus svo taka á móti árlegri jólaljósagöngu Laugavegssamtak- anna á tröppum Þjóðleikhússins. Búast má við jólasveinum, sem taka forskot á sæluna. 100. sýning UNNENDUM rafrænnar tónlistar gefst tækifæri á að hlýða á bresku raf-þrenninguna Artificial Paradises ásamt íslenskum gestum í Nýlista- safninu við Vatnsstíg 3 í kvöld kl. 21 og á morgun. Sveitin, sem skipuð er Martin Howse, Kirsten Reynolds og Jonathan Kemp, hefur starfað í tvö ár og er þekkt fyrir að endurnýta út- runninn tölvubúnað og fremja ferska raftóna. Þau hafa unnið með hinni þekktu sveit Suicide og flutt tónlist sína víðsvegar um heiminn og má nefna þekktar tónlistahátíðir eins og „Electrohype“. Rafþrenning í Nýló
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.